Sunnlenski matgæðingurinn 24. nov. 2011
Sigrún Hlöðversdóttir á Bíldsfelli er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna
Mér þykir þú sýna mér mikið traust Leifa en það er alltaf gaman að elda góðan mat og ég tala nú ekki um að baka. Þessi kjúklingauppskrift er mjög vinsæl í fjölskyldunni og er líka einföld í matreiðslu.
Bakaður Pesto kjúklingur
í eldföstu móti.
1 kg kjúklingabringur
2 krukkur rautt pestó (Filippio)
1 krukka Dalafetaostur
Kjúklingakrydd
Takið eldfasta mótið og smyrjið að innan með matar-olíu til að kjúklingurinn festist ekki eins við. Síðan eru bringurnar skornar í tvennt, raðað í mótið og kryddað yfir með kjúklingakryddi.
Olían er sigtuð frá feta-ostinum og sett í mat-vinnsluvél ásamt pestóinu.
Síðan er blandan smurð vel yfir bringurnar í fatinu, (gott að vera í einnota hönskum).
Rétturinn er síðan bakaður í ofninum í ca. 1 klst.
Með þessu er gott að hafa hrísgrjón, ferskt salat og á mínum bæ er ómissandi að hafa djúpsteiktar parísar-kartöflur líka.
Þegar maður hefur borðað góðan mat og er orðinn passlega saddur þá er ómiss-andi að fá sér sætan eftirrétt . Ég læt fylgja með uppskrift af einum góðum rétti hvort heldur til að hafa sem meðlæti í kaffinu eða sem eftirrétt.
Himneskt góðgæti
Marengsbotn:
3 eggjahvítur
1 ½ dl púðursykur
1 dl sykur
2 stórir bollar Rice Krispies
Eggjahvítur, púðursykur og sykur þeytt saman, síðan er Rice Krispies hrært saman við. Sett á bökunarplötu og bakað við 150° í 60 mín. (Gott að hafa botninn aðeins mjúkan)
Súkkulaðisósa:
200 gr Síríus suðusúkkulaði
1 dl rjómi
Sett í pott og hitað þar til súkkulaðið er bráðnað. Kælið.
Rjómakrem:
½ l rjómi
3 eggjarauður
5 msk flórsykur
Eggjarauður og flórsykur þeytt vel saman, rjóminn þeyttur sér og öllu hrært saman
Marengsbotninn er brotinn í stykki og settur í mót. Súkkulaðisósunni er hellt yfir og rjómakreminu smurt þar yfir. Gott að geyma yfir nótt í kæliskáp.
Áður en kakan er borin fram er gott að skreyta hana með ferskum ávöxtum.
T.d jarðarber, bláber, kíví, rifsberjum ofl.
Njótið vel.
Mig langar til að skora á vinkonu mína Ragnheiði Hergeirsdóttur, hún lumar örugglega á einhverju gómsætu til að matreiða eða baka.




