Sunnlenski matgæðingurinn 27. okt. 2011
Kolbrún Björnsdóttir á Selfossi er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna
Þar sem ég er bara heimavinnandi og hef ekkert að gera, þá var bara gaman að fá að vera matgæðingur Suðurlands;) ég hef mjög gaman af að elda, baka og borða. Því miður erfði ég ekki nákvæmnina frá móður minni, þannig það var pínu vesen að koma með uppskrift sem hægt er að fara eftir, en ég vona að þetta bragðist ágætlega! Þegar ég elda þá þarf ég alltaf að breyta eitthvað smá. Ég elda oftast (alltaf) hér á þessu heimili, þar sem ég og börnin vorum orðin frekar leið á eggjakökum og búðingi a'la Sveinn. Kjúklingarétturinn sem ég valdi er í uppáhaldi hér á heimilinu, og það besta er að mareneringin er einnig hægt að setja á silunga og laxaflök sem eru svo grilluð.
Kjúklinganúðluréttur
Skera niður 5 stk. af kjúklingabringum í hæfilega bita
Leggja þær í marineringu í helst klst
Marinering
3 – 5 rif hvítlaukur
4 cm engiferrót
½ - 1 dl soyasósa
½ - 1 dl terriakysósa
Kjúklingurinn er svo steiktur á pönnunni (marineringin má fara með) á meðan læt ég 4 pakka af núðlum (hægt að nota hvernig núðlur sem er) í pott með kryddinu sem fylgir og vatni og læt suðuna koma upp og slekk þá undir. Því næst er grænmeti skorið niður og má það vera allt sem þig lystir. Ég nota yfirleitt gulrætur, blómkál, brokkál og paprikku og magnið er alveg undir þér komið ;)
Grænmetinu er skellt á pönnuna og steikt með kjúllanum og núðlunum er svo smellt út í og þá er rétturinn tilbúinn (það sem þarf að passa er að kjúklingurinn sé steiktur, og að steikja grænmetið ekki of mikið því það er gott að það sé smá hart undir tönn og núðlurnar mega vera pínu harðar þegar þær fara á pönnuna svo þær maukist ekki).
Ég ákvað að láta ykkur svo fá uppskrift af ferskri skyrköku sem er alltaf í miklu uppáhaldi
1 kassi Lu kanilkex
1 ½ stór dós Kea vanilluskyr
½ l rjómi
Ávextir að eigin vali og mikið af þeim
Maður byrjar á að mylja allan kexpakkan og setja í botn á formi, mér finnst fallegast að hafa það gler, svona upp á lúkkið. Því næst er að þeyta rjómann og hann þarf ekki að vera alveg stífþeyttur. Gott er að hræra aðeins skyrið áður en því er blandað við þeytta rjóman, því næst er rjómaskyr blöndunni dreift yfir kexið og svo eru ávextir skornir niður í litla bita og dreift yfir og mér finnst best að hafa mikið af ávöxtum, það sem ég nota yfirleitt er jarðarber, bláber, kíví, mangó, vínber.
Og til að toppa þetta þá set ég Nóa kropp yfir í lokin.
Verði ykkur að góðu ;)
Ég ætla að skora á vinkonu mína hana Dóru Þórsdóttur á Selfossi, ég er viss um að hún verður ekki lengi að hrista fram úr erminni einhverjar góðar uppskriftir ;) þegar maður fer í kaffi til Dóru fer maður aldrei svangur heim.




