Sunnlenski matgæðingurinn 20. okt. 2011
Sólveig Indriðadóttir og Björn Sverrisson á Selfossi eru sunnlensku matgæðingarnir þessa vikuna
Inga mín, ég þakka þér fyrir áskorunina. Ég man ekki eftir að þú hafir verið í mat hjá mér nema kannski þegar við vorum að vinna saman í mötuneytinu. Ég er ekki mikið fyrir að prófa nýja rétti en Bjössi er mikið fyrir það (einu sinni lét hann reykja fyrir sig lambshjörtu og bauð fólki sem kom í mat til okkar að smakka. Þið hefðuð átt að vera viðstödd og sjá svipinn á þeim þegar þau vissu hvað þau voru að borða). Þegar hann prófar í fyrsta skiptið borðar hann einn því ég er eða var matvönd en er að lagast með árunum er ekki sagt að bragðskynið minnki með árunum. Það sem okkur Bjössa datt í hug er ítalskur kjúklingur. Þennan rétt höfum við notað í fjölda mörg ár og er hann alltaf jafn vinsæll hjá börnum og barnabörnum. Þið athugið að fara nákvæmlega eftir uppskriftinni (ekkert „DASS“)
Ítalskur kjúklingur.
1 kjúklingur (í seinni tíð kaupum við læri)
50 gr. smjör
2 tsk. season all
1 tsk. ítalían seasoning
½ tsk. salt
¼ tsk. svartur mulinn pipar
1/8 tsk. hvítlauksduft
1 bolli mjólk
1 bolli tómatdjús
1 msk. hveiti
2 msk. vatn
Skerið kjúklinginn í bita, takið húðina af og brúnið á öllum hliðum í smjöri. Blandið kryddi, mjólk og tómatsafa og hellið yfir kjúklinginn. Látið krauma í 45 mínútur. Takið kjúklinginn upp. Jafnið sósuna með hveiti og vatni hristu saman. Látið sjóða þar til sósan þykknar. Borið fram með soðnum hrísgrjónum. Má einnig nota hvítlauksbrauð og hrásalat.
Þá þykir okkur rétt að bjóða ykkur upp á franska lauksúpu sem Bjössi eldar oft og frystir afgang í mátulegum skömmtum og skellir í örbylgjuna og hitar
Frönsk lauksúpa
1 msk. smjör
2 msk. ólífuolía
4 laukar sneiddir
2 – 4 hvítlauksrif, smátt skorin
1 tsk sykur
½ tsk. timían
2 msk hveiti
½ bolli hvítvín (við notum mysu)
8 bollar kjötsoð
Franskbrauð
Laukurinn er mýktur vel í olíu og smjöri. Þá er hvítlauk, sykri og timían bætt saman við. Látið malla í um 30 mín. Eða þar til laukurinn er farinn að brúnast. Hveiti hrært vel saman við laukblönduna, þá er mysunni blandað saman við og allt hrært mjög vel. Kjötsoðið fer því næst í pottinn og allt látið malla í 45 mín. Rifnum osti stráð yfir hvern disk og fransbrauðsneið með osti sett ofan á.
Verði ykkur að góðu.
Okkur langar að skora á dóttur okkar, hana Kolbrúnu Björnsdóttur á Birkivöllum 17 að snara fram góðum uppskriftum en hún er ótrúlega hugmyndarík og til í að prófa allt.



