Sunnlenski matgæðingurinn 2. ágúst
Signý B. Guðmundsdóttir er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna.
Þakka Öglu fyrir áskorunina en hún er frábær kokkur og bakar dýrindis hnallþórur. Ég ætla að bjóða upp á rétti þar sem ég get nýtt hráefni frá mér eða grænmetisbændum úr nágrenninu. Aðalatriðið er „nýtt og ferskt“. Ég er eins og Agla ég mæli aldrei neitt, hef þetta bara umþað bil.
Forréttur - grafinn lax
Flakið nýveiddan Hvítárlax og beinhreinsið.
Blandið öllum þurrefnum saman og hyljið flakið og látið standa í ísskáp yfir nótt.
4 msk. salt
1 tsk. sykur
1 msk. fennikkuduft
1/2 búnt koríander
½ tsk. hvítur pipar
1 ferskt búnt af dilli
Borið fram með ristuðu brauði og graflaxsósu.
Aðalréttur - grillaður Hvítárlax
Flakið og beinhreinsið nýveiddan lax og leggið á tvöfaldan álpappír, kryddið með salti og sítrónupipar.Pakkið fiskinum inn og grillið í nokkrar mín. allt eftir stærð flaksins.
Laxinn ber ég fram með nýuppteknum kartöflum, Skálholtsblöndu salati frá Hveratúni, piparsósu eða annari sósu og kúskús-fylltum tómötum.
Kúskús fylltir tómatar
10 stórir og velþroskaðir tómatar, sker lok ofanaf þeim og tek innanúr þeim og set í skál. Tek 3 dl kúskús og fylgi leiðbeiningum á pakka. Blanda því sem ég tók innan úr tómötunum saman við kúskúsið og sítrónusafa. Fylli tómatana með þessu og skelli nokkrum fetaostbitum ofan á hvern tómat set inn í ofn á 180° í 20-25 mín.
Eftirréttur- frönsk súkkulaðikaka
175 gr. smjör
175 gr. suðusúkkulaði brætt saman í potti við vægan hita
180 gr. sykur
3 eggjarauður bætt út í pottinn og hrært
1 dl valhnetur brytjaðar
60 gr. hveiti
1 tsk. kaffiduft bætt út í pottinn og hrært. Stífþeyti eggjahvítur og blanda varlega saman við.
Baka í 1 klst við 150°C.
Borin fram volg með hindberjarjóma.
----------------------------------------------------------
Ég skora á vinkonu mína Helenu Hermundardóttur frá Friðheimum að koma með einhverja af sínum góðum réttum.




