Sunnlenski matgæðingurinn
Sunnlenski matgæðingurinn 12. júlí
Sunnlenski matgæðingurinn 12. júlí
Grímur Þór Grétarsson frá Syðri-Reykjum er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna.
Ég þakka Dodda fyrir áskorunina og kem hér með uppskriftir sem ég treysti mér til að gera, og er í uppáhaldi hjá barnabörnunum.
Ritzkexbollur:
500 gr. nautahakk
1. stk egg
100 gr. mulið Ritzkex
1/2-1. pakki Púrrulaukssúpa
Blanda öllu saman í hrærivél og hnoða saman búa síðan til litlar bollur og setja á bökunarplötu í 180 C í 15-20 mín.
Meðlæti:
Íslenskar kartöflur, íslenskt grænmeti og brúna pakkasósu sem getur ekki klikkað.
Eftirréttur:
Brytja niður ferska ávexti t.d. banana, jarðarber, bláber, kíwí, epli og hafa með þessu þeyttan rjóma.
------------------------
Ég ætla að skora á vinkonu mína Öglu Snorradóttur sem býr í Vegatungu að koma með næstu uppskrift




