Fimmtudagur, 23. maí, 2013
   
Letur

Sunnlenski matgæðingurinn 21. júní

Egill Guðjónsson er sunn­­lenski mat­­gæð­ing­urinn þessa vikuna.


Heilir og sælir matarunn­endur, ég verð víst að þakka frænda mínum og sjóaranum Ægi fyrir þessa áskorun. Enda ætla ég að bjóða ykkur uppá mitt uppáhaldsfæði.
Úrbeinað lambalæri frá vatnleysu (sér valið)  með öllu tilheyrandi.

Hráefni: Eitt stykki lamba­læri (vænt), dass af kartöfl­um, 1 stk piparostur, 1 bakki af flúðasveppum, 1 pakki villt Toro sósubréf, 1/2 ltr. rjómi, 1 ltr. mjólk og grænmeti að eigin vali,

Aðferð: Úrbeinið lærið, kryddið vandlega með steikar og grillkryddi og lamb­islandus (pottagaldrar), skerið lærið í tvennt skutlið því á vel heitt grill i ca. 5-7 mín. hvor hlið til að loka því setjið svo til hliðar í minni hita og snúið reglulega í 40-60 mín. fer eftir þyngd.  Saxið 1 kg af kartöflum í bita steikið á pönnu með ólívuolíu salti og pipari og smá oregano, skellið í eldfast mót og inn í ofn við 150 gráður í ca 30 mín.

Sósan: Bræðið piparostinn í potti með smá mjólk, skellið svo sósubréfinu útí, smjör­steikið sveppina og skellið þeim útí látið krauma í nokkrar mín. Ljúffeng steik sem krefst engra aukarétta nema nærveru góðra vina og gott tungl­skinsglas í glóaldinsafa, skemmir ekki stemninguna.

Njótið vel.

----------------------------------------------

Ég ætla að skora á digra verktakann, vin minn og vinnuveitanda Dodda drifskaft, Þórarin Kristinson frá Fellskoti  að koma með uppskrift næst.

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson