Föstudagur, 24. maí, 2013
   
Letur

Sunnlenski matgæðingurinn 7. júní

Ívar Guðmundsson er sunn­­lenski mat­­gæð­ing­urinn þessa vikuna


Góðan og blessaðan daginn. Ég vil byrja á að þakka búfræðingnum og vini mínum Klemma fyrir áskorunina og tek ég henni fagnandi.
Þar sem sumarið er komið kem ég með læri á grillið.

Rauðvínskryddað lambalæri
½ flaska rauðvín
½ dl ólífuolía
½ dl sojasósa
2 stk. laukar
2 msk. rósmarin


Aðferð:
Saxið laukinn og rósmarinið og blandið öllu vel saman. Setjið kjötið í löginn og látið standa í einn sólarhring. Athugið að gott er að setja allt í plastpoka og velta því fram og til baka nokkrum sinnum.
Setjið lærið á funheitt grillið og brúnið vel á öllum hliðum. Lækkið þá hitann og setjið lærið á efri grind og eldið í ca. 60 mín, en það fer eftir því hversu heitt grillið er. Best er að vera með kjöthitamæli og fara uppí c.a 60 til 65°c hita. Látið kjötið standa í c.a 15 mín áður er það er skorið niður.

Sósa
1/2 lítri rjómi
1 stk. piparostur
1 stk. lambakraftsteningur
1 msk. rifsberjahlaup
Smá dass af rauðvíni


Aðferð:
Setjið rjómann í pott, rífið niður piparostinn, bræðið ostinn saman við rjómann og setjið svo restina útí og látið sjóða í 10 mín. Ef menn vilja ekki hvíta sósu má lita hana brúna með þar til gerðum sósu- lit, meðlæti skal vera grillaðar kartöflur og klettasalat og að ógleymdum Ora grænum og rauðkáli og þeir alhörðustu fá rabarbarasultu.
Drekka með þessu skal restina af rauðvínsflöskunni og ekki hika við að opna aðra ef þarf þeir sem ekki vilja rautt fá kók eða vatn
Í eftirrétt skal vera súkku­laði­ís. kókosbolla. blandaðir ávextir. og rjómi sett í stóra skál.
Verði ykkur að góðu.

----------------------------------------------------------

Ég ætla að skora á sjóarann síkáta og gleðysveyninn Ægi Óskar Gunnarsson, en Ægir er mikill sælkeri og verður ekki í vandræðum með að töfra eitthvað fram á milli sjóferða.

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson