Sunnlenski matgæðingurinn 31. maí
Klemenz Karl Guðmundsson er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna
Heil og sæl. Ég vil þakka Óskari kærlega fyrir áskorunina og tekst á við hana glaður í bragði.
Ég ætla að kynna fyrir ykkur eðaluppskriftina Cajun tarfinn.
Hráefni:
500-800 gr nautakjöt
Grillkrydd eftir smekk
Cajun mix
Smá grillolía
Paprikuduft
Salt
Pipar
Aðferð:
Blandið kryddinu saman við grillolíuna í stórum poka, setjið eina kjötsneið í pokann í einu, lokið og hristið vel. Endurtakið aðferðina við allar kjötsneiðarnar. Grillið við háan hita í 2-3 mínútur á hvorri hlið, jafnvel lengur ef sneiðarnar eru mjög þykkar. Berið fram með pakka-piparsósu, kartöflusalati og þurrfrönskum, jafnvel fersku salati líka ef vel liggur á ykkur.
Eftirréttur:
Ábrystir eru ein vanmetnasta mjólkurafurð heims en eru stórgóður eftirréttur.
Hráefni:
Broddmjólk, salt 1 tsk í lítra
Aðferð:
Takið sunnudagsrúnt og komið við á kúabúum sem á vegi ykkar verða og falið svona 1-2 lítra af broddi, borgið uppsett verð frá bónda án múðurs.
Setjið vatn í stóran pott og broddinn í minni pott, látið svo litla pottinn ofan í stóra pottinn og sjóðið þar til broddurinn er hlaupinn.
Setjið vænan slurk í skál og stráið kanilsykri yfir, hellið mjólk eða rjóma út á og smass, þetta er klárt.
Verði ykkur þetta svo allt saman að góðu.
------------------------------------------------------------------------------------
Ég ætla að skora á trymbilinn, torfærukappann og gleðysveyninn Ívar Guðmundsson að malla eitthvað sniðugt í landann.




