Sunnudagur, 19. maí, 2013
   
Letur

Sunnlenski matgæðingurinn 24. maí

Óskar Ingvi Sigurðsson er sunn­lenski mat­­gæð­ing­urinn þessa vikuna


Ég vil þakka Gleðysveyn­inum Reiðhróknum og Trallanum Árna Sig-Fusion fyrir að koma mér á framfæri.
Það sem ég ættla að bjóða uppá er

Túngnablesi
Þetta er veisla sem eg kasta ósjaldan fram fyrir heiðurs­menn. Njótið.

800 g folaldalundir
30 stk. græn piparkorn,  
niðursoðin, Opies
3 dl rjómi
2 msk koníak
2 msk ólífuolía
2 msk sinnep
Nautateningur eða annað  
kjötsoð
Pipar, svartur
Salt
Hitið olíuna og steikið piparkornin létt. Hellið koníak­inu út í og berið að því eld. Hellið rjómanum út í og hrærið sinnepið saman við. Bætið við kjötkrafti og kryddið með salti ef með þarf. Kryddið kjöt­sneiðarnar með salti og pipar. Steikið þær á pönnu í um 2 mínútur hvoru megin.

Kjötið er svo borið fram með sósunni ásamt kartöfl­unum og grænmeti.

Í eftirrétt
Royal’s
Blandað er súkkulaði- og karmellubúðing saman með mjólk. Takið vel á þeytaranum í ca. 2 mín. Skutlið svo þessu í glös.
Þegar búðingurinn er klár þá skellið þeyttum rjóma ofan á.  Ekki skemmir fyrir að eiga súkkulaðispæni.

Verði ykkur að góðu.

------------------------------------------------

Ég skora á búfræðinginn og Gleðisveyn Klemenz Karl Guðmundsson að töfra eitthvað fram.



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson