Mánudagur, 20. maí, 2013
   
Letur

Sunnlenski matgæðingurinn 16. maí

Árni Sigfús Birgisson er sunn­lenski mat­­gæð­ing­urinn þessa vikuna.


Þetta verður geymt en ekki gleymt, Stína mín. Það sem ég ætla að bjóða uppá eru fylltar kjúklingabringur bornar fram með fersku salati og kaldri mango-chutney sósu. Vil taka það fram að þennan rétt lærði ég að elda hjá góðum vinum og ég kann mjög vel að meta hann, fyrir það eitt að hann er fljótlegur, þægilegur og mjög bragðgóður.

Fylltar kjúklingabringur:
Fjórar stórar bringur
Ein stór rauð paprika
Einn rauðlaukur
Eitt box af sveppum
Ein krukka fetaostur


Allt þetta hérna nema feta-osturinn er skorið smátt niður, skellt á pönnu og brasað létt saman. Síðan er bringan tekin og skorin í endann, búinn til vasi inní bringunni fyrir fyllinguna. Þegar þetta er tilbúið tekurðu feta ostinn og reynir að setja nokkra feta kubba með inní bringuna. Síðan tekurðu beikonið og vefur því utan um bringuna, gott að nota tannstöngul til að láta það haldast á réttum stað. Gott að skella smá salti og pipar á þær. Þegar þetta er klárt seturðu bringurnar ofaní eldfast mót og inní 175°heitan ofn í 20-30 mín.

Sósan:
Ein dós sýrður rjómi
Mango chutney ca 2-3 msk., fer eftir smekk
Ferskt sellerí skorið niður smátt sett útí
Smá sojasósa, hálf tsk. ca.
Stundum er sett aðeins majones en ég sleppi því oftast.

Salat:
Spínat
Salatblöð
Jarðarber
Mozarella
Gott að nota svo restina af feta ostinum útá sem fór ekki í bringurnar


Gott að drekka ískalt hvítvín með þessu svo að þetta standi nú ekki allt saman í ykkur. Verði ykkur að góðu.

---------------------------------------------------------

Ég ætla að skora á Skara. Óskar Ingva Sigurðsson hestamann og gleðysveyn. Ég óska þess að Óskar taki þessari áskorun með reisn og myndarbrag og sýni okkur Sunnlendingum hvernig á að reiða fram flotta veislu.



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson