Föstudagur, 24. maí, 2013
   
Letur

Sunnlenski matgæðingurinn 10. maí

Kristín Hlíf Ríkharðsdóttir er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna.
Takk elsku bróðir fyrir þetta.
Það sem ég var að hugsa um að bjóða uppá er ostasúpa.

Ostasúpa
500 g nautahakk úr Krás.
1 stk rauð paprika
Hálfur púrrulaukur
Lítil dós gular baunir - safi
1 dós papriku smurostur  
½ l matreiðslu rjómi
½ l mjólk, má vera meira af
rjómanum ef  vill
1 teningur af nautakrafti
og einn grænmetis.

Aðferð: Hakkið steikt og kryddað létt og geymt þar til síðast. Paprika og púrrulaukurinn svissað í potti með smá smjöri því næst smurostur, annar teningurinn, rjómi og mjólk. Gulum baunum bætt útí ásamt hakki og meiri krafti Látið malla á meðan brauð er útbúið.

Hvítlauksbrauð
1/2 bolli smjör
2 hvítlauksrif, hökkuð
1 tsk. ítalskt krydd
1/2 tsk. paprikuduft
1/2 bolli rifinn parmesan-
ostur
1 snittubrauð

Blandið saman smjöri og hvítlauk á litlum disk. Setjið í örbylgjuna á hæsta styrk í 1-2 mín. eða þar til smjörið er næstum bráðnað. Takið úr örbylgjunni og setjið krydd og ost út í. Skerið brauðið í sneiðar. Setjið þær á bökunarplötu og setjið hvítlauksblöndu ofan á hverja sneið. Setjið í ofninn, u.þ.b. 10 cm. frá grillinu. Grillið í 2-3 mín. og berið strax fram  með súpuni.

Í eftirrétt
Sænskar semlur
Uppskriftin er þessi:
75 g smjör
2½ dl mjólk
25 g ger eða ½ pk þurrger
Örlítið salt
½ dl sykur
7½ dl hveiti
1 tsk. kardimommudropar
1 dl egg til að pensla með


Fylling:
300 g hreint marsipan
1 dl mjólk
3 dl rjómi
Flórsykur

Smjörið er brætt og mjólkinni bætt saman við, blandan á að vera um 37°C. Gerið er sett út í og leyst upp, síðan er salti, sykri, kardimommum og hveiti bætt saman við. Hnoðið vel saman og látið deigið lyfta sér á hlýjum stað undir viskastykki þar til það hefur tvöfaldast að stærð. Það ætti að taka um 40 mínútur.
Leggið bökunarpappír á ofnplötu og raðið bollunum þar á; deigið ætti að duga í 18 bollur. Látið deigið lyfta sér á ný í 30 mínútur á hlýjum stað með röku viskastykki yfir. Penslið bollurnar með pískuðu eggi og bakið í 10-15 mínútur við 220°C eða þar til bollurnar eru bakaðar í gegn. Látið þær þó ekki verða dökkar. Skerið gat á topp bollanna, eftir að þær hafa kólnað, og holið að innan. Þeytið rjóma og geymið. Hrærið saman marzipan, mjólk og því sem þið takið innan úr bollunum. Blandið því næst saman við þeytta rjómann og setjið inn í bollurnar. Setjið lokið á og stráið flórsykri yfir.

Verði ykkur að góðu.
------------------------------------------------------------
Eftir mikið tuð og já bara hótanir, um að koma Gleðisveynum aftur á kortið, skora ég á Árna Sigfús Birgisson Gleðisveyn að koma með eitthvað agalega ljúffengt handa Sunnlendingum☺

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson