Sunnlenski matgæðingurinn 26. apríl
Elfar Sigurjónsson er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna
Ég vil þakka veiðifélaga mínum Böðvari Stefánssyni stórskyttu fyrir að skora á mig sem matgæðing þessarar viku hér í Dagskránni.
Ég mun bjóða uppá þrjár uppskriftir hér í blaðinu, ein létt hversdagsmáltíð og önnur villibráðarlostæti og þriðja eftirréttur elskunnar.
Ég er samt enn að leita hvar ég get keypt bauk með miða, Böðvar.
Kjúklingaréttur skyttunar
6 stk. kjúklingabringur.
1 stk. laukur
1 tsk. pipar, svartur
250 gr rjómi
1 tsk. salt
3 stk. fersk hvítlauksrif
340 gr Heinz chili tómatsósa
1 tsk. chili krydd
Aðferð
Bringurnar steiktar á pönnu í smjöri, ca 7 mín. á hvorri hlið, kryddaðar með salti, pipar og chili kryddi eftir smekk.
Þær eru síðan settar í eldfast mót og í ofn í 20 mín. við 200°C.
Sneiðið laukinn og steikið á pönnu ásamt hvítlauksrifjum (söxuðum), hellið Heinz chilisósunni yfir og hrærið rjómann saman við hægt og rólega.
Sósunni er síðan hellt yfir og rétturinn er settur aftur í ofn í 10 mín.
Hreindýralasagna,
fyrir 4-6
600 gr Hreindýrahakk.
1 dós Hunt's Pasta Souce Italian Sausage
1 rauð paprika
1 stór laukur fínt saxaður
1 askja Flúðasveppir
3-4 fersk hvítlauksrif
Sellerí fínt saxað 2 stikla
Lasagna-blöð 6-8 blö.
Salt og pipar eftir smekk
Aðferð
Brúnið hakkið á heitri pönnu og kryddið létt með salti og pipar. Hellið sósunni yfir hakkið og látið krauma í 4-5 minútur Bætið öllu grænmetinu úti og lagið Lasagna eftir hefðbundinni aðferð.
Bætið rifnum osti ofan á og bakið í ofni við 200°C í 20 mín. eða þegar osturinn er orðinn fallega bakaður.
Gott er að hafa hvítlauksbrauð og gott rauðvín með.
Súkkulaði hamingja.
Súkkulaðikaka
2 dl sykur
4 egg
200 gr súkkulaði
200 gr brætt smjör
2 og 1/2 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
Sykur og egg stífþeytt saman. Súkkulaði og smjör brætt saman í potti og blandað svo varlega saman við eggjahræruna.
Hveiti og lyftidufti bætt út í. Sett í 25 cm form eða í eldfast mót og bakað í 15-18 mín. við 225°C.
---------------------
Ég vil skora á veiðifélaga minn og eldrimannaumhyggjufulltrúa, Sverri Jón Einarsson, fangavörð á Selfossi, sem er mikill refur í eldhúsinu, að vera næsti matgæðingur.




