Sunnlenski matgæðingurinn 18. apríl
Böðvar Stefánsson á Selfossi er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna.
Ég vil byrja á að þakka stórvini mínum, honum Rúnari fyrir áskorunina og mun ég gera mitt besta til að verða við hans óskum um uppskriftir með villibráðaþema. Gott er að opna sér bauk með miði áður en matseld hefst.
Réttirnir miðast við ca 4-6 manns
Gæsabollur í forrétt
Tvær hakkaðar gæsabringur
Eitt bréf beikon (smátt skorið)
Fjögur egg
Kornsnakk (ekki doritos) (fæst í Bónus Natural Euro- shopper)
Rauðlaukur eftir smekk (smátt saxaður)
Montreal steak og grill krydd, og salt og pipar
Ferskur hvítlaukur eftir smekk
Aðferð
Blandið saman hakkinu beikoninu lauknum og eggjunum.
Brjótið snakkið smátt og bætið út í og hnoðið litlar bollur
Steikið bollurnar á pönnu þar til þær eru brúnaðar.
Smellið þeim í 10 mín á 200 gr heitan ofn.
Aðalréttur
Grillaðar vatnarjúpubringur (best að ná þeim gráum að hausti) með bakaðri kartöflu
2 bringur (ca 750-800 gr) eru kryddaðar með salti og pipar
Bringurnar eru smjörsteiktar á pönnu þar til þær lokast og eru orðnar fallega brúnar, ekki of lengi þó.
Þeim er pakkað inn í álpappír og settar á grillið í ca 25 - 30 mín og snúið reglulega. Ágætt er að hafa grillið ekki alveg á fullum styrk. Gott er að kaupa forsoðnar grillkartöflur og setja á efri grindina í grillinu óinnpakkaðar í ca 25 mínútur.
Með þessu er nauðsynlegt að hafa villibráðasósu
5 dl vatn
2 msk/teningar villibráðarkraftur eða soðið af pönnunni
1 msk. gráðaostur
2 msk. rifsberjahlaup
1 tsk. timjan
Sósujafnari
Salt og pipar
2 dl rjómi
Vatn, kraftur, gráðaostur, rifsberjahlaup og timjan sett saman í pott og suða látin koma upp. Þykktu sósuna með sósujafnara (t.d. maizena mjöli), kryddaðu með salti og pipar og bættu loks rjómanum út í. Sósan er tilbúin um leið og suðan kemur upp eftir að rjómanum hefur verið bætt við.
Í meðlæti er ágætt að hafa niðurbrytjað kál sem fæst tilbúið í pokum í Krónunni og bæta í það fetaosti og dash af olíu.
---------------------------------------------------
Ég ætla að skora á vin minn og veiðifélaga Elfar Sigurjónsson að koma með næstu uppskrift en hann er annálaður snillingur þegar kemur að eldamennsku.



