Sunnlenski matgæðingurinn 12. apríl
Rúnar Þór Guðmundsson er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna
![]()

Ég vil byrja á að þakka eðalfrænda mínum, honum Einari Karli, fyrir að skora á mig fyrir þetta skemmtilega horn hér í Dagskránni.
Ég mun þó ekki reyna að toppa kolesteról sprengjuna sem Einar setti fram en mun þó fylgja hans þema að hafa grill uppskrift fyrir ykkur.
Þar sem mín atvinna felst mikið í því að setja upp vínseðla og para saman mat og vín þá mun ég láta fylgja ráðleggingar um vín með þessum réttum.
Forréttur fyrir tvo
Grillaðar risarækjur á spjóti.
200 gr risarækjur
Salt
Sítrónupipar McCormick Lemon Pepper with Herbs .
Íslenskt smjör
Aðferð
Hitið grillið í meðalhita .
Bræðið íslenskt smjör og penslið rækjurnar, kryddið með salti og sítrónupipar.
Grillið rækjurnar í ca 1 mín á hvorri hlið
Gott er að hafa með klettasalat og austurlenska chili sósu.
Mæli með Casillero del Diablo Chardonnay hvítvíni með þessu létta og góða rétti.
Aðalréttur
Grillað lambaprime með bakaðri kartöflu, rauðvínsósu og grilluðu íslensku grænmeti á spjóti.
Aðferð
Hafið grillið á frekar lágum hita. Gefa sér smá tíma að grilla íslenska lambið.
Kryddið lambið með Season all og svörtum pipar.
Þræðið íslenskt grænmeti á spjót. Ath. t.d. sveppi, saman og papriku saman þar sem það er mismundi steikingartími á grænmeti .
Munið að leggja tré-spjót í bleyti vel áður t.d. ofan í tveggja lítra gosflösku með vatni .
Mér finnst alltaf best að baka kartöflurnar í ofni en auðvitað er hægt að gera það líka á grillinu. Berist fram með íslensku smjöri.
Þar sem allir eru tíma-bundnir þá mæli ég með úrvals rauðvínssósu sem fæst víða í verslunum. Bætið smá vatni í til að þynna hana og bæta smá nautakjötskrafti útí.
Mæli með Campo Viejo Crianza með þessu rétti.
Súkkulaðidrykkur með Kahlúa
Innihald
150 g Síríus 70% súkkulaði, fínsaxað
8 msk. Kahlúa-líkjör
8 dl mjólk, heit
Leiðbeiningar
Setjið súkkulaðið og Kahlúa-líkjörinn í könnu eða skál og hrærið saman.
Hellið sjóðheitri mjólkinni saman við og hrærið þar til súkkulaðið er bráðið og hefur blandast saman við mjólkina.
Skiptið drykknum jafnt í 4 meðalstór glös. Skreytið t.d. með þeyttum rjóma og rifnu súkkulaði.
-----------------------------------------------------------------------
Ég ætla að skora á Böðvar Stefánsson á Selfossi unglingaumhyggjustjóra og hobbýsmið til að koma með eitthvað gómsætt í næstu viku. Böðvar er mikil skytta og eitthvað segir mér að villibráð verði þemað hjá þessum eðaldreng.




