Sunnlenski matgæðingurinn 23. febrúar
Gísli Árni Jónsson á Selfossi er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna.
Ágætu lesendur.
Það kom mér skemmtilega á óvart að gleðysveynnynn og frændi minn Guðm. Ingvarsson leiti aðstoðar minnar við matseld. Ég verð að viðurkenna að hún er ekki mín allra sterkasta hlið þar sem ég hef haft afnot af frábærum kokki á heimilinu, henni Emmu minni, en ég er liðtækur við útigrillið og ætla því að draga það fram úr geymslunni og bjóða gleðysveynum sem öðrum Sunnlendingum uppá rammíslenskan rétt sem hægt er að matreiða í mismunandi útgáfum en nánast vonlaust að klúðra í eldamennskunni.
Þetta er lambalæri af sunnlensku gæðalambi.
Þessi réttur er fyrir ca. 6-8 manns ef sumir gleðysveynar eru ekki í mat. Að sjálfsögðu er lærið ókryddað og ófrosið og byrjum við á því að krydda það með salti og pipar hæfilega og gott að nudda aðeins sítrónupipar á það að auki. Látum lærið bíða í kryddmeðferðinni í ca. 10-20 mín. Á meðan er gott að huga að grillinu og kveikja upp og setja á fullt og ná upp góðum hita í því. Ekki má gleyma að hafa „1 kaldann“ við grillið til að þorna ekki í kverkunun út af hitanum. Þegar hita hefur verið náð í grillið þá er lærið sett á og það látið vera í ca. 2-3 mín. á hvorri hlið til að brúna það aðeins, athugið að fara ekki frá grillinu á meðan. Þegar hér er komið í ferlinu er slökkt undir öðrum helming af grillinu og lærið látið þeim megin sem slökkt er undir en hinn helmingur á fullu. Þetta tekur um klukkutíma, fer eftir því hvað grillið er öflugt og lærið stórt. Gott að snúa því við eftir ca. 30 mín.
Ef menn vilja hafa forrétt þá mæli ég með einu púrtvínsstaupi, það bregst aldrei eða sleppa því. Ég mæli með grilluðum kartöflum með og gott að hafa þær sæmilega stórar og setja þær á grillið aðeins á eftir lærinu og hafa þær sömu megin án álpappírs.
Þá er það sósan! Piparsósa er mjög góð með þessu eða einhver önnur tilbúin sósa sem fæst í næstu verslun. Ekki má gleyma grænu baununum, rauðkálinu og hrásalati eða öðru kálmeti eftir smekk. Síðan er ómissandi að hafa rabbarbarasultu við hendina.
Sumum finnst gott að hafa rauðvín með þessum frábæra rétti en sjálfum finnst mér Maltið og Appelsínið fara best með lærinu. Eftir þennan frábæra rétt eru eflaust flestir pakksaddir en ef smáhola leynist er gott að fylla hana með Iriscoffee á eftir og vanilluísinn ómissandi fyrir börnin.
Verði ykkur að góðu.
--------------------------------------------------
Ég skora á gleðysveynynn frænda minn Þröst Ingvarsson Vestmannaeying með meiru að töfra fram ekki síðri rétt en þennan hér að ofan og veit reyndar að það verður létt verk hjá honum eins og flest annað.




