Sunnudagur, 19. maí, 2013
   
Letur

Sunnlenski matgæðingurinn 16. febrúar

Guðmundur Ingvarsson á Selfossi er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna

Kæru lesendur
Það er með mikilli ánægju sem ég tek áskorun míns ágæta bróður og gleðysveyns um matgæðing vikunnar. Þar sem við gleðysveynar erum hálfgerðir villimenn er mér ljúft að bera fram villibráð, ég vel vinsælasta gæsaréttinn á mínu heimili sem er einfaldur og fljóteldaður réttur. Það skal tekið fram að fjölskyldan er mikið matfólk svo skammtastærðir geta verið í stærra lagi. Uppskriftin er alíslensk og hráefnis alls aflað af sunnlensku láði eða legi.         Njótið heil og brosið.

Humarforréttur fyrir 6
20 stk. humar
1 box nýir sveppir
Salatblöð eftir þörfum
1 tsk. salt
1 stk. stór fiskiteningur
1 tsk. soyjasósa
2,5 dl. rjómi
Smjör til steikingar
Pipar

Skelflettið  humar og skerið í bita og smjörsteikið á pönnu, veltið humrinum á pönnunni í c.a. tvær og hálfa til þrjár mínútur takið þá humarinn af pönnunni og stráið örlitlu salti yfir hann, skerið sveppina í litlar sneiðar og steikið á pönnunni, þegar sveppirnir eru steiktir hellið þá rjómanum á pönnuna, bætið sojasósunni og fiskiteningi útí og látið suðuna koma upp. Stráið örlitlu af pipar yfir og  sjóðið í 5 til  8 mínútur, setjið salatblöð á disk og humarinn ofan á, sósan er borin fram sér og verður að vera heit. Gott að bera fram með Árborgarbrauði frá Guðna bakara ásamt smjöri og hráskinku.

Aðalréttur gæsabringur (Grágæs) fyrir 6
Gæs 3 stk, salt pipar og smjör til steikingar.

Bringurnar eru teknar af skipinu og takið lundirnar frá, léttsteikið bringurnar í smjöri á pönnu í c.a. eina og hálfa til tvær  mín. á hvorri hlið, kryddið vel með salti og pipar á meðan á steikingu stendur setjið síðan bringurnar í 180° heitan ofn í 15 mín.  látið jafna sig í 2 mín. eftir að þær eru teknar úr ofninum þá eru bringurnar skornar í þunnar sneiðar og settar á fat, tilbúið og afar einfalt. Á meðan bringurnar eru í ofninum takið þá lundirnar og snöggsteikið á pönnunni í c.a. 2 mín. Notið eingöngu kryddið sem er  á pönnunni eftir bringurnar, takið lundirnar af pönnunni skerið í mjög litla bita og berið fram á meðan gæsin eldast í ofninum. Gestum þykir mjög gott að fá þennan forsmekk af gæsinni (gott að nota tækifærið og smakka rauðvínið með) Sem meðlæti er afar gott að brúna kartöflur og léttbrúna gulrætur, rauðkál er nauðsynlegt með villibráð og gott er að bera fram eplasalat sem inniheldur 3 græn epli, 3 litlar dósir af ananas og létt þeyttan rjóma. Bætið einni matskeið af sykri í rjómann  (gætið þess að þeyta rjómann ekki of mikið) síðan er með þessu villibráðasósa eftir smekk hvers og eins.
Ef fólk hefur pláss fyrir eftirrétt þá mæli ég með ís og kaffi og ekki skemmir smá koníakstár með, ef börn eru í hópnum þá þarf að eiga mikið af pinnaís frá Kjörís.
Verði ykkar að góðu.

---------------------------------------------------

Ég skora á frænda minn og gleðysveynabróður Gísla Á. Jónsson en hann er söngmaður góður og söngstjóri okkar í gleðysveynakórnum. Gísli er gleði- og matmaður mikill og ég veit að hann hefur mikið lært af sinni ektakvinnu (Emmu Gränz) í eldhúsinu, ég efast ekki um að hann kemur með eitthvað lostæti handa okkur.




Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson