Sunnlenski matgæðingurinn 9. febrúar
Svanur Ingvarsson á Selfossi er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna.
Góðir lesendur
Það er með ánægju sem ég tek við keflinu af Þórarni vini mínum og gleðysveyny. Vonandi stend ég undir væntingum hans varðandi matseld, sem ég reyndar veit ekki hvaðan koma. En hvað um það. Ég ætla ekki að slá um mig með framandi réttum, heldur velja öruggt og hollt íslenskt matarborð sem gaman er að bjóða hverjum sem er, ekki síst útlendingum. Því ætla ég að nota þetta tækifæri til að minna á að skyr er hollur og góður matur. Ég vil helst venjulegt skyr án allra bragðefna. Hræra það vel með sykri, nota kannski óþarflega mikið af honum til hátíðarbrigða, og setja rjóma út á af sama tilefni. Sem meðlæti er nauðsynlegt að bjóða upp á góðan harðfisk, mér áskotnaðist t.d. mjög góður steinbítur að vestan við útidyrnar hjá mér í síðustu viku. Alla jafna mundi ég einnig benda á að hafa rúgbrauð með sem meðlæti, til að fullkomna máltíðina, en ég ætla að benda á enn betri kost. En það er að baka sjálfur Byggbrauð Guðríðar sem ég var svo lánsamur að læra að baka hjá henni Gurrý frænku minni um daginn.
Uppskriftin af því er:
3 bollar heilhveit,
1 bolli soðið bankabygg,
1 bolli rúgmjöl,
½ bolli rúsínur,
1 bolli blandað korn (möluð hörfræ, ristuð sólkjarnafræ, graskerjafræ, birkifræ og sesamfræ),
4 msk vínsteinslyftiduft,
½ ltr. létt ab mjólk eða vatn,
2 tsk sjávarsalt.
Aðferð: Syggið er skolað vel og soðið í 45 mín áður en það fer í brauðið. Blandið öllum þurrefnunum saman. Hræra svo létt ab mjólkina saman við ásamt bygginu og rúsínunum. Sett í olíuborið form og bakað við 170° í 1 klst. Hollt og gott brauð og ekki galið að nota smjör á heitt brauðið.
Njótið vel og verið góð við fólk og dýr.
----------------------------------------------------------------------
Næst ætla ég að skora á einn frumherja gleðysveyna, minn ágæta bróður Guðmund Ingvarsson. Hann kemur næsta víst með eitthvað flott veiðimaðurinn, en hann getur t.d. eldað kjöt af villibráð þannig að bráðni í munni.



