Sunnudagur, 19. maí, 2013
   
Letur

Sunnlenski matgæðingurinn 2. febrúar

Þórarinn Ingólfsson á Selfossi er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna.

 

Ágætu lesendur!
Ég vil byrja á því að ,,þakka” :-) Ingþóri Gleðysveyni fyrir að skora á mig að vera matgæðingur vikunnar.
Það er ljóst að það verður erfitt að velja úr öllum þeim mörgu réttum sem ég er að fást við að elda í hverri viku. Fyrsta spurningin er hvort það ætti að vera einhver stórsteik (sem reyndar hún Anna mín eldar alltaf) eða hvort ég ætti að fara í einhvern léttan og fljótlegan rétt (sem reyndar hún Anna mín eldar nánast alltaf). Það er ætlun mín að elda bara eitthvað gott og einfalt sem allir Íslendingar eigi að geta eldað (ég þar meðtalinn). Að sjálfsögðu vel ég það sem borinn og barnfæddur Vestmannaeyingur að elda fisk og í mínu tilfelli er það ýsa. Hvað geri ég þá? Jú, ég fer út Fiskbúð Suðurlands til strák-anna þar og kaupi nokkur hundruð grömm af nýjum ýsuflökum (það er allt í lagi að hafa roðið á þeim), en það fer auðvitað eftir smekk hvers og eins hvort hann vill sjóða ýsuna með eða án þess. Ágætt er að miða við að hver fullorðinn einstaklingur sporðrenni 250 grömmum af fiski og því er einfalt að reikna út hvað þarf að kaupa mikið. Þegar heim er komið er gott að skera flökin í litla bita til þess að fiskurinn fari betur í pottinum. Næst er að taka fram góðan pott setja í hann vatn og gróft matarsalt (magn er u.þ.b. ein kúfuð matskeið í hver 1000 grömm) koma honum fyrir á eldavélinni, kveikja undir og láta suðuna koma upp. Um leið og suðan er komin upp er ýsan sett í vatnið og slökkt undir pottinum. Ýsan er látin krauma þar smá stund og síðan veidd upp úr pottinum og sett á disk.
Besta meðlætið með ýsunni eru soðnar kartöflur rauðar, bráðið smjör og íslenskir tómatar skornir niður í bita. Eftirrétt hef ég engan, en gott getur verið að drekka annað hvort íslenskt vatn eða mjólk með fiskinum.


----------------------------------

Ég skora á annan Vestmannaeying að vera næsti matgæðingur því ég veit að hann lumar á ýmsum hugmyndum varðandi matseld en þetta er Gleðysveynninn með meiru Svanur Ingvarsson.



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson