Laugardagur, 18. maí, 2013
   
Letur

Ný tónlistarhátíð í Strandarkirkju í Selvogi

Á sunnudaginn kemur hefst ný tónlistarhátíð í Strandarkirkju í Selvogi, sem standa mun yfir nú í ár í 2 helgar. Hátíðin hefst með tónleikum Elísabetar Waage hörpuleikara og Gunnars Kvaran sellóleikara sunnudaginn 12. ágúst kl. 14. Þau munu leika efnisskrá með björtu yfirbragði þar sem hljóðfærin blandast í verkum eftir m.a. Couperin, Saint-Saëns og Granados. Einnig munu hljóma íslensk sönglög eftir Sigfús Einarsson og Árna Thorsteinsson og nýlegt verk eftir John Speight. Í tónsmíðinni sem samin var fyrir dúóið birtast draumkenndar sýnir en ljúfsárar laglínur og fjörugir dansar einkenna tónleikana.

 

Gunnar og Elísabet hafa starfað saman um langa hríð. Efnisskrá þeirra hefur teygst frá barokktímanum til dagsins í dag. Tónleikar þeirra hafa verið víða um land s.s. á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarnesi og Vestmannaeyjum, á Þingeyrum og Seyðisfirði. Zonet útgáfan gaf út geisladisk þeirra með ýmsum perlum, m.a. Schubert Arpeggione sónötunni og Svaninum eftir Saint-Saëns.

Síðari tónleikar hátíðarinnar verða sunnudaginn 19. ágúst kl. 14 en þá verður jafnframt árleg uppskerumessa í Strandarkirkju í umsjá sr. Baldurs Kristjánssonar sóknarprests. Á tónleikunum koma fram Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona, Elísabet Waage hörpuleikari og Hilmar Örn Agnarsson organisti. Efnisskrá tónleikanna er að stórum hluta lofgjörð til Maríu Guðsmóður þar sem fluttar verða nokkrar Maríubænir og trúarljóð. Auk þess verða flutt verk eftir Bach, Händel og nýtt verk, Vater unser (Faðir vor) eftir Arvo Pärt ásamt perlum íslenskra sönglaga. Þetta er sjöunda sumarið sem hópurinn kemur fram á tónleikum í Strandarkirkju og að þessu sinni eins og oft áður er messu og tónleikum fléttað saman á nýstárlegan hátt.

Samstarf Bjargar og Elísabetar hófst árið 2006 og hafa þær síðan haldið fjölmarga tónleika hér á landi sem erlendis og komið fram árlega á sumartónleikum víða um land æ síðan. Þær hafa komið fram á Sumartónleikum í Akureyrarkirkju, komið fram á Listasumri á Akureyri, í Reykjavík, í Mývatnssveit og víða á Vestfjörðum. Árið 2008 voru þær fulltrúar Íslands á norrænu tónlistarhátíðinni NICE á Englandi og komu fram í breska ríkisútvarpinu BBC. Sl. fimm ár hafa þær haldið tónleika í Strandarkirkju á Maríumessu og sl. fimm ár hafa þær verið fastagestir á Sumartónleikaröð Hóladómkirkju. Á tónleikum sínum 2011 og eins nú í ár hefur Hilmar Örn Agnarsson organisti bæst í hópinn en hópurinn hefur í ár komið fram á tónleikum víða um landið undir yfirskriftinni ,,Í ást sólar". Þau enda sína tónleikaröð í ár í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 6. september kl. 20.30.

Strandarkirkja í Selvogi er þekkt áheitakirkja en þar þykir vera sérstakur kraftur til hjálpar og bænheyrslu. Selvogurinn er  mikill náttúruperla og á sér mikla sögu en fyrr á öldum var þar blómleg byggð með útgerð og menningu. Fjölmargir ferðamenn heimsækja Selvoginn, en þar er m.a. kaffihús og veitingasala. Þar er einnig hægt að njóta útivistar á fallegum gönguleiðum.

Björg Þórhallsdóttir er listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar í samvinnu við heimamenn, sóknarprest og sóknarnefnd Strandarkirkju.

 

 

 

 



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson