Fimmtudagur, 23. maí, 2013
   
Letur

Tónleikar í Oddakirkju í kvöld

"Tónar og ljóð" er yfirskrift tónleika, sem haldnir verða í Oddakirkju á Rangárvöllum í kvöld,  fimmtudagskvöldið 26. júlí kl. 20.00. Tónleikarnir eru liður í "Sumar í Odda" en að þessu sinni flytur tónlistarparið Ingrid Örk Kjartansdóttir og Leifur Gunnarsson nýja tónlist eftir Leif sem er skrifuð við ljóð þekktra íslenskra ljóðskálda, í bland við nokkur þekkt dægurlög. "Á tónleikunum verða hrjóstrugir heimar dúettaformsins kannaðir og litríkt tónmál djasskenndra tónsmíða túlkað af annars frekar sjaldheyrðri hljómsveitarskipan. Innblástur tónlistarinnar er sóttur í íslenska náttúru, fósturlandsást, trúnna og æskuna, en tónlistin er skrifuð við ljóð Þorsteins Erlingssonar, Jóhannesar úr Kötlum, Steins Steinarrs og Huldu", segir í tilkynningu til blaðsins. Ingrid og Leifur stunda bæði háskólanám í tónlist í Kaupmannahöfn, hún við tónlistarfræðideild Kaupaannarhafnarháskóla en hann við Ritmíska konservatoríið, en þess má geta að Leifur stundaði á sínum yngri árum nám við Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi. Á myndinni er tónlistarparið en myndin er tekin af Gunnari Leifssyni.

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson