Tímamót í Selinu á Stokkalæk
Framundan eru tímamót í Selinu á Stokkalæk. Laugardaginn 28. júlí kl. 16 heldur Hákon Bjarnason píanóleikari einleikstónleika í Selinu og leikur þar sónötur eftir Beethoven og Schumann og ræðir jafnframt um sónötuformið og veitir innsýn í uppbyggingu sónötunnar. Þá mun hann jafnframt flytja nokkur stutt verk eftir Ligeti. Hákon hefur undanfarin ár verið við nám í Þýskalandi og Hollandi og nemur nú við Konservatoríið í Amsterdam.
Þriðjudaginn 31. júlí kl. 20 verða svo haldnir hundruðustu tónleikarnir í Selinu frá því tónlistariðkun var þar hleypt af stokkunum fyrir réttum þremur árum. Þar koma fram söngvararnir Ruth Jenkins sópran og Andri Björn Róbertsson bass-barítón en þau hafa bæði verið við nám við Royal Academy of Music í London. Með þeim leikur Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari. Dagskráin er afar fjölbreytt og flytur þetta unga listafólk bæði íslensk lög, svo sem Vöggukvæði eftir Emil Thoroddsen, Kötu litlu í Koti eftir Sigvalda Kaldalóns, Kvöldsöng eftir Markús Kristjánsson og Draumalandið eftir Sigfús Einarsson, og erlend lög á borð við þjóðlög frá Tyneside, An Silvia og Die Männer sind méchant eftir Schubert, In stiller Nacht og Die Mainacht eftir Brahms, Vi ravviso, o luoghi ameni eftir Bellini og Da tempeste eftir Händel. Loks flytja þau þekkt sönglög og dúetta úr Porgy and Bess eftir Gershwin auk dúettanna Bei Männern welche Liebe fühlen og Pa, pa, pa eftir Mozart.
Á undan þessum hundruðustu tónleikum í Selinu á Stokkalæk fer fram styrkveiting úr Minningarsjóði um Birgi Einarson apótekara, sem var mikill áhugamaður um klassíska tónlist en hann lést síðla árs 1994. Þálifandi ekkja hans, frú Anna Einarson, stofnaði þennan minningarsjóð vorið 1995 í því skyni að styrkja unga og efnilega píanóleikara til framhaldsnáms. Þetta verður 21. styrkveitingin úr þessum sjóði og hafa sumir styrkþegar hlotið styrki oftar en einu sinni.




