Laugardagur, 25. maí, 2013
   
Letur

Frumsýning á nýju íslensku leikriti í Sögusetrinu á Hvolsvelli

Sunnudaginn 15. júlí verður frumsýndur í Sögusetrinu á Hvolsvelli nýr frumsaminn íslenskur einleikur, "Gestaboð Hallgerðar", eftir Hlín Agnarsdóttur. Titilhlutverkið leikur Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona og aukahlutverk er leikið af Ómri Smára Jónssyni. "Gestaboð Hallgerðar" er byggt á ævi Hallgerðar langbrókar Höskuldsdóttur, eins og hún er rakin í Brennu-Njálssögu.

Verkið gerist í nútímanum

Hallgerður er listakona og býr að Hlíðarenda í Fljótshlíð og svo skemmtilega vill til að ævi hennar og lífshlaup er nánast spegilmynd af ævi Hallgerðar langbrókar Höskuldsdóttur sem þar bjó fyrir rúmum eitt þúsund árum.  Gunnar eiginmaður hennar (sá þriðji í röðinni - fyrri eiginmenn hennar tveir eru fallnir í valinn) rekur menningartengda ferðaþjónustu á bænum og hefur boðið gestum í mat að konu sinni forspurðri - sjálfur er hann að heiman. Enginn matur er í bænum og sendir Hallgerður vinnumann sinn, Melkó, að afla vista. Á meðan gestirnir bíða eftir veitingunum skemmtir Hallgerður þeim með ævintýralegri frásögn af einkar skrautlegri ævi sinni.

Leikurinn verður sýndur í Söguskálanum í Sögusetrinu á Hvolsvelli eins lengi og aðsókn og áhugi leyfir.  Verð 2.500 krónur.  Verð fyrir hópa (10 eða fleiri) 2.000 krónur.

Allar frekari upplýsingar á http://www.njala.is/ og á Sögusetrinu  í síma 487 8781 & 618 6143 (Sigurður). Miðapantanir í síma 487 8781 og á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson