Fimmtudagur, 23. maí, 2013
   
Letur

Listamannabærinn Hveragerði – sýngin um fyrstu árin

Sýningin „Listamannabærinn Hveragerði – fyrstu árin“ verður opnuð í verslunarmiðstöðinni Sunnumörk í Hveragerði  föstudaginn 22. júní kl. 17:00 á Blóm í bæ. Sýningin er fyrsta sýning Listvinafélags Hveragerðis. Sýningin er hönnuð sem farandsýning með aðsetur fyrsta árið í verslunarmiðstöðinni Sunnumörk, nánar tiltekið fyrir framan Bókasafnið í Hveragerði, en hugmyndin er að sýningin fari síðan um landið á næstu árum. Sýningin er bæði á íslensku og ensku og þjónar því einnig hlutverki menningarfræðslu fyrir erlenda gesti.

Sýningarstjórn og hönnun er á höndum Guðrúnar A. Tryggvadóttur en hún hannaði einnig sýninguna „Hveragerði - vin skáldanna“ fyrir Félag eldri borgara í fyrra. "Mikill metnaður og áhugi er hjá félagsmönnum Listvinafélagsins að þróa sýninguna áfram og stækka í skrefum. Fleiri skáld, rithöfundar, myndlistarmenn og tónskáld munu verða hluti af sýningunni og fræðslugildi hennar aukið á ýmsa vegu, m.a. á vefnum www.listvinir.is sem nú er í þróun. Listamannabærinn Hveragerði iðar af lífi og list. Við hlökkum til að sjá ykkur við opnunina!

Stjórn Listvinafélags Hveragerðis.

 

 

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson