Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka laugardaginn 23. júní
09:00 Fánar dregnir að hún. Eyrbekkingar flagga íslenska fánanum eða Bakkafánanum og ganga frá skreytingum í hverfalitunum.
10:00 Bröns í Gónól. Morgunmatur kr. 1.200. Grjónagrautur með kanilsykri, maríneruð síld með lauk, rúgbrauð, nýbakað brauð – hlaðborð.
10:30-17:00 Laugabúð. Opið í Laugabúð – Fjölbreyttar Eyrarbakkavörur og sagðar sögur af Guðlaugi kaupmanni og öðrum Eyrbekkingum. Kannski koma afgreiðslustúlkur frá fyrri tíð og skemmta fólki!
11:00-18:00 Húsið og Sjóminjasafnið. Ókeypis aðgangur. Sýningarnar Sunnlendingar á Ólympíuleikum í borðstofu Hússins og Draumur um bát í forsal Sjóminjasafnsins. Komið í notalega safnaheims
11:00 Unga kynslóðin skemmtir sér. Brúðubíllinn kemur í heimsókn að Sjóminjasafninu. Leikir og þrautabraut. Ratleikir á vegum safnanna frá kl. 12-14 og fleira og fleira. Krakkar – komið með góða skapið!
11:00 Markaðstorgið í Gónhól. Sumarblómamarkaður og sölubásar. Heitt á könnunni og nýbakaðar kökur.
11:30 Rauða húsið á Eyrarbakka. Jónsmessu-matseðill á Jónsmessuverði. Alls konar súpur – humar – pastaréttir – fiskur – heitt súkkulaði – alvöru vöflur með ís eða rjóma – Hnallþórur og allt sem nöfnum tjáir að nefna.
13:00-15:00 Sunnlenskir Ólympíuleikar. Frjálsíþróttafólk frá Ungmennafélagi Selfoss sýnir getu sína í garði Hússins. Gestir fá að prófa sig við kúluvarp. Ólympíukappinn Jón Arnar Magnússon kemur í heimsókn.
13:00-18:00 Gallerí Regínu Eyrargötu 36 - Ásheimum. Handverkskonan Regína Guðjónsdóttir sýnir fjölbreytt handverk og býður upp á kaffi og með því.
14:00-16:00 Heimboð á Bakkanum .Sæunn og Hafþór í Götuhúsum taka á móti gestum. Fuglahúsið opið – gengið inn að vestanverðu. Arnrún og Guðmundur á Háeyrarvöllum 8 bjóða heim. Rætt um fótbolta og sitthvað skemmtilegt.
16:00 Viltu koma í kýló? Áfram halda menn að rifja upp gamla takta af Háeyrartúninu. Spennan magnast ár frá ári!
16:00 Útgáfutónleikar í Merkigili . Aðgangur ókeypis – frjáls framlög. Ómar Diðriks og Sveitasynir efna til útgáfutónleika í tilefni af útkomu geisladisksins „Þá áttu líf“. Söngvaskáldin Uni og Jón Tryggvi hita upp.
20:15 Raddböndin þanin. Í stássstofu Hússins leikur Heimir Guðmundsson undir almennan söng á elsta píanó á Suðurlandi. Skólasöngvarnir og fleiri kvæði dregin fram og hver syngur með sínu nefi. Síðast var fullt út úr dyrum!
20:30 Kvölddagskrá í Gónhól - Á Eyrunum Aðgangseyrir kr. 2.000 – kr. 1.800 í forsölu í sjoppunni og TRS Selfossi. Tónlistarfólk af Bakkanum kemur fram ásamt fleirum: Kl. 20:45 Jón Tryggvi og Uni; kl. 21:15 RetRoBot.
22:00 Jónsmessubrenna. Jónsmessubrenna í fjörunni vestan við Eyrarbakkaþorp. Bakkamaðurinn Árni Vald. flytur stutt ávarp. Síðan tendra eldgleypar miðnæturbálið. Hið frábæra Bakkaband heldur svo uppi fjörinu meðan menn endast.
23:10 Kvölddagskrá í Gónhól - Á Eyrunum framhald
23:15 RetRoBot; kl. 23:45 Sjéns Blues Band. Kl. 00:15 Hlöðuball með Goldies+ ásamt gestum.
01:15 Söngsveit Eyrarbakka. Og hlöðuballið heldur svo áfram til kl. 03:00.
00:00 Rauða húsið. Eftir brennu kemur Grétar í Sólvangi með gítarinn. Frítt inn – en annað á Jónsmessuverði.
Í Vesturbúð fæst margt af því sem hugurinn girnist, bæði til sálar og líkama. Tjaldsvæðið vestan þorpsins hefur verið stækkað og nú er komið heitt vatn – sem sagt ÖLL ÞÆGINDI.
Jónsmessuhátíðin er styrkt af Sveitarfélaginu Árborg




