Útgáfutónleikar Kiriyama Family fimmtudagskvöldið 14.júní
Sunnlenska hljómsveitin Kiriyama Family heldur útgáfutónleika í Þjóðleikhúskjallaranum Fimmtudaginn 14. júní. Tónleikarnir hefjast klukkan 22:00 en húsið opnar 21:00. Platan sem er samnefnd hljómsveitinni hefur fengið mjög góð viðbrögð og má þar helst nefna 4 stjarna umsagnir hjá tónlistarrýnendum Fréttatímans og Fréttablaðsins. Á plötunni má finna lagið Weekends en það situr nú í öðru sæti á Vinsældarlista Rásar 2. Forsala á tónleikana er í fullum gangi og kostar miðinn 2000 kr, en miðar við hurð eru seldir á 2500 kr. Hér má finna tengla á miðasöluna; http://midi.is og http://leikhusid.is og hér er Facebook síða sveitarinnar, https://www.facebook.com/kiriyamafamily
Hljómsveitina skipa:
Bassi Ólafsson (frá Selfossi og Glóru)
Guðmundur Geir Jónsson (Selfoss)
Jóhann Vignir Vilbergsson (Eyrarbakki)
Karl Magnús Bjarnarson (Sveitabærinn Holt)
Víðir Björnsson (Eyrarbakki)




