Fræðslufundir sumarið 2012 í Sesseljuhúsi á Sólheimum
16. júní - Að upplifa og njóta náttúrunnar - Helena Óladóttir umhverfisfræðingur og kennari veitir fólki innsýn í útinám og náttúruleiki í gönguferð með útikennsluívafi.
17. júní - Dagur hinna villtu blóma - Valgeir Bjarnason fer í fræðslugöngu um villt blóm í landi Sólheima í tilefni af samnorrænum degi hinna villtu blóma.
23. júní – Skátadagur – Jón Ingvar Bragason formaður dagskrárráðs BÍS stýrir skátaskemmtun og -leikjum.
30. júní - Álfar og huldufólk - Erla Stefánsdóttir sjáandi fræðir gesti um álfaheima og orku í íslenskri náttúru.
7. júlí - Afmæli Sesseljuhúss í tilefni af 10 ára afmæli hússins. Fyrirlestrar, skemmtun og veitingar.
14. júlí - Vistvænn lífstíll - Bryndís Þórisdóttir kennari fjallar á lifandi hátt um hvaða leiðir er hægt að fara til þess að velja vistvænan lífstíl. Hvaða máli skipta litlar ákvarðanir daglegs lífs? Er hægt að njóta lífsins um leið og við stígum létt til jarðar?
21. júlí - Jurtalitun – Guðrún Bjarnadóttir náttúrufræðingur fjallar um sögu og aðferðir jurtalitunar á Íslandi og fer í stutta göngu í leit að litunarjurtum.
28. júlí - Ljósmyndaganga - Pétur Thomsen ljósmyndari kennir náttúru – og umhverfisljósmyndun.
4.ágúst – Heilsugarðar - Kristbjörg Traustadóttir landslagsarkitekt, fræðir gesti um heilsugarða. Farið verður í gönguferð að nýjum lífelfdum matjurta- og heilsugarði Sólheima.
11. ágúst – Lífræni dagurinn - Gunnþór Guðfinnsson garðyrkjufræðingur, heldur fyrirlestur um lífræna og lífeflda ræktun í tilefni af lífræna deginum.
18. ágúst - Sveppatínsla - Michele Rebora sveppaáhugamaður fjallar um tínslu og vinnslu íslenskra matsveppa.




