Laugardagur, 18. maí, 2013
   
Letur

431 milljón króna í íþróttamannvirki á Selfossi

Sveitarfélagið Árborg hefur fjárfest fyrir 431 milljón króna á á árunum 2009-2012 í íþróttamannvirki á íþróttasvæðinu við Engjaveg á Selfossi og er gert ráð fyrir 65 milljónum króa á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir að fara í endurbætur á Sundhöll Selfoss í samstarfi við einkaaðila en það mál verður kynnt síðar í sumar. Þetta kom m.a. fram á blaðamannafundi með forsvarsmönnum Svf.Árborgar á íþróttavellinum í gær þar sem ný og glæsilega aðstaða fyrir unglingalandsmótið um verslunarmannahelgina var kynnt.

Á sínum tíma, eða árið 2005 stóð til að fara í mikla uppbyggingu íþróttamannvirkja í "eyðimörkinni" á Selfossi við Selfossflugvöll en horfið var frá þeim áformum. Eftirfarandi kom fram í frétt um málið í Morgunblaðinu 16. apríl 2005.

"Sveitarfélagið Árborg undirbýr mikla uppbyggingu á íþróttaaðstöðu á Selfossi og er í viðræðum við fjárfesta um byggingu fjölnota íþróttahúss með knattspyrnuvelli og hlaupabrautum ásamt inni- og útisundlaug sem fyrsta skref í þessari uppbyggingu. Húsið verður við Eyrarveg, í nágrenni flugvallarins. Reiknað er með að í framtíðinni verði einnig byggð upp frekari aðstaða, svo sem til akstursíþrótta. Gangi áætlanir eftir verður nýja húsið opnað 2. apríl 2006".

 

 



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson