Miðvikudagur, 22. maí, 2013
   
Letur

HSK fréttir 25. júlí 2012

Sjálfboðaliðastörf á Unglingalandsmótinu

– fjáröflun fyrir félög, deildir og ráð

Vel gengur að fá sjálfboðaliða til starfa á Unglingalandsmótið á Selfossi, en enn vantar nokkuð uppá þann fjölda sem til þarf til að framkvæma mótið með glæsibrag.

Framkvæmdanefnd landsmóta á Selfossi skorar á fólk að bjóða sig fram til starfa á mótinu.

Þeir einstaklingar sem vilja taka að sér sjálfboðaliðastörf sem tengjast keppnishaldi eða öðrum verkefnum geta skráð sig hjá Guðrúnu Tryggvadóttur verkefnastjóra s. 894 4448 eða með tölvupósti í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Allt stefnir í að verulegur hagnaður verði af mótshaldinu og 70% af hagnaðinum verður deilt út til félaga, deilda og ráða sambandsins í réttu hlutfalli við vinnuframlag félaga/deilda/ráða. Einstaklingar geta ákveðið hvert þeirra vinnuframlag rennur.

Allar nánari upplýsingar um mótið má finna inn á heimasíðu þess:  www.ulm.is

Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi um verslunarmannahelgina:

Skráningarfrestur rennur út á  sunnudagskvöld

Það stefnir allt í metskráningu á  Unglingalandsmóti UMFÍ sem haldið verður á Selfossi um verslunarmannahelgina, en skráningar verða að berast fyrir miðnætti á sunnudag á vefslóðinni www.ulm.is.

Þeir keppendur sem koma af sambandssvæðinu þurfa að merkja við að þeir séu keppendur HSK og eu þeir vinsamlegast beðnir að að ganga frá greiðslu á netinu í lok skráningar, en greiðslan fer í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar.

Þátttökugjaldið er kr. 6.000 á keppenda og innifalið í greiðslunni er aðgangur að tjaldsvæðinu og  fjölbreyttri afþreyingingu á vegum mótshaldara.

Keppendur HSK fá einnig afhentu treyju, merkta HSK og Arionbanka sem er aðalstyrktaraðili keppnisliðs HSK. Treyjan verður afhent í Selinu á Selfossi  fimmtudaginn 2. ágúst kl. 18:00 – 21:00 og föstudaginn 3. ágúst kl. 16:00-18:00.  Til að fá treyju þurfa keppendur að framvísa keppnisarmbandi mótsins, sem nálgast má í stjórnstöð mótsins í FSu.

 

Þórir Haraldsson, formaður undirbúningsnefndar landsmóta skrifar:

Ágætu félagar

Nú eru eingöngu 11 dagar í að Unglingalandsmót UMFÍ hefjist á Selfossi og lokaundirbúningur mótsins í fullum gangi.  Sveitarfélagið Árborg hefur staðið mjög myndarlega að öllum undirbúningi með framkvæmdanefndinni auk þess að lagfæra mannvirki og búa bæinn í hátíðarbúning og ber að þakka hve vel er staðið að öllum undirbúningi.  Skráningar ganga vel og mikill áhugi er fyrir mótinu

Nú er komið að okkur heimamönnum að taka þátt í undirbúningi og framkvæmd mótsins.  Við þurfum á miklum fjölda sjálfboðaliða að halda til að vinna á mótinu.  Um er að ræða margvísleg störf, allt frá framkvæmd íþróttakeppninnar, undirbúning, uppsetningu, frágang, öryggisgæslu á tjaldsvæðum og keppnissvæðum og allskyns viðvik.  Margir hafa brugðist vel við kalli en enn vantar fólk til starfa.  Því vil ég hvetja ykkur til að bjóða ykkur fram, enda mun ykkar félag eða deild njóta ávinnings af ykkar starfi og með því styrkjum við uppeldis- og íþróttastarfið okkar sem er ómetanlegt fyrir börnin okkar og samfélagið allt.

Unglingarnir okkar eiga að sjálfsögðu að nýta þetta góða tækifæri og skrá sig til skemmtilegrar keppni og og etja kappi við jafnaldra sína í harðri en heiðarlegri keppni, taka þátt í viðburðum mótsins og upplifa þá stemmingu sem fylgir þátttökunni.

Unglingalandsmót er vímulaus hátíð allrar fjölskyldunnar með börnin og unglingana í fyrirrúmi.  Ég vil sérstaklega hvetja sunnlendinga alla til að koma á mótið, mæta á íþróttakeppnirnar og hvetja keppendur á jákvæðan og heiðarlegan hátt, mæta á setningu mótsins á föstudagskvöldinu 3. ágúst kl. 20 og mótsslitin á sunnudagskvöld rétt fyrir miðnætti.

Ykkur öll hvet ég til að koma á mótið og njóta þess að vera þátttakandi í vímulausri fjölskylduhátíð um verslunarmannahelgina.

Sjáumst á Selfossi – með bros á vör!

Akureyrarmótið, Mótaröð FRÍ:

Fjóla Signý bætti 30 ára gamalt HSK met í 200m hlaupi

Nokkrir keppendur af sambandssvæði HSK tóku þátt í Akureyrarmótinu í frjálsum íþróttum sem fram fór helgina 21. - 22. júlí á glæsilegum frjálsíþróttavelli þeirra Akureyringa.

Fjóla Signý Hannesdóttir, Selfoss, bætti 30 ára gamalt HSK met Unnar Stefánsdóttur í 200 m hlaupi á mótinu. Fjóla hljóp á nákvæmlega sama tíma, 25,54 sek., bæði í undanrásum og úrslitahlaupinu. Hún varð í 2. sæti og bætti eigin árangur um rúma sekúndu. Gamla HSK metið, 25,4 sekúndur, setti Unnur  árið 1982. Sá tími var tekinn með handtímamælingu og því eru skekkjumörk á honum upp á +0,24 sekúndur.

Fjóla Signý setti HSK met  um síðustu helgi í 100m og 400m grindahlaupi þannig að á einni viku hefur hún bætt þrjú HSK met.  Fjóla Signý sigraði í 100m grindahlaupi á tímanum 14,73 sek., í 400m grindahlaupi varð hún að sætta sig við annað sætið með tímann 61,66s og að lokum kastaði hún kúlunni 9,60m og hlaut bronsverðlaun að launum.  Sólveig Helga Guðjónsdóttir, Selfossi, varð í 3. sæti í 200m hlaupi í kvennaflokki á tímanum 27,40s auk þess sem hún lenti í 6. sæti bæði í 100m og 400m hlaupum.

Haraldur Einarsson, Vöku, sigraði í langstökki með 6,49 metra og varð annar í 100 m hlaupi, hljóp á 11,11 sekúndum sem er bæting hjá honum um 0,12 sek. Dagur Fannar Magnússon, Selfossi,  sigraði í sleggjukasti karla þegar hann kastaði 46,02 metra og Þorsteinn Magnússon sigraði í 3.000 m hlaupi karla á 11:08,33 mín.

Andrea Vigdís Victorsdóttir, Selfossi, keppti í flokki 14-15 ára telpna og stóð sig mjög vel. Hún sigraði í spjótkasti(400gr) með 34,60m og krækti sér í silfurverðlaun þegar hún kastaði 9.31m í kúluvarpi (3kg) sem er bæting um 1cm auk þess sem hún vann til silfurverðlauna  í 200m hlaupi þegar hún hljóp á tímanum 28,71sek sem er bæting um 0,24 sek.

Agnes Erlingsdóttir, Laugdælum, hljóp 400m á 60,10 og hlaut bronsverðlaun að launum. Jón Gautason varð annar í kúluvarpi (5kg) 16-17 ára pilta, kastaði 10,76 metra og bætti sinn besta árangur um 1.27m. Hann fékk sömuleiðis silfur í kringlukasti (1.5kg) þegar hann kastaði 28,12 metra.

Sveit Selfoss keppti í 4x100m boðhlaupi og sigruðu þær á tímanum 52,37sek en sveitina skipuðu þær Fjóla Signý Hannesdóttir, Andrea Vigdís Victorsdóttir, Edda Þorvaldsdóttir og Sólveig Helga Guðjónsdóttir.

 

Góður frjálsíþróttaskóli á Selfossi

18 þátttakendur tóku þátt í Frjálsíþróttaskóla UMFÍ sem haldinn var á Selfossi í síðustu viku á vegum frjálsíþróttaráðs HSK. Kennarar í skólanum voru þau Ólafur Guðmundsson og Fjóla Signý Hannesdóttir.  Skólahaldið gekk vel og voru nemendurnir ánægðir með hvernig til tókst. Þátttakendur voru í fæði á vegum skólans og nokkur fyrirtæki styrku ráðið vegna þessa. Ráðið þakkar MS, Sölufélagi Garðyrkjumanna og Bónus fyrir þeirra framlag og einnig frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss.

Héraðsmót fatlaðra:

Suðrakeppendur mættu og gestaþátttaka í fyrsta sinn

Héraðsmót fatlaðra í frjálsíþróttum var haldið á Selfossi á dögunum og var mótið líkt og undanfarin ár haldið samhliða unglingamóti HSK í frjálsum.

Til leiks mættu keppendur frá Suðra og þá tók einn keppandi frá Aftureldingu þátt sem gestur.  Þetta er í fyrsta sinn sem gestir utan héraðs taka þátt í mótinu.

Hér að neðan eru má sjá verðlaunahafa mótsins:

100 m hlaup karla

1. Þórir Gunnarsson               Aftureldingu   13,93

2. Bjarni Friðrik Ófeigsson      Suðra           19,40

100 m hlaup kvenna

1. Sigríður Erna Kristinsdóttir   Suðra           21,04

2. María Sigujónsdóttir           Suðra           28,11

Langstökk karla

1. Þórir Gunnarsson               Aftureldingu   4,26

2. Bjarni Friðrik Ófeigsson      Suðra           2,23

Langstökk kvenna

1. María Sigujónsdóttir           Suðra           1,97

2. Sigríður Erna Kristinsdóttir   Suðra           1,42

Kúluvarp karla

1. Reynir Ingólfsson              Suðra           5,79

2. Bjarni Friðrik Ófeigsson      Suðra           5,71

Kúluvarp kvenna

1. María Sigujónsdóttir           Suðra           5,50

2. Sigríður Sigurjónsdóttir       Suðra           5,42

3. Sigríður Erna Kristinsdóttir   Suðra           3,45

 

Fréttapunktar:

Upppryfjun á reglum í frjálsum

Upppryfjun á reglum í frjálsum varðandi Unglingalandsmótið verður í kvöld,  miðvikudaginn 25. júlí kl. 20:00 í Selinu Selfossi. Leiðbeinandi Þorsteinn Þorsteinsson frá FRÍ og verður hann einnig yfirdómari á ULM 2012 á Selfossi. Skydumæting fyrir greinastjóra í frjálsum en allir aðrir starfsmenn í frjálsum eru að sjálfögðu hvattir til að mæta.

Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum

Íslandsmót yngri flokka 2012 verður haldið á Gaddstaðaflötum við Hellu  um helgina, dagana 26. - 29. júlí nk.  Mótið er öllum opið sem eru 21 árs og yngri. Sjá nánar www.lhhestar.is.

MÍ öldunga í frjálsíþróttum

Hið árlega meistaramót FRÍ í öldungaflokkum verður haldið á Kópavogsvelli um helgina. Hver aldursflokkur tekur yfir 5 ár. Yngsti flokkur karla og kvenna er 35 – 39 ára og næsti 40 – 44 ára o.s.frv. Skráning fer fram á mótsstað.

 

Knattspyrnuþjálfarar óskast

Knattspyrnudeild Hamars í Hveragerði auglýsir eftir knattspyrnuþjálfurum fyrir yngri flokka deildarinnar. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf ummánaðarmótin ágúst/september, þegar æfingar hefjast í Hamarshöll.

Nánari upplýsingar gefur Ólafur Jósefsson yfirþjálfari í síma 821 – 4583, en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson