Miðvikudagur, 22. maí, 2013
   
Letur

Allt að verða klappað og klárt fyrir unglingalandsmótið á Selfossi

Allt er að verða klappað og klárt á Selfossi fyrir unglingalandsmót UMFÍ um verslunarmannahelgina. Búið er að leggja inn pöntun fyrir góðu veðri. Mótshaldarar búast við allt að 15 þúsund gestum á mótið og um 1700 keppendum. Hjónin Þórir Haraldsson og Guðrún Tryggvadóttir eru allt í öllu varðandi mótið. Þau eru hér við eitt glæsilegasta íþróttasvæði landsins á Selfossi þar sem þau bjóða alla landsmenn velkomna um verslunarmanahelgina. Sjá nánar í opnuviðtali við þau í Dagskránni 26.júlí þar sem þau svara fjölmörgum spurningum um mótið.

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson