Hér eru HSK fréttir vikunnar
Nú styttist í Unglingalandsmótið á Selfossi, en það hefst eftir 23 daga!
Framkvæmdanefnd landsmóta á Selfossi vantar enn fjölda sjálfboðaliða til starfa við hin ýmsu störf sem þarf að vinna á stórmóti sem þessu. Þeir sem geta starfað í lengri eða skemmri tíma frá föstudeginum 3. águst til mánudagsins 6. ágúst eru beðnir að senda línu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. sem allra fyrst. Eins er hægt að hafa samband við Guðrúnu Tryggvadóttir verkefnisstjóra í síma 894 4448.
Rétt er að geta þess að 70% af hagnaði mótsins verður skipt á milli félaga, deilda og ráða í réttu hlutfalli við vinnuframlag sjálboðaliða hvers félags/deildar/ráðs á mótinu. Hér er því um vænlega fjáröflun að ræða, en áætlanir gera ráð fyrir að mótshaldið skili umtalsverðum hagnaði.
Með ósk um kröftug viðbrögð,
Engilbert Olgeirsson. fram.kv.stj. HSK
HSK fréttir 11. júlí 2012
Unglingalandsmót UMFÍ í sumar:
Óskað eftir sjálfboðaliðum
Um verslunarmannahelgina verður 15. Unglingalandsmót UMFÍ haldið á Selfossi. Búist er við miklum fjölda keppenda og gesta. Til að allt gangi vel fyrir sig þurfum við aðstoð frá góðu fólki sem er tilbúið að hjálpa okkur þessa helgi.
Störfin eru fjölbreytt, allt frá því að aðstoða við keppnisgreinar, hjálpa okkur í mótsstjórn og upplýsingamiðstöð, sinna öryggisgæslu t.d. við leiktæki barna eða selja veitingar í sölutjöldum okkar. Þetta getur verið vinna í nokkra klukkutíma, eða eins og hver og einn getur.
Rétt er að geta þess að hugsanlegum hagnaði mótsins verður að stærstum hluta veitt til félaga, deilda og ráða í réttu hlutfalli við vinnuframlag sjálfboðaliða á mótinu.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Guðrúnu Tryggvadóttur verkefnisstjóra á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 894 4448.
Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi:
Viltu koma þér á framfæri á fjölmennu móti?
Framkvæmdanefnd landsmóta á Selfossi er þessa dagana að vinna að lokaundirbúningi afþreyingardagskrár Unglingalandsmóts UMFÍ um verslunarmannahelgina.
Framkvæmdanefndin óskar hér með eftir upplýsingum um hvort hér á svæðinu séu einhverjir viðburðir um verslunarmannahelgina, sem hægt er að vekja athygli á í kynningarbæklingi sem gefinn verður út og dreyft til mótsgesta.
Þeir sem hafa áhuga á að koma á framfæri upplýsingum um viðburði, sem tengja má afþreyingardagskrá mótsins geta haft samband við Guðrúnu Tryggvadóttir verkefnisstjóra í síma 8944448 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 20. júlí.
Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi um verslunarmannahelgina:
Opnað hefur verið fyrir skráningu
Opnað hefur verið fyrir skráningu á 15. Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður á Selfossi um verslunarmannahelgina á vefslóðinni www.ulm.is. Skráningu lýkur á miðnætti 29. júlí.
Þeir keppendur sem koma af sambandssvæði HSK þurfa að merkja við að þeir séu keppendur Héraðssambandsins Skarphéðins. Eru þeir vinsamlegast beðnir að að ganga frá greiðslu á netinu í lok skráningar, en greiðslan fer í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar.
Þátttökugjaldið er kr. 6.000 á keppenda og innifalið í greiðlunni er aðgangur að tjaldsvæðinu og fjölbreyttri afþreyingingu á vegum mótshaldara.
Keppendur HSK fá einnig afhentu treyju, merkta HSK og Arionbanka sem er aðalstyrktaraðili keppnisliðs HSK. Treyjan verður afhent í Selinu á Selfossi fimmtudaginn 2. ágúst kl. 18:00 – 21:00 og föstudaginn 3. ágúst kl. 16:00-18:00. Til að fá treyju þurfa keppendur að framvísa keppnisarmbandi mótsins, sem nálgast má í stjórnstöð mótsins í FSu.
Spennandi verkefni fyrir börn og unglinga:
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ á Selfossi
Frjálsíþróttaráð HSK mun í fjórða sinn halda Frjálsíþróttaskóla Ungmennafélags Íslands í sumar og verður hann á Selfossi annað árið í röð.
Námskeiðið stendur í fimm daga og er frá 16.-20. júlí nk. Skráningarfrestur er til föstudagsins 13. júlí 2012 fyrir kl. 23:00. Þátttakendur skrá sig á www.umfi.is, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Kostnaður vegna námskeiðsins er 17.000 kr. á þátttakenda. Innifalið er kennsla, gisting, fæði, kvöldvökur ofl. Ólafur Guðmundsson verður skólastjóri skólans eins og undanfarin ár og fær hann valinkunna frjálsíþróttamenn sér til aðstoðar.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu HSK í síma 482-1189 eða hjá Ólafi verkefnisstjóri HSK í frjálsum og skólastjóra, í síma 867-7755.
Frjálsíþróttaskólinn er ætlaður ungmennum á aldrinum 11 – 18 ára. Ungmennin koma saman kl. 13:00 á mánudeginum 16. júlí, við Selið (HSK húsið) á íþróttavellinum á Selfossi en skólanum lýkur á hádegi á föstudeginum í sömu viku. Aðaláhersla er lögð á kennslu í frjálsíþróttum. Auk frjálsíþrótta er farið í sund, leiki, óvissuferðir og haldnar kvöldvökur. Þetta eru frábærar æfingabúðir fyrir þá sem ætla að keppa á Unglingalandsmótinu um verslunarmannahelgina á Selfossi.
Búast má við góðri þátttöku í skólann og eru byrjendur í frjálsíþróttum sérstaklega hvattir til að skrá sig til leiks og kynnast íþróttinni.
Blak:
Fyrsta strandblakmót HSK vel heppnað
Fyrsta strandblakmót HSK var haldið á Flúðum á dögunum og tókst vel. Keppt var bæði í karla- og kvennaflokki.
Karlaflokkur:
HSK meistarar í karlaflokki varð lið Hrunamanna 3 með sex stig. Liðið skipuðu þeir Björn Hr. Björnsson og Rúnar Bogason. Lið Hrunamanna 4 varð í öðru sæti með fimm stig og í því liði voru þeir Hörður Úlfarsson og Baldur Rúnarsson. Jón Gunnar Sigurðsson og Sigurjón Bergsson skipuðu lið Hrunamanna 1 og urðu í 3. sæti með 2 stig.
Kvennaflokkur:
Hrunakonurnar Guðrún Eiríksdóttir og Sara Birgisdóttir urðu HSK meistarar í kvennaflokki með 6 stig. Hjördís Anna Benediktsdóttir og Emilía Petra Jóhannsdóttir, sem keppa einnig fyrir Hrunamenn, urðu í 2. sæti með 4 stig og Hólmfríður Fjóla Zoega Smáradóttir og Hugrún Sigurðardóttir sem kepptu fyrir Hvöt 1 urðu í 3. sæti með 2 stig.
HSK-mótið í golfi:
Guðmundur Ingi og Ása Margrét HSK meistarar
HSK-mótið í golfi fór fram á Strandarvelli sunnudaginn 24. júní í blíðskapar veðri. Þátttakendur voru 31.
Hér að neðan eru upplýsingar um hverjir urðu HSK meistarar, vinningshafar í hverjum flokki og hverjir unnu sveitakeppnina. Önnur úrslit má sjá inn á www.golf.is.
HSK meistarar 2012
Karlar
Guðmundur Ingi Einarsson GKB á 69 höggum
Konur
Ása Margrét Jónsdóttir GHR á 93 höggum
Sveitakeppni
1.sæti GKB á 446 höggum
2.sæti GOS á 504 höggum
3.sæti GHR á 549 höggum
Vinningshafar í öðrum flokkum voru:
2.flokkur karla
Vignir Egill Vigfússon GOS á 84 höggum
3.flokkur karla
Björgvin Elíasson GF á 96 höggum
4.flokkur karla
Heimir Hafsteinsson GHR á 103 höggum
Öldungafl.karla 55-69 ára
Samúel Smári Hreggviðsson á 77 höggum
Öldungafl.karla 70+
Jóhannaes Sigmundsson GF á 118 höggum
Piltar 18 ára og yngri
Halldór Unnar Unnsteinsson á 123 höggum
Fréttapunktar:
Meistaramót Íslands í frjálsum
86. Meistaramót Íslands, aðalhluti, verður haldið á Laugardalsvellinum um helgina. Sjá nánar á www.fri.is.
Samæfing HSK í frjálsum
Boðhlaupsæfing vegna MÍ aðalhluta og samæfing HSK hjá eldri verður fimmtudaginn 12. júlí kl. 18:00 á Selfossvelli.




