Laugardagur, 18. maí, 2013
   
Letur

HSK fréttir 20. júní 2012

Unglingalandsmót UMFÍ í sumar:

Óskað eftir sjálfboðaliðum

Um verslunarmannahelgina verður 15. Unglingalandsmót UMFÍ haldið á Selfossi.  Búist er við miklum fjölda keppenda og gesta.  Til að allt gangi vel fyrir sig þurfum við aðstoð frá góðu fólki sem er tilbúið að hjálpa okkur þessa helgi.

Störfin eru fjölbreytt, allt frá því að aðstoða við keppnisgreinar, hjálpa okkur í mótsstjórn og upplýsingamiðstöð, sinna öryggisgæslu t.d. við leiktæki barna eða selja veitingar í sölutjöldum okkar.  Þetta getur verið vinna í nokkra klukkutíma, eða eins og hver og einn getur.

Rétt er að geta þess að hugsanlegum hagnaði mótsins verður að stærstum hluta veitt til félaga, deilda og ráða í réttu hlutfalli við vinnuframlag sjálfboðaliða á mótinu.  Hér er því sem skrá sjálfboðaliða til starfa.

Nánari upplýsingar og skráning hjá Guðrúnu Tryggvadóttur verkefnisstjóra á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 894 4448.

Bláskógaskokk HSK 40 ára í ár

Bláskógaskokk HSK verður haldið á laugardag og hefst kl. 11:00. Hlaupið verður frá Gjábakka, austan Þingvallavatns eftir gamla Gjábakkavegi til Laugarvatns. Vegalengdir: 5 km og 10 mílur (16,09 km) með tímatöku.  Hlaupið er 40 ára í ár, en það var fyrst haldið 2. júlí 1972.

Flokkaskipting bæði kyn: 16 ára og yngri,17-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og eldri.  Í 5 km er keppt í flokkum 16 ára og yngri og 17 ára og eldri hjá báðum kynjum.

Allir þátttakendur fá verðlaun. Sérverðlaun verða veitt fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í 5 km og 10 mílum.

Hægt er að skrá sig á hlaupasíðunni, www.hlaup.is  og greiða með kreditkorti. Forskráningu á hlaup.is lýkur föstudaginn 22. júní kl. 21:00. Eins er skráð á staðnum (íþróttahúsi) fyrir hlaup. Nánari upplýsingar veita Sigurbjörn Árni Arngrímsson  í síma 693-1774 og Ingvar Garðarsson í síma 482 2730 og 698 5730.  Sjá nánar á www.hsk.is

Keppendur þurfa að mæta við íþróttahúsið á Laugarvatni þar sem þeir staðfesta skráningu og fá afhent keppnisnúmer frá kl. 9:00 á keppnisdag.

Ath. Keppendur verða að koma sér sjálfir á rásmark í 10 mílna hlaupinu. Í 5 km frá hlaupinu er hlaupinn hringur á Laugarvatni. Ein drykkjarstöð er á hlaupaleiðinni.  Engin bílaumferð verður um veginn meðan á hlaupinu stendur. Gegn framvísun keppnisnúmers fá keppendur aðgang í sund.  Verðlaunaafhending verður á íþróttavellinum á Laugarvatni strax eftir hlaup.

Íþróttahátíð HSK í frjálsíþróttum 2012 í Þorlákshöfn:

Halla María setti Íslandsmet í kúluvarpi

Laugardaginn 16. júní sl. fóru fram Aldursflokkamót HSK 11 – 14 ára og Héraðsleikar HSK fyrir 10 ára og yngri í frjálsíþróttum, kallað einu nafni Íþróttahátíð HSK. Mótin fóru fram í Þorlákshöfn í blíðuveðri.

109 krakkar frá 10 félögum mættu til keppni og reyndu með sér í langstökki, hástökki, kúluvarpi, spjótkasti, 60m./100m. hlaupi, 800m. hlaupi, 80m. grindahlaupi og 4x100m. boðhlaupi. Þetta er fjölgun um 24 keppendur frá í fyrra, en skiptingin var þannig að 59 þátttakendur voru á Héraðsleikunum sem er fjölgun um 13 milli ára en 50 voru á Aldursflokkamótinu sem einnig er fjölgun frá í fyrra er 39 krakkar mættu til leiks.

Keppendur á Héraðsleikum (10 ára og yngri) fengu allir verðlaunapening fyrir þátttökuna og ekki er getið um HSK meistara þar, í samræmi við stefnu hreyfingarinnar.

Á aldursflokkamótinu mátti hver þátttakandi keppa í 5 greinum auk 4x100m. boðhlaups. Á því móti er verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin. Þar voru tveir keppendur sem unnu allar greinarnar sem þeir kepptu í og voru þar af leiðandi stigahæstu einstaklingar mótsins. Styrmir Dan Steinunnarson Þór, 13 ára og Helga Margrét Óskarsdóttir Selfossi, 11 ára.

Besta afrekið á íþróttahátíðinni vann Harpa Svansdóttir 13 ára frá Selfossi fyrir langstökk 4,85 m. Selfoss sigraði svo heildarstigakeppni milli félaga, örugglega, með 289,5 stig, Þór varð í 2. sæti með 203 stig og Garpur í 3. sæti með 96 stig. Ágætur árangrar náðust á mótunum í einstökum greinum og setti til að mynda Halla María Magnúsdóttir Selfossi glæsilegt Íslandsmet í kúluvarpi í 13 ára flokki stúlkna er hún varpaði henni 12,99m. og bætti metið um hálfan metra.

 

Óli Guðm. verkefnisstjóri HSK í frjálsum.

 

HSK meistarar á aldursflokkamótinu:

60 m. 11 ára

Helga Margrét Óskarsdóttir, Selfoss 9,69

Dagur Þórðarsson, Dímon 9,98

60 m. 12 ára

Jana Lind Ellertsdóttir, Garpur 9,50

Pétur Már Sigurðsson, Selfoss 9,57

100 m. 13 ára

Halla María Magnúsdóttir, Selfoss 13,97

Baldur Viggósson Dýrfjörð, Þór 15,42

100 m.  14 ára

Fannar Yngvi Rafnarsson, Þór 12,94

800 m. 11 ára

Helga Margrét Óskarsdóttir, Selfoss 3;06,00

Einar Ágúst Ingvarsson, Skeið 3;08,72

800 m. 12 ára

Jana Lind Ellertsdóttir, Garpur 3;05,38

Ragnar Rafael Guðjónsson, Dímon 2;52,19

800 m. 13 ára

Harpa Svansdóttir, Selfoss 2;47,57

Baldur Viggósson Dýrfjörð, Þór 3;48,69

800 m. 14 ára

Teitur Örn Einarsson, Selfoss 2;33,02

80 m.grind. 13 ára

Halla María Magnúsdóttir, Selfoss 14,03

Styrmir Dan Steinunnarson, Þór 13,89

80 m.grind. 14 ára

Árdís Eva Yngvadóttir, Selfoss 19,28

Fannar Yngvi Rafnarsson, Þór 14,81

4*100 m. boðhl. 14 ára

Stúlknasveit Selfoss 59,36

Drengjasveit Þórs 1;07,14

Hástökk 11 ára

Helga Margrét Óskarsdóttir, Selfoss 1,15

Sölvi Viggósson Dýrfjörð, Þór 1,15

Hástökk 12 ára

Arndís María Finnsdóttir, Selfoss 1,10

Pétur Már Sigurðsson, Selfoss 1,35

Hástökk 13 ára

Harpa Svansdóttir, Selfoss 1,40

Styrmir Dan Steinunnarson, Þór 1,60

Hástökk 14 ára

Viktoría Bergmann Halldórsdóttir, Selfoss 1,30

Fannar Yngvi Rafnarsson, Þór 1,60

Langstökk 11 ára

Helga Margrét Óskarsdóttir, Selfoss 3,92

Einar Ágúst Ingvarsson, Skeið 3,70

Langstökk 12 ára

Jana Lind Ellertsdóttir, Garpur 4,08

Pétur Már Sigurðsson, Selfoss 4,04

Langstökk 13 ára

Harpa Svansdóttir, Selfoss 4,85

Styrmir Dan Steinunnarson, Þór 4,87

Langstökk 14 ára

Árdís Eva Yngvadóttir, Selfoss 3,55

Fannar Yngvi Rafnarsson, Þór 5,14

Kúluvarp 2,0 kg. 11 ára

Sóley Kristjánsdóttir, Íþrf.Garpur 6,00

Jakob Unnar Sigurðarson, Þór 7,40

Kúluvarp 2,0 kg.  12 ára

Elísa Rún Siggeirsdóttir, Selfoss 6,55

Stefán Narfi Bjarnason, Baldur 7,77

Kúluvarp 2,0 kg. Stúlkur 13 ára

Halla María Magnúsdóttir, Selfoss 12,99

Kúluvarp 3,0 kg. Piltar 13 ára

Styrmir Dan Steinunnarson, Þór 11,26

Kúluvarp 3,0 kg. Stúlkur 14 ára

Árdís Eva Yngvadóttir, Selfoss 7,00

Kúluvarp 4,0 kg. Piltar 14 ára

Sveinbjörn Jóhannesson, Laugd. 11,07

Spjótkast(400 gr)  11 ára

Helga Margrét Óskarsdóttir, Selfoss 19,41

Sölvi Viggósson Dýrfjörð, Þór 17,34

Spjótkast(400 gr) 12 ára

Arndís María Finnsdóttir, Selfoss 9,89

Ýmir Atlason, Vaka 21,86

Spjótkast(400 gr) 13 ára

Halla María Magnúsdóttir, Selfoss 34,92

Styrmir Dan Steinunnarson, Þór 45,61

Spjótkast(400 gr) 14 ára

Árdís Eva Yngvadóttir, Selfoss 15,11

Teitur Örn Einarsson, Selfoss 41,15

 

Landsmót UMFÍ 50+:

Fjöldi verðlauna til HSK fólks

Eins og greint var frá í síðustu HSK fréttum var 2. Landsmót UMFÍ 50+ haldið í Mosfellsbæ í byrjun júní.  Um 30 keppendur frá HSK tóku þátt í mótinu og unnu til fjölda verðlauna. Hér að neðan er greint frá árangri í einstökum greinum, þar sem vitað er að HSK fólk hafi komið við sögu, en heildarúrslit greina hafa ekki öll verið sett inn á heimasíðu mótsins, sem sjá má á www.umfi.is.

Blak

Karlalið HSK tók þátt í blakkeppni mótsins og varð Landsmótsmeistari eftir hörkuúrslitaleik við lið  annarra ungmennafélagskappa.

Boccia

Tvær sveitir voru skráðar frá Þorlákshöfn í bocciakeppnia og stóðu sig vel, þó þær næðu ekki á verðlaunapall að þessu sinni.

Bridds

Briddsveit HSK varð í þriðja sæti á mótinu.  Sveitina skipuðu þeir Kristján Már Gunnarsson, Garðar Garðarsson, Helgi Hermannsson og Brynjólfur Gestsson.

Frjálsíþróttir:

Frjálsíþróttalið HSK, sem að þessu sinni var eingöngu skipað körlum, stóð sig vel á mótinu og vann til 21 verðlauna, þar af unnust 10 Landsmótsmeistaratitlar. Guðmundur Nikuláksson varð þrefaldur landsmótsmeistari í flokki 50 – 54 ára í spjótkasti, lóðkasti og kringlukasti.  Þá varð Markús Ívarsson tvöfaldur meistari í  flokki 65-69 ára í 800 metra hlaupi og kringlukasti. Fimm kappar urðu auk þess meistarar í einni grein, þeir Ingvar Garðasson í  800 m hlaupi í flokki 50-54 ára, Jason Ívarsson í kúluvarpi  í flokki 55 – 59 ára, Jón Smári Lárusson  í kringlukasti í flokki 55 – 59 ára,  Kjartan Lárusson í lóðkasti í flokki 55 – 59 ára og Árni Einarson í spjótkasti í flokki 80 – 84 ára.

Ringó

Samhygðarliðið sem skipað var systkinum frá Vorsabæjarhól varð Landsmótsmeistari í Ringói á mótinu.  Þá tóku tvær sveitir frá Þorlákshöfn þátt í ringókeppninni, en komust ekki á pall.

 

 

Unglingamót HSK í frjálsíþróttum utanhúss og héraðsmót fatlaðra

Unglingamót HSK 15 - 22 ára utanhúss í frjálsíþróttum og héraðsmót fatlaðra í frjálsíþróttum verða haldin á Selfossi  þriðjudaginn 26. júní og hefst keppni stundvíslega kl. 19:00. Upphitun hefst kl. 18:00 og nafnakall í fyrstu greinar 18:45. Búningsaðstaða er í Tíbrá frá 18.00 - 22.30.

Keppnisgreinar og flokkaskipting:

Stúlkur 15 ára: 100 m hlaup - 80 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk - spjótkast  - kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Stúlkur 16 – 17 ára: 100 m hlaup - 100 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk - spjótkast  - kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Stúlkur 18 – 19 ára: 100 m hlaup - 100 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk - spjótkast  - kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Stúlkur 20 – 22 ára: 100 m hlaup - 100 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk - spjótkast  - kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Piltar 15 ára: 100 m hlaup - 100 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk -spjótkast – kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Piltar 16 – 17ára: 100 m hlaup - 110 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk -spjótkast – kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Piltar 18 - 19 ára: 100 m hlaup - 110 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk - spjótkast  - kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Piltar 20 -22 ára: 100 m hlaup - 110 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk -spjótkast – kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Héraðsmót fatlaðra:

100 m hlaup karla - 100 m hlaup kvenna – langstökk karla - langstökk kvenna – kúluvarp karla – kúluvarp kvenna.

 

Fjöldi greina og keppnisréttur

Á unglingamótinu er heimilt að keppa í 5 greinum, auk boðhlaups.  Keppendum er ekki heimilt að keppa upp fyrir sig í aldri nema í þeim greinum sem ekki er boðið upp á í viðkomandi aldursflokki. Yngri en 15 ára geta ekki keppt til stiga á unglingamótunum.

Skráningar

Skráning fer fram á vef FRÍ,  sjá mótaforrit á heimasíðunni, www.fri.is Þjálfari eða forsvarsmaður hvers félags á að hafa aðgangsorð að síðunni. Þau félög sem hafa ekki fengið aðgang geta haft samband á skrifstofu HSK og fengið aðgangaorð. Kennitala þarf að fylgja hverjum keppanda.  Skráningarfrestur er til kl. 23:00 mánudaginn 25. júní. Skráningargjald er kr. 1500,- á hvert nafn óháð fjölda greina. Mótshaldari áskilur sér rétt til breytinga á tímaseðli ef skráning gefur tilefni til.

Verðlaun

Þrír fyrstu í hverri grein fá verðlaunapening. Auk þess verða veitt eftirfarandi sérverðlaun: stigahæsta félag, besta afrek einstaklings á mótinu og stigahæsti einstaklingur.

Stigakeppni félaga

Sex fyrstu í hverri grein fá stig fyrir sitt félag. 1. sæti gefur 6 stig, 2. sæti 5 stig o.s.fr. Verði félög jöfn að stigum sigrar það félag sem fleiri sigurverara á á mótinu.

Starfsmenn félaga

Samkvæmt nýrri reglugerð um héraðsmót í frjálsíþróttum skiptir stjórn frjálsíþróttaráðs greinum á milli þátttökufélaga og verður sú skipting kynnt um leið og skráningar liggja fyrir.

 

MÍ í tugþraut á Selfossvelli:

Haraldur bætti sig um rúm 500 stig

Helgina 2. – 3. júní s.l. fór fram á Selfossi Meistaramót Íslands annar hluti í blíðskaparveðri. Í þessum hluta er keppt í tugþraut og sjöþraut ásamt lengri boðhlaupum og 5-og 10km hlaupi á braut.

Haraldur Einarsson úr Vöku og liðsmaður HSK varð annar í tugþraut karla með 5.660 stig sem er bæting á persónulegu meti um rúm 500 stig.   Röð greina í þraut er: 100m hlaup, langstökk, kúluvarp, hástökk, 400m hlaup, 110m grindahlaup, kringlukast, stangarstökk, spjótkast og 1500m hlaup. Árangur í einstökum greinum varð eftirfarandi hjá Haraldi: 11,42  6,43 – 10,24 -1,70 – 51,00 – 16,83 – 29,07 – 2,90 – 42,91 – 5:12,31.  Sjá nánar á www.fri.is

 

Knattspyrna:

Þrjár uppaldar hjá KFR í U16

Þrjár stúlkur uppaldar hjá KFR voru valdar í æfingahóp hjá U16 landsliði kvenna sem æfir fyrir Norðurlandamótið, sem fer fram í Noregi í júlí.  Það er órtúlega góður árangur hjá svo litlu félagi að eiga þrjár í þessum hópi.   Þetta eru þær Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Hrafnhildur Hauksdóttir og Katrín Rúnarsdóttir. Kartín leikur þessa dagana með Selfyssingum en Bergrún og Hrafnhildur með ÍBV í samstarfi ÍBV og KFR. Bergrún hefur æft með æfingahópi í vetur og spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Íslands hönd, á móti Dönum í Egilshöllinni í mars.

Það er gaman að segja frá því að KFR á einnig tvær í A- landsliði kvenna en það eru þær Hólmfríður Magnússdóttir og Dagný Brynjarsdóttir sem báðar eru uppaldar hjá KFR

Hér eru Hrafnhildur og Bergrún  ásamt þjálfara sínum Lárusi Viðari Stefánssyni. Til hamingju með þetta öll.

Frétt frá KFR

 

Fréttapunktar:

Golkflúbbur Hellu 60 ára

Golkflúbbur Hellu verður 60 ára á föstudag, en félagið var stofnað 22. júní árið 1952.  Félagið gekk í HSK 28. febrúar árið 1981.

HSK mót í strandblaki

Fyrsta HSK mótið í strandblaki verður haldið á Flúðum sunnudaginn 1. júlí. Áætlað er að hefja leik um kl 13:00 en það fer eftir fjölda þátttöku liða. Keppt verður í kvenna- og karlaflokki og farið eftir strandblaksreglum. Skráning verður á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. dagana 25. – 29. júní.

Sundnámskeið Sunddeildar  Hamars

Sundnámskeið Sunddeildar  Hamars hefst miðvikudaginn  27. júní og stendur til 12. júlí, kennt verður fyrir hádegi. Krakkar fædd 2008 og eldri eru velkominn á námskeiðið. Námskeiðin verða alls 12 skipti. Námskeiðsgjald er kr. 9.500 og greiðist í fyrsta tíma. Leitast verður við að raða krökkunum niður eftir getu og aldri. Krakkar á skólaaldri velkomin, það er pláss fyrir alla. Upplagt til að skerpa sundtæknina. Kennslu annast Magnús Tryggvason íþróttafræðingur. Skráning hjá Magnúsi  í síma 898-3067.

 



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson