Fimmtudagur, 23. maí, 2013
   
Letur

HSK fréttir 30. maí 2012

Gengið á Skarðsmýrarfjall í kvöld

HSK mun standa fyrir fjölskyldugöngu á Skarðsmýrarfjall í kvöld,  miðvikudag. Mæting er við Skíðaskálann í Hveradölum kl. 19:00 og þaðan verður sameinast í bíla.  Göngustjóri verður Björn Pálsson í Hveragerði. Allir velkomnir og það kostar ekkert að taka þátt.

Skarðsmýrarfjall er tæpir 597 metrar á hæð og er á norðanverðri Hellisheiði. Svæðið norðan og austan við heitir Hengilssvæðið og hefur upp á mjög áhugavert landslag að bjóða. Náttúrufar er fjölbreytt, hvera og gígasvæði, ár og stöðuvötn og fjölbreytt gróðurfar. Hengilssvæðið er meðal stærstu háhitasvæða á Íslandi.

HSK gangan á Vatnsfall verður síðan laugardaginn 16. júní og verður nánar greint frá þeirri göngu hér í Sunnlenska þegar nær dregur.

J.J. mót Ármanns í frjálsum – Annað mótið af sex í mótaröð FRÍ:

Hreinn Heiðar og Halli Einars  sigruðu sínar greinar

- Hulda með íslandsmet í spjótkasti

Fimmtudagskvöldið 24. maí s.l. fór fram svokallað J.J. mót Ármanns í frjálsíþróttum á Laugardalsvellinum í rigningarúða og hægum sunnan vindi. Þetta er annað mótaraðarmót FRÍ í sumar en mótin eru sex í það heila.

HSK átti átta keppendur sem allir stóðu sig með sóma. Hæst bar að Hreinn Heiðar Jóhannsson Laugdælum stökk allra karla hæst í hástökkinu með 1,85m og Haraldur Einarsson Vöku sigraði í 100m hlaupi karla á 11.76 sek. í tölvuverðum mótvindi. Þetta gefur þeim félögum  fjögur stig hvorum  í heildarstigakeppni mótaraðarinnar.

Dagur Fannar Magnússon Selfossi varð annar í sleggjukasti karla er hann bætti sinn persónulega árangur um tæpan hálfan metra með kasti upp á 47,00 m. Í kúluvarpi karla varð Ólafur Guðmundsson  Laugdælum annar með 11,72m. Í spjótkasti kvenna átti HSK tvo keppendur. Jóhanna Herdís Sævarsdóttir Laugdælum varð fjórða með 32,31m sem er lengra en á Vormóti HSK á dögunum og svo Guðrún Hulda Sigurjónsdóttir Suðra sem kastaði 19,98m, varð sjötta og setti um leið íslandsmet í sínum fötlunarflokki. Flott hjá henni.   Sólveig Helga Guðjónsdóttir og Edda Þorvaldsdóttir báðar í Selfoss kepptu svo í 100m hlaupi í miklum mótvindi þar sem Sólveig varð fjórða á 14,11 sek. og Edda fimmta á 14,31 sek. Sólveig átti svo síðasta orðið hjá HSK fólki á þessu móti er hún kom fjórða í mark í 300m hlaupi kvenna á 44,93 sek., sem er ágætur tími miðað við vindinn.

Í lokin má svo geta þess að Hreinn Heiðar er með fullt hús stiga í stigakeppni Mótaraðarinnar með 8 stig þar sem hann er búinn að sigra hástökkið á fyrstu tveim mótunum. En hægt er að fá mest 4 stig fyrir hvert mót innana mótaraðarinnar. Haraldur Einarsson og Ólafur Guðmundsson eru svo stutt á eftir með 6 stig hvor.

Ólafur Guðmundsson

Frjálsíþróttir:

Agnes Erlingsdóttir í bætingastuði á hlaupabrautinni

Agnes Erlingsdóttir frjálsíþróttakona úr Laugdælum  er í feiknastuði þessa dagana. Hún er nú við æfingar og nám í Noregi og hefur æft vel í vetur og er að uppskera vel strax í upphafi keppnistímabils. Agnes er búin að keppa á fjórum mótum nú  í maí í 400m og 800m hlaupum og bætt sig á þeim öllum.

Fyrsta mótið var æfingamót í Ås 14. maí. Þar keppti  Agnes í 400m hlaupi, rauf 60 sek. múrinn í fyrsta sinn, hljóp á 59,51 sek. en hún átti áður 61,15 sek. 20. maí keppti Agnes aftur í 400m hlaupi og nú á opnunarmóti í Jessheim í sambandi við Noregsmeistaramótið í boðhlaupum. Hún hljóp nánast keppnislaust á góðri bætingu 59,04 sek. sem er frábært hjá henni. Fimmtudaginn 24. maí var komið að hennar aðalgrein, 800m hlaupi. En Agnesi  var þá boðið að keppa á sterku móti á Bislett leikvanginum fræga í Osló, svokölluðu Hyundai Grandprix móti. Þar hljóp hún í sterkum riðli tímanum 2:17,50  mín sem er bæting utanhúss og alveg við  HSK met í  20-22 ára flokki stúlkna en metið er 2:17,3 mín sem Aðalbjörg Hafsteinsdóttir frá Selfossi á. HSK metið í kvennaflokki er 2:14,09mín í eigu Unnar Stefánsdóttur Samhygð. Utanhúss átti Agnes  2:20,25mín. Hennar besti innanhússtími er 2:17,75 mín. sem er HSK met innanhúss í kvenna- og stúlknaflokki 20-22 ára.

Fjórða mótið á stuttum tíma var svo 27. maí í Lilleström þar sem hún keppti í 400m hlaupi. Agnes var ekki að breyta út af vananum heldur bætti sig í þriðja sinn á hálfum mánuðu í 400m hlaupi, fór vegalengdina að þessu sinni á 58,77 sek.

Frábært hjá Agnesi og greinilegt að hún er í fínu formi og verður gaman að fylgjast með henni á mótum sumarsins.

 

Ólafur Guðmundsson  verkefnisstjóri HSK  í frjálsum.

Ungmennavika

Dagana 1.-12. ágúst 2012 verður haldin Norræn ungmennavika á Nuuk á Grænlandi. Vikan sem er nú reyndar rúmlega vika, ber heitið ARSARNERIT eða NORÐURLJÓS. Þátttakendur verða m.a. frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Eistlandi, Grænlandi og Íslandi en einungis fimm íslensk ungmenni á aldrinum 16 – 25 ára fá að fara í þetta ævintýri. Einn íslenskur fararstjóri fer með íslenska hópnum út og verður með honum allan tímann. Tilgangur verkefnisins er að ungmenni þessara landa kynnist og takist á við sameiginleg verkefni. Meðal verkefna sem unnið verður að eru; sagan, matargerð, listir, umhverfið, íþróttir og menntun.

Heildarkostnaður er um 150.000.- en með styrk UMFÍ verður hlutur þátttakenda kr. 50.000.- Sú venja hefur hinsvegar viðgengist að héraðssamband og félag sem viðkomandi er í hafa styrkt þátttakenda til fararinnar og dæmi eru um að þessir aðilar hafi greitt hlut þátttakenda að fullu. Umsóknir um þátttöku skal senda á Ómar Braga Stefánsson Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 1.júní 2012 en hann veitir jafnframt frekari upplýsingar um Ungmennavikuna.  Á facebook má finna meira um þetta á: nordisk ungdomsuge 2012

 

Íþróttasjóður ríkisins:

Tæpum fimm milljónum úthlutað á HSK svæðið

Íþróttanefnd ríkisins veitir árlega styrki til hinna ýmu verkefna og umsóknarfrestur til 15. október ár hvert.

Alls 119 umsóknir að upphæð 72.581.257 kr. um styrki úr Íþróttasjóði vegna ársins 2012. Mennta- og menningarmálaráðherra hefur samþykkt tillögur íþróttanefndar, alls að upphæð 15.845 m.kr. til 62 verkefna. Hér er yfirlit um styrki sem veittir voru inn á HSK svæðið í ár.

Umsækjandi Verkefni Upphæð

Fimleikadeild Umf. Selfoss Kaup á tækjum fyrir Fimleikaakademíu Fimleikadeildar Umf. Selfoss og FSU 25.000

Fimleikadeild Umf. Selfoss Kaup á trompólíni 250.000

Fimleikadeild Umf. Þórs Kaup á dýnu vegna fimleikaiðkunar 200.000

Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss Kaup á íþróttaáhöldum á nýjan frjálsíþróttaleikvang 300.000

Golfklúbburinn Dalbúi Uppbygging á æfingaaðstöðu 200.000

Íþróttafélagið Garpur Kaup á dýnu vegna fimleikaiðkunar 250.000

Umf. Biskupstungna Kaup á frjálsíþrótta áhöldum 200.000

Umf. Laugdæla Kaup á áhöldum fyrir frístundaskóla UMFL. 100.000

Umf. Laugdæla Kaup á fimleikahring 50.000

Styrkveiting til útbreiðsluverkefna

Umsækjandi Verkefni Upphæð

Körfuknattleiksdeild Umf. Þórs Míkróbolti útbreiðsla og kynning á körfubolta fyrir 4-6 ára 100.000

Styrkveiting til íþróttarannsókna

Umsækjandi Verkefni Upphæð

Rannsóknarstofa í Íþrótta og heilsufræði Atgervi ungra Íslendinga 1.800.000

Rannsóknarstofa í Íþrótta og heilsufræði Rannsókn á mun á djúpvatnshlaupi með og án flotbeltis og hlaupi á bretti og á braut hjá íþróttamönnum 800.000

Rannsóknarstofa í Íþrótta og heilsufræði Þrek, holdafar og efnaskiptaheilsa fatlaðra íslenskra barna 600.000

Samtals

4.875.000

 

Mótaröð FRÍ 2012

Mótaröð FRÍ er röð opinna frjálsíþróttamóta þar sem fremstu frjálsíþróttamenn landsins verða í eldlínunni. Keppt verður til verðlauna á öllum mótunum en mótaröðin verður jafnframt stigakeppni þar sem sigurvegarar hennar fá að lokum flugmiða í verðlaun. Verðlaun sem keppt verður um eru peningaverðlaun, gjafabréf á veitingastaði, flugmiðar, Usain Bolt ilmur frá PUMA ofl. Heildarverðmæti verðlauna er 1.330.000 kr.

Mótin eru sex talsins og hafa tvö þeirra þegar farið fram, Vormót HSK og JJ-mót Ármanns.

Mótin sem eftir eru:

6.júní Vormót ÍR á Laugardalsvelli

12.júní Kastmót FH í Kaplakrika

21.júlí Akureyrarmótið

15.ágúst Ágústmót Breiðabliks í Kópavogi

Fréttapunktar:

 

Meistaramót Íslands í fjölþrautum

Meistaramót Íslands í fjölþrautum, lengri boðhlaupum og 5-og 10km kvenna og karla á braut verða haldin á Selfossvelli 2. 3- júní nk.  Það er frjálsíþróttaráð HSK sem sér um framkvæmd keppninnar í ár.Keppni hefst báða dagana kl. 11:00.  Sjá nánari upplýsingar á www.hsk.is

Sumarfjarnám 1. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun

Sumarfjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 18. júní nk.  Námið tekur 8 vikur og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu og er metið sem slíkt. Fjarnámið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa. Nemendur skila verkefni í hverri viku auk lokaverkefnis og krossaprófa. Skráning er til 14. júní á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 514-4000.  Þátttökugjald er kr. 24.000.- Allar frekari uppl. veitir sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 og á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  Sjá einnig á www.isi.is.

 

 

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson