Sunnudagur, 19. maí, 2013
   
Letur

Glæsilegur sigur Selfyssinga gegn Fram

Nýliðar Selfoss unnu góðan sigur á Fram, 2:0, í Pepsi-deild karla í fótbolta á Laugardalsvellinum í kvöld. Bæði mörkin voru skoruð í seinni hálfleik. Fyrri hálfleikur var afar tíðindalítill en eina færið fékk Viðar Örn Kjartansson, Selfyssingur. Upp úr engu barst honum boltinn upp við mark Fram en viðstöðulaust skot hans fór framhjá. Viðar bætti þó upp fyrir það á 50. mínútu þegar hann krækti í vítaspyrnu eftir að Ögmundur í marki Fram hafði brotið á honum. Viðar tók spyrnuna sjálfur og skoraði. Undir lok leiksins sóttu Framarar mikið og gerðu hvað þeir gátu til að jafna. Það voru þó Selfyssingar sem bættu við marki en það gerði Joe Tillen af miklu harðfylgi á 88. mínútu. Fram er með þrjú stig eftir leikinn í kvöld en Selfoss er komið með sex stig eftir sigurinn.

Þetta kemur fram í íþróttafréttum á www.mbl.is



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson