HSK fréttir 8. mars 2012
90. héraðsþing HSK á laugardag:
Þingið haldið í Brautarholti í fyrsta sinn
90. héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins verður haldið í félagsheimilinu í Brautarholti á Skeiðum á laugardag og hefst stundvíslega kl. 10:00. Afhending þinggagna er frá kl. 9:30. Þetta er í fyrsta sinn í rúmlega 100 ára sögu HSK að þing sambandsins er haldið í Brautarholti.
Rétt til setu á þinginu eiga 117 fulltrúar frá 58 aðildarfélögum HSK og tveimur sérráðum sambandsins. Þá hafa tvö félög sótt um aðild að sambandinu og verðrur umsókn þeirra tekin fyrri á þinginu, félögin eru Skotfélagið Skyttur og Torfæruklúbbur Suðurlands.
Á þinginu kemur út ríkulega myndskreytt 80 blaðsíðna ársskýrsla um starfsemi HSK á liðnu ári. Auk hefðbundinna þingstarfa verður Íþróttamaður HSK 2011 kjörinn á þinginu. Fimm manna valnefnd sá um að velja íþróttamann líkt og undanfarin ár, en alls voru 21 íþróttamenn í jafn mörgum greinum tilnefndir. Hafa þeir allir verið boðaðir á verðlaunahátíð HSK sem haldin verður í Brautarholti kl. 15:15 á laugardag.
Stjórn HSK mun leggja fram 23 tillögur á þinginu og þá mun kjörnefnd leggja fram tillögu að nefndar- og stjórnarskipan HSK 2011. Ragnar Sigurðsson, varaformaður HSK, gefur ekki kost á sér til endurkjörs, en hann hefur verið varaformaður sambandsins sl. 10 ár. Þá gefur Ásta Laufey Sigurðardóttir ekki kost á sér, en hún var kosin í varastjórn HSK árið 2010.
Nánari upplýsingar um þingið hafa verið sendar til félaga og ráða. Nánari upplýsingar um þingið, s.s. dagskrá, fulltrúafjölda félaga og tillögur sem lagðar verða fram má finna á heimasíðu HSK, www.hsk.is undir liðnum viðburðir.
Héraðsmót HSK í frjálsum:
Laugdælir unnu stigakeppnina í fyrsta sinn
Hérðasmót HSK í frjálsíþróttum í fullorðinsflokki fór fram í Laugardalshöllinni sl. sunnudag og var ágæt þátttaka á mótinu. Flestir keppendur komu frá Umf. Selfoss og Umf. Laugdæla, en stigakeppni félaga stóð á milli þeirra. Eftir hörkukeppni framan af fór svo að Laugdælir unnu stigakeppnina nokkuð örugglega með 160,5 stig á móti 110,5 stigum Selfoss. Þar munaði mestu um geysisterkt karlalið Laugdæla. Þetta er í fyrsta skipti í sögu héraðsmóts HSK í frjálsum sem Laugdælir vinna stigakeppni mótsins, en mótið var fyrst haldið árið 1961.
Ágætur árangur náðist í fjölda greina og litu þó nokkrar persónulegar bætingar dagsins ljós. Hæst ber árangur Elinborgar Önnu Jóhannsdóttur Laugdælum er hún bæti sig um tæpan hálfan metra í þrístökki og sigraði, stökk 10,61m sem fleytir henni í úrvalshóp FRÍ í hennar flokki, 16–17ára. Elinborg varð líka iðin við stigasöfnun fyrir sitt félag en hún sigraði til að mynda þrjár greinar á mótinu. Þess má geta að tvö systkini Elinborgar, Hreinn Heiðar og Ingibjörg ásamt pabba þeirra kepptu einnig á mótinu og sópuðu inn stigunum. Náði fjölskyldan í 79 stig af 160,5 stigum Laugdæla.
Eitt HSK met var sett, en það var Dagný Lísa Davíðsdóttir Selfossi sem bætti sitt eigið met í 60m grindahlaupi í flokki 15 ára á kvennahæð er hún hljóp á 10,53 sek, en gamla metið var 10,76 sek. Sólveig Helga Guðjónsdóttir Selfoss, Bjarni Már Ólafsson Vöku og Ólafur Guðmundsson Laugdælum unnu svo þrjár greinar hvert.
Heildarúrslit eru á www.fri.is.
HSK meistarar:
60 m.
Bjarni Már ólafsson, Vöku
7,54
Sólveig Helga Guðjónsdóttir, Selfoss
8,41
200 m.
Hreinn Heiðar Jóhannsson, Laugd.
25,26
Sólveig Helga Guðjónsdóttir, Selfoss
27,76
800 m.
Aron Kárason, Laugd.
2;33,16
Sólveig Helga Guðjónsdóttir, Selfoss
3;12,90
60 m.grind.
Ólafur Guðmundsson, Laugd.
9,06
Eva Lind Elíasdóttir, Þór
9,85
4*200 m.boðhl.
Karlasveit Laugdæla
1;59,44
Kvennasveit Selfoss
2;00,39
Hástökk
Anton Kári Kárason, Laugd.
1,85
Elinborg Anna Jóhannsdóttir, Laugd.
1,45
Langstökk
Bjarni Már ólafsson, Vöku
6,27
Elinborg Anna Jóhannsdóttir, Laugd.
4,75
Þrístökk
Bjarni Már ólafsson, Vöku
13,68
Elinborg Anna Jóhannsdóttir, Laugd.
10,61
Stangarstökk
Ólafur Guðmundsson, Laugd.
3,00
Theodóra Jóna Guðnadóttir, Dímon
2,40
Kúluvarp
Ólafur Guðmundsson, Laugd.
12,31
Ágústa Tryggvadóttir, Selfoss
11,10
Keppt með nýju formi á héraðsleikum HSK
Héraðsleikar HSK í frjálsum fyrir keppendur 10 ára og yngri voru haldnir í íþróttahúsinu á Hvolsvelli sl. laugardag. Keppni í flokkum 8 ára og yngri var með nýju sniði. Þar kepptu lið saman í krakkafrjálsum í svokallaðri þrautabraut, sem samanstóð af átta mismunandi stöðvum. Þetta form þótti takast vel og er örugglega komið til að vera. Í flokkum 9-10 ára var keppt í hefðbundnum greinum.
Aðalfundur Garps:
Vertu Garpur til líkama og sálar!
Íþróttafélagið Garpur verður tuttugu ára á þessu starfsári en stofnfundur félagsins var haldinn að Laugalandi í Holtum 30. september árið 1992.
Á aðalfundi Garps í ár sem haldinn var að Laugalandi þann 22. febrúar sem bar upp á öskudag (eins og sjá má á meðfylgjandi mynd af stjórn) voru ýmis mál rædd eins og vera ber á aðalfundi og að sjálfsögðu bar afmælið á góma og er fyrirhugað að halda veislu Garpi og Görpum til heiðurs með haustinu.
Formaður Garps er Harpa Rún Kristjánsdóttir, gjaldkeri var kjörin Friðgerður Guðnadóttir í stað Guðrúnar Arnbjargar Óttarsdóttur, ritari er Herdís Styrkársdóttir. Meðstjórnendur eru: Guðrún Arnbjörg Óttarsdóttir, Jóhanna Hlöðversdóttir og Kristinn Guðnason. Fulltrúi nemenda Laugalandsskóla er Sigþór Helgason.
Ársþing Glímusambandsins:
Ólafur Oddur endurkjörinn formaður GLÍ
Ólafur Oddur Sigurðsson úr Umf. Laugdæla var endurkjörinn formaður Glímusambands Íslands með lófaklappi á ársþingi sambandisns sem fram fór í Reykjavík sl. laugardag.
Umræður á þinginu voru góðar og vorur allir stjórnarmenn í aðalstjórn endurkjörnir. Sabína Steinunn Halldórsdóttir Umf. Laugdæla gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í varastjórn og var Guðmundur Stefán Gunnarsson kjörin nýr inn í varastjórn.
Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ sótti þingið og flutti góðar kveðjur og óskaði glímumönnum til hamingju með gott starf. Ólafur sæmdi Sigmund Stefánsson, félagsmann í Umf. Samhygð gullmerki ÍSÍ fyrir mikið og gott starf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Sigmundur starfaði í yfir áratug í stjórn Glímusambandsins og verið mjög farsæll í starfi fyrir glímuhreyfinguna.
Ráðstefnan „Ungt fólk og lýðræði“
Ráðstefnan „Ungt fólk og lýðræði“ verður haldin á Hótel Hvolsvelli 29. – 31. mars nk. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni verður ungt fólk og fjölmiðlar. Ungmennafélag Íslands hefur ávallt lagt áherslu á lýðræðislega þátttöku ungs fólks og vandað hefur verið til dagskrár ráðstefnunnar. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson mun ávarpa þátttakendur við setningu ráðstefnunnar. Þátttakendur byrja að fá kynningu um fjölmiðla, mannréttindi og hópefli og velja sér síðan vinnustofur í framhaldi af því. Kvöldvökur verða bæði kvöldin og ættu allir að hafa bæði gagn og gaman af.
Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður við 70 manns. Þátttökugjald eru 10.000.- fyrir hvern einstakling og eru allar ferðir, upphald og ráðstefnugögn innifalin.
Nánari upplýsingar hjá Ungmennafélagi Íslands í síma 568-2929 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Fréttapunktar:
Fimleikanámskeið hjá Framtíðinni
Ungmannafélagið Framtíðin stendur fyrir fimleikanámskeiði laugardagana 17. mars og 21. apríl nk. Meistaraflokkur fimleikadeildar Selfoss mætir og þjálfar í Íþróttahúsinu Þykkvabæ. ALLIR VELKOMNIR! Skráning hjá Hjördísi Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða gsm 691 5474.
Ferð Vöku í Klifurhúsið
Umf. Vaka stendur fyrir ferð í Klifurhúsið í Reykjavík fimmtudaginn 15. mars næstkomandi. Þar er hægt að klifra upp um hina ýmsu veggi af öllum stærðum og gerðum. Allir 8 ára og eldri eru velkomnir en krakkar undir 12 ára þurfa að vera í fylgd fullorðinna. Leigður verður salur og leiðbeinandi sem kennir okkur tökin. Lagt verður af stað strax eftir skóla eða kl. 14:00 með rútu frá Þjórsárveri og er áætluð heimkoma um 17:30-18:00. Mikilvægt er að taka með sér nesti til að borða á leiðinni þar sem farið verður beint úr skólanum en síðan verður stoppað í sjoppu á heimleiðinni til að fá sér eitthvað gotterí. Ferðin kostar 1500-2000 kr á mann, fer allt eftir þátttöku. Öllum er velkomið að koma óháð félögum. Panta þarf í síma 661-1239 (Laufey) í síðasta lagi miðvikudaginn 7. mars þar sem það þarf að panta salinn með viku fyrirvara




