Íþróttir
10 einstaklingar frá UMF. Selfoss í Taekwondo eru að fara að keppa á Norðurlandamóti í Finnlandi í bardaga og formum. Farið verður út á föstudaginn 24. maí og hefst keppni á laugardeginum.
Lesa nánar: 10 frá Selfossi keppa á Norðurlandamótinu í Taekwondo um helgina
Undirbúningur Landsmótsliða HSK í blaki:
Ágætu blakiðkendur – það er komið að því
Eins og vonandi flestir vita fer Landsmót UMFÍ fram á Selfossi í sumar, dagana 4.-7. júlí („stóra landsmótið“). HSK mun að sjálfsögðu senda bæði karla- og kvennalið til keppni í blaki. Þjálfari hefur verið fenginn til þess að stýra báðum liðum og er það Hilmar Sigurjónsson.
Fyrsta æfingin til undirbúnings Landsmótsins fer fram þriðjudaginn 21. maí. Kvennaæfingin fer fram á Hvolsvelli og hefst hún kl. 18.00. Karlaæfingin fer fram í Hveragerði og hefst hún kl. 20.30. Stefnan er að sjálfsögðu sett hátt, eins og venjan er hjá HSK, og vonumst við eftir góðri mætingu svo hægt sé að stilla upp og æfa sterk keppnislið.
Með blakkveðju,Gunnhildur Hinriksdóttir, formaður blaknefndar HSK
Stefnumótandi ráðstefna um landsmót UMFÍ
Laugardaginn 11. maí sl. var haldin á Húsavík stefnumótandi ráðstefna um landsmót Ungmennafélags Íslands. Var þar fjallað um flest allt er snertir landsmót UMFÍ þ.e. stóra Landsmótið, Unglingalandsmótið og Landsmót 50+. Ráðstefnan tókst mjög vel en unnið var í sex vinnuhópum. Allir hóparnir fjölluðu um mótin þrjú og skilaði hver hópur fyrir sig áliti. Var þetta liður í umfjöllun um mótin innan hreyfingarinnar.
Á sambandsráðsfundi UMFÍ, sem haldinn var á Kirkjubæjarklaustri haustið 2012, lagði HSK fram tillögu um að að halda stefnumótandi ráðstefnu um landsmótin. Var tillagan samþykkt og skipuð nefnd sem sá um undirbúning ráðstefnunnar. Örn Guðnason, varaformaður HSK, átti sæti í undirbúningsnefndinni. Guðríður Aadnegard, formaður HSK, og Örn Guðnason, varaformaður HSK, sóttu ráðstefnuna á Húsavík fyrir hönd HSK.
Landsmót UMFÍ 50 + haldið helgina 7. – 9. júní í Vík í Mýrdal:
Búið að opna fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50 +
Landsmót UMFÍ 50 + haldið helgina 7. – 9. júní í Vík í Mýrdal.
Við hvetjum ykkur til að taka þátt í þessu skemmtilega móti og senda þessar upplýsingar á sem flesta. Allir geta tekið þátt í mótinu óháð félagsaðild að ungmennafélagi.
Mótið er íþrótta - og heilsuhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Auk keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verður boðið upp á ýmsa afþreyingu fyrir keppendur og gesti. Hægt verið að fara í sögugöngu um Vík í Mýrdal, Zumba, sundleikfimi, kvöldvökur og enda kvöldið á dansleik. Því er óhætt að segja að eitthvað verður í boði fyrir alla.
Keppnisgreinar á mótinu eru: Utanvegarhlaup um náttúruperlur Mýrdals, boccia, bridds, golf, frjálsíþróttir, hestaíþróttir, línudans, pútt, ringó, skák, pönnukökubakstur, dráttavélaakstur, kjötsúpugerð, ljósmyndamaraþon,búfjárdómar, sund, sýningar, þríþraut og utanvegar hjólreiðar. Allir á aldrinum 50 ára og eldri geta tekið þátt í keppnisgreinum mótsins. Þátttakendur greiða eitt mótsgjald og öðlast með því þátttökurétt í öllum keppnisgreinum. Mótsgjald er 3500 krónur óháð greinafjölda. Skráning fer fram á heimasíðu mótsins www.landsmotumfi50.is.
Sjáumst á Landsmóti UMFÍ 50 + í Vík í Mýrdal 7. – 9. júní 2013 kát og hress .
Frekari upplýsingar um mótið er að finna inn á www.landsmotumfi50.is eða senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. sími: 568-2929
Sigurður Guðmundsson framkvæmdarstjóri Landsmóts UMFÍ 50+
Evrópumeistaramótið í glímu og keltnesku fangi:
Marín Laufey Davíðsdóttir Evrópumeistari í glímu
Marín Laufey Davíðsdóttir varð Evrópumeistari í glímu þann 25.apríl síðastliðinn þegar fram fór Evrópumeistaramót í glímu og keltneskum fangbrögðum hér á landi.
Marín varð einnig í öðru sæti bæði í back-hold og gouren sem er glæsilegur árangur. Gurðún Inga Helgadóttir keppti einnig á þessu móti og stóð hún sig með glæsibrag, varð í 3 .sæti í glímu og back-hold og fjórða sæti í gouren. Þess má geta að Guðrún var yngsti keppandi mótsins.
Sjá nánar á www.glima.is.
HSK mót í fimleikum:
Selfoss vann alla flokka
Seinnihluti fimleikamóts HSK var haldinn sunnudaginn 5. maí 2013 í Vallaskóla á Selfossi. Keppendur frá þremur aðildarfélögum HSK mættu til leiks. Selfoss, Þór Þorlákshöfn og Hamar Hveragerði.
Keppt var í 3., 2., 1., meistaraflokki og opnum flokki. Selfoss var sigurvegari í öllum flokkum en sjá má úrslit HSK mótsins hér að neðan:
Úrslit
Opinn flokkur Gólf Dýna Tramp Samtals
Þór T1 12,5 10,45 10,6 33,55
Selfoss 5 11,55 8,75 10,2 30,5
Selfoss 3 16,9 12,1 10,9 39,9
Mfl.
Selfoss 1 21,2 14,9 13,25 49,35
Selfoss mix 17,85 15,15 13,75 46,75
2.flokkur
Selfoss 5 15 9,05 11,35 35,4
Selfoss 4 16,9 13,65 12,35 42,9
Selfoss kk 13,15 12,25 14,05 39,45
Hamar T1 10,65 7,75 11,4 29,8
3.flokkur
Selfoss kk 5,6 6,3 10,4 22,3
Selfoss 6 15,75 13 11,3 40,05
Selfoss 8 a 13,55 9,85 10,45 33,85
Selfoss 8 b 11,35 7,25 9,95 28,55
Þór T2/3 11,1 6,75 10,55 28,4
Hamar T2 8,65 10,55 10,4 29,6
Mótaröð FRÍ:
Vormót HSK Selfossvelli
Frjálsíþróttaráð HSK býður til Vormóts HSK á Selfossi, sem um leið er fyrsta mótið af sex í Mótaröð FRÍ sumarið 2013.
Vormótð verður haldið sunnudaginn 19. maí (Hvítasunnudagur) á Selfossvelli og hefst það kl. 13:00 þannig að upphitun hefst kl. 12:00.
Keppt verður í 19 greinum á vormótinu og eru þær eftirfarandi:
Karlar: 100m, 300m, 110m gr, 800m, 4x100m boðhlaup, hástökk, þrístökk, spjótkast, sleggjukast, kúluvarp karla, pilta 16.-17ára og pilta 18-19ára.
Konur: 100m, 300m, 100 gr, 3000m, 4x100m boðhlaup, hástökk, langstökk, spjótkast, kringlukast.
Þátttökugjald er 1500kr á grein og greiðist áður en mót hefst. Einnig er hægt að greiða þátttökugjaldið fyrirfram í heimabanka inn á reikning frjálsíþróttaráðs HSK: 0325-26-003003 kt. 681298-2589, sendið staðfestingu á netfang gjaldkera frjálsíþróttaráðs HSK, Steinunnar Emiliu Þorsteinsdóttur: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Skráningarfrestur er til 24:00, miðvikudaginn 15. maí n.k. Hægt er að skrá sig til kl. 17:00 föstudaginn 18. maí gegn þreföldu skráningargjaldi.
Drög að tímaseðli fylgja.
Búningsaðstaða verður á Selfossvelli
Verðlaun verða veitt fyrir fyrsta sæti í 10 greinum á vegum FRÍ: þær eru: 100m, 300m, og 800m hlaupi, hástökki og spjótkasti hjá báðum kynjum. Í öðrum greinum veita mótshaldarar verðlaun fyrir fyrsta sæti.
Mælst er til þess að keppendur verði í sínum félagsbúning í keppninni.
Keppt verður á nýjum frjálsíþróttavelli og mælst til þess að keppendur séu ekki með lengri gadda en 6mm í hlaupunum og 9mm í spjóti og hástökki.
En þetta er opið mót og því allir velkomnir á Selfossvöll að sjálfsögðu.
Nánari upplýsingar veita Ólafur Guðmundsson HSK GSM 867-7755 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og Guðmunda Ólafsdóttir formaður frjálsíþróttaráðs HSK GSM 846-9775 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Kv. f.h Frjálsíþróttaráðs HSK
Guðmunda Ólafsdóttir form. Frjálsíþróttaráðs HSK
Héraðsmót HSK í sundi 2013
Héraðsmót HSK í sundi verður haldið í Hveragerði þriðjudaginn 11. júní 2013. Upphitun hefst kl. 17:15 og keppni kl. 18:00.
Greinar mótsins verða:
1.gr. 50m flug kvenna 2.gr. 50m flug karla
3.gr. 50m bak kvenna 4.gr. 50m bak karla
5.gr. 50m bringa kvenna 6.gr. 50m bringa karla
7.gr. 50m skriðsund kvenna 8.gr. 50m skriðsund karla
9.gr. 100m bak kvenna 10.gr. 100m bak karla
11.gr. 100m skriðsund kvenna 12.gr. 100m skriðsund karla
13.gr. 200m fjórsund kvenna 14.gr. 200m fjórsund karla
15.gr. 100m bringusund kvenna 16.gr. 100m bringusund karla
17.gr. 100m flugsund kvenna 18.gr. 100m flugsund karla
19.gr. 4x50m fjórsund kvenna 20.gr. 4x50m fjórsund karla
Skráningarfrestur:
Skráningar skulu berast á skrifstofu HSK í síðasta lagi kl. 24:00 mánudaginn 3. júní með tölvupósti á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Skráið með nafni, (a.m.k. Fd+ár) og allar keppnisgreinar hvers fyrir sig og besta tíma.
Hver sundmaður má bara synda 3 greinar til stiga og verðlauna.
Verðlaun:
Bikar fyrir stigahæsta félagið. Bikar fyrir besta afrek samkvæmt stigatöflu FINA. Bikar fyrir 3 stigahæstu sundin. Verðlaunapeningar fyrir 1. - 3. sæti í öllum greinum. Þáttökuverðlaun fyrir 10 ára og yngri en 10 ára og yngri synda ekki til stiga fyrir félagið sitt. Þáttökuverðlaun fyrir garpa.
Þátttökugjöld:
Skráningargjöld eru kr. 300 fyrir hverja grein. Gjöldin verða skuldfærð á félögin af skrifstofu HSK.
Sundnefndin minnir á skyldur félaga að útvega starfsmenn, a.m.k. tvo til þrjá tímaverði.
Hvetjið einnig foreldra til að mæta og fylgjast með skemmtilegri keppni.
9. maí var góður dagur á golfvellinum á Selfossi því rúmlega 30 manns mætti í vorhreinsun, skipt var niður í fjóra hópa.
Lesa nánar: Andri Páll með 48 punkta í fyrsta móti ársins í golfi
Á sumardaginn fyrsta var Kristín Lárusdóttir, hestakona, útnefnd íþróttamaður Skaftárhrepps.
Lesa nánar: Kristín Lárusdóttir er Íþróttamaður Skaftárhrepps
71. Íþróttaþing ÍSÍ verður haldið um helgina
71. Íþróttaþing ÍSÍ verður haldið á Icelandair Hótel Reykjavík Natura dagana 19.-20. apríl nk. Á heimasíðu ÍSÍ, www.isi.is er hægt að nálgast allar tillögurnar sem lagðar verða fyrir þingið, bæði frá framkvæmdastjórn ÍSÍ og innsendar tillögur frá sambandsaðilum.
Jafnframt eru á heimsíðunni ítarlegar upplýsingar um dagskrá þingsins og fleira sem gagnast ætti væntanlegum þingfulltrúum og öðrum sem vilja fylgjast með þinginu.
HSK á rétt á að senda sex fulltrúa á þingið og voru þeir kjrnir á síðasta héraðsþingi HSK. Þeir sem fara eru þau Guðríður Aadnegard, formaður HSK, Bergur Guðmundsson, ritari HS, Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK, Guðmundur Jónasson, varastjórn HSK, Helgi S. Haraldsson, formaður frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss og Örn Guðnason, varaformaður HSK.
Bikarglíma Íslands í sveitaglímu16 ára og yngri - HSK sveitirnar unnu þrjá bikarmeistaratitla
Bikarglíma Íslands í sveitaglímu fór fram 23. mars 2013 í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. Keppnin gekk vel fyrir sig, fjölmargar sveitir mættu til leiks og var glímt af miklu fjöri lengi dags.
HSK sendi fjölda liða til keppni og vann þrjá bikarmeistaratitla. Hér að neðan er getið um árangur liða HSK og hverjir voru í sveitum HSK.
Stelpur 11-12 ára
Í flokki stelpna 11 – 12 ára varð B sveit HSK bikarmeistari og A lið HSK varð í þriðja sæti. Sveit HSK vann lið UÍA 6,5 – 2,5 í úrslitum. Rósa Kristín Jóhannesdóttir, Kristín Sóldís Ólafsdóttir, Dórothea Oddsdóttir og Diljá Ýr Halldórsdóttir skipuðu bikarmeistaralið HSK. Bronssveitina skipuðu þær Sóley Kristjánsdóttir, Hildur Jónsdóttir, Arndís Fjóla Arnarsdóttir, Dagný Rós Stefánsdóttir og Guðný Karen Óliversdóttir.
Stelpur 13-14 ára
HSK sveitirnar náðu öðru og þriðja sætinu í þessum flokki. Í B sveitinni, sem varð í örðu sæti, voru þær Jana Lind Ellertsdóttir, Sigríður M. Kjartansdóttir, Rakel Sara Hjaltadóttir og Laufey Ósk Jónsdóttir. A sveitina skipuðu Belinda Margrét Birkisdóttir, Sif Jónsdóttir og Birgitta Saga Jónasdóttir.
Strákar 11-12 ára
11 – 12 ára strákar unnu tvöfalt í þessum flokki. Bikarmeistaralið HSK skipuðu þeir Sölvi Freyr Jónasson, Sölvi Svavarsdóttir, Karl Jóhann Einarsson og Finnur Þór Guðmundsson. Í silfursveitinni voru Sindri Ingvarsson, Gestur Jónsson og Kristján Bjarni Indriðason.
Strákar 15-16 ára
Stákarnir í 15 – 16 ára flokki unnu einnig tvöfalt. Í sigursveitinni voru Þorgils Kári Sigurðsson, Egill Björn Guðmundsson og Ómar Högni Guðmarsson. Jón Gunnþór Þorsteinsson, Guðni Elvar Björnsson, Eiður Helgi Benediktsson og Gústaf Sæland voru í silfursveit HSK.
Héraðsmót drengja og stúlkna í blaki - Fyrsti HSK meistaratitill Garps í drengjaflokki
Héraðsmót unglinga í blaki 16 ára og yngri var haldið föstudaginn 5. apríl á Hvolsvelli og byrjar kl 14.30. Keppt var í flokkum stúlkna og drengja.
Drengjaflokkur
Garpur varð sigurvegari í drengjaflokki, en liðið vann alla sína leiki tvö núll. Dímon A varð í öðru sæti, Dímon B varð í þriðja og Dímon C varð í fjórða sæti. Þetta er fyrsti sigur Garps í drengjaflokki frá upphafi.
Í sigurliði Garps voru þeir Sigþór Helgason, Símon Helgi Helgason, Egill Þór Hannesson, Guðmundur Hreinn Grétarsson, Ómar Högni Guðmarsson, Sigurður Smári Davíðsson og Aron Ýmir Antonsson.
Úrslit leikja:
Dímon B - Garpur 12 – 21 og 7 - 21
Dímon A - Dímon C 21 – 5 og 21 - 3
Dímon B - Dímon C 21 – 8 og 21 - 15
Dímon C – Garpur 11 – 21 og 9 - 21
Dímon B - Dímon A 12 – 21 og 6 - 21
Dímon A - Garpur 17 - 21 og 19 - 21
Stúlknaflokkur
Þrjú lið mættu til leiks í stúlknaflokki. Tvö frá Dímon og eitt blandað lið frá Garpi og Dímon.
Dímon A varð sigurvegari á mótinu vann alla sína leiki tvö núll. Garpur / Dímon varð í öðru sæti og Dímon B varð í þriðja sæti.
Í sigurliði Dímonar voru Birta Guðmundsdóttir, Berglind Inga Eggertsdóttir, Hólmfríður María Þórarinnsdóttir, Kristín Lilja Sigurjónsdóttir, Lilja Sigurðardóttir, Ragnheiður Elín Gunnarsdóttir og Þórdís Björnsdóttir.
Úrslit leikja:
Dímon A - Garpur/Dímon 21 – 6 og 21 - 10
Garpur/Dímon -Dímon B 21 – 13 og 21 - 12
Dímon A - Dímon B 21 – 4 og 21 - 8
Fréttapunktar:
Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss
Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss verður haldinn í félagsheimilinu Tíbrá fimmtudaginn 18. apríl kl. 20.00. A dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Aðalfundur Umf. Heklu
Fimmtudagskvöldið 18. apríl næstkomandi kl. 20:00 verður aðalfundur Umf. Heklu haldinn í Grunnskólanum á Hellu. Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn félagsins hvetur fólk til að koma og ræða málin um starf félagsins og viðra sínar hugmyndir og ef einhverjir hafa áhuga á að taka þátt í starfi þess. Boðið verður uppá léttar veitingar.
Súpufundur KSÍ
Næsti súpufundur KSÍ verður haldinn fimmtudaginn 18. apríl klukkan 12:15 á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ við Laugardalsvöll. Að þessu sinni mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, fjalla um hvernig hægt er að vinna markvisst að þjálfun félagslegrar- og hugarfarslegrar færni yngri iðkenda á heildstæðan hátt. Fundurinn er ætlaður þjálfurum, foreldrum og skipuleggjendum íþróttastarfs. Líkt og áður hefur verið á þessum fundum verður fyrirkomulagið 30-40 mínútna fyrirlestur og svör við spurningum. Jafnframt mun KSÍ bjóða gestum upp á súpu og brauð á þessum fyrirlestri og því upplagt að skella sér í heimsókn til KSÍ, hlýða á áhugavert erindi og fá sér hádegismat í leiðinni. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum áhugasömum en þó þarf að skrá sig með því að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og taka fram nafn, kennitölu og netfang.
Aðalfundur Skóræktardeildar Samhygðar
Aðalfundur Skóræktardeildar Samhygðar verður haldinn í Félagslundi fimmtudaginn 18. apríl kl. 21:00.
Bikarglíma Samhygðar
Bikarglímu Samhygðar verður haldin í Félagslundi 22. apríl kl. 16:00. Foreldrar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með mótinu þar sem keppt verður flokkaskipt og
verðlaun veitt fyrir þrjú efstu sæti.
Ráðstefnu um forvarnir gegn kynferðisofbeldi
Dagana 23. og 24. apríl standa samtökin Blátt áfram og Rannsóknarstofnun í barna- og fjölskylduvernd (RBF) fyrir ráðstefnu um forvarnir gegn kynferðisofbeldi. Ráðstefnan fer fram í Odda, Háskóla Íslands.
Útgáfuhóf Ungmennafélag Biskupstungna
Sumardaginn fyrsta, 25. apríl, kemur saga Ungmennafélags Biskupstungna út. Þennan dag verða 105 ár liðin frá stofnun félagsins. Til að fagna þessari bókaútgáfu verður efnt til útgáfuhófs í Aratungu. Samkoman hefst kl. 20:30 en húsið opnar kl. 20:00 með sýningu á mynd Jóns H. Sigurðssonar frá Úthlíð „ Í Biskupstungum“. Jón gaf félaginu myndina á 100 ára afmæli félagsins en myndin sýnir m.a. alla bæi og hús í Tungunum. Hægt verður að kaupa bókina í Aratungu þetta kvöld og eins geta þeir aðilar sem keyptu bókina í heiðursáskrift fengið sína bók afhenta. Allir eru velkomnir. Stjórn Ungmennafélags Biskupstungna og ritnefnd.
Seinni hluti HSK mótsins í fimleikum
Seinni hluti HSK mótsins í fimleikum mun fara fram á Selfossi þann 5. maí n.k. Keppt verður eftir Team Gym reglum. Tónlist skal skilað á staðnum ásamt mótagjöldum og stökklistum. Keppnisgjald er 1.200 kr. á keppanda. Skráningar skulu berast á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. síðasta lagi 21. apríl n.k.
Punktamót Dímonar
Punktamót Dímonar í borðtennis verður haldið á sumardaginn fyrsta, 25. apríl 2013 í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Keppt verður í 2. flokki karla og kvenna. Mótið hefst kl. 11.00. Skráningargjald er kr. 800 á keppanda.
Keppt verður í :
2. flokkur karla Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 13:00
2. flokkur kvenna Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 13:00
Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 24. apríl kl. 20:00 og skal skráningum skilað til Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Leikið verður með gulum STIGA*** kúlum á STIGA ELITE borðum.
Leiknar verða 3 -5 lotur eftir riðlafyrirkomulagi þar sem 2 efstu komast áfram, eftir það verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi.
Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ.
Yfirdómari verður. Ólafur Elí Magnússon / Sigurjón Sváfnisson
Mótstjórn óskar eftir að leikmenn leiki í búningum síns félags.
Keppni hefst kl. 11:00 að staðartíma á Hvolsvelli.
Dregið verður í riðla kl 08:30 á fimmtudagsmorgni á skrifstofu Dímonar í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli.
Verðlaunaafhending verður strax að loknu móti.
Mótstjóri verður Ásta Laufey Sigurðardóttir.
Héraðsmót HSK í skák 16 ára og yngri:
Hekla vann stigakeppnina á velheppnuðu móti
Fyrsta héraðsmót HSK í skák fyrir keppendur 16 ára og yngri var haldið í Grunnskólanum á Hellu sl. laugardag.
Til leiks mættu 28 keppendur frá fjórum aðildarfélögum sambandsins. Keppt var í þremur aldursflokkum. Í tveimur yngri flokkunum var keppt eftir monradkerfi og spilaðar sex umferðir. Í elsta flokknum kepptu allir við alla. Umhugsunartími var 10 mín. á hverja skák í öllum flokkum. Þess má geta að í elsta flokknum voru þrír jafnir með þrja vinninga. Þeir kepptu um annað sætið í snörpum fimm mín. skákum.
Gaman var að fylgjast með ungum og efnilegum skákkeppendum, en sumir þeirra voru að keppa á sínu fyrsta skákmóti.
Mótshaldið gekk vel undir styrkri stjórn Björgvins S. Guðmundssonar mótsstjóra. Að loknu velheppnuðu móti var það mál manna á staðnum að þetta mót væri komið til að vera. Guðmundur Jónasson formaður Umf. Heklu og varastjórnarmaður í HSK á heiðurinn að því að þetta mót var haldið.
Verðlaunahafar:
1.-4. bekkur
1. Aron Birkir Guðmundsson, Heklu 5v
2. Sindri Freyr Seim Sigurðsson, Heklu 5v
3. Anton Fannar Kristinsson, Heklu 4v
5.-7. bekkkur
1. Bennedikt Ó. Benediktson, Dímon 5v
2. Heiðar Óli Guðmundsson, Heklu 5v
3. Almar Máni Þorsteinsson, Heklu 5v
8.-10. bekkur
1. Margrét Rós Svansdóttir, Heklu 4v
2. Ómar Högni Guðmarsson, Garpur 3v
3. Eyþór Máni Steinarsson, Heklu 3v
Stigakeppni félaga:
1. Hekla 38,25 stig
2. Garpur 12,5 stig
3. Dímon 10,5 stig
4. Selfoss 0,75 stig
Meistaramót HSK 2013 í badminton:
50 kepkendur tóku þátt og Hamar vann
Meistaramót HSK í badminton var haldið í Þorlákshöfn sunnudaginn 7. apríl síðastliðinn. Keppendur voru 50 talsins frá þremur félögum; Dímon, Hamri og Umf. Þór.
Mótið gekk mjög vel fyrir sig og fóru allir ánægðir heim. Á mótinu var stigakeppni milli félaganna, þar sem keppt var um HSK-meistara titilinn. Hamar fór með sigur úr býtum með 77 stig, UMF Þór var í öðru sæti með 40 stig og Dímon í því þriðja með 4 stig. Úrslitin á mótinu má sjá hér að neðan.
U11 – snáðar og snótir
Ekki var keppt um sæti í þessum flokkum heldur fengu allir verðlaun.
U13 – hnokkar
1.sæti – Daníel Sigmar Kristjánsson, Hamar
2.sæti – Pétur Sigurdór Pálsson, Hamar
3.sæti – Jakob Unnar Sigurðarson, UMF Þór
4.sæti – Einar Ísberg, Hamar
U13 – tátur
1.sæti – Þórey Katla Brynjarsdóttir, UMF Þór
U15 – sveinar
1.sæti – Daníel Ísberg, Hamar
2.sæti – Daníel Njarðarson, Hamar
3.sæti – Jakob Unnar Sigurðarson, UMF Þór
U15 – meyjar
1.sæti – Silja Þorsteinsdóttir, Hamar
2.sæti – Þórey Katla Brynjarsdóttir, UMF Þór
U17 – drengir
1.sæti – Axel Örn Sæmundsson, UMF Þór
2.sæti – Viktor Helgi Gizurarson, Hamar
3.sæti – Daníel Ísberg, Hamar
4.sæti - Daníel Njarðarson, Hamar
U17 – telpur
1.sæti – Elín Hrönn Jónsdóttir, Hamar
2.sæti – María Ólafsdóttir, Hamar
3.sæti – Hrefna Ósk Jónsdóttir, Hamar
4.sæti – Silja Þorsteinsdóttir, Hamar
U19 – piltar
1.sæti – Axel Örn Sæmundsson, UMF Þór
2.sæti – Viktor Helgi Gizurarson, Hamar
3.sæti – Sigurður Borgar Ólafsson, Dímon
U19 – stúlkur
1.sæti – Bjarndís Helga Blöndal, Hamar
2.sæti – María Ólafsdóttir, Hamar
3.sæti – Hrefna Ósk Jónsdóttir, Hamar
4.sæti – Elín Hrönn Jónsdóttir, Hamar
Karlaflokkur
1.sæti – Ámundi Fannar Sæmundsson, UMF Þór
2.sæti – Jakob Fannar Hansen, Hamar
3.sæti – Friðrik Sigurbjörnsson, Hamar
4.sæti – Sigurður Blöndal, Hamar
Kvennaflokkur
1.sæti – Bjarndís Helga Blöndal, Hamar
2.sæti – Karen Ýr Sæmundsdóttir, UMF Þór
3.sæti – Elín Hrönn Jónsdóttir, Hamar
4.sæti – María Ólafsdóttir, Hamar
Öldungaflokkur karla
1.sæti – Sæmundur Steingrímsson, UMF Þór
2.sæti – Sigurður Blöndal, Hamar
3.sæti – Róbert Karl Ingimundarson, UMF Þór
4.sæti – Þór Emilsson, UMF Þór
Öldungaflokkur kvenna
1.sæti – Ingibjörg Zoega, Hamar
Felixskýrsluskil fyrir miðnætti á mánudag
Aðildarfélög HSK eru minnt á að skilafrestur á starfsskýrslum til ÍSÍ rennur út um miðnætti næsta mánudag, 15. apríl nk.
HSK hvetur alla viðkmandi til að ljúka skilum fyrir þann tíma í gegnum Felix, skráningarkerfi ÍSÍ og UMFÍ. Bent er á leiðbeiningar um starfsskýrsluskil á heimasíðu ÍSÍ, undir flipanum Felix. Nánari upplýsingar og aðstoð veita Óskar Örn Guðbrandsson ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) og Halla Kjartansdóttir ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) á skrifstofu ÍSÍ.
Þau félög sem verða ekki búin að skila fyrir umræddan tíma fá ekki úthlutað lottói við 1. greiðslu í maí og rennur þá hlutdeild félaga í Verkefnasjóð, sbr. lottóreglugerð HSK. Eins þurfa félög að halda aðalfund. Nokkur félög héldu ekki fund í fyrra, eða hafa ekki tilkynnt dagsetningu fundarins. Eru umrædd félög beðin um að halda fund og/eða senda upplýsingar um dagsetningu aðalfundar til HSK fyrir 15. apríl nk.
Ungmennavika NSU á Íslandi – Panorama of Youth
Ungmennavika NSU (Nordiske Samorganisation for Ungdomsarbejde) Panorama of Youth – verður haldin á Sólheimum dagana 1.-8.júlí nk. Þema vikunnar er víðsýni, samvinna, traust og umburðarlyndi en þessa þætti verður unnið með í gegnum íþróttir og leik. Markmiðið er að auka víðsýni þátttakenda fyrir ólíkum einstaklingum og auka umburðarlyndi fyrir skoðunum annarra. Unnið verður með „non-formal education“ nálgun eða óformlegt nám og því skipa hreyfing, útivera og vettvangsferðir stóran sess í dagskrá vikunnar.
UMFÍ og NSU eru þátttakendur í MOVE WEEK herferð sem ISCA (International Sport and Culture Association) stendur fyrir. MOVE WEEK er herferð sem ISCA ætlar sér að verði stærra verkefni á næstu árum. Árið 2012 var tekið sem undirbúningur fyrir árin sem eftir koma og markmiðið er að árið 2020 verið 100 milljónir fleiri Evrópubúa farnir að hreyfa sig reglulega.
Þátttakendur í ungmennaviku fá þjálfun í að skipuleggja, halda utan um og framkvæma viðburði sem hvetja fólk til þátttöku og hreyfingar sér til heilsubótar. Þátttakendur munu vinna áfram með verkefni sín eftir ungmennavikuna í samstarfi við UMFÍ.
Leiðtoginn þarf að vera skipulagður, sjálfstæður, eldri en 20.ára og hafa gott vald á einu norðurlandamál. Leiðtoginn mun jafnframt taka þátt í nánari skipulagi ungmennavikunnar og sækja fund til Kaupmannahafnar í lok maí. Tungumál ungmennavikunnar verður danska eða annað norðurlandamál.
Ísland á sæti fyrir sex ungmenni á aldrinum 16.-30. ára og einn leiðtoga eldri en 20.ára. Þátttökugjald fyrir þátttakendur er 25.000 kr. og allt innifalið. Allur kostnaður er greiddur fyrir leiðtoga.
Umsóknarfrestur rennur út 10.maí nk.fyrir þátttakendur. Í umsókn þurfa að koma fram helstu upplýsingar, nafn, aldur, heimilisfang, nöfn forráða manna eftir umsækjandi er undir 18.ára aldri og upplýsingar um færni á norðurlandamáli. Stutt ágrip af helstu áhugamálum, námi og af hverju viðkomandi hefur áhuga á að taka þátt.
Umsóknarfrestur fyrir leiðtoga rennur út 30.apríl nk. Í umsókn þurfa að koma fram sömu upplýsingar og að ofan.
Allar nánari upplýsingar veitir Sabína Steinunn landsfulltrúi UMFÍ, á netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 568-2929.
Fréttapunktar:
Aðalfundur Umf. Ingólfs
Aðalfundur Umf. Ingólfs verður haldinn á Laugalandi í kvöld, miðvikudag og hefst kl. 22:00.
Krakkajóga hjá Umf. Framtíðinni
Föstudaginn 12. apríl verður krakkajóga hjá Umf. Framtíðini frá kl:16:30-17:30. Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir alvanur jogakennari sér um kennsluna.
Ársþing Judósambandsins
Ársþing JSÍ 2013 verður haldið 13. apríl nk. í húsnæði ÍSÍ og hefst það kl. 17:00.
Flóahlaup Umf. Samhygðar
35. Flóahlaup Umf. Samhygðar hefst kl. 14:00 við Félagslund laugardaginn 13. apríl.
Keppt verður í 3 km hlaupi stráka og stelpna 14 ára yngri, 5 km opnum flokki karla og kvenna og 10 km hlaupi kvenna 39 ára og yngri, 40-49 ára og 50 ára og eldri. 10 km hlaupi karla 39 ára og yngri, 40-49 ára, 50-59 ára, 60-69 ára og 70 ára eldri. Verðlaun eru veitt fyrir þrjá fyrstu í hverjum flokki auk þess sem allir á verðlaun fyrir þátttöku. Skráningargjald 1.000 kr fyrir 14 ára og yngri og 2.000 kr fyrir 15 ára og eldri. Einungis skráð á staðnum. Ath. að greiða verður með peningum, enginn POSI á staðnum. Innifalið í skráningargjaldinu er síðan kaffihlaðborð að hlaupi loknu. Allir áhugsamir eru hvattir til að koma og taka þátt. Eins eru hjálpfúsar hendur vel þegnar til aðstoðar við framkvæmd hlaupsins.
Aldursflokkamót HSK í sundi
Aldursflokkamót HSK í sundi verður haldið á Hvolsvelli (25m útilaug) sunnudaginn 5. maí 2013. Upphitun hefst kl. 9:15 og mót kl. 10:00. Keppt verður í fimm aldursflokkum 18 ára og yngri. Skráningar skulu berst til skrifstofu HSK Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir kl. 24:00 sunnudaginn 28. apríl með tölvupósti. Nánari upplýsingar um mótið eru á www.hsk.is
Seinni hluti HSK mótsins í fimleikum
Seinni hluta HSK mótsins í fimleikum mun fara fram á Selfossi þann 5. maí n.k. Keppt verður eftir Team Gym reglum. Tónlist skal skilað á staðnum ásamt mótagjöldum og stökklistum. Keppnisgjald er 1.200kr á keppanda. Skráningar skulu berast á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. síðasta lagi 21. apríl n.k.Skipulag verður svo sent út ásamt fjölda dómara sem hvert félag þarf að skila inn þann 24. apríl. Allar nánari upplýsingar veita þær Hólmfríður, Aníta og Tanja.
Erik Olson hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við Körfuknattleiksfélag FSu og verðu hann því aðalþjálfari liðsins til loka tímabilsins 2014.
Lesa nánar: Erik áfram þjálfari og Bjarmi framkvæmdastjóri FSu
Landsmót UMFÍ á Selfossi 4. – 7. júlí nk.
Undirbúningur vegna þátttöku HSK
Næsta Landsmót Ungmennafélags Íslands verður haldið á Selfossi 4. – 7. júlí nk. HSK sér um framkvæmd mótsins og er undirbúningur vegna framkvæmdarinnar löngu hafin undir forystu framkvæmdanefndar, sem er skipuð sömu einstaklingum og sáu um velheppnað Unglingalandsmót á síðasta ári.
HSK stefnir á góða þátttöku á Landsmótinu og hefur stefnan verið sett á sigur í heildarstigakeppni mótsins.
Landsmótsnefnd HSK
Landsmótsnefnd HSK er að vinna að undirbúningi þátttöku HSK á mótinu. Í nefndinni eru Guðríður Aadnegard formaður HSK, Hansína Kristjánsdóttir gjaldkeri HSK, Guðmundur Jónasson varastjórn HSK, Guðrún Tryggvadóttir Umf. Vöku, Valgerður Auðunsdóttir Umf. Skeiðamanna, Daníel Jens Pétursson Umf. Selfoss og Ívar Örn Gíslason Umf. Eyrarbakka. Upplýsingar um síma og netfang nefndarfólks er á www.hsk.is. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um heildarskipulag er varðar undirbúning og þátttöku HSK á landsmótinu í sumar, m.a. að samræma undirbúning íþróttanefnda sambandsins.
Nefndarfólk hefur verið að hafa samband við forystufólk nefnda, ráða og félaga vegna undirbúningsins, en nefndarfólk skipti greinum á milli sín og eru svokallaðir tengiliðir við einstaka greinar.
Undirbúningur keppnisliða
Nefndir og ráð sambandsins munu sem fyrr skipuleggja undirbúning keppnisliðs í viðkomandi grein. Þar að auki hefur verið leitað til skotíþróttafélaga, mótokrossfélaga/deilda, Umf. judódeildar Umf. Selfoss, taekwondodeildar Umf. Selfoss varðandi þátttöku í viðkomandi grein. Einnig til Umf. Stokkseyrar og Umf. Selfoss vegna þátttöku í kraftlyftingum.
Keppnisgreinar
Keppt verður í 25 íþróttagreinum á Landsmótinu og eru allar greinar stundaðar hjá aðildarfélögum HSK, nema dans.
Hér má sjá lista yfir keppnisgreinar, en nánari upplýsingar um keppnisgreinar eru á http://www.landsmotumfi.is.
Keppnisgrein
Badminton
Blak
Boccia
Borðtennis
Bridds
Dans
Fimleikar
Frjálsíþróttir
Glíma
Golf
Götuhlaup, 10 km
Handknattleikur
Hestaíþróttir
Íþróttir fatlaðra
Júdó
Knattspyrna
Kraftlyftingar
Körfuknattleikur
Mótorkross
Pútt (golf)
Skák
Skotfimi
Starfsíþróttir
Sund
Taekwondo
Vonast er til að keppendur aðildarfélaga sambandsins taki þessa helgi frá með það að markmiði að komast í keppnislið HSK á komandi landsmóti.
Fimleikar:
Byrjendamót HSK tókst vel
HSK mótinu í fimleikum var skipt upp í 2 hluta í ár. Fyrri hluti mótsins var haldinn í Hveragerði þann 16. mars s.l. og seinni hluti mótsins verður haldinn á Selfossi í maí. Þar keppa eldri fimleikaiðkendur eftir Team Gym reglum.
Mótið í Hveragerði gekk mjög vel og þátttakendur voru frá þremur félögum, alls níu lið voru skráð til keppni. Tvö lið komu frá Þór Þorlákshöfn, þrjú lið frá Selfossi og fjögur lið voru frá Hamri Hveragerði.
Keppt var eftir byrjendareglum eins og áður sagði og allir keppendur fengu verðlaun fyrir það áhald sem þau stóðu sig best á. Því fóru þessir ungu og efnilegu fimleikakrakkar með verðlaunapening heim um hálsinn, ís frá Kjörís og Latarbæjarmjólk frá Vífilfelli fyrir frábæra frammistöðu.
HSK bikarinn í byrjendareglum fékk Selfoss fyrir hæstu samanlagða einkunn.
Sandra Sigurðardóttir
Héraðsmót karla í blaki 2012-2013:
Hrunamenn héraðsmeistarar karla í blaki
Seinni hluti héraðsmóts karla í blaki var haldinn á Laugarvatni þann 6. mars sl. í blíðskaparveðri, svona miðað við hvernig veðrið var að morgni keppnisdags í höfuðborginni. Því miður sáu ekki öll liðin frá fyrri hlutanum sér fært að mæta, en lið Dímon sat heima.
Mótið var því stutt og laggott, aðeins sjö leikir voru spilaðir, og lauk mótinu með 2-0 sigri Hrunamanna á Hamri. Var þetta hreinn úrslitaleikur því bæði liðin höfðu lagt öll hin liðin að velli 2-0. Lið Umf. Hrunamanna eru því héraðsmeistarar bæði karla og kvenna í blaki árið 2013.
Röð liða var eftirfarandi:
1. Hrunamenn 18 (fullt hús stiga)
2. Hamar 15
3. Samhygð 12
4. Laugdælir 1 7
5. Selfoss 5
6. Laugdælir 2 4
7. Dímon 2
Gunnhildur Hinriksdóttir
Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ:
Umsóknarfrestur til 15. apríl
Umsóknarfrestur til að sækja um styrki úr Fræðslu- og verkefnasjóði Ungmennafélags Íslands hefur verið framlengdur til 15. apríl. Umsóknum skal skilað rafrænt á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem er að finna á heimasíðu UMFÍ www.umfi.is undir framlög og styrkir fyrir 15. apríl.
Sjóðurinn veitir m.a. styrki til félags- og íþróttastarfs ungmennafélagshreyfingarinnar með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi.
Rétt til styrkveitinga úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem gæti nýst viðkomandi félagi, sambandi, ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög, deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum.
Sjóðsstjórn er heimilt að veita styrki úr sjóðnum að eigin frumkvæði til verkefna sem ekki teljast til árlega verkefna hreyfingarinnar.
Nánari upplýsingar eru gefnar á þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929.
Fréttapunktar:
Héraðsmót unglinga í blaki á föstudag
Héraðsmót unglinga í blaki 16 ára og yngri verður haldið föstudaginn 5. apríl á Hvolsvelli og byrjar kl 14.30. Keppt verður í flokki stúlkna og drengja. Skráningar eiga að berast á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 3. apríl.
Héraðsmót HSK í skák 16 ára og yngri á laugardag
Fyrsta héraðsmót HSK í skák fyrir 16 ára og yngri verður það haldið í Grunnskólanum á Hellu á laugardag og hefst kl. 11.00. Tefldar verða 5-6 umferðir eftir monrad-kerfi og verður umhugsunartíminn 10 mín á keppanda í hverri skák. Keppt verður í flokkum 9 ára og yngri (1.-4. bekkur), 10-12 ára (5.-7. bekkur) og 13-16 ára (8.-10. bekkur). Skráningar berist á netfangið: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. (Tilgreina þarf, nafn, fæðingaár og félag) Upplýsingar veittar hjá Guðmundi í síma 868-1188.
Meistaramót HSK í badminton á sunnudag
Meistaramót HSK 2013 í badminton verður haldið sunnudaginn 7. apríl í Íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn. Mótið er fyrir alla, jafnt unga sem aldna og verður keppt í flokkum U11 – 40+. Mótið hefst stundvíslega kl. 10:00. Aðeins verður keppt í einliðaleik og eru mótsgjöld 1000 kr í einliðaleik í unglingaflokkum og 1500 kr í fullorðinsflokkum. Stefnt er að því að leika mótið í riðlum og áskilur mótstjórn sér rétt til að slá saman flokkum, ef þátttaka er lítil í einstökum flokkum. U11 ára leika tvær lotur upp í 11 og ekki verður um oddalotu að ræða, heldur verður stigafjöldi látinn ráða. Skráningu lýkur fimmtudaginn 4. apríl. Skráningu skal skila á staðalformi BSÍ á neðangreint netfang. Skráningarformið má finna á heimasíðu BSÍ, www.badminton.is
Marín Laufey Davíðsdóttir á Selfossi og keppandi frá HSK varð Glímudrottning Íslands þriðja árið í röð í hundruðustu og þriðju Íslandsglímunni, sem fór fram á Selfossi í dag.
Lesa nánar: Landsliðskona í körfubolta er Glímudrottning Íslands 2013
91. héraðsþing HSK í Aratungu:
Öll stjórn og varastjórn sambandsins endurkjörin
Héraðsþing HSK var haldið í Aratungu sl. laugardag og mættu um 100 manns á þingið. Móttökur heimamanna voru frábærar, en þing sambandsins var nú haldið í fjórða sinn í Aratungu. Þess má til gamans geta að fyrsta héraðsþingið í Biskupstungum var haldið í Haukadal árið 1937.
Í upphafi þings var Markúsi Ívarssyni veitt gullmeki sambandsins, en hann hefur verið í forystuveit Umf. Samhygðar í áratugi og þá sat hann um árabil í stjórn HSK.
Jón Gestur Viggósson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sæmdi hjónin Ástu Laufeyju Sigurðardóttir og Ólaf Elí Magnússon silfurmerki ÍSÍ.
Bergur Guðmundsson ritari HSK og Ólafur Guðmundsson frjálsíþróttakempa voru sæmdir starfsmerki UMFÍ, en Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, afhenti þeim merkin.
Fimleikakonan Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Umf. Selfoss, var valin íþróttamaður HSK árið 2012 úr hópi tilnefndra íþróttamanna.
Guðríður Aadnegard, formaður HSK afhenti á þinginu foreldrastarfsbikarinn til handknattleiksdeildar Umf. Selfoss, Hestamannafélagið Sleipnir hlaut unglingabikarinn og Ungmennafélag Selfoss fékk bikar sem stigahæsta félag í heildarstigakeppni ársins. Þá var Vilhjálmur Þór Pálsson Umf. Selfoss/GOS útnefndur öðlingur ársins.
Í 40 ár hefur sleifarkeppni HSK farið fram á héraðsþingum og Þröstur Guðnason formaður Umf. Ingólfs vann keppnina í ár. Þá var Guðríður Aadnegard formaður HSK valin matmaður þingsins.
Miklar og góðar umræður fóru fram í fjórum starfsnefndum þingsins og alls voru 23 tillögur samþykktar á þinginu. Nánar verður fjallað um tillögurnar í næstu HSK fréttum. Reikningar sambandsins voru lagðir fram, en rúmlega 1,3 milljóna króna hagnaður var af rekstri sambandsins. Sambandið er skuldlaust og eigið fé þess er rúmar 15,5 milljónir króna.
Öll stjórn og varastjórn sambandsins var endurkjörin á þinginu. Stjórn HSK 2013 skipa:
Formaður: Guðríður Aadnegard Íþr.f. Hamri
Gjaldkeri: Hansína Kristjánsdóttir Umf. Selfoss
Ritari: Bergur Guðmundsson Umf. Selfoss
Varaformaður: Örn Guðnason Umf. Selfoss
Meðstjórnandi: Fanney Ólafsdóttir Umf. Vöku
Varamenn: Lára Bergljót Jónsdóttir Umf. Skeiðamanna
Anný Ingimarsdóttir Umf. Samhygð
Guðmundur Jónasson Umf. Heklu
Stjórn HSK vill koma á framfæri þakklæti til þeirra sem komu að undirbúningi þinghaldsins. Forystu Umf. Biskupstungna er sérstaklega þakkað fyrir góðar móttökur og frábæra umgjörð þinghaldsins. Einnig er Umf. Laugdæla þakkað þeirra framlag, en þingforsetar og ritarar komu úr röðum Laugdæla. Bláskógabyggð er þakkaður stuðningurinn, en sveitarfélagið bauð þingfulltrúum og gestum til hádegisverðar á þinginu. Arion banka er þakkað framlag vegna kostunar á verðlaunahátíðinni á þinginu.
Fram kom að stærsta verkefni sambandsins á árinu er framkvæmd Landsmóts UMFÍ, sem haldið verður á Selfossi 4. – 7. júlí nk.
Íþróttafólk verðlaunað á héraðsþinginu:
Hranfnhildur Hanna íþróttamaður HSK
Fimleikakonan Hrafnhildur Hanna Þratardóttir, Umf. Selfoss, var valin íþróttamaður HSK árið 2012 úr hópi tilnefndra íþróttamanna og voru þeir verðlaunaðir á héraðsþinginu sl. laugardag.
Hrafnhildur Hanna náði frábærum árangri árið 2012 en hún varð Evrópumeistari í hópfimleikum með unglingalandsliði Íslands í október. Hún er lykilmanneskja í liðinu og stökk m.a. fjórar umferðir af sex á mótinu, en aðeins sex liðsmenn af fjórtán komast í hverja umferð á áhöldum.
Auk þess að æfa fimleika spilar Hrafnhildur stórt hlutverk með liði Selfoss í N1-deild kvenna í handbolta.
Aðrir tilnefndir:
Axel Örn Sæmundsson, Umf. Þór - badminton
Rúnar Bogason, Umf. Hrunamanna - blak
Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Íþf. Dímon - borðtennis
Björn Snorrason, Umf. Selfoss - bridds
Fjóla Signý Hannesdóttir, Umf. Selfoss - frjálsíþróttir
Hlynur Geir Hjartarson, GOS - golf
Marín Laufey Davíðsdóttir, Umf. Samhygð - glíma
Einar Sverrisson, Umf. Selfoss - handbolti
Guðmundur Friðrik Björgvinsson, Hmf. Geysi - hestaíþróttir
Hulda Sigurjónsdóttir, Suðra - íþróttir fatlaðra
Egill Blöndal, Umf. Selfoss - júdó
Jón Daði Böðvarsson, Umf. Selfoss - knattspyrna
Rósa Birgisdóttir, Umf. Selfoss - kraftlyftingar
Darri Hilmarsson, Umf. Þór - körfubolti
Þorsteinn Helgi Sigurðsson, Umf. Þór - motocross
Ingimundur Sigurmundsson, Umf. Baldri - skák
Hákon Þór Svavarsson, SFS - skotíþróttir
Kristín Stefánsdóttir, Umf. Vöku - starfsíþróttir
Þórir Gauti Pálsson, Umf. Selfoss - sund
Daníel Jens Pétursson, Umf. Selfoss – taekwondo
Markús sæmdur gullmerki HSK
Markús Ívarsson í Vorsabæjarhól í Flóa var sæmdur gullmerki Héraðssambandsins Skarphéðins á héraðsþingi sambandsins í Aratungu sl. laugardag.
Markús þarf ekki að kynna fyrir sunnlenskum íþróttaáhugamönnum en hann hefur um áratugaskeið starfað fyrir hreyfinguna og tekið virkan þátt í störfum HSK og Umf. Samhygðar. Hann átti m.a. sæti í stjórn HSK frá árinu 1996 – 2006 og þá var hann gjaldkeri Umf. Samhygðar í 39 ár, frá 1970 – 2009. Í dag á hann m.a. sæti í íþróttanefnd eldri félagsmanna hjá HSK. Hann er alltaf tilbúinn að leggja hreyfingunni lið og er t.a.m. fastamaður í starfsliði HSK á frjálsíþróttamótum HSK og FRÍ.
Markús hefur stundað frjálsar íþróttir frá barnæsku og verið leiðandi í blakstarfi Samhygðar sem hefur verið stórveldi í blakinu innan HSK. Þá hefur hann staðið fyrir Flóahlaupi Samhygðar frá árinu 1979.
Markús keppir enn í íþróttum en hann hefur m.a. keppt fyrir hönd HSK á Landsmótum UMFÍ 50+, nú síðast í Mosfellsbæ sl. sumar.
Vilhjálmur Þór Pálsson öðlingur ársins 2012
Öðlingur ársins 2012 er Vilhjálmur Þór Pálsson Umf. Selfoss. Það eru einkum þrjár greinar íþrótta sem Vilhjálmur hefur stundað og stundar enn, þ.e. skák, brids og golf. Hann hefur verið þátttakandi í fjölda móta innan HSK og á landsmótum UMFÍ. Hann var m.a. í sigursveit HSK 1969, þegar keppt var í fyrsta sinn um svokallaðan Skinfaxabikar UMFÍ og keppti nokkrum sinnum á landsmótum. Vilhjálmur var í sigurliði HSK í brids á landsmótinu á Húsavík 1987 og hefur oft keppt á HSK mótum í brids.
Í golfi hefur Vilhjálmur keppt oftast á héraðsmótum eftir að keppni í þeirri grein var tekin upp og alltaf eftir að farið var að keppa í öldungaflokki, þ.e. 55 ára og eldri.
Sérverðlaun veitt á héraðsþingi HSK 2013
Á héraðsþinginu í Aratungu voru veitt árleg sérverðlaun frá HSK. Greinagerðir um verðlaunahafa unglingabikars og foreldrastarfsbikars má sjá www.hsk.is.
Stigahæsta félag
Umf. Selfoss vann heildarstigakeppni HSK sem er stigakeppni á héraðsmótum HSK.
Unglingabikar HSK 2012
Hestamannafélagið Sleipnir hlýtur unglingabikar HSK 2012 fyrir öflugt barna- og unglingastarf. Æskulýðsnefnd Sleipnis bar hitann og þungann af starfi unglinga.
Foreldrastarfsbikar HSK 2012
Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hlýtur foreldrastarfsbikar HSK 2012. Foreldrastarf innan handknattleiksdeildar hefur verið blómlegt um margra ára skeið.
áðstefnan Ungt fólk og lýðræði
Ungmennafélag Íslands stendur nú í fjórða sinn fyrir ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Valaskjálf Egilsstöðum dagana 20.-22. mars næst komandi. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni verður þátttaka ungs fólk í skipulagsmálum sveitafélaga.
Fulltrúar í ungmennaráði UMFÍ aðstoðar við undirbúning og framkvæmd ráðstefnunnar. Ungmenna- og Íþróttasamband Austurlands er gestgjafi ráðstefunnar að þessu sinni og kemur einnig að undirbúning hennar í samstafi við Fljótsdalshérað.
Mikil ánægja hefur verið með ráðstefnuna síðustu ár og hafa margir óskað eftir því að UMFÍ haldi áfram að leiða starf ungmenna í landinu.
Þátttakendur munu kynnta niðurstöður ráðstefnunnar föstudaginn 22. mars kl.13:00 og í framhaldi af kynningu verður ráðstefnunni slitið formlega. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu UMFÍ, sími 568 2929 og Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Aðalfundur frjálsíþróttaráðs HSK
Aðalfundur frjálsíþróttaráðs HSK verður haldinn í Selinu á Selfossi fimmtudaginn 21. mars kl 20:00. 17 aðildarfélög ráðsins eiga samtals rétt á að senda 37 fulltrúa á aðalfundinn.
Í 4. grein laga ráðsins segir: ,,Aðalfundi sitja fulltrúar þeirra félaga eða deilda innan HSK sem aðild eiga að ráðinu. Hvert félag eða deild ráðsins hefur rétt til að senda einn fulltrúa á aðalfundinn. Auk þess hafa félög eða deildir rétt á einum til viðbótar fyrir hverja 50 iðkendur sem þeir áttu samkvæmt starfsskýrslum eða brot úr þeirri tölu. Dæmi: 1-50 iðkendur=2 fulltrúar, 51-100 iðkendur= 3 fulltrúar osfrv.”
Samkvæmt starfsskýrslum síðasta árs úr forritinu FELIX voru iðkendur á sambandssvæðinu 639 talsins og skiptast þeir á 15 félög.
Fulltrúafjöldi félaga er sem hér segir:
Félag Iðkendur Fjöldi fulltrúa
Íþr.f. Dímon 97 3
Íþr.f. Garpur 49 2
Umf. Baldur Hr. 18 2
Umf. Biskupstungna 0 1
Umf. Eyfellingur 18 2
Umf. Framtíðin 12 1
Umf. Gnúpverja 25 2
Umf. Hekla 0 1
Umf. Hvöt 22 2
Umf. Hrunamanna 1 2
Umf. Laugdæla 31 2
Umf. Samhygð 39 2
Umf. Selfoss 207 6
Umf. Skeiðamanna 19 2
Umf. Vaka 66 3
Umf. Þór 30 2
Umf. Þórsmörk 5 2
Samtals 639 37
Stjórnarkjör
Í 9. gr laga ráðsins segir: ,,Stjórn ráðsins skal skipuð fimm mönnum. Kjörtímabil stjórnarmanna er tvö ár. Skulu þeir kosnir á aðalfundi þannig að annað árið eru kjörnir þrír en hitt árið tveir. Á aðalfundi er einnig kosinn skoðunarmaður reikninga og annar til vara”.
Á aðalfundi ráðsins 2011 voru Ingvar Garðarsson og Tómas Karl Guðsteinsson kjörnir til tveggja ára. Á aðalfundi 2012 voru Benóný Jónsson, Steinunn E. Þorsteinsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir kosin til tveggja ára.
Aðalfundur GÞ vegna ársins 2012
Aðalfundur Golfklúbbs Þorlákshafnar var haldinn í Golfskálanum í Þorlákshöfn fimmtudaginn 21. febrúar og var hann þokkalega vel sóttur.
Í skýrslu stjórnar kemur m.a. fram að starfsemi ársins hafi gengið þokkalega. Aðsókn að vellinum var heldur minni en árið á undan og voru skráðir rúmir fjögur þúsund spilaðir hringir á árinu. Mótahald var með svipuðum hætti og verið hefur undanfarin ár. Meistaramót GÞ var haldið í lok júní og urðu þau Sigríður Ingvarsdóttir og Ingvar Jónsson klúbbmeistarar.
Ráðist var í gerð nýrrar brautar á árinu og er það fyrsta verkið vegna þeirra breyting sem ákveðnar hafa verið á vellinum svo afleggja megi brautirnar næst sjónum. Umhirða og rekstur vallarins var frekar erfið síðasta sumar vegna langvarandi þurrka.
Á fundinum var samþykkt breyting á lögum félagsins sem lýtur að því að fækka í stjórn úr sjö í fimm.
Ný stjórn var kjörin á fundinum og er hún þannig skipuð.
Guðmundur Baldursson formaður, Magnús Ingvarsson, Marteinn Óli Skarphéðinsson,
Ingvar Jónsson og Sigríður Ingvarsdóttir, til vara Magnús Joachim Guðmundsson og Hákon Hjartarson.
Samþykkt var lítilsháttar breyting á árgjöldum vegna unglinga og nýliða, en árgjöldin eru eftirfarandi.
Einstaklingar 49.000
Makar ½ gjald 24.500
67 ára og eldri ½ gjald 24.500
Unglingar 20 til 22 ára ½ gjald 24.500
Unglingar undir 20 ára ekkert gjald
Nýliðar, fyrsta ár 22.000
Nýliðar, annað ár 27,000
Ekkert inntökugjald er í klúbbinn.
Frétt sem barst frá GÞ
Stærsta og sterkasta opna judomót síðari ára á Íslandi:
Bergur Pálsson hélt uppi heiðri UMFS á 40 ára afmæli JSÍ
RIG JUDO OPEN /Afmælismót JSÍ var haldið þann 19. Janúar í Laugardalshöllinni með þátttöku fjölda erlendra keppenda meðl annars frá Rússlandi , Tékklandi, Danmörku og Færeyjum , alls 22 erlendir gestir. Var mótið sérleqa glæsilegt þetta árið enda tímamót, 40 ára afmæli Júdósambands Íslands.
Þátttaka var mjög góð og flestir af sterkestu keppnismönnum landsins með, en þátttaka var takmörkuð við blátt belti, það er að segja í þessu móti gátu lægra gráðaðir ekki tekið þátt.
Á meðal keppenda voru sumir af sterkestu judomönnum heims í sínum þyngdarflokkum svo sem Viktor Semenov og Arsen Pshmakhov frá Rússlandi, Fredrik Jörgensen Danmörku, Michal Krpalek CZK og Ida Kristine Hagelskjær frá Danmörku.
Frá UMFS kepptu 4 keppendur Bergur Pálsson, Egill Blöndal, Eyþór Óskarsson og Grímur Ívarsson
Strax frá byrjun var ljóst að þetta var gríðalega sterkt mót og átti Egill Blöndal sem keppti í -81kg flokki fyrstu viðureign dagsins við Arsen Pshmakhov frá Rússlandi og var Egill Arsen erfiður og þrátt fyrir gríðarleg átök tókst Arsen ekki að skora nein stig á Egil, en vann þó þar sem Egill hafði fengið á sig refsistig þar sem dómara fannst Egill ekki hafa sótt nóg.
Var Egill eini keppandinn sem Arsen náði ekki að skora neitt á þennan daginn en flesta aðra vann Arsen með nokkrum yfirburðum, Sveinbjörn Yura átti þó góða viðureign í úrslitum.
Næst keppti Egill við Jón Þór úr JR og sást þá Agli að hann hafði lagt mikið undir í viðureigninni við Arsen og var bæði þreyttur og lemstraður og varð að láta í minni pokan fyrir Jóni og komst ekki lengra þennan daginn.
Bergur Pálsson sem keppti í -90kg flokki hélt uppi heiðri UMFS þennan daginn og minnti rækilega á sig, sigraði sinn riðil og vann þá Ingimar H. Halldórsson, Þóri Hrafn og Davíð Víðisson alla á Ippon, fullnaðar sigri, og keppti til úrslita við sterkasa mann þessa móts Viktor Semenov.
Þrátt fyrir góð tilþrif varð Bergur að játa sig sigraðan en náði 3 sæti sem er frábær árangur en Bergur hefur lítið keppt undanfarin ár en í topp formi þessa dagana.
Viktor Semenov vann þar með þyngdarflokkinn og gerði sér síðan lítið fyrir og vann opna flokkinn og þar á meðal Þormóð Jónsson JR, hafði skömmu áður unnið sinn þyngdarflokk +100kg.
Þeir Grímur Ívarsson og Eyþór Óskarsson stóðu sig vel en urðu að láta í minni pokan fyrir sér reyndari mönnum.
Frétt sem barst frá júdódeild Umf. Selfoss
Fréttapunktar:
HSK tvímenningur eldri borgara á laugardag
Fyrsta HSK mótið í tvímenningi bridds fyrir 67 ára og eldri verður haldið í Selinu á Selfossi á laugardag og hefst kl. 14:00. Skráningum lauk sl. laugardag og eru 14 pör skráð til leiks.
Um helgina voru undirritaðir samningar í Vík Mýrdal vegna 3. Landsmóts UMFÍ 50+ á milli landsmótsnefndar og Mýrdalshrepps annars vegar og Ungmennafélags Íslands og Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu hins vegar.
Lesa nánar: Skrifað undir samninga vegna 3. Landsmóts UMFÍ 50+ í Vík í Mýrdal
Meistaramót Íslands 11-14 ára:
Lið HSK/Selfoss vann stigakeppnina
Meistaramót Íslands 11-14 ára fór fram um helgina í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. HSK/Selfoss sendi fjöllmennt og öflugt lið á mótið en alls voru 79 krakkar skráðir af sambandssvæðinu.
Í 14 ára pilta flokki var Styrmir Dan Steinunnarson Umf. Þór öflugur að vanda en hann varð Íslandsmeistari í hástökki og 60m grindarhlaupi, hástökk 1.sæti 1,69m, 60m grindarhlaup 1.sæti 9,64sek, kúluvarp 3. sæti 10,57m, 60m hlaup 2.sæti 08.07sek, langstökk 2.sæti 5,45m.Í sama flokki var Björn Ívar Björnsson Íþróttafélaginu Dímon í 2. sæti í kúluvarpi 10,94m. 14 ára piltasveitin í 4*200m boðhlaupi varð svo í 3. sæti á tímanum 1:59,92.
Í flokki 14 ára stúlkna varð Halla María Magnúsdóttir Umf. Selfoss Íslandsmeistari í kúluvarpi kastaði hún kúlunni 11,11m varð hún svo í 3 .sæti í 60m hlaupi á tímanum 8,51sek. Harpa Svansdóttir varð í 2. sæti í kúluvarpi kastaði hún 9,74m, A-sveitin í flokki 14 ára stúlkna í 4*200m boðhlaupi hafnaði í 3. sæti á tímanum 2:00,68.
Í flokki 13 ára pilta varð Pétur Már Sigurðarson Umf. Selfoss í 2. sæti í hástökki 1,41m og og 2. sæti í kúluvarpi 10,59m. Þormar Elvarsson Dímon hafnaði í 3. sæti í 800m hlaupi á tímanum 2,37,61. 13ára pilta A-sveitin varð svo í 3. sæti á tímanum 2:04,42sek.
Í flokki 13 ára stúlkna varð A-sveitin í 4*200m boðhlaupi í 3. sæti á tímanum 2:05,38. Í flokki 12 ára stúlkna varð Ragnheiður Guðjónsdóttir Umf. Hrunamanna í 3. sæti í 800m hlaupi á tímanum 2:52,14 og varð A-sveitin í 4*200m boðhlaupi í 3. sæti á tímanum 2:17,35.
Í flokki 12 ára pilta varð Sindri Ingvarsson Íþróttafélaginu Dímon Íslandsmeistari í kúluvarpi og kastaði hann 9,29m, Sigmundur Nói Tómasson Umf. Selfoss varð í 3. sæti í 800m hlaupi á tímanum 2,42,14sek. Því miður gerði 12 ára piltasveitin í 4*200m boðhlaupi ógilt og voru dæmdir úr leik.
Í flokki 11 ára stúlkna varð Hildur Helga Einarsdóttir Umf. Selfoss Íslandsmeistari í kúluvarpi kastaði hún 7,23m, Sólveig Þóra Þorsteinsdóttir Umf. Þór varð í 3 .sæti í 800m hlaupi á tímanum 3:03,04, 2. sæti í hástökki stökk hún 1,26m og 3. sæti í langstökki stökk hún 4,13m. A-sveitin í 4*200m boðhlaupi varð svo í 3. sæti á tímanum 2,22,45mín.
Í flokki 11 ára pilta varð Dagur Fannar Einarsson Umf. Vöku Íslandsmeistari í 800m hlaupi á tímanum 2:48,89, Kolbeinn Loftsson kúluvarp 2. sæti 8,51, hástökk 3. sæti 1,31m, Hákon Birkir Grétarsson Umf. Selfoss 60m hlaup 2. sæti 9,44sek, Viktor Karl Halldórsson Umf. Þór 60m hlaup 3. sæti 9:45sek, langstökk 3. sæti 3,85m, Jónas Grétarsson Umf. Selfoss kúluvarp 3. sæti 8,31m. Varð svo A-sveitin í 1. sæti og B-sveitin í 2.sæti í 4*200m boðhlaup, sigruðu 11 ára piltarnir sinn flokk með 124, ÍR voru í 2.sæti með 49stig,
Í heildarstigakeppninn HSK/Umf.Selfoss 1.sæti 517,7stig, 2. sæti ÍR 494,6 stig og 3. sæti FH 441,0 stig.
Rúnar Hjálmarsson
Úrtaka fyrir Landsmót UMFÍ:
Fimleikamót HSK framundan
Vegna ábendinga ákvað fimleikanefnd sambandsins að endurskoða skipulag HSK mótsins í fimleikum í ár.Breyingarnar eru eftirfarandi:
HSK mótið verður úrtaka fyrir Landsmót UMFÍ 2013. Því munu stigahæstu liðin (2 kvk, 2 kk og 2 mix) vinna sér inn þátttökurétt fyrir hönd HSK á komandi landsmóti, sem haldið verður á Selfossi 4. – 7. júlí nk.
Náist ekki að fullskipa þessi sex lið sem keppa munu á landsmóti fyrir hönd HSK mun nefndin senda út tilkynningu til félaga eftir mótið og hvetja félögin að tala saman sín á milli og sameina í lið svo hægt sé að senda 6 lið á landsmótið.
Fyrirkomulag HSK mótsins verður þannig að mótið tvískipt þetta árið.
Fyrri hluti mun vera eins og áður var skipulagður 16. mars n.k. í íþróttahúsinu í Hveragerði og keppa þar byrjendaflokkar og 4. flokkur. Seinni hluti mótsins verður haldinn 5.maí n.k., staðsetning verður auglýst síðar. Keppnisflokkar þar verða 3. flokkur – mfl, Jafnframt mun HSK meistari verða krýndur á því móti.
Fyrri hluti mótsins verður í Hveragerði og verður því dansgólfið aðeins minna en löglegt keppnisgólf, dómarar munu taka tillit til þess í einkunum.
Tilhlaup á trampólíni skerðist um ca 1,5 meter samkvæmt löglegu tilhlaupi og tilhlaup á fibergólfið verður um 14-16 metrar ( 7-8 hlaupakubbar). Skráningar skulu berast á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 1. mars 2013.
Seinni hluti mótsins verður haldinn þar sem lögleg tilhlaup og dansgólf verða. Fyrirspurnir, ábendingar og athugasemdir skal sendast skriflega á: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Glíma:
Stefán og Marín tvöfaldir Íslandsmeistarar
Lokaumferð í Meistaramótaröð Glímusambandsins var glímd á dögunum í íþróttahúsi Kennaraháskólans.
Helstu úrslit urðu þau að Stefán Geirsson HSK og Marín Laufey Davíðsdóttir HSK urðu tvöfaldir Íslandsmeistarar. Stefán vann titil í opnum flokki karla og í +90 kg flokki karla og Marín Laufey vann opinn flokk kvenna og + 65 kg flokk kvenna.
Fleiri keppendur frá HSK stóðu sig vel á Íslandsmótinu. Guðrún Inga Helgadóttir varð í öðru sæti í opnum flokki kvenna og varð einnig í öðru sæti í -65 kg flokki kvenna. Brynhildur Hrönn Sigurjónsdóttir var önnur í +65 flokki kvenna og Dagbjört Henný Ívarsdóttir varð þriðja í -65 kg flokki kvenna.
Lið HSK varð í öðru sæti í stigakeppni þátttökuliða með 128,5 stig, en UÍA vann með 141 stig.
Frjálsíþróttir:
Þrjú gull hjá Fjólu Signý í Svíþjóð
Fjóla Signý, frjálsíþróttakona frá Selfossi, keppti á tveimur mótum í Svíþjóð í síðustu viku með góðum árangri.
Þann 19. febrúar tók hún þátt í Nordic Gym Games sem var haldið í bænum Bollnäs. Fjóla keppti þar í 60m grindahlaupi og 200m hlaupi og sigraði báðar greinarnar. Í grindahlaupinu hljóp hún á ágætum tíma 9,16 sek. en hún á best 9,00 sek sem jafnframt er HSK metið í greininni. Sömu sögu er að segja um 200m hlaupið en þar á Fjóla HSK metið 26,13 sek. að þessu sinni hljóp hún á 26,47 sek.
Tveimur dögum síðar eða nánar tiltekið fimmtudaginn 21. febrúar keppti Fjóla svo á öðru móti í Svíþjóð, XL- galan sem er stórt mót sem fram fór í Stokkhólmi í höllinni Globen. Fjóla keppti í 400m hlaupi þar sem hún sigraði á tímanum 57,51 sek. sem er besti tími hennar á innanhússkeppnistímabilinu 2013. Þess má til gamans geta að á sama móti fyrir ári síðan setti Fjóla HSK sitt í greininni er hún hljóp á 57,21 sek. Þetta var jafnframt síðasta mót Fjólu á innanhússtímabilinu í ár. En góður árangur hjá Fjólu og ljóst að hún kemur til með að láta mikið að sér kveða næsta sumar.
Ólafur Guðmundsson
Fréttapunktar:
Skjaldarglíma Skarphéðins á morgun
Skjaldarglíma Skarphéðins verður glímd í Reykholti á morgun, fimmtudag og hefst kl. 19:00. Flokkaskipting er svohljóðandi: Drengir og stúlkur 11, 12, 13, 14, 15 og 16 ára, unglingaflokkur drengja 17 - 20 ára og fullorðinsflokkar karla og kvenna.
Héraðsleikar á laugardag
Héraðsleikar HSK í frjálsum fyrir keppendur 10 ára og yngri verða haldnir í íþróttahúsinu á Hvolsvelli laugardaginn 2. mars nk. og hefst keppni kl. 10:00 á þrautabraut (8ára og y.), keppendur mæti kl. 09:40 og kl. 11:00 í hefðbundnum greinum (9-10ára). Áætluð mótslok eru kl. 13:00. Skráningar á héraðsleikana þurfa að berast inn á mótaforrit FRÍ fyrir kl. 24:00 fimmtudagskvöldið 28. febrúar nk. Sjá nánari upplýsingar á www.hsk.is.
Seinni hluti HSK-móts karla í blaki
Seinni hluti HSK-móts karla í blaki verður haldinn á Laugarvatni miðvikudaginn 6. mars nk. og hefst keppni kl. 18.00, en upphitun kl. 17.30. Leikjaplan er á www.hsk.is.
Héraðsþing HSK í Aratungu 9. mars 2013
91. héraðsþing HSK verður haldið í félagsheimilinu Aratungu í Biskupstungum laugardaginn 9. mars nk. kl. 10:00 – 18:00.
Rétt til setu á þinginu eiga 120 fulltrúar frá 59 aðildarfélögum HSK og tveimur sérráðum sambandsins. Kjörbréf og tillögur verða sendar til félaga og ráða með seinna fundarboði.
Ef félög og ráð er með einhver málefni sem stjórn þess vill koma á framfæri á héraðsþinginu í formi tillögu, væri gott að heyra frá ykkur fljótlega, því stjórn HSK sendir út tillögur til aðildarfélaganna nokkru fyrir þing.
Tillögur um lagabreytingar þurfa samkvæmt lögum Skarphéðins að berast stjórn HSK með tveggja vikna fyrirvara, eða í síðasta lagi 23. febrúar nk.
Fulltrúafjöldi félaga og ráða og dagskrá þings má sjá á www.hsk.is.
Bikarkeppni FRÍ í frjálsum 2013:
Fjóla bikarmeistari í 60m grindahlaupi
• 5 HSK met
• 1 gull, 1 silfur og 3 brons.
Sjöunda Bikarkeppni FRÍ í frjálsíþróttum innanhúss fór fram laugardaginn 16. febrúar s.l. í Laugardalshöllinni. HSK sendi sitt sterkasta lið til keppni sem náði ágætum árangri. Það samanstóð af ungum einstaklingum sem voru að þreyta frumraun sína í bikarkeppni sem og reynslumiklum jöxlum sem alltaf standa fyrir sínu. Eitt gull og silfur og þrjú brons komu í hús, ásamt því að góður hluti keppenda HSK liðsins bætti sig ýmist persónulega eða náði sínum besta árangri á keppnistímabilinu. Keppendur liðsins settu fjögur HSK met. Í heildina þá varð liðið í fimmta sæti af sex liðum. Þó nokkuð var um veikindi og meiðsli hjá lykil keppendum. Undirrituðum reiknaðist til að HSK liðið hefði orðið í þriðja sæti ef allt okkar sterkasta fólk hefði getað verið með.
Fimm verðlaun til HSK:
Fjóla Signý Hannesdóttir Selfoss, fyrirliði kvennaliðsins stóð sig vel að vanda, hún sigraði fyrstu grein mótsins, 60m grindahlaupi og leiddi HSK því stigakeppni félaga að lokinni fyrstu grein. Hún varð svo þriðja í hástökki með 1,63m. Haraldur Einarsson Vöku, fyrirliði karlaliðsins og nýkrýndur Íslandsmeistari í 60m hlaupi karla, stóð sig einnig vel. Hann varð annar í 60m hlaupinu á 7,16 sek. og þriðji í 60m grindahlaupi á 9,13 sek. Ágústa Tryggvadóttir Selfossi sem tognaði á MÍ um liðna helgi náði þrátt fyrir það þriðja sæti í kúluvarpinu aðeins einum cm frá silfursætinu.
Fimm HSK met:
Kristinn Þór Kristinsson Samhygð, sem er mjög mikilvægur fyrir liðið í millivegalengdunum keppti að þessu sinni í 400m hlaupi og boðhlaupi. Hann ákvað að hvíla sínar vegalengdir að þessu sinni þar sem hann freistar þess um næstu helgi á Danska meistaramótinu að ná lágmarki á EM innanhúss í Svíþjóð í 800m hlaupinu. Kristinn stóð sig engu að síður vel og setti HSK met í 400m hlaupi karla, kom fjórði í mark á 50,20 sek. en gamla metið átti Halli Einars sem var 50,47 sek. Þá setti Sólveig Helga Guðjónsdóttir Selfossi einnig HSK met í 400m hlaupi, hljóp á 61,39sek. en átti áður 61,70 sek. Þetta er met í stúlknaflokkum 16-17 ára og 18-19 ára.
Í 1500m hlaupi karla hljóp Teitur Örn Einarsson 15 ára frá Selfossi á 5:09,48 mín og setti HSK met í flokki 15 ára.
Það var svo karlasveit HSK í 4x400m boðhlaupi sem setti síðasta HSK metið í lokagrein mótsins tíminn 3:37,24 mín. Halli Einars., Jóhann Guðm.Selfoss, Hreinn Heiðar Laugdælum og Kristinn Þór skipuðu sveitina. Gamla metið var 3:41,58 mín.
Ungir og efnilegir með bætingar:
Ungir og efnilegir keppendur komu töluvert við sögu hjá HSK liðinu í þessari Bikarkeppni og stóðu sig vel. Eyrún Gautadóttir Baldri bætti sig úr 2:53,02 mín. í 2:39,76 mín í 800m hlaupinu. Styrmir Dan Steinunnarson 14 ára úr Þór leysti Bjarna Má, sem var meiddur, af í langstökkinu og bætti sig um rúma tuttugu cm, stökk 5,66 m. Þá bætti Jóhann Guðmundsson Selfossi sig um 5 sek. í 800m hlaupinu, tíminn 2:10,15 mín. Í þrístökki karla tók Fannar Þór Rafnarsson 15 ára úr Þór sæti Bjarna Más og stóð sig vel Í stangarstökki kvenna keppti Thelma Björk Einarsdóttir Selfossi, bætti sig um 10cm og stökk 2,00m. Samstaða og góður andi einkenndi HSK liðið og að vanda átti klappliðið okkar stúkuna.
Í heildarstigakeppninni varð HSK í 5. sæti af sex liðum með 68 stig. ÍR-A sigraði eftir hörkukeppni við Norðurland, með 119 stig og endurheimti titilinn. FH varð í þriðja sæti. Kvennalið HSK varð í fjórða sæti og karlaliðið í því fimmta.
Annars varð árangur keppenda HSK eftirfarandi:
Fjóla Signý Hannesdóttir Selfoss 60m grindahlaup 9,02 sek. nr. 1
Fjóla Signý Hannesdóttir Selfoss Hástökk 1,63 m. nr. 3
Haraldur Einarsson Vöku 60m. hlaup 7,16sek . nr. 2
Haraldur Einarsson Vöku 60m. gr.hlaup 9,13 sek nr. 3
Hreinn Heiðar Jóhannsson Laugdælir Hástökk 1,80m. nr. 4
Sólveig Helga Guðjónsdóttir Selfoss 400m. hl. 61,39 sek.(HSK.met) nr. 5
Kristinn Þór Kristinsson Samhygð 400m. hl. 50,20 sek. (HSK.met) nr. 4
Eva Lind Elíasdóttir Þór 60m. hlaup 8,29 sek. nr. 5
Eva Lind Elíasdóttir Þór 200m. hlaup 26,92sek. nr. 4
Fannar Yngvi Rafnarsson Þór 200m. hlaup 25,95sek.(ársbest).nr. 6
Ágústa Tryggvadóttir Selfoss Kúluvarp 10,87m. nr. 3
Ólafur Guðmundsson Laugdælir Kúluvarp 13,12m.(ársbest) nr. 4
Guðrún Heiða Bjarnadóttir Selfoss Þrístökk 10,24m. nr. 5
Fannar Yngvi Rafnarsson Þór Þrístökk 11,59. nr. 5
Guðrún Heiða Bjarnadóttir Selfoss Langstökk 4,61m. nr. 5
Styrmir Dan Steinunnarson Þór Langstökk 5,66m. (pers.best)nr.6
Eyrún Gautadóttir Selfoss 800m. hlaup 2:39,76 mín. (pers.best) nr. 6
Jóhann Guðmundsson Selfoss 800m. hlaup 2:10,15.(pers.best) nr. 6
Thelma Björk Einarsdóttir Selfoss Stangarstökk 2,00m (pers.best)nr. 6
Hreinn Heiðar Jóhannsson Laugdælir Stangarstökk 2,80m. nr. 6
Thelma Björk Einarsdóttir Selfoss 1500m. hl. 7:02,48mín.(ársbest) nr. 6
Teitur Örn Einarsson Selfoss 1500m. hl. 5:09,48 mín. (HSK.met) nr. 6
4x400m. boðhlaup: (Guðrún Heiða, Sólveig Helga, , Eva Lind, Fjóla Signý) 4:09,61mín. nr. 5
4x400m. boðhlaup: (Jóhann G., Halli Einars., Hreinn Heiðar, Kristinn Þór) 3:37,24mín. (HSK met) nr. 4
Ólafur Guðmundsson
Fréttapunktar:
Héraðsleikar HSK í frjálsum 10 ára og yngri
Héraðsleikar HSK í frjálsum fyrir keppendur 10 ára og yngri verða haldnir í íþróttahúsinu á Hvolsvelli laugardaginn 2. mars nk. og hefst keppni kl. 10:00 á þrautabraut (8ára og y.), keppendur mæti kl. 09:40 og kl. 11:00 í hefðbundnum greinum (9-10ára). Áætluð mótslok eru kl. 13:00. Skráningar á héraðsleikana þurfa að berast inn á mótaforrit FRÍ fyrir kl. 24:00 fimmtudagskvöldið 28. febrúar nk. Hvert félag hefur sitt lykilorð. Forráðamenn félaga sem hafa ekki þegar fengið lykilorðið geta fengið upplýsingar um það á skrifstofu HSK í síma 482 1189. Senda þarf skráningar í Þrautabrautina einnig í tölvupósti á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Fram þarf að koma hverjir eru saman í liði. Fjöldi í liði er 8.
Skjaldarglíma Skarphéðins
Skjaldarglíma Skarphéðins verður glímd í Reykholti 28. febrúar 2013 og hefst kl. 19:00. Flokkaskipting er svohljóðandi: Drengir og stúlkur 11, 12, 13, 14, 15 og 16 ára, unglingaflokkur drengja 17 - 20 ára og fullorðinsflokkar karla og kvenna. Skráningar berist til Stefáns Geirssonar á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir kl. 22:00 þriðjudagskvöldið 26. febrúar nk.
HSK tvímenningur í bridds fyrir eldri borgara
Fyrsta HSK mótið í bridds fyrir 67 ára og eldri verður haldið í Selinu á Selfossi laugardaginn 16. mars og hefst kl. 14:00. Keppnin er tvímenningur og verður keppnisfyrirkomulagið ákveðið þegar fjöldi para liggur fyrir. Skráningar eiga að berast til Svavars Haukssonar í síma 897 7487 og 487 8147 eða til Leifs Österby í síma 893 0671 og 482 3271. Skráningar eiga að berast fyrir 9. mars nk. Keppnisgjald verður 500 kr. á mann. Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Seinni hluti HSK-móts kvenna í blaki
Seinni hluti HSK-móts kvenna í blaki verður haldinn á Laugarvatni mánudaginn 25. febrúar nk. og hefst keppni kl. 16:45. Leikjaplan er á www.hsk.is.
Aðalfundur KFR
Aðalfundur KFR verður haldinn í Íþróttahúsinu á Hellu í kvöld, fimmtudagskvöldið 21. febrúar kl.20:00. Venjuleg aðalfundarstörf. Allir áhugamenn um knattspyrnumál hvattir til að mæta.
Meistaramóts Íslands í frjálsum fyrir 11 – 14 ára
Meistaramót Íslands í frjálsum fyrir 11 – 14 ára fer fram í Laugardalshöllinni um helgina. Keppni hefst báða dagana kl. 10:00. Sjá nánar á www.fri.is.
Unglingadómaranámskeið KSÍ
Unglingadómaranámskeið KSÍ verður haldið á Selfossi í Iðu þriðjudaginn 26. febrúar kl. 19:00. Þetta er eina unglingadómaranámskeiðið sem haldið verður á Suðurlandi á árinu.
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við knattspyrnudeild Selfoss og hefst kl. 19:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar eða eftir samkomulagi.
Námskeiðið er ókeypis. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. Skráning er hafin á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Söfnun heiðursáskrifta hjá Umf. Biskupstungna
Góð viðbrögð hafa verið við söfnun heiðursáskrifta í bókina um sögu Ungmennafélags Biskupstungna. Bókin kemur út sumardaginn fyrsta 2013 á 105 ára afmælisdegi félagsins. Bókin verður 250 blaðsíður í stóru og læsilegu broti og skreytt ótal myndum úr sögu félagsins. Segja má að um leið sé verið að rekja sögu Biskupstungnahrepps því saga félagsins og sveitarfélagsins er samofin á margan hátt.
Í bókinni mun verða listi yfir einstaklinga og fyrirtæki sem kaupa bókina í svokallaðri heiðursáskrift. Verð á bókinni í slíkri forsölu er kr. 6.000. Ákveðið hefur verið að framlengja frest til kaupa á heiðursáskrift til 1. mars. En til að einstaklingar og fyrirtæki fái nafn sitt í bókina þarf greiðsla að hafa farið fram fyrir þann tíma. Hægt er að greiða heiðursáskriftina fyrir 1. mars inn á: Ungmennafélag Biskupstungna, kt. 660269-5179. Banki: 0151 – 26 – 533. Senda kvittun á: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Nánari upplýsingar veitir Helgi Kjartansson í síma 486-8920.
Kynningarfundur á vegum ÍSÍ og UMFÍ:
Niðurstöður rannsókna og hugleiðingar um skipulagt íþróttastarf fyrir börn og ungmenni
Ánægjuvogin er könnun sem UMFÍ og ÍSÍ stóðu að í sameiningu á stöðu íþróttastarfs, ánægju iðkenda, stöðu áfengis og tóbaksnotkunar og fleira meðal sambandsaðila í 8.-10.bekk.
Mánudaginn 4. febrúar munu UMFÍ og ÍSÍ standa í sameiningu fyrir fundi á Selfossi í Tíbrá Engjavegi 50 og hefst fundurinn klukkan 17:00.
Þar mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, m.a. ræða um hvort að íþróttahreyfingin sé að standast áskoranir nútímasamfélags eða eingöngu að þjálfa til árangurs. Viðar mun styðjast við niðurstöður rannsóknarinnar Ánægjuvogin sem Rannsókn og greining gerði fyrir UMFÍ og ÍSÍ.
Þátttaka er ókeypis og öllum heimil.
Reykjavíkurleikarnir:
Kristinn Þór stórbætti HSK metið í 800 metra hlaupi
Kristinn Þór Kristinsson hlaupari úr Umf. Samhygð stórbætti eigið HSK met í 800 metra hlaupi karla á Reykjavík International Games, sem haldnir voru í Laugardalshöllinni 19. janúar sl.
Kristinn Þór hljóp á 1:51,85 sek. og bætti eigið met um tæpar þrjár sekúndur, en fyrra met hans var 1:54,71 sett árið 2011.
Kristinn var þriðji í hlaupinu á eftir Kevin Stadler frá Þýslalandi og Snorra Sigurðssyni ÍR. Hlaupið var sterkt og árangur Kveins var sá besti í karlaflokki. Kristinn fékk 1.027 stig samkvæmt stigatöflu IAAF, sem var sjötti besti árangurinn á mótinu í karlaflokki.
Fleiri HSK menn náðu að vinna til verðlauna á mótinu. Hreinn Heiðar Jóhannsson Laugdælum varð þriðji í hástökki, stökk 1,90 metra og Bjarni Már Ólafsson Vöku varð þriðji í í langstökki með 6,44 metra.
Eva Lind Elíasdóttir úr Þór bætti sig í 60m hlaupi um 9/100, úr 8,28sek í 8,19 sek er hún varð 9. sæti í sterku 60m hlaupi. Haraldur Einarsson Vöku átti sitt annað besta 60m hlaup frá upphafi er hann hljóp á 7,15sek. og varð fimmti. Hann á best 7,11sek.
Þá stórbætti Teitur Örn Einarsson Selfossi eigið HSK met í 600m hlaupi 15 ára. Hann varð þriðji í hlaupinu á 1;35,04 mín, en gamla metið var 1;52,56 mín. Met Teits er einnig HSK met í 16 – 17 ára flokki og 18 – 19 ára flokki drengja.
Heildarúrslit mótsins má sjá á www.fri.is.
Stórmót ÍR, fyrri hluti 15 ára og eldri:
HSK með þrjú gullverðlaun
Stórmót ÍR var haldið um liðna helgi í Laugardalshöllinni. HSK SELFOSS sendi vaska keppendur til leiks þó heildarfjöldi keppenda í þessum aldursflokki af HSK svæðinu hafi oft verið meiri.
Hæst bar sigur Kristins Þórs Kristinssonar úr Samhygð í 800m. hlaupi karla. Hann tók forystu strax í byrjun og jók hana smátt og smátt og kom langfyrstur í mark á sínum öðrum besta tíma frá upphafi, 1:52,63 mín. Kristinn Þór er í feiknaformi þessa dagana en sællar minningar þá setti hann HSK met í þessari vegalengd á Reykjavíkurleikunum á dögunum 1:51,85 mín og er ekki langt frá lámarki á Evrópumeistaramótið innanhúss sem fram fer í Gautaborg í Svíþjóð 1. – 3. mars n.k. Þá sigraði Bjarni Már Ólafsson Vöku í þrístökki karla með stökki upp á 13,21cm. en Bjarni er smátt og smátt að komast í sitt besta form, hann varð svo fimmti í langstökki með 6,40m.
Í kúluvarpi kvenna þá varð Eva Lind Elíasdóttir Þór í öðru sæti með sitt annað lengsta kast á ferlinum 11,25m. Eva hljóp einnig gott 60m. hlaup á tímanum 8,20sek. en Eva bætti sig í þeirri vegalengd á Reykjavíkurleikunum er hún hljóp á 8,19sek. Rétt á eftir Evu komu þær Guðrún Heiða Bjarnadóttir og Sólveig Helga Guðjónsdóttir á 8,43sek. og 8,45sek. og skammt undan Andrea Vigdís á góðri bætingu 8,54sek. En þessar þrjár eru allar í Selfoss. Sólveig hljóp svo 200m. hlaup á ágætum tíma 27,37sek. Í kúluvarpi karla varð svo Ólafur Guðmundsson fimmti í kúluvarpi karla með 12,70m.
Í kúluvarpi pilta 15 ára þá áttum við tvö fyrstu sætin. Sveinbjörn Jóhannesson Laugdælum sigraði með góðu kasti 13,64m. og Teitur Örn Einarsson Selfossi tók annað sætið með 13,01m. löngu kasti. Þess má geta að Sveinbjörn varð fimmti í hástökki í sínum flokki með 1,62m. sem er bæting um fimm cm. en 3.-5. sætið stukku allir 1,62m. Í kúluvarpi stúlkna 16 – 17 ára hreppti Thelma Björk Einarsdóttir frá Selfossi bronsverðlaun með kasti upp á 11,48m. Andrea Vigdís Victorsdóttir frá sama félagi stórbætti sig er hún kastaði 10,23m. og varð sjöunda. Í hástökki stúlkna 15ára þá bætti Viktoría Halldórsdóttir Selfossi sig um þrjá cm. með því að vippa sér yfir 1,35m. Árdís Eva Yngvadóttir Selfossi gerði slíkt hið saman er hún stökk 1,27m.
Spennandi verður svo að fylgjast með frjálsíþróttafólki HSK SELFOSS á næstu vikum en Meistaramótin fara nú að hellast yfir hvert á fætur öðru.
Ólafur Guðmundsson
Glíma:
Grunnskólamót HSK framundan
Grunnskólamót HSK í glímu fyrir 5. – 10. bekk verður haldið á Hvolsvelli miðvikudaginn 6. febrúar næstkomandi og hefst kl. 11:00. Keppnisrétt eiga allir grunnskólar í Árnes- og Rangárvallasýslu.
Hver skóli má senda fjóra keppendur í hvern keppnisflokk Keppendur geta því mest orðið átta í hverjum bekk, þ.e. 4 strákar og 4 stelpur.
Þátttökutilkynningar þurfa að berast til skrifstofu HSK með tölvupósti í síðasta lagi um hádegi mánudaginn 4. febrúar nk. Netfang HSK er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Þátttökulið eiga að mæta í Íþróttahúsið á Hvolsvelli kl. 10:40, eða 20 mín. áður en keppni hefst. Fararstjórar þurfa að staðfesta skráningu og láta vita um forföll og nafnabreytingar. Í lok móts verður verðlaunaafhending.
Íþrótta- og fjölskyldudagur í Hamarshöll
- meira gaman saman
Íþrótta- og fjölskyldudagur Íþróttafélagsins Hamars og Hvergerðisbæjar verður föstudaginn 1. febrúar næstkomandi frá kl. 16:30 – 18:30. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða Hamarshöllina.
Finnum íþróttaföt fjölskyldunnar og skemmtum okkur saman í leikjum, þrautum og íþróttum.
Deildir Hamars munu kynna starfsemi sína og golfklúbburinn kennir réttu handtökin í púttinu.
Kl. 16:30
– formaður Hamars og formaður menningar- íþrótta og frístundanefndar flytja stutt ávörp
- ávarp gesta
- stutt kynning á starfi Hamars og golfklúbbnum
Boltagólf
- 16:45 – brennó og/eða skotbolti á boltagólfi
- 17:10 – körfubolti og skotkeppni á boltagólfi
- 17:45 – badminton og blak, leikir og þrautir, á boltagólfi
- 18:15 – Teygjur og slökun
Gervigras
- 16:45 – Kíló og boltaþrautir á gervigrasi
- 17:10 – Fótbolti og þrautir á gervigrasi
- 18:15 – Teygjur og slökun
Púttvöllur
- 16:45 – Réttu handtökin við sveifluna
- 17:10 – Púttmót
- 18:15 – Teygjur og slökun
Allir velkomnir !
ÍSÍ:
Vorfjarnám 2013 í þjálfaramenntun 2. stigs
Vorfjarnám 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 18. febrúar nk. og tekur það fimm vikur. Um er að ræða samtals 40 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 18.000.- Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Það er sjálfstætt framhald náms á 1. stigi þjálfaramenntunar ÍSÍ eða sambærilegs náms, s.s. náms í ÍÞF 1024. Skráning er á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir fimmtudaginn 14. febrúar. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer. Rétt til þátttöku hafa allir sem lokið hafa 1. stigi alm. hluta eða sambærilegu námi.
Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Fréttapunktar:
Aðalfundur Ungmannafélagsins Framtíðar
Aðalfundur Ungmannafélagsins Framtíðar verður haldinn í íþróttahúsinu Þykkvabæ fimmtudaginn 31. janúar kl. 20:00. Venjuleg aðalfundarstörf, kosninga og önnur mál. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Unglingameistaramót Íslands í frjálsíþróttum
Unglingameistaramót Íslands, 15 – 22 ára, innanhúss verður haldið í Laugardalshöll um helgina og hefst keppni báða dagana kl. 10:00. Fjöldi keppenda af sambandssvæði HSK verður á meðal þátttakenda. Sjá nánar á www.fri.is.
frá kl. 10.00 til um kl. 16:30.
Námskeið í borðtennis
Í tilefni af Landsmóti UMFÍ á Selfossi 4. – 7. júlí 2013 hefur Borðtennissamband Íslands áhveðið að bjóða aðildarfélögum uppá námskeið í borðtennis. Til að tryggja góða þátttöku í þessari grein á Landsmóti UMFÍ. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband í síma 8971715.
Opnað hefur verið fyrir skil á starfsskýrslu 2013
Opnað hefur verið fyrir árleg starfskýrsluskil félaga á vefslóðinni www.felix.is. Eins og undanfarin ár er þetta gert í gegnum Felixkerfið og skulu allir sambandsaðilar, íþróttafélög, íþróttahéruð og sérsambönd skila skýrslu inn eigi síðar en 15. apríl.
Starfsskýrslum er skipt í þrjá hluta, þ.e. skila þarf inn upplýsingum um stjórnarmenn, iðkendur/félaga og lykiltölum úr ársreikningi. Mikilvægt er að vanda vel starfskýrsluskilin þar sem gögnin eru m.a. nýtt í tölfræðiútreikning ÍSÍ og UMFÍ.
Vetrardeild Hamars í knattspyrnu
Knattspyrnudeild Hamars stendur fyrir móti utandeildarliða í vetur. Mótið heitir Vetrardeild Hamars og fara allir leikirnir fram í Hamarshöllinni í Hveragerði. Leikið er eftir reglum KSÍ um keppni 7 manna liða og er leiktími hvers leiks 2 x 25 mín. Leikið er á laugardögum og fyrsta umferð mótsins er 9. febrúar og lýkur 13. apríl. Þátttöku ber að tilkynna í síðasta lagi 4. febrúar á netfangið: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og í síma : 773-3200. Þátttökugjald í Vetrardeildina er kr. 50.000.- á lið.
Unglingamót HSK 15 – 22 ára í frjálsíþróttum:
Selfoss vann stigakeppni mótsins örugglega
Unglingamót HSK í frjálsíþróttum í flokkum 15 - 22 ára var haldið í frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum í Reykjavík 6. janúar sl.
Eftirtektarverður árangur náðist í nokkrum greinum, sem gefur góð fyrirheit um nýhafið og annasamt frjálsíþróttaár.
Tímatökutækin í höllinni voru ekki í lagi þennan dag og voru tímar í nokkrum hlaupagreinum ekki marktækir og er þeirra því ekki getið í úrslitum.
Selfoss vann stigakeppni félaga örugglega. Þjótandi, sem er sameinað lið Baldurs, Vöku og Samhygðar, varð í öðru sæti og Garpur varð í því þriðja.
Fyrirtækið Vörðufell ehf. gaf öll verðlaun á mótinu og er fyrirtækinu þakkaður stuðningurinn.
Heildarúrslit mótsins má sjá á www.fri.is.
Stigakeppni félaga
1. Selfoss 178
2. Þjótandi 95
3. Garpur 80
4. Laugdælir 58
5. Þór 34
6. Dímon 17
Héraðsmót HSK í frjálsíþróttum:
Fjöldi gesta tók þátt í mótinu
Héraðsmót í flokkum fullorðinna í frjálsíþróttum var haldið á tveimur kvöldum nú á dögunum. Mótið var haldið í Laugardalshöllinni við bestu hugsanlegar aðstæður hér á landi innanhúss.
Keppni fór fram á æfingatíma í húsinu og gafst keppendum úr öðrum félögum færi á að taka þátt. Líklega hafa aldrei svo margir gestir tekið þátt í héraðsmóti.
Mótshaldið gekk vel fyrir sig undir styrkri stjórn Guðmundar Kr. Jónssonar þular, sem er ómissandi í því hlutverki á mótum sambandsins.
Vörðufell ehf. gaf verðlaunapeninga fyrir þrjú fyrstu sætin í hverri grein og þakkar sambandið kærlega fyrir stuðninginn.
Selfoss vann stigakeppni mótsins, en hörkukeppni var um annað sætið.
Heildarúrslit má sjá á www.fri.is.
Stigakeppni félaga:
Stigakeppni félaga samtals
1. Selfoss 136
3. Laugdælir 48
3. Þjótandi 36
4. Dímon 29
5. Þór 12
6. Suðri 1
Félagið safnar heiðursáskriftum:
100 ára saga Ungmennafélag Biskupstungna
Ungmennafélag Biskupstungna var stofnað á sumardaginn fyrsta árið 1908 og fagnaði því 100 ára afmæli sínu árið 2008. Nú hefur Jón M. Ívarsson sagnfræðingur tekið saman sögu ungmennafélagsins á litríkan og lifandi hátt og þar kennir fjölmargra grasa.
Bókin verður 250 blaðsíður í stóru og læsilegu broti og skreytt ótal myndum úr sögu félagsins. Fyrirhugað er að bókin komi út á sumardaginn fyrsta 2013 á 105 ára afmæli félagsins.
Ákveðið hefur verið að hafa lista í bókinni yfir einstaklinga, fyrirtæki og félög sem kaupa bókina í svokallaðri heiðursáskrift. Verð á bókinni í slíkri forsölu er kr. 6.000 og til að einstaklingar, fyrirtæki og félög fái nafn sitt í bókina þarf greiðsla að hafa farið fram fyrir 15. febrúar 2013 inn á reikning félagsins í banka 0151 – 26 – 533. Kt. 660269-5179. Senda þarf kvittun á: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Nánari upplýsingar veitir Helgi Kjartansson í síma 486-8920 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
ÁNÆGJUVOGIN -STYRKUR ÍÞRÓTTA - niðurstöður rannsókna og hugleiðingar um skipulagt íþróttastarf fyrir börn og ungmenni
Ánægjuvogin er könnun sem UMFÍ og ÍSÍ stóðu að í sameiningu á stöðu íþróttastarfs, ánægju iðkenda, stöðu áfengis og tóbaksnotkunar og fleira meðal sambandsaðila í 8.-10.bekk.
Mánudaginn 4.febrúar munu UMFÍ og ÍSÍ standa í sameiningu fyrir fundi á Selfossi í Tíbrá Engjavegi 50 og hefst fundurinn klukkan 17:00.
Þar mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, m.a. ræða um hvort að íþróttahreyfingin sé að standast áskoranir nútímasamfélags eða eingöngu að þjálfa til árangurs. Viðar mun styðjast við niðurstöður rannsóknarinnar Ánægjuvogin sem Rannsókn og greining gerði fyrir UMFÍ og ÍSÍ. Þátttaka er ókeypis og öllum heimil.
Fréttapunktar:
Vinnustaðakeppni Lífshlaupsins
Skráning er hafin í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins og hvatningarleik grunnskólanna. Lífshlaupið hefst miðvikudaginn 6. febrúar. Hægt verður að skrá sig til leiks allt þar til keppninni lýkur eða til 26. febrúar. Einnig er hægt að skrá sig í einstaklingskeppni, sem er í gangi allt árið. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag keppninnar og skráningu má finna með því að smella hér eða á www.lifshlaupid.is.
Þorrablót Umf. Baldurs
Hið sívinsæla og stórskemmtilega þorrablót Umf. Baldurs og skemmtinefndar Sandvíkurhrepps verður haldið í Þingborg laugardagskvöldið 26. janúar 2013. Undirbúningur er kominn af stað og má búast við miklu fjöri að hætti Hraungerðinga og Sandvíkinga, langt fram eftir nóttu. Hljómsveitin Stuðlabandið ætlar að halda fólki í stuði fram eftir nóttu eftir að hefðbundinni dagskrá lýkur.
Lesa nánar: Vetrardeild Hamars - leikið í nýju Hamarshöllinni í Hveragerði
Handknattleikur:
Selfoss HSK meistari karla
Lið Selfoss1 sigraði á héraðsmótinu í handbolta sem fram fór í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi 29. desember sl. Fjögur lið tóku þátt í mótinu.
Selfyssingar unnu alla sína leiki og fengu 6 stig, í 2. sæti voru ríkjandi meistarar í Knattspyrnufélagi Árborgar með 3 stig og sameiginlegt lið Baldurs og Gnúpverja varð í 3. sæti, einnig með 3 stig. Selfoss 2 rak lestina án sigurs.
Úrslit leikja í mótinu:
Árborg - Baldur/Gnúpverjar 7-7
Selfoss1 - Selfoss2 13-11
Selfoss1 - Árborg 15-14
Selfoss2 - Baldur/Gnúpverjar 9-19
Selfoss2 - Árborg 9-19
Selfoss1 - Baldur/Gnúpverjar 13-12
Lokastaðan:
1. Selfoss1 6 stig
2. Árborg 3 stig
3. Baldur/Gnúpverjar 3 stig
4. Selfoss2 0 stig
HSK mót í bridds:
Hrannar og Runólfur HSK meistarar
HSK mótið í tvímenning 2013 var haldið í Tryggvaskála 3. janúar. Spilaðar voru 11 umferðir með 4 spilum á milli para, Monrad röðun, alls 44 spil. Í mótinu tóku þátt 20 pör.
Sigurvegarar urðu Hrannar Erlingsson og Runólfur Þór Jónsson með 59,2% skor. Í öðru sæti urðu Brynjólfur Gestsson og Helgi Hermannsson með 59,1% skor og í þriðja sæti urðu Þröstur Árnason og Sigurður Vilhjálmsson með 55,9% skor.
Heildarúrslit má sjá á http://www.bridge.is/felog/sudurland/bridgefelag-selfoss/urslit-2012-2013/hsk-2013/
Héraðsmót HSK í skák
Sveit Selfoss HSK meistari
Héraðsmót HSK í sveitakeppni í skák var haldið í Selinu á Selfossi 28. nóvember sl.
Það voru fimm sveitir sem mættu til leiks. Tvær sveitir frá Selfossi, ein sameiginleg sveit frá Heklu og Dímon, ein frá Dímon og síðan sveit frá Baldri í Hraungerðishreppi.
Tefldar voru 15 mínútna skákir allir við alla, aldagamalli venju samkvæmt. Við harðri baráttu var að búast enda sveitir skipaðar sterkum keppendum. Þannig voru þeir Dímonarsveinar með engan annan en hraðskákmeistara SSON á fyrsta borði, Selfyssingar höfðu honum til höfuðs Pál Leó á meðan Baldursliðar stilltu upp skák-og atskákmeistara SSON á fyrsta borði engum öðrum en Laugardælingnum knáa Ingimundi Sigurmundarsyni.
Minni spámenn síðan á 2.-4 borði í sveitunum en margir öflugir skákmenn eigi að síður og ekki má gleyma því að vinningar þeirra eru jú jafnmikilvægir og þeir sem framverðir sveitanna ná í hús.
Niðurstaðan sú að a sveit Selfoss vann keppnina örugglega með 15 vinningum af 16. Jafnar í öðru til þriðja urðu síðan sveitir Baldurs og Dímon með 8,5 vinninga, en Baldur fékk silfur á sigri í innbyrðis viðureign.
1. Umf. Selfoss-a
Páll Leó 4v, Magnús M 3v, Ingvar Örn 4v og Grantas 4v
2. Umf. Baldur
Ingimundur 3v, Úlfhéðinn 4 v, Þorvaldur S 0v og Skeggi G. 1,5 v
3. Dímon/Hekla
Björgvin Guðm. 2v, Björgvin Helgason 2v, Jón Helgason 2,5v og Anton Guðjónss. 2v
Magnús Matthíasson
Frjálsíþróttir:
Kristinn bætti elsta HSK metið í karlaflokki
Kristinn Þór Kristinsson hlaupari úr Umf. Samhygð stórbætti HSK metið í 600 metra hlaupi karla á Jólamóti ÍR 19. desember sl.
Kristinn hljóp á 1;20,86 mín sem dugði til sigurs í hlaupinu. Hann bætti þar með 43 ára met Sigurðar Jónssonar á Selfossi, en hann hljóp á 1;28,2 mín. á móti í Reykjavík 22. mars 1969. Met Sigga var einnig met í 20-22 ára flokki og stendur það enn, þar sem Kristinn er 23 ára.
Á þessu sama móti keppti Haraldur Einarsson úr Vöku og hann gerði sér lítið fyrir og sigraði í 60 metra hlaupi karla á 7,35 sek.
Met Sigurðar var elsta HSK metið innanhúss í karlaflokki. Til gamans má geta þess að elsta HSK metið innanhúss er frá 1958. Ólafur Unnsteinsson stökk það ár 3,11 metra í langstökki án átrennu í flokki pilta 18-19 ára. Þrívegis hefur þetta met verið jafnað og deilir Óli heitinn því metinu með þremur öðrum.
Frjálsar:
Styrmir Dan bætti Íslandsmetið í hástökki
Styrmir Dan Steinunnarson úr Þór Þorlákshöfn gerði sér lítið fyrir og bætti íslandsmetið í hástökki pilta 13 ára á Ármótamóti Fjölnis í Laugardalshöllinni 29. desember sl.
Hann keppti bara í hástökki þar sem stefnan var sett á að bæta Íslandsmetið og eins og áður segir gerði hann það og stökk 1,75 og átti tvær mjög góðar tilraunir við 1,80. Gamla metið var 1,72. Á hann því bæði íslandsmet inni og úti í hástökki 13 ára pilta. Þetta er að sjálfsögðu einnig HSK met og þar að auki metjöfnum á HSK meti í flokki 14 ára.
Met Styrmis var síðasta HSK met ársins og þau urðu samtals 127 að tölu, 100 utanhúss og 27 innanhúss. Sannarlega glæsilegur árangur hjá frjálsíþróttafólki sambandsins.
Fréttapunktar:
Seinni dagur héraðsmót HSK í frjálsum
Héraðsmót HSK í frjálsum í flokkum fullorðinna fer fram á tveimur kvöldum æi Laugardalshöllinni og hófst keppni sl. mánudagskvöld. Keppni lýkur síðan næsta mánudag, 14. Janúar og hefst keppni kl. 19:40. Sjá nánar á www.fri.is.
Meistaramót í fjölþrautum og öldungamót
Meistaramót Íslands í fjölþrautum og öldungamót Íslands í frjálsum fara fram í Laugardalshöll um helgina. Sjá nánar á www.fri.is.
Íþróttamaður HSK 2012
Eitt af verkefnum nefnda og ráða HSK er að velja íþróttamann HSK í viðkomandi grein.
Samkvæmt reglugerð er aðeins hægt að velja einn íþróttamann og viðkomandi verður síðan í kjöri til íþróttamanns HSK. Nefndir og ráð eru þessa dagana að huga að valinu og verða að skila inn til HSK upplýsingum eigi síðar en 15. janúar.
Skýrsla um starf félaga 2012
Árlega óskar stjórn HSK eftir skýrslum frá aðildarfélögum HSK um það helsta sem félögin hafa unnið að á líðandi ári og mun skýrslan birtast í ársskýrslu HSK sem kemur út á héraðsþingi HSK, sem haldið verður laugardaginn 9. mars nk. Skila þarf umræddri skýrslu á skrifstofu HSK fyrir 15. janúar nk.
Egill Blöndal Ásbjörnsson, júdódeild Umf. Selfoss, var fyrir nokkru valinn efnilegasti júdómaður landsins af Júdósambandi Íslands. Egill, sem er aðeins 16 ára, náði frábærum árangri á árinu. Hann varð í öðru sæti í 15-16 ára flokki á Norðurlandamótinu og vann auk þess brons á Sweden Open International í haust.
Lesa nánar: Selfyssingur valinn efnilegasti júdómaður Íslands
Nemendur skrá sig til KKÍ og fá sendan aðgang að námskeiðinu sem þeir geta unnið á sínum hraða þegar þeim hentar, hvar sem er á landinu. Námskeiðinu lýkur svo á verklegu prófi í febrúar þar sem reynt verður að koma til móts við hvar þátttakendur búa.Það er um að gera fyrir alla sem hafa áhuga á körfuknattleik að skrá sig og fá betri skilning á reglunum. Einnig geta þeir sem áhuga hafa farið að dæma leiki á vegum dómaranefndar KKÍ.
Lesa nánar: Dómaranámskeið KKÍ á nýjan leik og aftur í fjarkennslu
Jón Daði Böðvarsson, knattspyrnumaður og Fjóla Signý Hannesdóttir, frjálsíþróttakona voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Árborgar fyrir árið 2012 í kvöld á uppskeruhátíð íþrótta- og tómstundanefndar sveitarfélagsins.
Lesa nánar: Jón Daði og Fjóla Signý íþróttamenn Árborgar 2012
Unglingamót HSK 2012 í badminton:
Hamar vann stigakeppni mótsins
Unglingamót HSK í badminton var haldið í Þorlákshöfn laugardaginn 1. desember síðastliðinn. Keppendur voru 51 talsins frá þremur félögum; Dímon, Hamar og UMF Þór. Mótið gekk mjög vel fyrir sig og fóru allir ánægðir heim.
Á mótinu var stigakeppni milli félaganna, þar sem keppt var um HSK-meistara titilinn. Hamar fór með sigur úr býtum með 60 stig, UMF Þór var í öðru sæti með 37 stig og Dímon í því þriðja með ekkert stig. Úrslitin á mótinu má sjá hér að neðan.
U11 – snáðar og snótir
Ekki var keppt um sæti í þessum flokkum heldur fengu allir verðlaun.
U13 – hnokkar
1.sæti – Daníel Sigmar Kristjánsson, Hamar
2.sæti – Jakob Unnar Sigurðarson, Þór
3.sæti – Pétur Sigurdór Pálsson, Hamar
4.sæti – Viðar Örn Svavarsson, Hamar
U13 – tátur
1.sæti – Berglind Dan Róbertsdóttir, Þór
2.sæti – Birta Marín Davíðsdóttir, Hamar
3.sæti – Þórey Katla Brynjarsdóttir, Þór
4.sæti – Álfheiður Østerby, Þór
U15 – sveinar
1.sæti – Alexandru Gabriel Stefanoaia, Þór
2.sæti – Daníel Njarðarson, Hamar
3.sæti – Daníel Ísberg, Hamar
4.sæti – Jakob Unnar Sigurðarson, Þór
U15 – meyjar
1.sæti – Berglind Dan Róbertsdóttir, Þór
2.sæti – Birta Marín Davíðsdóttir, Hamar
3.sæti – Aníta Brynjarsdóttir, Hamar
U17 – drengir
1.sæti – Axel Örn Sæmundsson, UMF Þór
2.sæti – Guðjón Helgi Auðunsson, Hamar
3.sæti – Viktor Helgi Gizurarson, Hamar
4.sæti - Alexandru Gabriel Stefanoaia, UMF Þór
U17 – telpur
1.sæti – Elín Hrönn Jónsdóttir, Hamar
2.sæti – Hrefna Ósk Jónsdóttir, Hamar
3.sæti – Elva Karen Júlíusdóttir, UMF Þór
4.sæti – Stefanía Ásta Davíðsdóttir, Þór
U19 – piltar
1.sæti – Axel Örn Sæmundsson, Þór
2.sæti – Guðjón Helgi Auðunsson, Hamar
3.sæti – Viktor Helgi Gizurarson, Hamar
4.sæti – Indriði Hrannar Blöndal, Hamar
U19 – stúlkur
1.sæti – Bjarndís Helga Blöndal, Hamar
2.sæti – Elín Hrönn Jónsdóttir, Hamar
3.sæti – Hrefna Ósk Jónsdóttir, Hamar
4.sæti – Elva Karen Júlíusdóttir, Þór
Glímufólk ársins 2012:
Marín Laufey glímukona ársins
Glímusambands Íslands hefur ákveðið hverjir hljóta útnefninguna glímukona og glímumaður ársins 2012.
Marín Laufey Davíðsdóttir sem keppir fyrir HSK var valin glímukona ársins. Hún er 17 ára gömul og átti frábæru gengi að fagna á glímuvellinum árið 2012. Marín sigraði í Íslandsglímunni 2012 og hlaut þar með Freyjumenið í annað sinn. Hún vann fjölda annarra titla á árinu m.a. vann hún Bergþóruskjöldinn sem keppt er um á héraðsmóti HSK. Marín er fyrirmyndar íþróttakona jafnt innan vallar sem utan. HSK óskar henni til hamingju með tilnefninguna.
Pétur Eyþórsson, Glímufélaginu Ármanni var varlinn glímumaður ársins, en hann hampaði Grettisbeltinu í sjöunda sinn árið 2012 sem gerir hann að einum sigursælasta glímukappa Íslands frá upphafi.
Jólarisapottur í getraunum
Breytingarnar sem gerðar voru á útborgunarhlutfallinu í getraunum hafa heppnast afar vel og salan aukist á þessu ári sem nú er að líða. Af því tilefni verður boðið upp á Jólapott laugardaginn 22. desember næstkomandi.
Ákveðið hefur verið að tvöfalda vinninga fyrir 13 rétta. Það þýðir að vinningsupphæðin verður að minnsta kosti 230 milljónir.
Ef hinsvegar það verður risapottur frá næstkomandi laugardegi þannig að ekki verði greitt út fyrir 10 rétta eða enginn með 13 rétta, þá tvöföldum við samt upphæðina og þá má búast við að vinningsupphæðin geti farið í 350 milljónir fyrir 13 rétta sem verður met upphæð.
Ef einn einstaklingur verður með 13 rétta laugardaginn 22. desember þá fær hann ekki bara 180 milljónir tryggðar, heldur tvöföldum við líka þá upphæð þannig að hann fær 360 milljónir króna fyrir að vera einn með 13 rétta (20 m SEK).
Nú er um að gera fyrir sölumenn félaganna að láta sitt fólk vita og safna í seðil – helst vinningsseðil - fyrir jólin.
Rétt er að minna á að flest aðildarfélaga HSK eru með getraunanúmer og eru sunnlendingar hvattir til að taka þátt í skemmtilegum leik og styðja um leið sitt félag. Sjá nánar www.1x2.is.
HSK mótin í frjálsum fara fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum
HSK mótin í frjálsíþróttum í flokkum 11 - 22 ára fara fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum í janúar nk. og er þetta í fjórða sinn sem mótin fara fram í Höllinni.
Flokkaskipting aldursflokkamótinu: 11 ára, 12 ára, 13 ára og 14 ára.
Flokkaskipting á unglingamótinu: 15 ára, 16 – 17 ára, 18 – 19 ára og 20-20 ára.
Aldursflokkamót og Unglingamót HSK
Aldursflokkamót HSK 11 - 14 ára og Unglingamót HSK 15 - 22 ára verður haldið í frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum í Reykjavík sunnudaginn 6. janúar n.k. frá kl.10:00 - 15:00.
Keppnisgreinar á aldursflokkamótinu:
11-12 ára: 60m hlaup - langstökk - hástökk - kúluvarp - 800m hlaup.
13-14ára: 60m hlaup - langstökk - hástökk - kúluvarp - 800m hlaup - 60m grindahlaup
Allir flokkar á Unglingamótinu:
60m hlaup - 60m grindahlaup - langstökk - hástökk - kúluvarp - 800m hlaup.
Skráningar
Skráningar á mótin eiga að berast inn á mótaforritið fyrir kl. 24:00 föstudagskvöldið 4. janúar.
Starfsmenn félaga
Líkt og á undanförnum HSK mótum verður farin sú leið að úthluta ákveðnum greinum á félögin. Nánari upplýsingar gefur Ólafur Guðmundsson í síma 867 7755 eða sendið línu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Fréttapunktar:
Stofnþing Akstursíþróttasambands Íslands
Stofnþing Akstursíþróttasambands Íslands verður haldið í dag, 20. desember 2012 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal kl. 16:00.
Umf. Eyfellingur 90 ára
Umf. Eyfellingur verður 90 ára á Þorláksmessu, en félagið var stofnað 23. desember árið 1922.
Umf. Hvöt 105 ára
Umf. Hvöt verður 105 ára á laugardag, en félagið var stofnað 22. desember árið 1907. Hvöt er elsta aðildarfélagið innan HSK.
Skötuveisla í Þjórsárveri
Að rammíslenskum sið ætlar Ungmennafélagið Vaka að standa fyrir sinni geysivinsælu skötuveislu í Þjórsárveri á Þorláksmessu og hefst borðhald kl 12:00. Boðið verður upp á gæða skötu ásamt meðlæti og einnig verður saltfiskur á boðstólnum fyrir þá sem það kjósa. Kaffi og konfekt eftir matinn. Verðinu er stillt í hóf eins og alltaf: Fullorðnir 2000 kr, börn 6 – 12 ára 500 kr og frítt fyrir yngri.
Heimsókn á aðfangadag
Fyrir hádegi á aðfangadag verða góðir gestir á ferð á félagssvæði Samhygðar. Þessir kúnstugu sveinar heimsækja krakka í sveitinni og afhenda þeim jafnvel gjafir. Þeir sem vilja koma sendingu á sveinana síkátu skulu koma henni til Stefáns í Gerðum fyrir aðfangadag.
Fréttst hefur…
…að nokkrir sveinar leggi leið sína um gamla Villingarholtshreppinn á aðfangadagsmorgun eins og þeir hafa gert síðustu ár. Þeir áætla að vera komnir í Súluholthverfið um 10 leitið og þræða síðan sveitabæina þaðan og enda á Urriðafossveginum. Stefna þeir að því að vera búnir að heimsækja alla krakkana fyrir kl. 12.30. Hallfríður í Lyngholti hefur tekið að sér enn eitt árið að vera umboðsmaður sveinanna en hún tekur við sendingum fyrir þá auk þess sem hægt verður að koma þeim til skila í Skötuveislunni á Þorláksmessu.
Áramótamót frjálsíþróttadeildar Selfoss
Áramótamót frjálsíþróttadeildar Selfoss verður haldið í Vallaskóla fimmtudaginn 27. desember kl. 16:00 – 19:00. Keppnisgreinar: langstökk, þrístökk og hástökk án/atr., hástökk m/atr. og kúluvarp. Keppt er í karla og kvenna flokkum.
Jólarisapottur í getraunum
Breytingarnar sem gerðar voru á útborgunarhlutfallinu í getraunum hafa heppnast afar vel og salan aukist á þessu ári sem nú er að líða. Af því tilefni verður boðið upp á Jólapott laugardaginn 22. desember næstkomandi. Ákveðið hefur verið að tvöfalda vinninga fyrir 13 rétta. Það þýðir að vinningsupphæðin verður að minnsta kosti 230 milljónir. Rétt er að minna á að flest aðildarfélaga HSK eru með getraunanúmer og eru sunnlendingar hvattir til að taka þátt í skemmtilegum leik og styðja um leið sitt félag. Sjá nánar www.1x2.is.
HSK mótið í júdó í flokki fullorðinna
HSK mótið í júdó í flokki fullorðinna verður haldið í í júdósalnum í Sandvíkurskóla föstudaginn 28. desember kl. 17:00.
HSK-mót karla í handbolta
HSK-mót karla í handbolta fer fram laugardaginn 29. desember í Vallaskóla.
Leiktími er 20 mín. Hvert lið útvegar einn dómara.
Leikjaplan er eftirfarandi:
kl. 12:00 Árborg - Gnúpverjar
kl. 12:25 Baldur - Selfoss
kl. 12:50 Gnúpverjar - Baldur
kl. 13:15 Selfoss - Árborg
kl. 13.40 Gnúpverjar - Selfoss
kl. 14:05 Árborg - Baldur
kl. 14:25 Verðlaunafhending
Jólamót HSK í taekwondo:
42 keppendur frá fjórum félögum tóku þátt
Héraðsmót HSK í taekwondo var haldið á Selfossi sl.sunnudag. Keppendur á mótinu voru 42 talsins. 36 frá Selfossi, þrír frá Heklu, tveir frá Stokkseyri og einn frá Þorlákshöfn.
Keppt var í poomsae (formi ), MUYE (sem er taekwondo sýning t.d. brot á spýtum og múrsteinum) Sparring (bardaga) og þrautabraut.
Mikil stemning skapaðist sérstaklega í þrautarbrautarkeppninni þar sem mikið var sprellað og keppni hörð.
HSK mótið hefurvaxið ár frá ári og eru að verða fastur punktur í starfsemi deildarinnar á Selfossi og ríkir mikil eftirvænting fyrir þetta mót ár hvert.
Stjórn og þjálfarar Taekwondodeildar Ungmennafélags Selfoss þakka öllum keppendum drengilega keppni og öllum gestum og velunnurum fyrir komuna á þetta skemmtilega mót.
Verðlaunahafar:
HSk mót sparring
Börn 1
1. Óli Þorbjörn Guðbjartsson UMFS
2. Magnús Ari Melsteð Hlinason UMFS
3. Nökkvi Már Hjaltason UMFS
3. Þór Davíðsson UMFS
Börn 2
1. Einar Ingi Ingvarsson UMFS
2. Óttar Pétursson UMFS
3. Sofia Haraldsdóttir Hekla
3. Sólmundur Ingi Símonarson UMFS
Börn 3
1. Björn Jóel Björgvinsson UMFS
2. Gunnar Hans Júlíusson UMFS
Börn 4
1. Heiðar Óli Guðmundsson Hekla
2. Sigurður Gísli Christensen Þór
Börn 5
1. Sindri Bjarnfriður Víðisson UMFS
2. Bjarni Snær Gunnarssson UMFS
Börn 6
1. Halldór Gunnar Þorsteinsson UMFS
2. Gillý Ósk Gunnarsdóttir UMFS
3. Daníel Örn Þorsteinsson UMFS
Börn 7
1. Gísli Rúna Gíslason Stokkseyri
2. Freyr Hreinsson Hekla
Minior
1. Dagný María Pétursdóttir UMFS
2. Nikulás Torfason Stokkseyri
3. Birgitta Tommýsdóttir Skille UMFS
Senior Konur
1. Sigriður Eva Guðmundsdóttir UMFS
2. Kristín (Einherja keppti sem gestur)
Senior karlar
1. Daníel Jens Pétursson UMFS
2. Sigurður Óli (Þór Akureyri keppti sem gestur)
3. Birgir Viðar Svansson UMFS
Senior karlar 2
1. Daníel Jens Pétursson UMFS
2. Marek Krawczyński UMFS
3. Víðir Björgvinsson UMFS
HSKmót Poomsae
Börn 1
1. Þór Davíðsson UMFS
2. Óttar Pétursson UMFS
3. Nökkvi Már Hjaltason UMFS
3. Jóhanna Sigríður Gísladóttir UMFS
Börn 2
1. Björn Jóel Björgvinsson UMFS
2. Gunnar Hans Júlíusson UMFS
3. Óli Þorbjörn Guðbjartsson UMFS
3. Einar Ingi Ingvarsson UMFS
Minior 1
1. Gillý Ósk Gunnarsdóttir UMFS
2. Freyr Hreinsson Hekla
3. Heiðar Óli Guðmundsson Hekla
Minior 2
1. Bjarni Snær Gunnarssson UMFS
2. Birgitta Tommýsdóttir Skille UMFS
Senior
1. Hekla Þöll Stefánsdóttir UMFS
2. Daníel Jens Pétursson UMFS
3. Ísak Máni Stefánsson UMFS
MUYE
1. Daníel Jens Pétursson UMFS
2. Hópur Selfoss 2 UMFS
3. Hópur Selfoss 1 UMFS
Þrautabraut
Börn
1. Björn Jóel Björgvinsson 17,03 sek. UMFS
2. Sindri Bjarnfriður Víðisson 17,30 sek. UMFS
3. Einar Ingi Ingvarsson 17,75 sek. UMFS
Minior
1. Bjarni Snær Gunnarssson 17,66 sek. UMFS
2. Nikulás Torfason 17,75 sek. Stokkseyri
3. Gillý Ósk Gunnarsdóttir 17,92 sek. UMFS
Senior
1. Daníel Jens Pétursson 14,94 sek. UMFS
2. Marek Krawczyński 16,22 sek. UMFS
3. Daniel Dąbrowski 16,25 sek. UMFS
Héraðsmót HSK í blaki kvenna:
Sjö lið leika í 1. deild í vetur
Fyrri hluti héraðsmóts HSK í nýstofnaðri 1. deild í blaki kvenna fór fram á Hvolsvelli mánudaginn 26. nóvember síðastliðinn.
Sjö lið mynda deildina og er keppt í einni umferð í tveimur hlutum, en seinni hlutinn fer fram á nýju ári. Í fyrstu deildina voru eftirfarandi lið skipuð byggt á þátttöku í Íslandsmóti BLÍ og Hraðmóti HSK fyrr í haust: Dímon-Hekla, Hamar 1, Hrunakonur 1, Hrunakonur 2, Hvöt 1, UMFL 1 og UMFL 2. Mótinu var stillt upp líkt og hjá körlunum eða þannig að sterkustu leikirnir færu líklega fram í seinni hlutanum. Var þetta byggt á árangri liðanna í fyrsta móti Íslandsmótsins í haust – og svo er bara að sjá hversu sannspár formaður blaknefndar verður...
Leikirnir voru fremur tíðindalitlir, sem er nokkuð ótrúlegt en þau lið sem öttu kappi eru ekki vön því að gefast svo auðveldlega upp og iðulega hafa leikirnir endað í oddi. Nú bar hins vegar svo við að allir leikirnir unnust 2-0 þó svo að oft hafi reyndar verið mjótt á mununum. Úrslitin úr einstökum leikjum er hægt að sjá hér að neðan sem og stigastöðu liðanna eftir þennan fyrri hluta. Liðin hafa öll leikið 3 leiki nema Hamar 1, Hrunakonur 1 og Hvöt 1 sem hafa einn leik að auki.
Gunnhildur Hinriksdóttir
KONUR 1. deild 2012-13 Dímon-Hekla Hamar 1 Hrunakonur 1 Hrunakonur 2 UMFL 1 UMFL 2 Hvöt 1 Samantekt hrinur og stig STIG
Dímon-Hekla Hrinur 0 2 2 0 2 0 4 Unnar hrinur 6
Stig 1 19 25 25 21 25 8 2 Tapaðar hrinur
Stig 2 16 25 25 21 25 6 135 Skoruð stig 2,000 Hrinuhlutfall
Stig 3 106 Fengu á sig 1,274 Stigahlutfall
Hamar 1 2 0 Hrinur 0 2 0 2 2 0 4 Unnar hrinur 6
25 19 Stig 1 24 25 23 25 25 16 4 Tapaðar hrinur
25 16 Stig 2 20 25 19 25 25 18 186 Skoruð stig 1,000 Hrinuhlutfall
0 0 Stig 3 169 Fengu á sig 1,101 Stigahlutfall
Hrunakonur 1 0 0 2 0 Hrinur 2 0 2 0 2 0 8 Unnar hrinur 12
0 0 25 24 Stig 1 25 17 25 20 25 12 0 Tapaðar hrinur
0 0 25 20 Stig 2 25 23 25 12 25 11 200 Skoruð stig #DIV/0! Hrinuhlutfall
0 0 0 0 Stig 3 139 Fengu á sig 1,439 Stigahlutfall
Hrunakonur 2 0 0 2 0 0 2 Hrinur 2 0 4 Unnar hrinur 6
0 0 25 23 17 25 Stig 1 25 20 2 Tapaðar hrinur
0 0 25 19 23 25 Stig 2 25 19 140 Skoruð stig 0,000 Hrinuhlutfall
0 0 0 0 0 0 Stig 3 131 Fengu á sig 1,069 Stigahlutfall
UMFL 1 0 0 0 0 0 0 0 2 Hrinur 2 0 2 0 4 Unnar hrinur 6
0 0 0 0 0 0 20 25 Stig 1 25 9 25 11 2 Tapaðar hrinur
0 0 0 0 0 0 19 25 Stig 2 25 8 25 15 139 Skoruð stig 2,000 Hrinuhlutfall
0 0 0 0 0 0 0 0 Stig 3 93 Fengu á sig 1,495 Stigahlutfall
UMFL 2 0 2 0 0 0 2 0 0 0 2 Hrinur 0 Unnar hrinur 0
21 25 0 0 20 25 0 0 9 25 Stig 1 6 Tapaðar hrinur
21 25 0 0 12 25 0 0 8 25 Stig 2 91 Skoruð stig 0,000 Hrinuhlutfall
0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 Stig 3 150 Fengu á sig 0,607 Stigahlutfall
Hvöt 1 0 2 0 2 0 2 0 0 0 2 0 0 Hrinur 0 Unnar hrinur 0
8 25 16 25 12 25 0 0 11 25 0 0 Stig 1 8 Tapaðar hrinur
6 25 18 25 11 25 0 0 15 25 0 0 Stig 2 97 Skoruð stig 0,000 Hrinuhlutfall
0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 Stig 3 200 Fengu á sig 0,485 Stigahlutfall
Fréttapunktar:
Kostir og gallar getuskiptingar í íþróttum
Fimmtudaginn 13. desember verður hádegisfundur í E-sal íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og hefst hann kl.12:10. Þar munu Vanda Sigurgeirsdóttir lektor við Íþrótta,- tómstunda- og þroskaþjálfadeild HÍ og knattspyrnuþjálfari og Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ og þjálfari A-landsliðs kvenna ræða um kosti og galla getuskiptingar í íþróttum. Miklar umræður hafa skapast um þetta málefni á undanförnum vikum og eru skoðanir mjög skiptar. Fyrirkomulag fundarins mun verða þannig að hvort um sig verður með 15 mínútna framsögu en svo mun fundargestum gefið tækifæri til að spyrja úr sal. Skráning fer fram á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. en þátttaka er ókeypis og öllum heimil.
Rangæingamót í frjálsum íþróttum
Föstudaginn 14. des milli klukkan 15.00 og 17.00 verður haldið Rangæingamót í frjálsum íþróttum fyrir krakka 10 ára og yngri í íþróttahúsinu á Hellu. Mótið verður fyrir krakka í 1-5 bekk. Keppt verður í eftirfarandi greinum: 1-2 bekkur: 30m hlaup, langstökk og skutlukast.3-4 bekkur: 30m hlaup, langstökk, skutlukast og hástökk. 5. bekkur: 30m hlaup, langstökk, hástökk og kúluvarp. Allir krakkar fá verðlaunapening. Foreldrar, sem hafa tíma til að koma og fylgjast með, eru hvattir til að mæta og jafnvel aðstoða við framkvæmd mótsins. Nánari upplýsingar gefur Guðmundur í síma 868-1188.
Knattspyrnufélagið Ægir 25 ára
Knattspyrnufélagið Ægir verður 25 ára á laugardag, en félagið var stofnað 15. desember árið 1987.
Samæfing í frjálum
Fyrsta samæfing vetrarins fyrir yngri hópinn í frjálsum hefur verið ákveðinn. Hún verður í Iðu á Selfossi laugardaginn 15. desember n.k. kl. 11:00 – 13:00.
Jólarisapottur í getraunum
Breytingarnar sem gerðar voru á útborgunarhlutfallinu í getraunum hafa heppnast afar vel og salan aukist á þessu ári sem nú er að líða. Af því tilefni verður boðið upp á Jólapott laugardaginn 22. desember næstkomandi.
Ákveðið hefur verið að tvöfalda vinninga fyrir 13 rétta. Það þýðir að vinningsupphæðin verður að minnsta kosti 230 milljónir.
Ef hinsvegar það verður risapottur frá næstkomandi laugardegi þannig að ekki verði greitt út fyrir 10 rétta eða enginn með 13 rétta, þá tvöföldum við samt upphæðina og þá má búast við að vinningsupphæðin geti farið í 350 milljónir fyrir 13 rétta sem verður met upphæð.
Ef einn einstaklingur verður með 13 rétta laugardaginn 22. desember þá fær hann ekki bara 180 milljónir tryggðar, heldur tvöföldum við líka þá upphæð þannig að hann fær 360 milljónir króna fyrir að vera einn með 13 rétta (20 m SEK).
Nú er um að gera fyrir sölumenn félaganna að láta sitt fólk vita og safna í seðil – helst vinningsseðil - fyrir jólin.
Héraðsmót í borðtennis:
Dímonarkeppendur sigursælir líkt og undanfarin ár
Hið árlega héraðsmót HSK í borðtennis var haldið á Hvolsvelli 9. nóvember sl. Að þessu sinni mættu keppendur frá fimm aðildarfélögum sambandsins til leiks.
Líkt og undanfarin ár voru keppendur Dímonar sigursælir og vann féalgið stigakeppni félaga með yfirburðum.
Hér að neðan má sjá verðlaunahafa á mótinu, en heildarúrslit eru á www.hsk.is.
Verðlaunahafar:
Tátur 11 ára og yngri
1. Fanndís Hjálmarsdóttir Dímon
2. Selma Friðriksdóttir Dímon
3 - 4 Kristjana Laufey Adolfsdóttir Dímon
3 - 4 Freyja Margrét Vilhjálmsdóttir Skeið
Hnokkar 11 ára og yngri
1. Matthías Jónsson Dímon
2. Jakob Hansen Dímon
3 - 4 Ásgrímur Jónasson Garpi
3 - 4 Stefán Bjarki Smárason Dímon
Stelpur 12 - 13 ára
1. Rósa María Bjarnadóttir Dímon
2. Sigríður Lára Jónasdóttir Skeið
3 - 4 Aníta Hrund Vilhjálmsdóttir Skeið
3 - 4 Karen Dís Guðmarsdóttir Hekla
Strákar 12 - 13 ára
1. Smári Valur Guðmarsson Garpi
2. Daði Freyr Hermannsson Hekla
3 - 4 Stefán Orri Gíslason Hekla
3 - 4 Benedikt Óskar Benediktsson Dímon
Stelpur 14 - 15 ára
1. Auður Erla Gunnlaugsdóttir Dímon
2. Hólmfiður María Þórarinsdóttir Dímon
3 - 4 Sigríður Þorvarðardóttir Hekla
3 - 4 Ragnheiður Elín Gunnarsdóttir Dímon
Strákar 14 - 15 ára
1. Elvar Kristinn Benediktsson Garpi
2. Magnús Hilmar Viktorsson Dímon
3 - 4 Jónas Steingrímsson Garpi
3 - 4 Daníel Freyr Steinarsson Garpi
Strákar 16 - 17 ára
1. Sigurður Borgar Ólafsson Dímon
2. Lukasz Bednarek Dímon
Konur 18 - 39 ára
1. Bergrún Linda Björgvinsdóttir Dímon
2. Ólafía Bjarnheiður Ásbjörnsd Dímon
Karlar 18 - 39 ára
1. Reynir Björgvinsson Dímon
2. Vilhjálmur Vilhjálmsson Skeið
3. Viktor Bjarmi Þorsteinsson Dímon
Konur 40 ára og eldri
1. Hrafnhildur Sigurðardóttir Dímon
2. Arna Þöll Hjartardóttir Dímon
3. Ásta Laufey Sigurðardóttir Dímon
Karlar 40 ára og eldri
1. Helgi Jens Hlíðdal Dímon
2. Ólafur Elí Magnússon Dímon
3. Bjarni Daníelsson Dímon
Stigakeppni félaga:
1. Íþr.fél. Dímon 142
2. Íþr.fél. Garpur 22,5
3. Umf. Hekla 21,5
4. Umf. Skeiðamanna 13,5
5. Umf. Eyfellingur 0
Héraðsmót HSK í blaki karla, fyrri umferð:
Hrunamenn unnu alla sína leiki
Fyrri hluti héraðsmóts HSK í blaki karla fór fram á Hvolsvelli á mánudag 19. nóvember sl. Upphaflega voru 8 lið skráð en sökum manneklu varð Garpur að draga sig út úr mótinu. Það voru því vaskir sveinar í Dímon, Hamri, Hrunamönnum, Samhygð, Selfoss, UMFL 1 og UMFL 2 sem mættu til leiks. Vegna þessa spila öll liðin í einum riðli í tveimur hlutum, Garpur fær að koma og taka þátt í seinni hlutanum.
Leikirnir voru settir upp m.t.t. þess að geyma stærstu leikina, t.d. milli suðurlandsrisanna tveggja, Hamars og Hrunamanna, þar til í síðari hlutanum. Mótið rúllaði nokkuð létt og unnust öruggir sigrar í öllum leikjum nema milli Dímon og UMFL 1 en þar má segja að Dímon hafi stolið sigrinum af UMFL 1. UMFL 1 leiddi allar hrinur en liðsmenn Dímon voru þrautseigari í lok hrinanna og unnu seinni tvær hrinurnar 25-24 og 15-14 og þar með leikinn 2-1.
Gunnhildur Hinriksdóttir
Úrslit leikja og stigastöðu að loknum fyrri hlutanum má sjá hér að neðan:
KARLAR 2012-13 Dímon UMFL1 Hruna-menn Selfoss Samhygð UMFL2 Hamar Hrinur og stig STIG
Dímon Hrinur 2 1 0 2 0 2 0 2 2 Unnar hrinur 2
Stig 1 15 25 16 25 13 25 16 25 7 Tap hrinur
Stig 2 25 24 18 25 13 25 10 25 141 Skoruð stig 0,286 Hrinuhlutfall
Stig 3 15 14 213 Fengu á sig 0,662 Stigahlutfall
UMFL1 1 2 Hrinur 0 2 2 0 0 2 3 Unnar hrinur 4
25 15 Stig 1 17 25 25 20 20 25 6 Tap hrinur
24 25 Stig 2 21 25 25 15 19 25 190 Skoruð stig 0,500 Hrinuhlutfall
14 15 Stig 3 190 Fengu á sig 1,000 Stigahlutfall
Hruna-menn 2 0 2 0 Hrinur 2 0 2 0 8 Unnar hrinur 12
25 16 25 17 Stig 1 25 18 25 8 0 Tap hrinur
25 18 25 21 Stig 2 25 16 25 8 200 Skoruð stig #DIV/0! Hrinuhlutfall
0 0 0 0 Stig 3 122 Fengu á sig 1,639 Stigahlutfall
Selfoss 0 0 0 2 0 2 Hrinur 0 2 0 Unnar hrinur 0
0 0 20 25 18 25 Stig 1 14 25 6 Tap hrinur
0 0 15 25 16 25 Stig 2 20 25 103 Skoruð stig 0,000 Hrinuhlutfall
0 0 0 0 0 0 Stig 3 150 Fengu á sig 0,687 Stigahlutfall
Samhygð 2 0 0 0 0 0 2 0 Hrinur 2 0 6 Unnar hrinur 9
25 13 0 0 0 0 25 14 Stig 1 25 12 0 Tap hrinur
25 13 0 0 0 0 25 20 Stig 2 25 14 150 Skoruð stig #DIV/0! Hrinuhlutfall
0 0 0 0 0 0 0 0 Stig 3 86 Fengu á sig 1,744 Stigahlutfall
UMFL2
0 0 0 0 0 2 0 0 0 2 Hrinur 0 2 0 Unnar hrinur 0
0 0 0 0 8 25 0 0 12 25 Stig 1 11 25 6 Tap hrinur
0 0 0 0 8 25 0 0 14 25 Stig 2 11 25 64 Skoruð stig 0,000 Hrinuhlutfall
0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 Stig 3 150 Fengu á sig 0,427 Stigahlutfall
Hamar 2 0 2 0 0 0 0 0 0 0 2 0 Hrinur 6 Unnar hrinur 9
25 16 25 20 0 0 0 0 0 0 25 11 Stig 1 0 Tap hrinur
25 10 25 19 0 0 0 0 0 0 25 11 Stig 2 150 Skoruð stig #DIV/0! Hrinuhlutfall
0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 Stig 3 87 Fengu á sig 1,724 Stigahlutfall
Ráðstefnan Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2012
Ráðstefnan Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2012 fer fram þann 30. nóvember 2012 í MVS v/ Stakkahlíð í stofu H 207.
Að ráðstefnunni standa Tómstunda- og félagsmálafræðibraut MVS Háskóla Íslands, Æskulýðsráð, Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri og Ráðgjafanefnd um æskulýðsrannsóknir.
Aðrir samstarfsaðilar eru: Félag fagfólks í frítímaþjónustu FFF og
Rannsóknarstofa í Bernsku- og æskulýðsfræðum BÆR.
Aðgangur er ókeypis en þátttakendum er bent á að skrá sig í póstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Ráðstefnustjóri: Jakob F Þorsteinsson
Tími: Erindi: Flytjandi:
10:00 -10:10 Setning Eva Einarsdóttir formaður ÍTR
10:10- 10:30 Hvert stefna yfirvöld í æskulýðsstarfi ? Óskar Dýrmundur Ólafsson formaður Æskulýðsráðs
10:30- 10:50 Eiginleikar og gildismat starfsmanna í æskulýðsstarfi. Vanda Sigurgeirsdóttir lektor
10:50 11:10 Tómstundafræði á „tilbúnum“ krossgötum Jakob F Þorsteinsson M.A.
11:10-11:30 Þarf „æskulýðsfulltrúa“ á öll „elliheimili“ ? Árni Guðmundsson M.Ed.
11:30-11:50 Rafrænn heimur: frábær eða hræðilegur? Björg Magnúsdóttir M.A.
11:50 -12:30 Matarhlé
12:30-12:50 Stofnun Frístundamiðstöðva ÍTR og þróun þeirra Atli Steinn Árnason forstöðumaður
12:50-13:10 Kynferðisofbeldi í íþróttum – Siðareglur og fræðsla Hafdís Inga Hinriksdóttir B.A.
13:10-13:30 Tölfræði Frístundakortsins – þátttaka 6 – 18 ára í skipulögðu frístundastarfi í Reykjavík. Gísli Árni Eggertsson M.Ph.
13:30-13:50 Árangursríkar forvarnir gegn tóbaksreykingum Geir Bjarnason M.Ed.
13:50- 14:10 Tengsl fæðuvals og hreysti við líkamssamsetningu 16 ára framhaldsskólanema Dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir dósent
14:10-14:30 Unglingar, áfengi og vímuefni. Niðurstöður úr ESPAD Dr. Ársæll Arnarsson prófessor
14:30 -14:50 Kaffipása
Tími: Málstofa 1/erindi Flytjandi: Málstofa 2/erindi Flytjandi:
14:50: 15:05 Fræðsluganga UMFÍ Sigurður Guðmundsson landsfulltrúi Forvarnir í skólastarfi Vigfús Hallgrímsson – þróunarfulltrúi grunnskóla
15:05-15:20 Hindranir ungra innflytjenda í skipulögðu tómstundastarfi í Reykjavík Gyða Kristjánsdóttir B.A. Áfengisauglýsingar - boðflennur í tilveru barna og ungmenna Árni Guðmundsson M.Ed.
15:20-15:35 Dagur barnsins Tinna Heimisdóttir B.A:
Þorvaldur Guðjónsson B.A. Líf eftir áfengis- og vímuefnameðferð. Eyrún Haraldsdóttir B.A.
15:35- 15:50 Hvernig er hægt að skapa faglegt frístundastarf á frístundaheimilum Reykjavíkur? Sigríður María Jónsdóttir B.A. Unglingsstúlkur og reiðitengdar tilfinningar. Ester Ösp Valdimarsdóttir meistaranemi
15:50-16:05 Ævintýri enn gerast : um tengsl, ávinning og sögu ævintýranáms í tómstundastarfi unglinga. Þórleif Guðjónsdóttir B.A. „Ljós í myrkri“ : gildi tómstunda til aukinna lífsgæða fyrir konur sem hafa greinst með brjóstakrabbamein Jóhanna Björt Guðbrandsdóttir M.Ed.
Fréttapunktar:
Héraðsmót í judó
Hérðasmót HSK í júdó verður haldið nú desember. Þann 7. desember keppa 6-10 ára milli kl. 16 – 18 og 11 - 15 ára milli kl.18 - 20. Þann 10. desember verður héraðsmót fyrir 15 ára og eldri frá kl. 18 - 21. Skáningar eiga að berast til þjálfara judódeildar Umf. Selfoss á teimur dögum fyrir mót. Nánari upplýsingar veitar Bergur í síma 862 0858.
Unglingamót HSK í badminton
Unglingamót HSK í badminton verður haldið laugardaginn 1. desember í Íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn. Mótið hefst stundvíslega kl. 10. Keppt verður í flokkum U11 – U19. Aðeins verður keppt í einliðaleik og eru mótsgjöldin 1000 kr.
Stefnt er að því að leika mótið í riðlum og áskilur mótstjórn sér rétt til að slá saman flokkum, ef þátttaka er lítil í einstökum flokkum. U11 ára leika tvær lotur upp í 11 og ekki verður um oddalotu að ræða, heldur verður stigafjöldi látinn ráða.
Skráningu lýkur fimmtudaginn 29. nóvember. Skráningu skal skila á staðalformi BSÍ á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Skráningarformið má finna á heimasíðu BSÍ, www.badminton.is.
Rangæingamót í skák 16 ára og yngri
Föstudaginn 30. nóvember Kl:16.00 verður Rangæingamót í skák fyrir 16 ára og yngri haldið í Grunnskólanum á Hellu. Tefldar verða 5 umferðir eftir monrad-kerfi og verður umhugsunartíminn 10 mín á keppanda í hverri skák. Ungmennafélagið Hekla sér um keppnishaldið og verður öllum keppendum boðið uppá léttar veitingar að keppni lokinni.
Verðlaun verða veitt í þremur flokkum: 9 ára og yngri (1-4 bekkur), 10-12 ára (5-7 bekkur) og 13-16 ára (8-10 bekkur) . Skáning í mótið fer fram á staðnum eða hjá Guðmundi í síma 868-1188 eða með tölvupósti á netfangið: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. (Tilgreina þarf, nafn, aldur, bekk og félag).
HSK mót í taekwondo
HSK mót í taekwondo verður haldið í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi sunnudaginn 9. Desember 2012. Beltapróf verður á sama stað deginum áður.
Verkefnasjóður HSK:
Um 2,3 milljónum úthlutað til 35 verkefna
Stjórn Verkefnasjóðs HSK, sem skipuð er formanni, gjaldkera og ritara HSK kom saman til fundar á dögunum og úthlutaði úr sjóðnum fyrir árið 2012. Alls bárust 51 umsókn til sjóðsins í ár. Áætlaðar tekjur Verkefnasjóðs í ár eru um 2.800.000.
Við úthlutun tók sjóðsstjórn m.a. mið af eftirtöldum forsendum:
Val í landslið 15.000 kr. á einstakling
Menntun þjálfara, erlendis 15.000 kr. á einstakling
Menntun þjálfara og dómara, innanlands 5.000 kr. á einstakling að hámarki
Keppnisferðir erlendis, og unglingalandsmótsþátttaka 2.500 kr. á einstakling að hámarki
Nýjungar í starfi/sérstök verkefni 30.000 kr. á félag/nefnd/ráð
Námskeiðahald, 50 % af útlögðum kostnaði, en þó að hámarki: 30.000 kr. á félag/nefnd/ráð
Þessar viðmiðunartölur eru svipaðar og í fyrra, nema hvað greiðsla vegna landsliðsþátttöku og menntun þjálfara erlendis er hækkuð úr 10.000 kr. á einstakling í 15.000 kr.
Úthlutun sjóðsins árið 2012 er sem hér segir:
Félag/deild/ráð Verkefni Úthlutun
Frjálsíþróttaráð HSK Kynning á frjálsíþróttum í grunnskólum á Suðurlandi 30.000
Golfklúbbur Kiðjabergs Útgáfa á söguriti á 20 ára afmæli klúbbsins 30.000
Golfklúbbur Selfoss Allir í golf 30.000
Körfuknattl.f. Fsu Landsliðsferðir á Evrópu- og Norðurlandamót 20.000
Íþróttafélagið Hamar 20 ára afmælisrit Hamars 30.000
Íþróttafélagið Hamar, körfuknattleiksd. Norðurlandamót yngri landsliða 40.000
Íþróttafélagið Hamar, körfuknattleiksd. Menntun þjálfara 30.000
Íþróttafélagið Suðri Nýungar í starfi félagsins 30.000
Knattspyrnufélag Rangæinga Markmannsnámskeið 30.000
Knattspyrnufélag Rangæinga Menntun þjálfara 20.000
Knattspyrnufélag Rangæinga Keppnisferð til Svíþjóðar 47.500
Sögu- og minjanefnd HSK Sýningin sunnlendingar á Ólympíuleikum 30.000
Umf. Biskupstungna Saga Umf. Biskupstungna, bókaútgáfa 30.000
Umf. Eyrarbakka Uppbygging körfuboltadeildar 30.000
Umf. Framtíðin Jákvæðninámskeið, lykillinn að þinni leið 30.000
Umf. Laugdæla, glímunefnd Landsliðsmaður í glímu 22.500
Umf. Laugdæla, blakdeild Dómaranámskeið í blaki 30.000
Umf. Laugdæla Norræn ungmennavika á Grænlandi 25.000
Umf. Selfoss, fimleikadeild Dómaranámskeið í hópfimleikum 18.000
Umf. Selfoss, fimleikadeild Þjálfaranámskeið 1A 20.000
Umf. Selfoss, fimleikadeild Evrópumeistaramót í hópfimleikum 210.000
Umf. Selfoss, frjálsíþróttadeild Fjóla Signý Hannesdóttir frjálsíþróttakona 25.000
Umf. Selfoss, frjálsíþróttadeild Keppnisferð á heimsleika barna- og unglinga í Gautaborg 42.500
Umf. Selfoss, frjálsíþróttadeild Kynning á Kids Athletic í grunnskólum Árborgar 30.000
Umf. Selfoss, handknattleiksdeild 4. flokkur kvenna Partille-cup 2012 47.500
Umf. Selfoss, handknattleiksdeild 4. flokkur karla Partille-cup 2013 70.000
Umf. Selfoss, handknattleiksdeild Val í landslið og þátttaka í landsliðsverkefnum erlendis 140.000
Umf. Selfoss, handknattleiksdeild Námskeið - forvarnir, markmiðssetning o.fl. 30.000
Umf. Selfoss, handknattleiksdeild Stækkuð umgjörð vegna meistaraflokks kvenna 30.000
Umf. Selfoss, knattspyrnudeild Menntun þjálfara 50.000
Umf. Selfoss, knattspyrnudeild Menntun þjálfara erlendis 15.000
Umf. Selfoss, knattspyrnudeild Val í landslið KSÍ 90.000
Umf. Selfoss, knattspyrnudeild Menntun dómara í knattspyrnu 30.000
Umf. Selfoss, knattspyrnud.minjaverndarsjóður Úrklippusafn um knattspyrnu á Selfossi 30.000
Unglingalandsmótsnefnd HSK Vegna þátttöku á Unglingalandsmóti UMFÍ 2012 875.000
Samtals úthlutað 2012 2.288.000
Silfurleikar ÍR í frjálsum:
Íslandsmet hjá Fannari Yngva Rafnarssyni í þrístökki
HSK og aðildarfélög þess sendu öfluga sveit ungmenna til keppni á Silfurleika ÍR sem haldnir voru laugardaginn 17. nóvember s.l. Keppendur HSK sem töldu alls 46 manns voru á aldrinum 4 – 17 ára. 10 ára og yngri, kepptu í þrautabraut í gömlu Laugardalshöllinni. Brautin samanstóð af átta þrautum grunnhreyfinga í frjálsum sem endaði á því að allir fengu þátttökuverðlaunapening en hin eldri kepptu til verðlauna í hefðbundnum greinum í frjálsíþróttahöllinni. Heildarfjöldi keppenda á Silfurleikunum í ár var 666 sem er metþátttaka og kom frá 22 félögum.
Góður árangur náðist á þessu fyrsta móti vetrarins. HSK krakkarnir sópuðu til sín verðlaunum og bætingarnar voru ófáar. Hæst bar Íslandsmet Fannars Yngva Rafnarssonar Þór í Þorlákshöfn í þrístökki í flokki 14 ára pilta er hann stökk 12,64m. Fór vel á því þar sem Silfurleikarnir eru haldnir til heiðurs Íslandsmethafanum í þrístökki karla Vilhjálmi Einarssyni sem vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956. HSK krakkarnir unnu alls 20 verðlaun: 7 gull, 10 silfur og 3 brons og settu að auki 5 HSK met .
Eva Lind Elíasdóttir Þór stóð sig vel. Hún sigraði í kúluvarpi í 16-17ára flokki með öðru besta kasti á ferlinum varpaði 13,35m., en þar varð Thelma Björk Einarsdóttir Selfossi í öðru sæti með 11,88m. sem er stutt frá hennar besta. Eva varð svo önnur í 60m. grindahlaupi á 9,29sek. sem er jöfnun á HSK meti hennar og þriðja í 60m. á bætingu 8,26 sek. úr 8,28 sek. Þorsteinn Björn Einarsson sem er að æfa á Selfossi en keppir fyrir USVS bætti sig í kúlu í 16-17ára flokki með kasti upp á 12,49m. og tók silfur.
Auk Íslandsmetsins í þrístökki hjá Fannari Yngva í 14 ára flokki, sem er að sjálfsögðu HSK met einnig, varð hann annar í bæði 60 og 200m. hlaupum á frábærum tímum: 7,84sek. og 25,77sek. sem er nálægt HSK metum í þessum vegalengdum. Fannar varð svo þriðji í hástökki með bætingu um tvo cm. hæðin 1,67m. Í sama flokki sigraði Sveinbjörn Jóhannesson Laugdælum í kúluvarpi varpaði 13,46m. og bætti HSK met Sigþórs Helgasonar Selfossi um 48cm. Teitur Örn Einarsson Selfossi tók silfrið eftir hörkukeppni með 13,37m.
Halla María Magnúsdóttir Selfossi vann kúluvarp í 13ára flokki á nýju glæsilegu HSK meti, kastaði 13,14m. sem er bæting innanhúss um 37 sm. Harpa Svansdóttir Selfossi varð önnur þrístökki í sama flokki með 9,94m. og þriðja í 60m. hlaupi á bætingu 8,89 sek. úr 8,95 sek. Hjá 13 ára piltunum stóð Styrmir Dan Steinunnarson Þór sig frábærlega að vanda. Hann keppti í sex greinum og bætti sig í þeim öllum og setti að auki tvö HSK met. Hann sigraði í 60m. grindahlaupi og bætti HSK metið, tíminn 9,84 sek. Gamla met Sigþórs Helgasonar Selfossi var 9,86 sek. Hann vann einnig hástökk og jafnaði HSK metið þar, stökk 1,70m., í kúluvarpinu tók hann silfur með 13,09m. kasti sem og í þrístökki með 10,82m. Að endingu nældi hann sér í brons í 60m. hlaupi á góðri bætingu, tíminn 8,29sek. og varð svo fjórði í 200m. hlaupi.
Pétur Már Sigurðsson Selfossi átti frábært mót í 12 ára flokki pilta. Hann bætti sig um 12cm. í hástökki, stökk 1,57m. og sigraði með yfirburðum, var þrjá cm. frá HSK metinu. Þá varð hann annar í kúlu með meters bætingu 9,09m. Auk þess bætti Pétur sig um tæpan einn og hálfan metra í þrístökki þar sem hann varð fjórði og kom svo sjötti í mark í 60m. hlaupi á 9,25sek. og góðri bætingu.
Fleiri voru að keppa frá HSK sem allir stóðu fyrir sínu og bætti sína persónulegu árangra þó ekki næðu þeir í verðlaun. Þess má að lokum til gamans geta að HSK átti yngsta keppanda silfurleikanna, Kristján Kára Ólafsson Laugdælum sem fæddur er 2008 og því 4 ára.
Ólafur Guðmundsson verkefnisstjóri HSK í frjálsum.
Fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála
Mánudaginn 26. nóvember kl. 17.30 – 19.00 í sal Hvolsskóla, Hvolsvelli. Ætlar Æskulýðsvettvangurinn, samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á íslandi og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, að standa fyrir fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála. Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur, kemur til með að flytja fyrirlestur byggðan á nýútkominni bók sinni, Ekki meir, sem er leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn.
Tilgangurinn með þessu fræðsluerindi er að vekja athygli á þessum málaflokki, opna betur augu fólks fyrir því að vera vakandi og ávallt á verði gagnvart einelti og annarri óæskilegri hegðun.
Á erindinu verður Aðgerðaráætlun Æskulýðsvettvangsins gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun dreift sem og eineltisplakati og nýútkomnum siðareglum Æskulýðsvettvangsins sem fjalla annarsvegar um rekstur og ábyrgð og hinsvegar um samskipti.
Léttar kaffiveitingar eru í boði.
Ráðstefna um stöðu íþrótta í íslensku samfélagi
Ráðstefna Háskóla Íslands og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands um stöðu íþrótta í íslensku samfélagi verður haldin miðvikudaginn 28. nóvember nk. klukkan kl. 13.00-16.30. Ráðstefnan verður í Hátíðarsal Háskóla Íslands og er þátttaka öllum að kostnaðarlausu.
Markmið með þessu samstarfsverkefni ÍSÍ og HÍ er að efla tengsl og samstarf mismunandi fræðasviða Háskóla Íslands og Íþróttahreyfingarinnar. Tilgangurinn er að vekja athygli á hvernig margþætti vísinda- kennslu og nýsköpunarstarf Háskóli Íslands getur styrkt starfsemi og stöðu íþrótta í íslensku samfélagi.
Á ráðstefnunni verður tekið á mörgum málefni sem eru oft í umræðunni og margir hafa skoðanir á; Á að getuskipta börnum í íþróttum? Skiptir félagslegt umhverfi máli í íþróttum? Eru íþróttir menning? Er afrekshugsun þjálfuð í nægilegum mæli? Svör við þessum spurningum og mörgum öðrum verður leitast við að svara miðvikudaginn 28. nóvember. Ráðstefna sem þeir sem áhuga hafa á málefninu ættu ekki að missa af.
Þrátt fyrir að þátttakan sé öllum að kostnaðarlausu þá verður að skrá sig á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir hádegi mánudaginn 26. nóvember.
Dagskrá:
13.00 Setning
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
Almennt íþróttastarf
Á að banna getuskiptingu barna í hópíþróttum?
Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við Íþrótta,- tómstunda- og þroskaþjálfadeild HÍ
Félagslegt umhverfi árangurs í íþróttum: Ný sóknarfæri?
Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur
Sjúk sál í slöppum líkama - Nokkrar menningarsögulegar hugrenningar um úrkynjun og íþróttir
Dr. Benedikt Hjartarson, aðjúnkt í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við HÍ
Kaffihlé 14.15-14.30
14:30 Afreksíþróttir
Afreksíþróttir hagkvæmar!
Dr. Daði Kristófersson, dósent við Hagfræðideild HÍ
Svo bregðast krossbönd
Dr. Kristín Briem, dósent. námsbraut í sjúkraþjálfun við Heilbrigðisvísindasvið, HÍ
"Ég ætla að breyta íþróttinni minni" - þjálfun afrekshugarfars -
Sigurður Ragnar Eyjólfsson M.Sc. í íþróttasálfræði og A-landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu
Ytra umhverfi íþróttahreyfingarinnar
Ólafur Rafnsson forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands
Ráðstefnustjórar eru Erlingur Jóhannsson prófessor við HÍ, Ólafur Eiríksson sundmaður og hæstaréttarlögmaður, Sunna Gestdóttir, frjálsar íþróttir og doktorsnemi við HÍ og Hjördís Guðmundsdóttir verkefnisstjóri hjá ÍSÍ.
Strákalið Selfoss bikarmeistarar:
Strákalið fimleikadeildar Umf. Selfoss unnu Gerplustráka
Meistaraflokkur kvenna
Bestu hópfimleikalið landsins kepptu í íþróttahúsi Vallaskóla á bikarmót FSÍ sem fram fór á Selfossi um síðustu helgi. Mótshaldari var fimleikadeild Ungmennafélags Selfoss. Keppt var í meistaraflokki karla og kvenna, 1.flokki karla og 1. og 2. flokki kvenna. Það kom fáum á óvart að meistaraflokkur Gerplu urðu bikarmeistarar 2012. Í öðru sæti var lið Stjörnunnar í Garðabæ og meistaraflokkur Selfoss hafnaði í 3. Selfossstelpurnar stóðu sig með prýði og náðu öðru sæti í dansi og á dýnu.
1.og 2. flokkur kvenna
Stelpurnar í Selfoss 2, sem kepptu í 1. flokki kvenna, lentu í 3ja sæti á eftir Stjörnunni, en Gerplustelpur urðu bikarmeistarar. Það var mjög gaman að fylgjast með Selfoss 4, sem kepptu í 2. flokki, og unnu til silfurverðlauna. Þær voru efstar á trampólíni en dansinn dró þær niður. Hópurinn er á feikna siglingu og verður gaman að fylgjast með þeim næstu árin. Bikarinn í 2. flokki fór einnig í Kópavoginn.
Bikarinn á Selfoss
Aðeins eitt karlalið mætti til keppni í meistaraflokki og því urðu Gerplustrákar bikarmeistarar 2012. Í 1. flokki karla var reglulega skemmtilegt að fylgjast með karlaliði Selfoss sem keppti gegn karlaliði Gerplu. Eftir spennandi keppni stóðu Selfoss uppi sem sigurvegar og bikarmeistarar 2012 í 1. flokki. Góð frammistaða í dansi og trampólíni tryggði strákunum sigur, en 0,10 stig skildu liðin að. Það hefur verið gaman að fylgjast með strákunum undanfarin ár. Þeir hafa verið í stöðugri sókn, fyrst í blönduðum flokki og nú voru þeir í fyrsta sinn að keppa sem karlalið.
Jólasýningin 2012
Undirbúningur jólasýningar fimleikadeildarinnar er nú í fullum gangi. Undirbúningsnefnd, skipuð þjálfurum deildarinnar, er þessa dagana að leggja lokhönd á undirbúning sýningarinnar. Þema í ár verður Galdrakarlinn í Oz og eins og undanfarin ár munu allir iðkendur deildarinnar taka þátt í sýningunni. Galdarakarlinn í Oz kemur á Selfoss sama dag og jólasveinarinar úr Ingólfsfjalli, laugardaginn 8. desember nk. Fyrsta sýning verður kl. 9.30. Í anddyri skólans verður hægt að kaupa kakó , vöfflur og annað góðgæti. Nánar auglýst síðar.
Aðsend frétt frá fimleikadeild Umf. Selfoss
Umf. Eyrarbakka sendi lið á badmintonmót
Ungmennafélagið sendi í fyrsta skipti í sögu félagsins lið á Unglingamóti Badmintonfélags Hafnarfjarðar laugard. 17. nóvember.. Liðsmenn áttu góðar stundir saman og eiga öll hrós skilið fyrir góða frammistöðu. Liðið spilaði í B.flokki U-15 og endaði 4. sæti. Á myndinni eru ( aftari röð séð frá vinstri ) Alfreð Logi Birgirsson, Grímur Ívarsson, Ásgeir Nemesio Halldórsson, Þórdís Ívarsdóttir, (fremri röð séð frá vinstri) Ingimundur Bjarni Roy Simonarson, Rúnar Orri Elíasson og James Hrafn Bichard. Ívar Örn Gíslason, þjálfari, liggur á gólfinu.
Aðsend frétt frá Umf. Eyrarbakka
Fréttapunktar:
Fyrri umferð héraðsmóts kvenna í blaki
10 lið eru skráð til leiks í héraðsmót kvenna í blaki. Vegna fjölda þátttökuliða mun mótið verða spilað í tveimur deildum í vetur. Skipan í deildir er gerð m.t.t. þátttöku liða á HSK-svæðinu í Íslandsmóti BLÍ í ár sem og hraðmóti HSK.
Fyrri umferðin hjá 2. deild verður haldin á LAUGARVATNI í dag, miðvikudag og opnar húsið kl. 17:30. Liðin í 2. Deild eru Garpur, Hamar 2, Hrunakonur 3, Hrunakonur 4, Hvöt 2. Fyrri umferðin í 1. deild verður haldin á HVOLSVELLI mánudaginn 26. nóvember n.k. og opnar húsið kl 17:00. Liðin í 1. deild eru Dímon-Hekla, Hamar 1, Hrunakonur 1, Hrunakonur 2, Hvöt 1, UMFL 1 og UMFL 2.
Skólamót HSK í krakkafrjálsum í dag
Skólamót HSK í krakkafrjálsum fyrir 1.-4. bekk verður haldið á Laugarvatni í dag, fimmtudag. Þátttökulið eiga að mæta kl. 9:30 og keppni hefst kl. 9:50. Upplýsingar um keppnisgreinar má sjá á www.hsk.is.
Unglingamót HSK í sundi á sunnudag
Unglingamót HSK í sundi fer fram í Sundhöll Selfoss á sunnudag. Upphitun hefst kl. 9:15 og mót kl. 10:00. Sjá nánar á www.hsk.is.
20 ára afmælisveisla Garps á sunnudag
Á því herrans ári 2012 fagnar Íþróttafélagið Garpur tvítugsafmæli sínu. Að því tilefni mun félagið standa fyrir afmælishátíð í íþróttasalnum á Laugalandi, sunnudaginn 25. nóvember næstkomandi. Allir velunnarar félagsins velkomnir, sjá nánar á fésbókarsíðu Garps.
Héraðsmót HSK í skák
Héraðsmót HSK í sveitakeppni í skák verður haldið í Selinu á Selfossi miðvikudaginn 28. nóvember nk. og hefst kl. 19:30. Tefldar verði atskákir og skipa fjórir einstaklingar hverja sveit, óháð aldri eða kyni. Skráningar berist á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 26. nóvember nk.
HSK-mót í handbolta
Auglýst er eftir þátttöku í HSK-mótum í handbolta 2012. Keppt verður í eftirfarandi flokkum ef næg þátttaka fæst: Mfl. karla (hraðmót), 3. fl. karla og kvenna, 4. fl. karla og kvenna og 5. fl. karla og kvenna. Þátttökutilkynningum skal skila til skrifstofu HSK eða í netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 28. nóvember 2012. Handknattleiksnefnd HSK.
Ráðstefna um stöðu íþrótta í íslensku samfélagi
Ráðstefna Háskóla Íslands og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands um stöðu íþrótta í íslensku samfélagi verður haldin miðvikudaginn 28. nóvember nk. klukkan kl. 13.00-16.30. Ráðstefnan verður í Hátíðarsal Háskóla Íslands og er þátttaka öllum að kostnaðarlausu. Sjá nánar www.isi.is.
Fyrirlestraröð Framfara
Fyrirlestur um ástæður ofþjálfunar, einkenni og meðferð. Hættir fólki af ákveðinni persónugerð við ofþjálfun meira en öðrum? Hvaða áhrif hafa næring, svefn og hvíld? Stund og staður: Fimmtudaginn 22. nóvember 2012 kl.19:30 – 21:00. Íþróttamiðstöðin Laugardal, salur D. Fyrirlesarar: Þórarinn Sveinsson, Dr. í lífeðlisfræði, dósent við HÍ. Fríða Rún Þórðardóttir, MSc í næringarfræði, íþróttanæringarfræðingur. Hafrún Kristjánsdóttir, Ma. í sálfræði, dósent við HR. Aðgangseyrir er 1000 kr og rennur óskiptur til Framfara, hollvinafélags millivegalengda- og langhlaupara.
Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands
Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands verður haldinn í fræðslusetri KSÍ á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 6. desember n.k. klukkan 20:00.
Að loknum Landsmótsfundi HSK:
Bestu þakkir fyrir sjálfboðaliðsvinnuna
Að baki er velheppnað 15. Unglingalandsmót UMFÍ. Héraðssambandið Skarphéðinn í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg sá um framkvæmd mótsins. Stjórn HSK setti sér það markmið að gera mótið sem glæsilegast og að okkar mati tókst það með dyggilegri aðstoð ykkar sem störfuðu með okkur við undirbúning og framkvæmd mótsins.
Gott og öflugt net sjálfboðaliða er lykilforsenda fyrir velgengni íþróttastarfs.
Íþróttahreyfingin er vettvangur öflugrar sjálfboðaþjónustu á mörgum sviðum. Sjálfboðaliðarnir gera íþróttafélögin að lifandi grasrótarhreyfingu sem er vettvangur tækifæra til að leggja sitt af mörkum í samfélagsþjónustu og fá um leið tækifæri til vaxtar og reynslu sem nýtist í viðfangsefnum daglegs lífs.
Störf sjálfboðaliðanna er nauðsynlegur þáttur í íþrótta- og æskulýðsstarfi, þau efla samstarf, umhyggju og kærleika og fela í sér margbreytta og lærdómsríka reynslu af félagsstörfum að ógleymdri ánægjunni að því að skapa verðmætt framlag til samfélagsins.
HSK óskaði eftir liðsinni sjálfboðaliða við undirbúning og framkvæmd mótsins og svöruðu fjölmargir kallinu og mættu til starfa með okkur og lögðu á sig mikla og óeigingjarna vinnu til þess að mótið mætti heppnast sem best.
Alls greiddu 1952 þátttakendur þátttökugjald og reikna má með að um 15.000 gestir hafi sótt mótið. Tekjur vegna mótsins voru 20,8 m.kr. og kostnaður um 12,7 m.kr. og hagnaður því um 8 miljónir króna. Samkvæmt ákvörðun héraðsþings skiptist hagnaðurinn á eftirfarandi hátt:
20% fóru til HSK, 10% fóru í Verkefnasjóð HSK og 70% til aðildarfélaga í réttu hlutfalli við vinnustundir. Veitingasalan skilaði um 1,8 m.kr. hagnaði og því runnu um 9,9 m.kr. til íþróttahreyfingarinnar.
Sjálfboðaliðar unnu 7241 klukkustund við mótshaldið, og 855 stundir við veitingasölu og skiluðu þannig samtals 8096 stundum í vinnu fyrir félögin sín. Auk þessa skiluðu starfsmenn sveitarfélagsins mjög góðu starfi.
Fyrir hönd stjórnar HSK og framkvæmdanefndarinnar færum við öllum sem lögðu lóð á vogarskálarnar og gerðu okkur kleyft að halda 15. Unglingalandsmót UMFÍ með miklum myndarbrag, bestu þakkir fyrir kröftugt og öflugt framlag við undirbúning og framkvæmd mótsins og væntum góðs samstarfs við ykkur við skipulagningu og framkæmd 27. Landsmóts UMFÍ á Selfossi 2013. Sérstakar þakkir fá sjálboðliðar, samstarfsaðilar, Sveitarfélagið Árborg og starfsmenn þess fyrir frábæra samvinnu og aðstoð. Íbúum Selfoss færum við góðar þakkir fyrir veitta aðstoð og hjálp. Gestum mótsins þökkum við þátttökuna og þá sérstaklega okkar frábæru unglingum sem voru svo sannarlega sigurvegarar mótsins.
Guðríður Aadnegard, formaður HSK og Þórir Haraldsson formaður framkvæmdanefndar ULM.
Fjórðungsglíma Suðurlands 2012:
Marín Laufey vann kvennaflokkin þriða árið í röð
Fjórðungsglíma Suðurlands fór fram að Laugalandi í Holtum fimmtudagskvöldið 8. nóvember. Keppt var í flokkum 10 ára og yngri, 11 ára, 12 ára, 13 ára, 14 ára, 15 ára og 16 ára og eldri hjá báðum kynjum.
Þar sem keppendur voru færri en tveir voru flokkar sameinaðir eftir þörfum. Keppendur voru 47 frá fjórum félögum á sambandssvæði HSK. Stefán Geirsson Þjótanda sigraði í karlaflokki og Marín Laufey Davíðsdóttir Þjótanda varð hlutskörpust í kvennaflokki þriðja árið í röð. Keppt var einum velli á dúk í fullorðinsflokkum en tveimur dýnuvöllum í barna- og unglingaflokkum.
Verðlaunahafar:
Karlar 16 ára og eldri Félag
1. Stefán Geirsson Þjótanda
2. Hafsteinn Kristinsson Garpi
3. Smári Þorsteinsson Bisk.
Konur 16 ára og eldri
1. Marín Laufey Davíðsdóttir Þjótanda
2. Brynhildur Hrönn Sigurjónsd. Bisk.
3. Guðrún Inga Helgadóttir. Þjótanda
Meyjar 14 – 15 ára
1. Guðrún Inga Helgadóttir Þjótanda
2. Hanna Kristín Ólafsdóttir Þjótanda
Sveinar 14 ára
1. Þorgils Kári Sigurðsson Þjótanda
2. Jón Gunnþór Þorsteinsson Þjótanda
3. Guðni Elvar Björnsson Garpi
Stúlkur 13 ára
1. Belinda Margrét Birkisdóttir Dímon
2. Annika Rut Arnarsdóttir Garpi
3. Sif Jónsdóttir Dímon
Piltar 12 - 13 ára
1. Eiður Helgi Benediktsson Garpi
2. Marínó Rafn Pálsson Dímon
3. Sæmundur Friðrik Arnarsson Garpi
Stúlkur 12 ára
1. Jana Lind Ellertsdóttir Garpi
2. Sigríður Magnea Kjartansdóttir Bisk.
3. Laufey Ósk Jónsdóttir Bisk.
Strákar 11 ára
1. Sölvi Svavarsson Bisk.
2.-3. Gestur Jónsson Dímon
2.-3. Sölvi Freyr Jónasson Bisk
Stelpur 11 ára
1. Sigurlín Franziska Arnarsdóttir Garpi
2. Rósa Kristín Jóhannsdóttir Bisk.
3. Dórothea Oddsdóttir Dímon
Strákar 10 ára og yngri
1. Kristján Bjarni Indriðason Dímon
2. Karl Jóhann Einarsson Bisk.
3. Aron Sigurjónsson Dímon
Stelpur 10 ára og yngri
1. Birgitta Saga Jónsdóttir Dímon
2. Arndís Arnardóttir Garpi
Skólamót HSK í krakkafrjálsum
Skólamót HSK í krakkafrjálsum fyrir 1.-4. bekk verður haldið á Laugarvatni fimmtudaginn 22. nóvember n.k. í umsjón íþróttafræðinema við HÍ á Laugarvatni.
Fyrirkomulagið er þannig að hvert lið skal skipað 8 einstaklingum í 1.-4. bekk. Skólar skulu reyna eftir bestu getu að hafa 4 stráka og 4 stelpur í liðunum, eitt af hvoru kyni úr hverjum bekk. Allir taka þátt í öllum greinunum og safna þannig stigum fyrir sitt lið.
Fyrirkomulag 22. nóvember:
9:30 Mæting í Íþróttahúsið á Laugarvatni. Lið fá vesti til aðgreiningar
9:45 Sameiginleg upphitun undir stjórn íþróttafræðinema
9:50 Keppni hefst – 7 greinar (+myndastöð) á 7 stöðvum, 8 mínútur á stöð. Allir keppa í öllum greinum og liðsárangur gildir
10:55 Keppni lýkur
11:00 Úrslit tilkynnt – viðurkenningarskjöl – móti lýkur
Upplýsingar um keppnisgreinar má sjá á www.hsk.is.
Vegna þess hvernig mótið er framkvæmt er aðeins pláss fyrir 14 lið í keppninni. Það fer því eftir þátttöku skólanna hvort t.d. stærri skólar geti sent inn 2-3 lið.
Tilkynna þarf þátttöku á morgun, fimmtudaginn 15. nóvember n.k. Þar má gjarnan koma fram sá fjöldi liða sem óskað er eftir að fái að taka þátt fyrir hönd skólans.
100 ára afmæli Alþjóða Frjálsíþróttasambandsins:
Viðurkenningar afhentar til Skarphéðinsmanna
Í tilefni 100 ára afmælis Alþjóða Frjálsíþróttasambandsins var Frjálsíþróttasambandi Íslands falið að úthluta viðurkenningum til 30 einstaklinga hér á landi fyrir framlag þeirra til íþróttarinnar. Afhending viðurkenninganna fór fram á uppskeruhátíð FRÍ laugardaginn 27. október sl. Síðast fékk FRÍ viðurkenningar af þessu tagi til úthlutunar á 75 ára afmæli IAAF, árið 1987.
Nokkrir sunnlendingar og núverandi eða fyrrverandi forystufólk í frjálsíþróttum í héraði voru á meðal þeirra sem fengu viðurkenningu. Þau sem hlutu sérstakt viðurkenningarskjal IAAF voru Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Helgi S. Haraldsson og Ólafur Guðmundsson.
Þau sem hlutu sérstakan minnispening IAAF af tilefninu voru þau Valgerður Auðunsdóttir, Vésteinn Hafsteinsson, Þórdís Gísladóttir og Þráinn Hafsteinsson.
Við úthlutun var horft til þeirrar fjölbreyttu flóru einstaklinga sem hafa lagt hreyfingunni lið á undanförnum aldarfjórðungi. Við mat var horft til umfangs starfs, árangurs að því marki sem það er raunhæft til samanburðar og fjölbreytileika í störfum. Horft var líka til hefðbundinna þátta eins og búsetu, starfsvettvangs og kynjahlutfalls.
Leitast var við að dreifing viðurkenninganna endurspeglaði þá fjölbreyttu flóru einstaklinga og hjóna sem leggja hönd á plóg og hafa byggt upp þessa hreyfingu og gert hana að því sem hún er.
Fréttapunktar:
Unglingamót HSK í sundi
Unglingamót HSK í sundi fer fram í Sundhöll Selfoss sunnudaginn 25. nóvember. Upphitun hefst kl. 9:15 og mót kl. 10:00. Skráningar skulu berast til skrifstofu HSK á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eigi síðar en um miðnætti á sunnudag. Sjá nánar á www.hsk.is.
Héraðsmót HSK í skák
Héraðsmót HSK í sveitakeppni í skák verður haldið í Selinu á Selfossi miðvikudaginn 28. nóvember nk. og hefst kl. 19:30. Tefldar verði atskákir og skipa fjórir einstaklingar hverja sveit, óháð aldri eða kyni. Skráningar berist á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 26. nóvember nk.
Uppgjör Unglingalandsmótsins kynnt:
Landsmótsfundur HSK á morgun
HSK boðar til landsmótsfundar HSK á morgun, fimmtudag. Fundurinn verður haldinn í Selinu á Selfossi og hefst kl. 20:00.
Á fundinum verður fjárhagsuppgjör Unglingalandsmótsins kynnt og afhent verða fjárframlög til þeirra félaga, deilda og ráða sem komu að undirbúningi og framkvæmd mótsins með vinnuframlagi sjálfboðaliða.
Á fundinum verður einnig rætt um þátttöku HSK á Landsmóti UMFÍ sem haldið verður á Selfosis 4. – 7. júlí á næsta ári. Kynntar verða keppnisgreinar og lagðar línur um þátttöku HSK, en HSK stefnir á sigur í stigakeppni mótsins.
Forráðamenn félaga, nefnda og ráða HSK eru boðaðir á fundinn. Einnig stjórn HSK, landsmótsnefnd HSK, framkvæmdanefnd landsmóta og sérgreinastjórar mótanna.
Ofantaldir eru hvattir til að mæta á fundinn, taka við kærkomnu fjárframlagi vegna hagnaðarhlutdeildar í Unglingalandsmótinu og hafa áhrif á hvernig staðið verður að framkvæmd og þátttöku HSK á komandi landsmóti.
Áhugafólk um landsmótin er velkomið að mæta á fundinn.
Fréttir af haustfundi frjálsíþróttaráðs HSK
Haustfundur frjálsíþróttaráðs HSK var haldinn í Selinu á Selfossi fimmtudaginn 1. nóvember sl.
Mættir voru átta félagar frá sex félögum. Benóný Jónsson formaður ráðsins sagði frá starfssemi ráðsins á árinu. Árið var mjög annasamt, en auk héraðsmóta var MÍ í fjölþrautum haldið á vegum ráðsins og einnig frjálsíþróttakeppnin á vel heppnuðu Unglingalandsmóti um verslunarmannahelgina. Einnig var haldið eitt dómaranámskeið á árinu þar sem nokkrir einstaklingar útskrifuðust með héraðsdómararéttindi og frjálsíþróttaskólinn var haldinn á Selfossi líkt og árið áður. Benóný kom einnig inn á það að vel hefði gengið að manna frjálsíþróttakeppnina á unglingalandsmótinu og almenn ánægja verið með mótið.
Ólafur Guðmundsson verkefnisstjóri tók næst til máls og ræddi um mót sumarsins sem HSK/Selfoss hefði átt þátttakendur á. Hann sagði að allt hefði gengið vel og miklar tölulegar bætingar sem sjást best í því að 100 HSK met voru sett í frjálsum á utanhústímabilinu. Hann sagði að hann væri hlynntur því að hafa öll innanhúsmót HSK nema Héraðsleikanna í Laugardalshöllinni og mælti einnig fyrir því að haldið yrði áfram að bjóða upp á krakkafrjálsar fyrir 8 ára og yngri. Ólafur talaði einnig um breitt fyrirkomulag á Skólahlaupinu en það var haldið í september og framkvæmt af nemendum í íþróttaskólanum. 200 krakkar mættu núna til keppni og það er frábært.
Ólafur ræddi um að frjálsíþróttaskólinn hefði sloppið til peningalega séð þrátt fyrir mikinn matarkostnað. Fjármálin þyrftu þó að vera vissari ef skólinn verður haldinn á sambandssvæðinu á næsta ári.
Á fundinum var rætt um framtíð frjálsíþróttaráðsins. Fram kom tillaga að biðja HSK um að greiða laun verkefnastjóra frjálsíþróttaráðs til þess að hægt sé að halda ráðinu gangandi. Ráðið hefur ekki lengur efni á að hafa verkefnastjóra á sínum snærum en án verkefnastjórans er hætta á að það uppbyggingarstarf sem hefur átt sér stað á síðustu árum koðni niður aftur. Eftirfarandi tillaga var samþykkt: ,,Haustfundur frjálsíþróttaráðs HSK óskar eftir því við stjórn HSK að laun verkefnisstjóra frjálsíþróttaráðs HSK verði greidd úr sjóðum HSK á landsmótsári 2013“
Ályktunin var samþykkt og ákveðið að stjórn frjálsíþróttaráðs myndi leggja hana fyrir stjórn HSK. Rætt var um styrktarlínurnar sem settar voru í gang fyrr á árinu og minnt á að það þyrfti að fara að herja á þær aftur.
Ólafur fór að lokum yfir dagsetningar móta á komandi ári og innanhúsmótin verða sem hér segir: Aldursflokkamót og unglingamót HSK verða 6. janúar, héraðsmót fullorðinna verður 8. og 15. janúar og að héraðsleikarnir verða 3. mars.
Jón M. Ívarsson tók til máls undir liðnum önnur mál og tók til umræðu mál er varðar ráðið og frjálsíþróttastarf á svæðinu. Markús Ívarsson sagði frá fundi sem hann hafði farið á með stjórn Samhygðar, Kristni Þór Kristinssyni og Erlingi Jóhannssyni, þjálfara Kristins. Þar hefði framtíð Kristins á hlaupabrautinni verið rædd og tveggja ára áætlun kynnt. Greinilega mikill metnaður hjá þessum efnilega hlaupara okkar Skarphéðinsmanna.
Lífshlaup framhaldsskólana:
Menntaskólinn að Laugarvatni vann til verðlauna
Verðlaunaafhending í Lífshlaupi framhaldsskólana fór fram föstudaginn 26. Október í íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík. Nemendur og starfslið Menntaskólans að Laugarvatni tóku þátt í verkefninu og stóðu sig frábærlega og unnu til verðlauna.
Það var Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir, úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sem ávarpaði gesti og veiti fulltrúum skólanna sín verðlaun ásamt Kristjáni Þór Magnússyni, sem á sæti í stýrihóp Heilsueflandi framahaldsskóla hjá embætti landlæknis.
Keppt var um að ná sem flestum dögum í hreyfingu og var skólunum skipt upp í þrjá flokka miðað við heildarfjölda nemenda og starfsfólks. Fjölbrautarskóli Suðurnesja, Flensborgarskóli og Menntaskólinn á Laugarvatni voru í fyrsta sæti í sínum flokkum. Í öðru sæti voru Verslunarskóli Íslands, Kvennaskólinn í Reykjavík og Framhaldsskólinn á Húsavík. Í þriðja sæti voru Menntaskólinn á Egilsstöðum, Fjölbrautarskóli Vesturlands og Fjölbrautarskólinn við Ármúla.
Nánari úrslit má fnna á vefsíðu verkefnisins www.lifshlaupid.is/framhaldsskolar. HSK óskar ML til hamingju með árangurinn í keppninni.
Skólamót HSK í krakkafrjálsum
Skólamót HSK í krakkafrjálsum fyrir 1.-4. bekk verður haldið verður á Laugarvatni fimmtudaginn 22. nóvember n.k. í umsjón íþróttafræðinema við HÍ á Laugarvatni.
Fyrirkomulagið er þannig að hvert lið skal skipað 8 einstaklingum í 1.-4. bekk. Skólar skulu reyna eftir bestu getu að hafa 4 stráka og 4 stelpur í liðunum, eitt af hvoru kyni úr hverjum bekk. Allir taka þátt í öllum greinunum og safna þannig stigum fyrir sitt lið.
Fyrirkomulag 22. nóvember:
9:30 Mæting í Íþróttahúsið á Laugarvatni. Lið fá vesti til aðgreiningar
9:45 Sameiginleg upphitun undir stjórn íþróttafræðinema
9:50 Keppni hefst – 7 greinar (+myndastöð) á 7 stöðvum, 8 mínútur á stöð. Allir keppa í öllum greinum og liðsárangur gildir
10:55 Keppni lýkur
11:00 Úrslit tilkynnt – viðurkenningarskjöl – móti lýkur
Upplýsingar um keppnisgreinar má sjá á www.hsk.is.
Vegna þess hvernig mótið er framkvæmt er aðeins pláss fyrir 14 lið í keppninni. Það fer því eftir þátttöku skólanna hvort t.d. stærri skólar geti sent inn 2-3 lið.
Tilkynna þarf þátttöku fyrir fimmtudaginn 15. nóvember n.k. Þar má gjarnan koma fram sá fjöldi liða sem óskað er eftir að fái að taka þátt fyrir hönd skólans.
Æskulýðsnefnd Sleipnis hlýtur viðurkenningu
Æskulýðsnefnd Landssambands hestamannafélaga afhendir æskulýðsbikar LH á hverju ári til þess félags er þykir skara fram úr í æskulýðsmálum, og barna- og unglingastarfinu. Í ár var það hestamannafélagið Sleipnir sem hlaut þessa eftirsóttu viðurkenningu og var þeim afhentur bikarinn á nýliðnu landsþingi hestamanna semhaldið var í Reykjavík á dögunum.
Fréttapunktar:
Fjórðungsglíma Suðurlands á morgun
Fjórðungsglíma Suðurlands verður haldinn að Laugalandi í Holtum á morgun. 8. nóvember og hefst kl. 19:00. Keppt verður í eftirfarandi flokkum hjá báðum kynjum: 10 ára og yngri, 11 ára, 12 ára, 13 ára, 14 ára, 15 ára og í fullorðinsflokkum 16 ára og eldri. Skáningar eiga að berast á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir þriðjudaginn 6. nóvember.
HSK mót í borðtennis á föstudag
HSK mót í borðtennis verður haldið á Hvolsvelli á föstudag, 9. nóvember. Keppni hefst kl. 15:00 í flokkum 15 ára og yngri og keppni hjá 16 ára og eldri hefst kl. 19:00. Skráningar þurfa að berast á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. í síðasta lagi á morgun. Nánari upplýsingar á www.hsk.is.
Ætlar þú að vera í besta liðinu og fremstur á þínu sviði?
Laugardaginn 10. nóvember ætla Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska landsliðsins í fótbolta og Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir, ráðgjafi, þerapisti og yogakennari, að standa fyrir fyrirlestri og opinni umræðu um; *Lars og hans einstöku þjálfunaraðferðir sem sífellt koma á óvart. Hvernig hann velur lið saman og nær fram hæfileikum hvers og eins. Hvað eru mikilvægustu atriðin til umhugsunar við uppbyggingu á liðsheild og sú persónulega nálgun sem hann beitir á liðsmenn sína.**Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir ráðgjafi og þerapisti mun bæta við fróðleik um hvaða eiginleika þarf til að öðlast persónulega velgengni og vera framúrskarandi. Hvað þarf til að draga fram það besta í sjálfum sér og ná lengra. Nánari upplýsingar um Guðbjörgu er hægt að nálgast á heimasíðu hennar www.osk.is Fyrirlesturinn fer fram á Hilton Hótel lLaugardaginn 10. nóvember kl 13:30 -16:30. Verð kr. 6.900, Miðasala fer fram á www.midi.is
Wilson Kipketer með námskeið á Íslandi
Stórhlauparinn Wilson Kipketer er á leiðinni til Íslands og mun halda námskeið í hlaupaþjálfun á Grand Hótel í Reykjavík 18. nóvember n.k. Wilson Kipketer er fæddur í Kenía en gerðist síðar danskur ríkisborgari og keppti fyrir Danmörku sem millivegalengdahlaupari við góðan orðstír.
Heimsmet hans utanhúss í 800m hlaupi (1:41.11mín) stóð í 13 ár en var fyrst slegið nú í sumar af David Rudisha á Ólympíuleikunum í London. Wilson á hins vegar enn heimsmetin innanhúss í 800m og 1000m. Wilson var heimsmeistari þrisvar sinnum í röð árin 1995, 1997 og 1999. Samanlagt náði hann í 10 verðlaunapeninga á stórmótum eins og Ólympíuleikum, Heimsmeistaramótum og Evrópumeistaramótum.
Wilson var kosinn íþróttamaður ársins í karlaflokki í Evrópu árið 1997 og frjálsíþróttamaður ársins í karlaflokki í heiminum árið 1997. Það er því enginn smá kappi sem kemur til landsins innan tíðar til þess að miðla íþróttamönnum, þjálfurum og öðrum áhugamönnum um hlaupaþjálfun af reynslu sinni.
Skráning og nánari upplýsingar á www.vesteinn.com eða hafið samband við Fríðu Rún Þórðardóttur í síma 898-8798 eða í gegnum tölvupóst Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Unglingamót HSK í sundi
Unglingamót HSK í sundi fer fram í Sundhöll Selfoss sunnudaginn 25. nóvember. Upphitun hefst kl. 9:15 og mót kl. 10:00. Skráningar skulu berast til skrifstofu HSK á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eigi síðar en um miðnætti sunnudagskvöldið 18. nóvember nk.
Sjá nánar á www.hsk.is.
Keppnisflokkar:
Hnátur og hnokkar eru 10 ára og yngri (2001 og yngri)
Sveinar og meyjar eru 11-12 ára (1999 - 2000)
Telpur og drengir eru 13-14 ára (1997 -1998)
Keppt verður í eftirfarandi greinum á mótinu:
1.gr. 50m skriðsund Hnáta
2.gr. 50m skriðsund Hnokka
3.gr. 100m skriðsund Telpna
4 gr. 100m skriðsund Drengja
5.gr. 50m bringusund Meyja
6.gr. 50m bringusund Sveina
7.gr. 100m baksund Telpna
8.gr. 100m baksund Drengja
9.gr. 50m skriðsund Meyja
10.gr. 50m skriðsund Sveina
11.gr. 100m flugsund Telpna
12.gr. 100m flugsund Drengja
13.gr. 50m bringusund Hnáta
14.gr. 50m bringusund Hnokka
15.gr. 50m baksund Meyja
16.gr. 50m baksund Sveina
17.gr. 50m baksund Hnáta
18.gr. 50m baksund Hnokka
19.gr. 100m bringusund Telpna
20.gr. 100m bringusund Drengja
21.gr. 50m flugsund Meyja
22.gr. 50m flugsund Sveina
23.gr. 50m flugsund Hnáta
24.gr. 50m flugsund Hnokka
Fjöldi greina og skráningargjöld
Hver keppandi má synda 3 greinar til stiga og verðlauna. Í hnokka- og hnátugreinum fá allir keppendur þáttökuverðlaun. Skráningargjöld eru 300 kr. á hverja grein og verða rukkuð af skrifstofu HSK eftir mót.
Skráningarfrestur
Sérverðlaun og starfsmenn
Bikar er veittur stigahæsta félagi og þeim sundmanni sem bætir sig mest miðað við úrslit síðasta móts.
Hvert félag er vinsamlegast beðið að útvega 3-4 starfsmenn á mótið.
Fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála
Fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála verður haldið 8. nóvember kl. 20.00 – 21.30 hjá Fræðsluneti Suðurlands, Tryggvagötu 25.
Fyrirlesari er Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur og höfundur EKKI MEIR.
EKKI MEIR er leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn.
Efni fræðsluerindisins er: 1. Staðarmenningin, stjórnendur og starfsfólkið
2. Forvarnir gegn einelti
3. Þolandinn/Gerandinn, einkenni og aðstæður þeirra
4. Viðbrögð – úrvinnslan
Á erindunum er Aðgerðaáætlun Æskulýðsvettvangsins gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun dreift sem og eineltis plakati og nýútkomnum Siðareglum Æskulýðsvettvangsins.
Léttar kaffiveitingar í boði.
Piltarnir í meistaraflokki Heklu í körfubolta gerði sér ferð til Reykjavíkur á laugardaginn var til þess að etja kappi við Aftureldingu úr Mosfellsbæ í annari deildinni í körfubolta.
Lesa nánar: Frækinn sigur Heklumanna í höfuðborginni í körfubolta
Sambandsráðsfundur UMFÍ:
Fjármál hreyfingarinnar helsta mál fundarins
Um 50 manns voru á Sambandsráðsfundi Ungmennafélags Íslands sem haldinn var á Kirkjubæjarklaustri um síðustu helgi. Guðríður Aadnegard formaður HSK, Hansína Kristjánsdóttir gjaldkeri og Engilbert Olgeirsson framkvæmdastjóri mættu á fundinn fyrir sambandið.
Mestur tími fundarins fór í umræðu um fjármál hreyfingarinnar, en á fundinum var kynnt skýrsla greiningarnefndar UMFÍ, sem stjórn UMFÍ skipaði í febrúar sl. Nefndin fékk m.a. það verkefni að gefa haldbærar skýringar á því hvers vegna andvirði fyrir sölu á skrifstofu UMFÍ að Fellsmúla 26 í Reykjavík töpuðust að mikli leiti í samskiptum við VBS fjárfestingarbanka.
Óskráð og ógagnsæ stjórnsýsla fyrir UMFÍ er að mati nefndarinnar meginástæðan fyrir því að tugir milljóna töpðuðust í hruninu. Greinigarnefndin leggur til ýmsar leiðir til úrbóta og á fundinum var m.a. samþykkt tillaga um hvernig staðið skuli að meðferð fjármuna UMFÍ og í þeim tillögum eru markaðir ákveðnir verkferlar um uppgjör og áætlanagerð.
Á fundinum var lagður fram ársreikningur UMFÍ fyrir árið 2011. Verulegt tap var á rekstrinum eða rúmar 26 milljónir króna, en áætlun gerði ráð að rekstur ársins yrði á núlli. Munar þar mestu um 11 milljón króna uppgjör vegna Felixkerfisins sem var ekki gert ráð fyrir í áætlun. Heilarskuldir UMFÍ jukust um rúmar 28 milljónir á milli ára og voru lok síðasta árs samtals 212 milljónir. Svo fór að ársreikningum var vísað til næsta sambandsþings til afgreiðslu, þar sem þeir voru ekki samþyktir samhljóða.
Fundurinn var mjög starfsamur og 26 tillögur voru samþykkar á fundinum, m.a. tillaga sem HSK lagði fram um að haldin yrði stefnumótandi ráðstefna um Unglingalandsmót, Landsmót og Landsmót 50+.
Fundurinn samþykkti fjárhagsáætlun fyrir næsta ár, sem gerir ráð fyrir miklum viðsnúningi í rekstri og var áætlunin samþykkt samhljóða. Í henni er gert ráð fyrir um 20 milljón króna tekjuafgangi.
Helga G. Guðjónsdóttir formaður UMFÍ var í lok fundar ánægð með starfsaman fund og hreinskiptar umræður. Sjá má viðtal við Helgu á vef UMFÍ, slóðin er www.umfi.is.
Undirbúningur þátttöku HSK fyrir landsmót hafin:
Viltu koma og taka þátt í undirbúningi?
Landsmót UMFÍ verður haldið á Selfossi dagana 4. – 7. júlí á næsta ári. HSK er mótshaldari og er undurbúningur löngu hafin á vegum framkvæmdanefndar landsmóta.
HSK hefur lagt mikinn metnað í að senda fjölmennt og öflugt lið til leiks, enda hefur HSK unnið stigakeppni mótsins oftar en önnur þátttökulið. Án efa mun keppnislið HSK stefna á sigur í heildarstigakeppni mótsins á okkar heimavelli.
Stjórn HSK skipaði fyrr á þessu ári sjö manna landsmótsnefnd HSK sem hefur yfirumsjón með þátttöku HSK á komandi landsmóti.
Einn nefndarmanna óskaði eftir því á dögunum að hætta í nefndninni vegna anna í starfi og hér með er auglýst eftir áhugasömum einstaklingi sem hefur áhuga og tíma til að taka sæti í nefndinni.
Þeir sem vilja taka þátt í skemmtilegu verkefni sem stendur tímabundið fram yfir landsmótið í júlí á næsta ári eru beðnir að hafa samband við Engilbert Olgeirsson framkvæmdastjóra HSK í síma 899 6514 eða senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 1. nóvember nk.
Bronsleikar ÍR:
Keppendur stóðu sig frábærlega
Bronsleikar ÍR voru haldnir í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík þann 29. September sl. Það voru 170 sprækir krakkar sem spreyttu sig í fjölbreyttum þrautum þar sem leikgleðin var í fyrirrúmi.
Níu keppendur frá Frjálsíþróttadeild Selfoss kepptu í flokki 8 ára og yngri og stóðu þau sig frábærlega. Í flokki 9-10 ára voru 2 keppendur frá Selfossi og kepptu þeir með ÍR-ingum og stóðu sig mjög vel í skemmtilegri keppni. Að lokum var öllum keppendum afhentur viðurkenningarpeningur. Frábært mót þar sem allir keppendur njóta sömu tækifæra og allir eru sigurvegarar.
Landsliðshópur í frjálsíþróttum:
Sex keppendur frá HSK valdir
Frjálsíþróttasamband Íslands hefur valið nýjan Landsliðshóp í frjálsíþróttum að loknu utanhússtímabili. Hópurinn verður svo endurskoðaður vorið 2013 að loknu innanhússtímabili 2013.
Við í HSK eigum sex fulltrúa í nývöldum hópi eins og síðastliðið vor. Sömu fulltrúar eru í hópnum frá sambandinu, nema að Kristinn Þór kemur inn í hópinn, enda ósigraður í sinni grein 800m hlaupi í og Vigdís Guðjónsdóttir dettur út.
Þeir sem valdir voru:
Haraldur Einarsson Vöku í sprett- og grindahlaupum (spretthlaup).
Fjóla Signý Hannesdóttir Selfoss í Sprett og grindahlaupum (grindahlaup).
Hreinn Heiðar Jóhannsson Laugdælum í stökkgreinum (hástökk).
Bjarni Már Ólafsson Vöku í stökkgreinum (þrístökk).
Kristinn Þór Kristinsson Samhygð í millivegalenda- og langhlaupum (800 og 1500m).
Agnes Erlingsdóttir Laugdælum í millivegalenda- og langhlaupum (800 og 1500m).
HSK óskar þessum einstaklingum til hamingju með valið. Mörg spennandi verkefni bíða, bæði landsliðsverkefni árið 2013 og mót innanlands, þar sem nema má sérstaklega Landsmótið á Selfossi í byrjun júli næsta sumar.
Skráningarfrestur að renna út:
Haustfjarnám 2012 í þjálfaramenntun 2. stigs
Haustfjarnám 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 22. október nk. og tekur það fimm vikur.
Um er að ræða samtals 40 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 18.000.- Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Það er sjálfstætt framhald náms á 1. stigi þjálfaramenntunar ÍSÍ eða sambærilegs náms, s.s. náms í ÍÞF 1024.
Skráning er á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið á morgun, fimmtudag. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer. Rétt til þátttöku hafa allir sem lokið hafa 1. stigi alm. hluta eða sambærilegu námi.
Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Fréttapunktar:
Skráningar í héraðsmót karla og kvenna í blaki
Blaknefnd HSK óskar eftir að skráningum í héraðsmót karla og kvenna 2012-2013. Stefnan er að halda fyrri umferðina í vikunni 19.-23. nóvember nk. Skránigar eiga að berast á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 25. október nk.
Landsþing Landssambands hestamannafélaga
58. Landsþing LH verður haldið á Reykjavík Natura um helgina. 44 tillögur liggja fyrir þinginu, sem sjá má vef LH
Knattspyrnudeild UMF.Selfoss hefur gert þriggja ára þjálfarasamning við Gunnar Guðmundsson, þjálfari U-17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu. Gunnar mun sjá taka við þjálfarastarfinu af Loga Ólafssyni.
Lesa nánar: Gunnar byrjar að þjálfa Selfossliðið 1. nóvember
Fyrsta grunnskólamót HSK í frjálsíþróttum:
200 nemendur mættu á Laugarvatn
Síðastliðinn fimmtudag, 27. september, fór Grunnskólamót HSK í frjálsíþróttum fram á Laugarvatni. Mótið var utanhússmót þar sem keppendur reyndu við sig í þremur greinum til þess að safna stigum fyrir sinn skóla. Segja má að þátttakan hafi verið frábær, en yfir 200 nemendur mættu á svæðið!
Það voru nemendur á fyrsta ári við íþróttafræði HÍ á Laugarvatni sem buðu til mótsins í tengslum við námskeið sem þau sitja. Var þetta hugsað sem ákveðin tilraun til þess að endurvekja í einhverri mynd Skólahlaup HSK sem því miður hefur ekki verið haldið í nokkur ár.
Ákveðið var að breyta til og í þessari fyrstu útgáfu voru öllum grunnskólanemendum í 5.-10. bekk á HSK-svæðinu, sem áhuga höfðu, boðin þátttaka. Mótið var nokkurs konar fjölþraut þar sem nemendur urðu að taka þátt í þeim þremur greinum sem boðið var upp á en það var gert m.a. til að stuðla að því að börn og unglingar stundi sem fjölbreyttastar æfingar sem lengst en fari ekki að „sérhæfa“ sig í einhverri einni grein á unga aldri.
Veðurguðirnir voru okkur ekki sérstaklega hliðhollir þennan fimmtudag og blés og rigndi á keppendur og starfsmenn. Greinarnar þrjár sem keppt var í voru 60m spretthlaup, langstökk og spjótkast og kepptu 5. og 6. bekkur saman, 7. og 8. bekkur og loks 9. og 10. bekkur í stelpu- og strákaflokkum. Flestir voru keppendur í yngsta flokknum en fæstir í þeim elsta og voru eftirtaldir skólar með: Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri, Flúðaskóli, Grunnskóli Bláskógabyggðar, Grunnskóli Þorlákshafnar, Kerhólsskóli, Sunnulækjarskóli og Vallaskóli.
Fyrir lá að dagurinn gæti orðið strembinn, tímaseðillinn var mjög stífur, en stefnan var að klára mótið á þremur klukkustundum. Eftir örlítið hikst í upphafi gekk þó allt að óskum, krakkarnir stóðu sig frábærlega og voru tilbúin og klár í slaginn þegar röðin kom að þeim og stuðluðu þannig að því að allt gekk eins og það átti að gera. Stigakeppni milli skóla var þannig að þrír fyrstu frá hverjum skóla í yngstu tveimur flokkunum töldu til stiga og tveir fyrstu í elsta flokknum.
Þegar upp var staðið og stigin talin voru það tveir skólar sem stóðu upp úr. Stelpurnar í Vallaskóli tóku sig til og unnu alla flokkana í stelpnaflokki og eru því Grunnskólameistarar HSK 2012 í 5.-6. bekk, 7.-8. bekk og 9.-10. bekk í flokki stelpna. Sömu sögu má svo segja um Grunnskóla Þorlákshafnar en þar unnu strákarnir alla flokkana í strákaflokki og eru þar með Grunnskólameistarar HSK í frjálsíþróttum árið 2012 í 5.-6. bekk, 7.-8. bekk og 9.-10. bekk í flokki stráka. Frábær árangur hjá þeim og til hamingju.
Þó svo að árangrar einstakra keppenda verði ekki tíundaður hér náðist ágætur árangur hjá mörgum þrátt fyrir að veðrið væri helst til kalst og blautt og ekki vænlegt til stórafreka. Sigurvegara og árangur einstakra keppenda má svo finna á heimasíðu HSK www.hsk.is.
Margir voru eflaust að stíga sín fyrstu skref í frjálsíþróttakeppni og vonumst við til að framtíðar hlauparar, stökkvarar og kastarar hafi átt góðan dag í bleytunni þennan kalda haustdag á Laugarvatni.
Með kærri þökk fyrir þátttökuna
Gunnhildur Hinriksdóttir
Umsjónarmaður, Íþróttir barna og unglinga I
Íþróttafræðasetri HÍ á Laugarvatni
Lífshlaupið í framhaldsskólum hófst í gær
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, í samstarfi við embætti landlæknis og í tengslum við verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóla, stendur fyrir Lífshlaupi fyrir framhaldsskóla sem hófst í gær og stendur til 16. október næstkomandi.
Sérstakur vefur hefur verið útbúin fyrir þetta verkefni og hefur öllum framhaldsskólum verið boðið að taka þátt og skrá sig til leiks. Hægt er að skrá nemendur og starfsfólk í verkefnið í gegnum heimasíðu Lífshlaupsins, www.lifshlaupid.is.
Lífshlaupið er kjörið verkefni til að hvetja nemendur og starfsfólk til að auka sína hreyfingu í frístundum og við val á ferðamáta. Vonast er til að framhaldsskólarnir á sambandssvæðinu taki þátt.
Líf og fjör í MOVE WEEK á Íslandi
Líf og fjör verður í MOVE WEEK um allt land sem hófst sl. mánudag og stendur til 7. október. Ungmennafélag Íslands tekur þátt í stórri herferð á vegum ISCA (International Sport and Culture Association) sem eru samtök um almenningsíþróttir og menningu hinna ýmsu landa í heiminum.
Árið í ár verður tekið sem undirbúningur fyrir þau sem eftir koma og markmiðið er að árið 2020 verið 100 milljónir fleiri Evrópubúa farnir að hreyfa sig reglulega. Markmiðið fyrir árið í ár er að fá sem flesta Evrópubúa til að hreyfa sig fyrstu vikuna í október og hvetja til heilbrigðs lífsstíls.
Á HSK svæðinu mun Dímon bjóða upp á Boot Camp æfingu og allar aðrar æfingar á Hvolsvelli á vegum félagsins eru opnar. Knattspyrnufélag Rangæinga er með allar knattspyrnuæfingar opnar fyrir alla aldurshópa. Þá munu Landsfulltrúar UMFÍ vera með Leikja-hádegi á Klambratúni föstudaginn 5. október.
Sýnum Evrópu hvað í okkur býr hreyfum okkur fyrstu vikuna í október, sem og alla aðra daga, og skráum okkur til leiks inni á heimasíðu verkefnisins http://www.nowwemove.com/en/. Nánari upplýsingar á www.umfi.is og í síma 568 2929.
Haustfjarnám í þjálfaramenntun 1. stigs ÍSÍ
Haustfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 8. október nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 25.000.- Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Það jafngildir áfanganum ÍÞF 1024 sem kenndur er í framhaldsskólum landsins og fæst metið sem slíkt. Skráning er á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir fimmtudaginn 4. október. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer. Rétt til þátttöku hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.
Metþátttaka var í sumarfjarnámi ÍSÍ 2012 þar sem um 40 þjálfarar kláruðu 1. stig alm. hluta.
Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Nýtt rit komið út:
Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi
Mennta- og menningamálaráðuneytið og Æskulýðsráð hefur gefið út ritið „Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga“.
Leitað var til dr. Ragnhildar Helgadóttur, prófessors við Háskólann í Reykjavík, um að vinna álitsgerð um ábyrgð í félags- og tómstundastarfi. Skoðaði hún hvernig háttað væri ábyrgð stjórnenda, umsjónarmanna, starfsmanna, kennara, leiðbeinenda, sjálfboðaliða, launaðra starfsmanna og annarra sem starfa með börnum og ungmennum í skipulögðu félags- og tómstundastarfi.
Nálgast má ritið á rafrænu formi á vef ráðuneytisins, á eftirfarandi slóð: http://www.menntamalaraduneyti.is/utgafuskra/
Fréttapunktar:
Hraðmót HSK í blaki kvenna
Hraðmót HSK í blaki kvenna verður haldið á Hvolsvelli mánudaginn 15. október nk. og hefst kl. 17:30. Húsið opnar kl. 17:00. Skráningar eiga að berast á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 10. október.
Zumba í Þykkvabænum
Ungmennafélagið Framtíðin ætlar að vera með zumba-dansnámskeið fimm þriðjudaga í október í íþróttahúsinu í Þykkvabæ. Námskeiðið err frá 17:30- 18:30. Námskeiðið er fyrir allan aldur og mun það kost 1000 kr. á mann.
Vestmannaeyjaferð Umf. Framtíðarinnar
Umf. Framtíðin stendur fyrir Vestmannaeyjaferð laugardaginn 6. október. Farið verður með rútu og með Herjólfi um morguninn og heim seinnipartinn. Árni Johnsen ætlar að fara með þátttakendur um eyjuna. Farið verður á söfnin og í sund. Framtíðin mun bjóða upp á nesti. Enn er hægt að skrá sig hjá Hjördísi í síma 691-5474 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
KSÍ markmannsþjálfaragráða
Í vetur mun Knattspyrnusamband Íslands, í samstarfi við Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA), bjóða upp á veigamikið og metnaðarfullt markmannsþjálfaranámskeið. Markmiðið með KSÍ markmannsþjálfaragráðu er að bæta við sérþekkingu markmannsþjálfara hér á landi og KSÍ hefur verið í góðri samvinnu við UEFA hvað það varðar.
Packie Bonner mun hafa yfirumsjón með námskeiðinu fyrsta árið en Bonner hefur komið víða við á sínum ferli, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann lék á sínum tíma 80 landsleiki fyrir Írland, þar af í þremur lokakeppnum, EM 1988, HM 1990 og HM 1994. Þá lék hann 642 leiki með Celtic, er leikjahæsti markmaður í sögu félagsins og fimmti leikjahæsti leikmaður í sögu Celtic. Eftir að leikmannsferlinum lauk hefur Bonner m.a. starfað sem Technical Director hjá írska knattspyrnusambandinu, verið markmannsþjálfari írska landsliðsins og setið í Jira Panel hjá UEFA, en sú nefnd hefur yfirumsjón með þjálfaramenntun í Evrópu.
Námskeiðið hefst í nóvember 2012 og því lýkur í maí 2013
o 16.-19. nóvember 2012, fjögurra daga námskeið
o Nóvember/desember 2012, fjarnám - verkefnavinna og vinna í félögum
o 14.-16. desember 2012, þriggja daga námskeið
o Desember 2012/janúar 2013, fjarnám - verkefnavinna og vinna í félögum
o 25.-27. janúar 2013, þriggja daga námskeið
o Janúar/febrúar 2013, fjarnám - verkefnavinna og vinna í félögum
o 15.-17. mars 2013, þriggja daga námskeið
o Mars/apríl 2013, fjarnám - verkefnavinna og vinna í félögum
o Apríl 2013, lokapróf
- Námskeiðið verður um 105 kennslustundir
- 13 laus sæti eru á námskeiðinu
Umsækjendur verða að hafa lokið UEFA B þjálfaragráðu EÐA vera í því ferli að ljúka UEFA B þjálfaragráðunni. Eins þurfa umsækjendur að hafa reynslu sem markmenn/leikmenn eða markmannsþjálfarar og þeir þurfa að vera í vinnu hjá félagi meðan á námskeiðinu stendur. Þjálfarar sem eru ekki byrjaðir á UEFA B geta byrjað á þeirri gráðu í haust með því að skrá sig á námskeið hjá okkur sem hefjast í byrjun október
Þjálfarar sem útskrifast með markmannsþjálfaragráðuna fá réttindi til að kalla sig "KSÍ markmannsþjálfarar"
Í framtíðinni eru góðar líkur á að UEFA bjóði upp á markmannsþjálfunargráðu og þá mun KSÍ halda stutt uppfærslunámskeið til að KSÍ markmannsþjálfarar fái "UEFA markmannsþjálfaragráðu" sem verður þá tekin gild í öllum löndum Evrópu líkt og aðrar UEFA þjálfaragráður.
Námskeiðið í heild kostar 150.000 kr.
MBL segir frá því í dag að Jón Daði Böðvarsson, knattspyrnumaður á Selfossi, fer til Danmerkur síðar í þessari viku og verður þar til reynslu hjá úrvalsdeildarliðinu Silkeborg.
Lesa nánar: Jón Daði til prufu hjá úrvalsdeildarliðinu Silkeborg
Haustfundur Glímuráðs HSK á morgun
Nú er glímutímabilið að rúlla af stað og ekki seinna vænna en að glímufólk á HSK svæðinu fari að hittast og ræða hvernig skuli hátta málum í vetur og taka í belti.
Af því tilefni boðar stjórn Glímuráðs til Haustfunds og glímuæfingar í Félagslund á morgun, fimmtudagskvöldið 27. september kl. 19:30. Kvöldið hefst á æfingu fyrir þá stefna á þátttöku í fullorðinsflokki í vetur.
Þegar nóg hefur verið glímt verður rætt um vetrarstarfið. Þar ber helst að nefna: Meistarmót Íslands 1. umferð, meistarmót og sveitaglíma 15 ára og yngri á Reyðarfirði 27. október, dagsetningar á mótum Glímuráðsins, Fjórðungsglímu, Grunnskólamóti og Skjaldarglímu, EM í keltneskum fangbrögðum 24.-28. apríl í Reykjavík, Landsmót UMFÍ á Selfossi 4.-7. júlí 2012 og samæfingar.
Umsóknarfrestur fram á mánudag:
Þrír sjóðir auglýsa eftir umsóknum
Þrír sjóðir sem allir veita styrki til íþrótta- og æskulýðsverkefna hafa auglýst eftir umsóknum og er umsóknarfrestur til mánudagsins 1. október nk.
Sjóðirnir sem um ræðir eru Íþróttasjóður ríkisins, Fræðslu- og verkefnasjóður Ungmennafélags Íslands og Verkefnasjóður HSK.
Íþróttasjóður starfar samkvæmt íþróttalögum nr. 64/1998, sbr. reglugerð nr. 803/2008. Eyðublöð má finna á https://minarsidur.stjr.is. Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins. Nánari upplýsingar veitir Valgerður Þórunn Bjarnadóttir í síma 545 9500.
Umsóknum í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ skal skilað rafrænt á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem er að finna á heimasíðu UMFÍ, www.umfi.is, undir styrkir. Nánari upplýsingar á þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar um Verkefnasjóð HSK má sjá á www.hsk.is Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu HSK í síma 482 1189 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Forystufólk aðildarfélaga HSK er hvatt til að sækja um styrki úr sjóðunum og rétt að geta þess að þeir einir fá styrki sem sækja um.
Lokahóf frjálsíþróttafólks HSK 2012:
Fjóla og Kristinn frjálsíþrótta kona og karl ársins
Frjálsíþróttafólk á HSK svæðinu hélt sitt árlega lokahóf í Tíbrá á Selfossi laugardagskvöldið 22. september sl. Þar sem keppnistímabilið 2012 var gert upp í máli, myndum, viðurkenningum, hlátrasköllum og hitaeiningum. Um 30 manns mættu á lokahófið. Margt var á dagsrká bæði gaman og alvara. Byrjað var á að horfa á vídeómyndbönd sem félagar í hópnum höfðu útbúið svona til að fá húmorinn og andan í gang. Því næsta var annáll ársins fluttur þar sem verkefnisstjóri frjálsíþróttaráðs HSK fór yfir viðburðaríkt ár. Kom í ljós að sett höfðu verið 96 HSK met utanhúss á árinu og 17 met innanhúss eða alls 113 HSK met miðað við 104 í fyrra, af keppendum HSK. Íslandsmetin urðu 17 talsins og var Styrmir Dan Steinunnarson, Þór, í Þorlákshöfn 13 ára með flest met eða 7, í langstökki, hástökki, spjótkasti, kringlukasti og 300 m. grindahlaupi, allt í hans flokki. Guðbjörg Hulda Sigurjónsdóttir, Suðra, setti 5 met, í spjótkasti, kringlukasti og kúluvarpi. Halla María Magnúsdóttir, Selfoss, 13 ára setti 4 met, í spjótkasti og kúluvarpi í sínum flokki og Sigþór Helgason, Selfoss, 15 ára með 1 þegar hann kastaði rúma 56 metra með karlaspjótinu á Vormóti HSK sem er met í hans flokki. Íslandsmeistara-bikar-og landmótsmeistaratitlar urðu um 90 talsins, silfurverðlaun á sömu mótum voru rúmlega 60 og bronsverðlaun rúmlega 50. HSK liðin í öllum aldurflokkum tóku yfirleitt þriðja sætið í heildarstigakeppnum þessara móta nema í bikarkeppnunum þá varð HSK í 4. sæti í bæði eldri og yngri flokki. Önnur mót voru fjölmörg á árinu svo sem eins og öll vormótin, mótaraðamót FRÍ, Gautaborgarleikarnir, Goggi Galvaski, Gaflarinn, ýmis bætingamót erlendis sem okkar besta fólk fór á ásamt smærri bætingamótum. Keppendur HSK stóðu sig á heildina litið frábærlega á þessum mótum þar sem fullt af persónulegum bætingum, HSK metum og Íslandsmetum voru sett. Þess má geta að Hreinn Heiðar Jóhannsson, Laugdælum, sigraði í stökkflokki í Mótaröð FRÍ sl. sumar, sem samanstóð af 6 mótum.
Nokkrar viðurkenningar voru veittar. Fyrst skal telja viðurkenningu fyrir bestu mætingu á samæfingar HSK í yngri og eldri flokki. Í yngri flokki voru það Styrmir Dan Steinunnarson, Þór, og Harpa Svansdóttir, Selfossi, sem mættu á best eða á þær allar en þær voru 10 talsins. Í eldri flokki voru það Baldvin Ari Eiríksson og Ágústa Tryggvadóttir bæði frá Selfossi sem mættu best eða á 6 af 8 æfingum. Hápunkturinn var svo útnefning á frjálsíþróttakarli og konu ársins að mati þjálfara. Frjálsíþróttakarl ársins var valinn Kristinn Þór Kristinsson, Samhygð. Kristinn var ósigrandi í sinni aðalgrein 800 m. sl. sumar, hann varð Íslands- og bikarmeistari með miklum yfirburðum ásamt því að verða bikarmeistari í 1500 m. hlaupi einnig. Kristinn fór erlendis í ágúst og keppti þar á tveim sterkum mótum í 800 m. hlaupi og rauf í fysta sinn 1:54 mín. múrinn er hann hljóp á 1:53,77 mín. Þá bætti Kristinn sinn persónulega árangur í 400 m. hlaupi á árinu er hann hljóp á 50,76 sek. en hann átti áður 51,22 sek. Það má því með sanni segja að Kristinn Þór sé millivegalengdakóngur ársins 2012.
Það þarf engum að koma á óvart að Fjóla Signý Hannesdóttir, Selfossi, var valin frjálsíþróttakona ársins 2012. Fjóla hefur verið í frábæru formi á árinu og óx með hverjum deginum. Hún varð Íslandsmeistari í bæði 100 og 400 metra grindahlaupum auk þess að verða Íslandsmeistari í hástökki innan og utanhúss sem og bikarmeistari innahúss. Það má því með sanni segja að Fjóla sé grindahlaupsdrottning Íslands árið 2012. Fjóla vann svo til fjölda gull, silfur og bronsverðlauna á mótum sumarsins. Fjóla kom sérstaklega sterk inn seinnihluta sumars og skal minnst á HSK met hennar í 200 m. hlaupi en þar bætti hún áratugagamalt met Unnar Stefánsdóttur, Samhygð, er hún hljóp á 25,54 sek. sem hún bætti svo í byrjun sept. er hún hljóp á 25,51 sek. á Sænska meistaramótinu í sjöþraut. En á því móti bætti Fjóla sig um tæplega 400 stig í þrautinni er hún náði 5041 stigi sem er 9. besti árangur Íslendings í greininni frá upphafi. Til viðbótar þessu þá setti Fjóla 5 HSK met. Fjóla og Kristinn eru þungavigtarfólk í HSK liðinu. Við óskum þeim til hamingju með útnefninguna.
Eins og áður segir voru sett 113 HSK met árinu sem er HSK met. Flest met setti Halla María Mangúsdóttir, Selfoss, 13 ára eða 34 met, næstflest met setti svo Styrmir Dan Steinunnarson, Þór, eða 19. Mikill einhugur var um að æfa vel í vetur og stefna á góða hluti á Landsmóti á Selfossi 2013. Að endingu voru veittar viðurkenningar á gamansömu nótunum og bar þar einna hæst þegar Dagur Fannar Mangússon fékk viðurkenningu fyrir að keppa í stangarstökki árinu
Ólafur Guðmundsson.
Fréttapunktar:
Grunnskólamót HSK í frjálsíþróttum á morgun
Grunnskólamót HSK í frjálsíþróttum verður haldið á Laugarvatni á morgun fimmtudag og hefst kl. 11.00. Mótið er haldið af 1. árs nemendum við íþróttafræði í HÍ og er þetta í fyrsta sinn sem mótið er haldið með þessu sniði. Mótið er tilraun til nýrrar útgáfu af Skólahlaupi HSK sem margir skólar tóku þátt í hér áður en hefur því miður ekki verið haldið í nokkur ár. Um 200 grunnskólanemendur eru skráðir til leiks og keppt verður í 60 metra hlaupi, langstökki og spjótkasti í 5. – 10. bekk.
Uppskeruhátíð KFR 2012
Uppskeruhátíð yngri flokka KFR (3.-7. flokks) verður haldin í Hvolnum á morgun, fimmtudag og hefst kl. 17:00. Iðkendur og foreldrar eru hvattir til að mæta. Á boðstólnum verða pizzur og gos fyrir krakkana og kaffi og kökur fyrir foreldra.
Hraðmót HSK í blaki karla
Hraðmót HSK í blaki karla verður haldið á Laugarvatni miðvikudaginn 3. október nk. og hefst kl. 18:00. Skráningar eiga að berast á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 1. október.
Hraðmót HSK í blaki kvenna
Hraðmót HSK í blaki kvenna verður haldið á Hvolsvelli mánudaginn 15. október nk. og hefst kl. 17:30. Húsið opnar kl. 17:00. Skráningar eiga að berast á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 10. október.
Langar þig að prófa eitthvað nýtt og skemmtilegt?
Helgina 5.-7. október ætlar ungmennaráð UMFÍ og 0% að hittast og eyða saman helginni á Laugum í Sælingsdal. Öll ungmenni á aldrinum 16-30 ára sem vilja hittast og skemmta sér án vímuefna eru velkomin.
Til að kynna sér málin frekar og/eða skrá sig er hægt að hafa samband við: Sigríði í síma: 866-2961, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Einar í síma: 697-4810, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Taka þarf fram: fullt nafn, aldur, símanúmer og netfang. Fæði, gisting og uppihald er þér að kostnaðarlausu!
Ráðstefnan Ungt fólk 1992 – 2012
Ráðstefna um æskulýðsrannsóknir í 20 ár verður haldin fimmtudaginn 4. október 2012, Háskólanum í Reykjavík, í stofu V-102 kl. 08:30 til 15:30. Á ráðstefnunni fjallar hópur alþjóðlegra vísindamanna um hagnýtt og vísindalegt gildi æskulýðsrannsóknanna Ungt fólk 1992 til 2012 á Íslandi og skrif sín úr þeim gögnum hjá Rannsóknum og greiningu. Fjallað verður um mikilvægi rannsókna á högum og líðan barna og ungmenna, samspil rannsókna, stefnumótunar og þróunarstarfs og mikilvægi þess að tryggja að niðurstöður komist til fagfólks á vettvangi, almennings og stjórnvalda. Á ráðstefnunni verða fluttir fimmtán mínútna fyrirlestrar, fimmtán talsins. Ráðstefnan hefst kl 08:30 og gert er ráð fyrir að henni ljúki eigi síðar en kl 15:30Ekkert þátttökugjald er á ráðstefnuna en væntanlegir þátttakendur eru beðnir að skrá sig fyrir 30. september með því að senda tölvupóst með nafni sínu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Í hádeginu í dag var undirritaður þriggja ára samningu á milli knattspyrnudeildar Umf.Selfoss og Gunnars Borgþórssonar um þjálfun meistaraflokks kvenna, ásamt því sem hann verður yfirþjálfari yngriflokka deildarinnar.
Lesa nánar: Gunnar Borgþórsson tekinn við kvennaliði Selfoss í knattspyrnu
Sænska meistaramótið í sjöþraut:
Fjóla Signý önnur á persónulegu meti og setti eitt HSK met
Fjóla Signý Hannesdóttir stóð sig frábærlega á sænska meistaramótinu í sjöþraut sem fram fór um helgina í Huddinge skammt frá Stokkhólmi.
Fjóla Signý var með forystu eftir fyrri dag með 3.065 stig. Hún endaði í öðru sæti með 5.041 stig í þrautinni og rauf þar með 5.000 stiga múrinn, en hún átti best 4.689 stig. Árangur hennar er 9. besta afrekið í sjöþraut kvenna hér á landi frá upphafi.
Árangur Fjólu í einstökum greinum varð sem hér segir: 100 m gr. 14,61 sek. (894 stig), hástökk 1,69 m (842), kúluvarp 9,36 m (488) og 200 m hlaup 25,51 sek (841),
Árangur hennar seinni daginn: langstökk 5,62 m (735), spjótkast 23,90 m (362) og 2:16,00 mín. í 800 m hlaupi (879). Samtals gefur þetta henni 1976 stig seinni dag keppninnar.
Fjóla bætti sinn persónulega árangur í fjórum greinum af sjö. Í 200 metra hlaupi bætti hún sig um 0,03 sek og bætti þar með eigið HSK met, sem hún setti fyrr í sumar. Hún bætti sig um einn sentimetra í hástökki og um 11 sentimetra í langstökki. Í 800 metra hlaupinu stórbætti hún sinn fyrri árangur, eða um rúmar 6 sekúndur, átti áður 2;22,32 sek. frá því í fyrra. Árangur hennar er næstbesti tími ársins. Aðeins Aníta Hinriksdóttir Íslandsmethafi hefur hlaupið hraðar.
Þess má geta að einungis sænskir ríkisborgarar geta unnið til verðlauna á sænska meistaramótinu.
Kastþraut Óla Guðmunds 2012 Selfossvelli:
Tvö Íslandsmet sett á mótinu
Hin árlega Kastþraut Óla Guðmunds. (Ólafs Guðmundssonar) var haldin 6. september s.l. á Selfossvelli við ágætar aðstæður. Keppnisgreinar Kastþrautarinnar eru í þessari röð: sleggjukast, kringlukast, kúluvarp, spjótkast og lóðkast.
Megin tilgangur þrautarinnar er að enda keppnistímabilið með stæl þar sem húmorinn og keppnisgleðin er allsráðandi. Þrautin er öllum opin og eru þátttakendur úr öllum geirum frjálsíþrótta, allt frá kösturum til langhlaupara. Keppt er í karla- og kvennaflokki. Þar sem þrautin var mynduð af RÚV í fyrra þá var erfitt að toppa það í ár en kastþrautin hefur engu að síður fest sig rækilega í sessi sem sést á því að met þátttaka var í henni að þessu sinni eða átján keppendur samtals frá sjö félögum, tólf karlar og átta konur. Mest hefur fjöldinn áður verið ellefu hjá körlunum en fjórir í kvennaflokknum.
Mikil og góð stemning og léttleiki einkenndi þessa kastþraut. Í karlakeppninni stóð keppnin um fyrsta sætið milli Hilmars Arnar Jónssonar ÍR sem einungis er 16 ára gamall, Arnar Davíðssonar FH og Sindra Lárussonar ÍR. Fór það svo að Hilmar Örn sigraði með 3514 stig, sem er sex stigum meira en sigurvegarinn í fyrra, Jón Bjarni Bragason náði en hann gat ekki verið með í ár sökum meiðsla. Þess má geta að Hilmar setti Íslandsmet í 15 kg. lóðkasti í 16-17 ára flokki er hann kastaði 15,25m. Annar varð Selfyssingurinn Örn Davíðsson sem keppir fyrir FH með 3487 stig, sem er bæting hjá honum og bronsið hreppti ungur og efnilegur ÍR ingur, Sindri Lárusson með 3309 stig, en Sindri setti Íslandsmet í 18-19 ára flokki í kúluvarpi þegar hann þeytti kúlunnu 16,27m. og sló þar með 33 ára gamalt met Selfyssingsins Óskars Reykdalssonar. Aðrir keppendur voru gestgjafinn Ólafur Guðmundsson sem varð fjórði, Ingólfur Guðjónsson, ÍR í fimmta sæti, Magnús Björnsson, Breiðabliki sjötti, Sölvi Guðmundsson, Breiðabliki sjöundi, Dagur Fannar Magnússon, Selfossi, áttundi, Ingi Rúnar Kristinsson Breiðabliki, níundi, Guðmundur Nikulásson Dímon, tíundi, Styrmir Dan Steinunnarson Þór, ellefti og Barði Páll Böðvarsson Selfossi, tólfti. Þess má til gamans geta að stigamet karla í kastþrautinni er 3.727 stig sem er í eigu Óðins Björns Þorsteinssonar Ólympíufara úr FH.
Hjá kvenfólkinu varði Anna Pálsdóttir frá Selfossi, sigurvegari þriggja síðustu ára, titilinn með 2.789 stig sem er bæting um 109 stig en fékk góða keppni frá Ágústu Tryggvadóttur, Selfossi, sem rakaði saman 2.330 stigum, Eyrúnu Höllu Haraldsdóttur, Selfossi sem fékk 22.91 stig og Jóhönnu Herdísi Sævarsdóttur Laugdælum sem náði 2197. Í fimmta sæti varð svo Bryndís Eva Óskarsdóttir Selfossi, Thelma Björk Einarsdóttir, Selfossi, sjötta, Halla María Magnúsdóttir, Selfossi, sjöunda og Aðalheiður María Vigfúsdóttir, Breiðablik, áttunda. Starfsmenn mótsins voru Guðmundur Kr. Jónsson, Ingvar Garðarsson, Steinunn E. Þorsteinsdóttir, Markús Ívarsson, Rúnar Hjálmarsson og Guðrún Heiða Bjarnadóttir.
Styrktaraðilar mótsins eru Bros-gjafaver Rvk. og hjónin Guðmundur Kristinn Jónsson og Lára Ólafsdóttir. Er þessum aðilum öllum þakkað kærlega fyrir stuðninginn.
Ólafur Guðmundsson mótshaldari
Grunnskólamót HSK í frjálsíþróttum framundan
Grunnskólamót HSK í frjálsíþróttum verður haldið á Laugarvatni fimmtudaginn 27. september n.k. Áætlað er að mótið hefjist kl. 11.00.
Mótið er haldið af 1. árs nemendum við íþróttafræði í HÍ og er þetta í fyrsta sinn sem ótið er haldið með þessu sniði. Mótið er tilraun til nýrrar útgáfu af Skólahlaupi HSK sem margir skólar tóku þátt í hér áður en hefur því miður ekki verið haldið í nokkur ár.
Mótið er utanhússmót og verður haldið á frjálsíþróttavellinum á Laugarvatni. Áætlað er að nemendur í 5. og 6. bekk keppi saman, 7. og 8. bekk keppi saman og að lokum 9. og 10. bekkur saman. Greinarnar verða þrjár – 60m hlaup, langstökk og spjótkast, (og mögulega boðhlaup í lokin úr blönduðum liðum keppenda) Fyrirkomulagið er þannig að sá sem skráir sig til leiks verður að taka þátt í öllum þremur greinunum.
Skráningar eiga að berast á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. í síðasta lagi fimmtudaginn 20. september og eftir þann tíma verður gefinn út tímaseðill. Til að byrja með verða engar takmarkanir á skráningum frá hverjum skóla, hins vegar, ef skráningar fara fram úr björtustu vonum áskilja mótshaldarar sér rétt til þess að takmarka þann fjölda keppanda sem hver skóli sendir.
Nánari upplýsingar um grunnskólamótið veitir Gunnhildur Hiriksdóttir kennari á Laugarvatni í símum 525-5313 / 694-5244 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Sumarsýningin Sunnlendingar á Ólypmpíuleikum
Nú fer að líða að lokum sýningarinnar Sunnlendingar á Ólympíuleikum sem sett var upp í Húsinu á Eyrarbakka. Þar er greint með fróðlegum hætti frá þátttöku Sunnlendinga á þessum stærsta íþróttaviðburði heimsins í gegnum tíðina.
Sýningin var opin almenningi til 16. september, en hún verður opin fyrir hópa til 14. október og skal þá hafa sambandið við safnið í síma 483 1082.
Sýningin er samstarfsverkefni Byggðasafns Árnesinga og Héraðssambandsins Skarphéðins í tilefni 100 ára afmælis Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Styrkir úr fræðslu- og verkefnasjóði UMFÍ
Umsóknarfrestur til að sækja um styrki úr Fræðslu- og verkefnasjóði Ungmennafélags Íslands er til 1. október. Umsóknum skal skilað rafrænt á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem er að finna á heimasíðu UMFÍ, www.umfi.is, undir styrkir fyrir 1. október.
Sjóðurinn veitir m.a. styrki til félags- og íþróttastarfs ungmennafélagshreyfingarinnar með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi.
Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afl a sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem gæti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum. Sjóðsstjórn er heimilt að veita styrki úr sjóðnum að eigin frumkvæði til verkefna sem ekki teljast til árlega verkefna hreyfingarinnar.
Nánari upplýsingar eru gefnar á þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929.
Fréttapunktar:
Lokahóf hjá frjálsíþróttafólki á HSK svæðinu
Lokahóf hjá frjálsíþróttafólki á HSK svæðinu verður haldið laugardagskvöldið 22. september kl. 20:00 í Tíbrá á íþróttavellinum á Selfossi. Allir fæddir 1999 og fyrr eru hvattir til að mæta, sýna sig og sjá aðra og skemmta sér eina kvöldstund saman þar sem farið verður yfir nýliðið keppnistímabil í máli, myndum og tónlist. Og hver veit nema skemmtinefndin góða sem var kosin í sumar fyrir skemmtikvöldið eina og sanna rísi úr rekkju og komi með nokkur góð skemmtiatriði. Það sem hópurinn er samhentur og samstíga þá ætla allir að koma með eitthvað á matarhlaðborðið eins ávallt hefur verið á lokahófinu.
Hraðmót HSK í blaki karla
Hraðmót HSK í blaki karla verður haldið á Laugarvatni þann 3. október nk. og hefst kl. 18:00. Skráningar eiga að berast á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 1. október.
Fundur um rafmagnstímatöku á frjálsíþróttamótum
Á þingi FRÍ í mars sl. var samþykkt ályktun um stofnun sérstakrar nefndar um málaefni er varðar rafmagnstímatöku á frjálsíþróttamótum. Boðað er til fundar um málefnið laugardaginn 22. sept. nk. Fundurinn hefst kl. 13 og áætlað er að honum verði lokið fyrir kl. 16. Fundurinn verður í sal C á 3. hæð í Íþróttamiðstöð ÍSÍ.
Að því frátöldu, að koma þessari nefnd á laggirnar, er ætlunin að ræða almennt um nauðsynlegan tækjabúnað og mögulegar úrbætur við búnað á frjálsíþróttamótum, bæði minni sem og stærri mót s.s. meistaramótin, bikarkeppni bæði inni og úti, mótaröðina og alþjóðleg mót t.d. RIG. Sú hugmynd hefur kvikað hvort grundvöllur sé fyrir að FRÍ hafi forgöngu að sveitarfélög og FRÍ (með stuðningi fyrirtækja o.fl.) kaupi búnað sem gæti gengið á milli viðameiri mótanna a.m.k. Þá væri hann fullkomnari t.d. með þjófstartsbúnaði, mögulega rafrænni fjarlægðarmælingum o.fl. Hugmyndin er m.a. að kynna þessa hugmynd nánar á fundinum.
Sambandsaðilar, sem ekki hafa gert það nú þegar, eru vinsamlegast beðnir um að kynna þetta fundarboð meðal áhugsamra einstaklinga innan sinna raða, því mikilvægt er að okkar hæfasta folk á þessu sviði taki þátt í þessari umræðu.
Óskað er eftir fulltrúum félaganna til að ræða ofangreind mál. Þó mæting sé að sjálfsögðu frjáls væri gott vegna undirbúnings fyrir fundinn að hafa upplýsingar um fjölda þeirra sem hafa hug á að mæta.
KSÍ I þjálfaranámskeið í október
Knattspyrnusamband Íslands mun halda þrjú KSÍ I þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu í október, tvö helgina 5.-7. október og eitt helgina 12.-14. október. Stefnt er að því að hafa að hámarki 35 þátttakendur á hverju námskeiði sem þýðir 70 laus pláss helgina 5.-7. október og 35 laus pláss helgina 12.-14. október. Áhugasamir eru því hvattir til að skrá sig tímanlega. Námskeiðsgjald er kr. 15.000. Námskeiðið er opið öllum og skráning er hafin. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og með því að hringja í síma 510-2977. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja skráningu: Nafn, kennitala, félag, símanúmer og tölvupóstfang.
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL



Sérgreinastjórar á 27. Landsmóti UMFÍ sem haldið verður á Selfossi 4.-7. júlí nk. komu saman til fundar í Selinu á miðvikudaginn í síðustu viku.
Helgina 10.-12.maí sl. varð hópur frá Fimleikadeild Umf.Stokkseyrar vormótsmeistarar í hópfimleikum í 3.flokki mix-liða.
Fjóla Signý Hannesdóttir, íþróttamaður Árborgar tók þátt í frjálsíþróttamótinu Raka Spåret i Stokkhólm um helgina. Íslensku keppendurnir á mótinu voru auk Fjólu, Hafdís Sigurðardóttir, Trausti Stefánsson og Stefanía Hákonardóttir. 