Sunnudagur, 19. maí, 2013
   
Letur

Enginn misskilningur með Ölfusárbrú

Af ástæðu sem ég fæst ekki um að velta fyrir mér hver er er látið liggja að því í frétt í Dagskránni 16. ágúst í viðtali við Svan Bjarnason umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á Suðurlandi að um misskilning sé að ræða varðar þá ákvörðun Alþingis frá því í júní á þessu sumri að flýtt hafi verið smíði nýrrar Ölfusárbrúar við Selfoss um 3-4 ár. Glaður skal ég taka af öll tvímæli um að enginn einasti misskilningur er hér á ferðinni. Nema að orðalagið 3-4 ár hafi aðra merkingu í Vegagerðinni en annarstaðar.

 

Vitnum beint í frumheimildina til að hafa þetta alveg á hreinu. Í þeim breytingum á samgönguáætlun sem Alþingi gerði í sumar stendur orðrétt í 6. lið upptalningar um þær:  "Meiri hlutinn leggur til að tillögurnar verði samþykktar með breytingum sem gerð er grein fyrir á sérstökum þingskjölum. Helstu breytingar eru eftirfarandi:  6. Lagt er til að flýta framkvæmdum við gerð nýrrar brúar á Ölfusá um 3–4 ár." Var það samþykkt með 43 atkvæðum þingmanna úr öllum flokkum.

Í þetta eitt og ekkert annað var vitnað í fyrri fréttum um málið. Alþingi fer með fjárveitingar- og ákvörðunarvaldið í þessum málum  og engin annar. Það var ákvörðun Alþingis frá því fyrir tæpum tveimur mánuðum að flýta brúnni um 3-4 ár, frá 2018. Ef að hártogunin um túlkun á þessari ákvörðun þingsins snýr að því hvort brúnni verði flýtt um 3 ár eða 4 er það mjög undarleg nálgun á málinu. Það sem smíði hennar var flýtt frá 2018 til 2014 eða 2015. Um 3-4 ár. Hvort árið verður byrjað verður ákveðið á fjárlögum næstu missera. Skýrar getur það ekki verið.

Björgvin G. Sigurðsson, fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis
Frétt Dagskrárinnar og DFS með viðtalinu við Svan, http://www.dfs.is/frettir/2402-engin-ny-bru-yfir-oelfusa-a-naestunni-misskilningur

 



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson