Fréttir
Mættu á rútu í morgunverðin á Sumar á Selfossi
Mættu á rútu í morgunverðin á Sumar á Selfossi
Mikil samheldni er á meðal íbúa í Dranghólum á Selfossi því þeir bættu á rútu í morgunverðinum í miðbæjargarðinum á Sumar á Selfossi þar sem öllum bæjarbúum og gestum þeirra var boðið upp á ókeypis morgunverð í boði fyrirtækja á staðnum. Íbúarnir búa í bleika hverfinu og skreytt götuna sína glæsilega en gatan var valin skemmtilegasta gatan á Sumar á Selfossi síðasta sumar. Nú er spurning hvort gatan heldur titlinum eða hvort verðlaunin fara eitthvað annað. Margir hafa spáð Lyngheiðinni sigri en sú gata er glæsilega skreytt með strumpaþema. Gaman er að sjá hvað margir hafa skreytt hjá sér á Selfossi í tilefni helgarinnar þrátt fyrir mikla rigningu og óhagstætt veður fyrir skreytingar.




