Tónleikar - Ómar Diðriks og Sveitasynir
![]()
Ómar Diðriks og Sveitasynir hafa verið iðnir við að spila og kynna diskinn sinn Þá áttu líf sem hefur fengið góða dóma hvarvetna, frammundan eru nokkrir tónleikar á Suðurlandi,
tónlistin hentar öllum aldri og allir eru velkomnir og alltaf ókeypis en 2011 fengu Ómar Diðriks og Sveitasynir styrk frá Menningarráði Suðurlands til að flakka um og kynna tónlist sína.
Næstu tónleikar eru sem hér segir:
Föstudagskvöld 10/8. kl. 19:30 á pallinum á Kaffi Krús á Selfossi.
Laugardaginn 11/8. kl. 16:00 Gamla Borg Þar verða líka Grímsævintýrin að gerast.
Föstudagskvöld 17/8. kl. 19:30 Töðugjöld Rangárþingi ytra á Hólavangi 8. í garðinum hjá Guðna og Ingibjörgu
Laugardag 18/8. kl. 14:00 Lækjarbrekka menningarnótt Reykjavík.
Laugardag 18/8. Kl. 18:00 Café Mezzo menningarnótt Reykjavík.
Laugardag 01/9. kl. 15.00 í Sunnlenska Sveitamarkaðnum á kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli.




