Miðvikudagur, 22. maí, 2013
   
Letur

Skálholtshátíð 19. - 22. júlí 2012

Skálholtshátíð verður haldin 19. - 22. júlí. Í ár verður hún með öðru sniði en áður og nær hún yfir fleiri daga. Verkefni hennar eru fleiri og margvíslegri. Fyrir liggur fjölbreytt dagskrá og er aðgengileg á vef Skálholts: www.skalholt.is.

Sönghópurinn Voces Thules syngur Þorlákstíðir og saltarasöngva frá 17. öld í Skálholtskirkju og messað verður við Þorlákssæti kl. 12 að hádegi á hinni eiginlegu Þorláksmessu að sumri, föstudaginn 20. júlí.

Miðaldadagur fjölskyldunnar á Skálholtshátíð verður laugardaginn 21. júlí.
 Boðið verður upp á stuttar göngur undir leiðsögn kunnáttufólks, m.a. skólagöngu, grasagöngu og fuglagöngu. Farið verður í leiki sem voru vel þekktir s.s. köttur og mús, að stökkva yfir sauðarlegg og boðhlaup. Möguleiki er á að þekktar persónur miðalda skjóti upp kollinum og verður hægt að slást í för með þeim um hin fornu hlöð í Skálholti, íklædd skikkjum eða höfuðbúnaði þess tíma.

Markaðstorg með lífrænum afurðum og fjölbreyttu úrvali verður alla helgina og einnig verður hægt að kaupa veitingar s.s. máltíð skólasveina, kaffihlaðborð biskupsfrúarinnar og miðaldamjöð.

Á sunnudag, 22. júlí verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00 í Skálholtskirkju, messukaffi og dagskrá kl. 16.15.

Verið velkomin í Skálholt á Skálholtshátíð 2012.

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson