Sunnudagur, 19. maí, 2013
   
Letur

Torfærukeppni í Jósepsdal á laugard

 

Nú gefst landanum loksins tækifæri að kíkja á skemmtilegustu  torfærukeppni sumarsins sem haldin verður á laugardaginn í Jósepsdal kl. 13:00 (á móti Litlu kaffistofunni).   Akstursíþróttafélag Suðurnesja heldur keppnina í samstarfi við Bílar og Hjól.  Í tilefni að 30 ára afmæli félagsins mun helmingur af ágóða keppninnar  renna beint til Umhyggju, styrktarfélag langveikra barna.  Keppendur og mótshaldarar skora á sem flesta að kíkja á keppnina  og styðja verðugt málefni og fá góða skemmtun í leiðinni.  Þetta er síðasta keppni sumarsins á suðvesturhorninu og því tilvalið að bera tryllitækin augum. Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri en aðgangseyrir er 1500 kr. fyrir fullorðna.

Nánari upplýsingar um keppnina má finna á http://aifs.is/frettir/245-torfaera-a-laugardag



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson