Mánudagur, 20. maí, 2013
   
Letur

Úr dagbók lögreglunnar

Föstudag og sunnudag var farið í eftirlit um láglendi og hálendi í þyrlu Landhegisgæslunnar.  Mikil umferð var á svæðinu sem gekk mjög vel.  Afskipti voru höfð af nokkrum ökumönnum þar sem ástand þeirra var kannað.  Allir reyndust í lagi utan einn sem í mældist lítið eitt af áfengi í blóði.  Einn var kærður fyrir hraðakstur.  Þyrlueftirlit er mjög mikilvæg forvörn.  Með lögreglu og Landhelgisgæslu hefur þróast gott verklag við eftirlitið og samstarf við Gæsluna frábært.

Eins og þegar hefur komið fram í fjölmiðlum lést þýskur ferðamaður, fæddur 1957, í sundlauginni í Þjórsárdal uppúr hádegi á laugardag.  Maðurinn var einn á ferð.  Hann var nýkominn á laugarsvæðið og var að stíga ofan í laugina þegar hann virtist missa mátt og falla í vatnið.  Honum var komið strax til hjálpar upp á laugarbakkann þar sem þegar voru hafnar lífgunartilraunir sem ekki báru árangur.  Svo vildi til að hópur lækna voru á göngu skammt frá sundlauginni þegar óhappið varð og komu til aðstoðar.  Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til aðstoðar en var snúið frá eftir að maðurinn var  úrskurðaður látinn.   Farið hefur verið fram á réttarlæknisfræðilega krufningu til finna út dánarorsökina.

Bifreið fór útaf Suðurlandsvegi í Hveradölum skömmu fyrir klukka átta á föstudagsmorgun.  Bifreiðin fór nokkrar veltur.  Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni.  Hann hlaut skurðsár á höfði og var fluttur með sjúkrabifreið á Slysadeild Landspítala þar sem gert var að sárum hans.  Bifreiðin er ónýt.  Grunur er um að maðurinn hafi sofnað undir stýri.

Síðdegis á föstudag varð harður árekstur á Suðurlandsvegi vestan við hringtorgið hjá Hveragerði. Bifreið var snögghemlað með þeim afleiðingum að ökumaður bifreiðar fyrir aftan náði ekki að stöðva bifreið sína sem skall aftan á hinni af miklum afli.  Engin slys urðu á fólki en bifreiðarnar voru óökufærar eftir.

Í síðustu viku barst lögrelgu tilkynning um þjófnað á vélsleða á Selfossi.  Málið upplýstist nokkrum dögum síðar er í ljós kom að um hrekkjabragð félaga eigandans var að ræða.  Þeim sem hafa slík hrekkjabrögð í huga ættu að hafa í huga að gera þau með þeim hætti að það hafi ekki áhrif á störf og verkefni lögreglu sem í þessu tilviki lagði tíma í rannsókn vegna hvarfsins.

Tilkynnt var um innbrot og eignaspjöll í tvo sumarbústaði.  Engur var stolið en talsvert tjón unnið á húsum og búnaði.  Annar bústaðurinn er við Laugarvatn en hinn í Úthlíð.  Innbrotin hafa átt sér stað á tímabilinu frá 1. júlí til 12. júlí síðastliðinn.  Málið er óupplýst.

Karl og kona á tvítugsaldri kærðu hvort annað fyrir líkamsárás um helgina.  Tildrög voru með þeim hætti að aðfaranótt sunnudags hafði karlmaðurinn verið að áreita konuna við veitingastað í Þorlákshöfn.  Hann hleypt lofti úr hjólbarða á bifreið konunnar og pissað á bifreiðina.  Konunni varð mjög misboðið og sparkaði í höfuð karlsins sem launaði fyrir með hnefahöggi í andlit konunnar.  Bæði hlutu minni háttar áverka.



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson