Með bros á vör!
![]()
Öflugt starf á sviði íþrótta, – æskulýðs og tómstundamála hefur mikið forvarnargildi það sýnir fjöldinn allur af rannsóknum sem gerðar hafa verið bæði hérlendis og erlendis. Sveitarfélög í samstarfi við íþrótta- og æskulýðshreyfingar landsins reyna eftir fremsta megni að standa vörð um vellíðan og öryggi barna og ungmenna og stuðla þannig að bættri velferð fjölskyldna með því að hafa íþrótta- og tómstundamál ofarlega í forgangsröðinni í þjónustu við íbúa. Markmiðið er að leitist við það að skapa börnum og unglingum aðstöðu og tækifæri til að stunda áhugamál sín í þeirri viðleitni að þau afvegaleiðist síður og ánetjist ekki áfengi- og fíkniefnum.
Eitt af aðalmarkmiðum UMFÍ með starfsemi sinni, er að hlúa vel að ungmennum og aðstoða þau við að finna sér heilbrigð áhugamál og lífsstíl. Allar fjárveitingar til verkefna, hvort sem er á sviði íþrótta, fræðslu, námskeiða eða annarra starfa sem viðkemur börnum og ungmennum er öllum sem starfa innan æskulýðs- og íþróttahreyfingarinnar vel ljóst að er stuðningur við einstaklinga, fjölskyldur þeirra og samfélagið í heild sinni og er mjög mikilvægur. Þrátt fyrir þrengingar í efnahagsmálum okkar undanfarin ár, hefur forysta UMFÍ og Sveitarfélagið Árborg, haldið ótrauð áfram að hlúa að þessum þætti í starfsemi sinni, vitandi um forvarnargildið sem í því felst.
Miklar umræður fóru fram innan UMFÍ fyrir tuttugu árum síðan um hvernig hægt væri að efla enn frekar forvarnarstarf barna og ungmenna innan hreyfingarinnar og töldu margir fulla þörf á að gefa þessum þætti í starfseminni meiri gaum. Á þessum tíma hafði víða um land átt sér stað mikil uppbygging mannvirkja til íþróttaiðkunnar sem mikill sómi var af og því snerust umræður um hvort ekki væri hægt að nýta uppbygginguna enn frekar í þágu barna og ungmenna.
Eftir miklar og góðar umræður kom fram sú snilldarhugmynd að halda Unglingalandsmót UMFÍ og var fyrsta Unglingalandsmótið haldið á Dalvík árið 1992. Unglingalandsmótið sem haldið var í Vesturbyggð/Tálknafirði árið 2000 markaði þáttaskil í sögu mótanna en það var haldið um verslunarmannahelgina í fyrsta skipti og þótti það umdeild ákvörðun á þeim tíma. Með því að halda mótið um verslunarmannahelgina vildi ungmennafélagshreyfingin sýna fram á að hægt væri að halda vímuefnalaust mót um þessa mestu ferða og djammhelgi Íslendinga. Í reynd var hreyfingin að segja „sukkinu og svínaríinu“ stríð á hendur og í dag getum við sagt að sú tilraun hafi heppnast fullkomlega. Þegar mótið var haldið var á Ísafirði 2003 var ákveðið að hækka aldursmark mótsins upp í 18 ár í stað 16 ár áður. Síðar það haust var ákveðið á ársþingi UMFÍ með miklum meirihluta atkvæða að halda mótið árlega, um verslunarmannahelgina.
Margir þátttakenda Unglingalandsmóta UMFÍ á liðnum árum hafa haft á orði, að þau séu skynsamlegasta og skemmtilegasta íþrótta- og fjölskylduhátíðin sem hægt er að sækja heim um verslunarmannahelgina og mótin séu ein af stærstu rósunum í hnappagat UMFÍ. Það eitt að geta boðið upp á mót á borð við Unglingalandsmótið er í raun frábært og sú staðreynd að tekist hefur frá upphafi að halda áfengi- og vímuefnum frá mótunum er ekki sjálfgefið en ánægjuleg niðurstaða.
Mótin draga árlega til sín þúsundir gesta sem skemmta sér saman í heilbrigðu umhverfi, þau hafa stækkað og fjölbreytnin í dagskrá mótanna hefur aukist ár frá ári. Börn og unglingar á aldrinum 11 – 18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum og hefur keppnisgreinum fjölgað mikið milli móta, önnur afþreyging sem er í boði fyrir fólk á öllum aldri hefur einnig stóraukist. En fyrst og síðast þá er en það ávallt gleðin og það að taka þátt á eigin forsendum sem er í fyrirrúmi og skipar fyrsta sætið. Í hugum keppenda er ekki mikið verið að velta því fyrir sér hverjir vinna, ánægjan beinist að því að vera þátttakandi og njóta samverunnar með fjölskyldu og vinum enda mótin kjörin leið til að stuðla að aukinni samveru fjölskyldu og barna í heilbrigðu vímulausu umhverfi.
Mótin hafa slegið í gegn og ákvörðunin um að halda þau á hverju ári var mikið gæfuspor fyrir hreyfinguna, um það eru allir sammála í dag, hvort heldur skipuleggjendur, keppendur, forráðamenn eða aðrir sem að mótunum koma. Unglingalandsmótin hafa svo sannarlega sannað gildi sitt sem glæsilegar fjölskyldu- og íþróttahátíðir þar sem saman koma þúsundir barna og unglinga ásamt fjölskyldum sínum og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá. Í dag eru mótin ekki lengur valkostur í hugum fólks heldur sjálfsagður viðburður sem fjölskyldan fer saman á um hverja verslunarmannahelgi.
Nú er komið að Sunnlendingum að bjóða til Unglingalandsmóts enn á ný og nú á Selfossi. Undirbúningur hefur staðið yfir undanfarin ár í samvinnu UMFÍ, HSK og Árborgar. Bæjaryfirvöld í Árborg hafa staðið af miklum myndarskap og metnaði að því að byggja upp íþróttamannvirki og gistiaðstöðu á Selfossi. Öll íþróttaaðstaða er til fyrirmyndar og það er ljóst að aðstaðan sem keppendum verður boðið uppá er ein sú allra besta á landinu. Unnið hefur verið af fullum krafti við tjaldsvæðið sem er í göngufæri við aðalkeppnissvæðið og þar mun fara vel um keppendur og mótsgesti. En aðstaðan ein og sér er ekki nóg til að halda stærsta íþróttamót landsins sem Unglingalandsmótið óneitanlega er. Til að halda mót af þannig stærðargráðu þarf fjöldann allan af sjálfboðaliðum. Við ætlum að taka á móti þúsundum gesta með bros á vör og því köllum við eftir þínu framlagi kæri íbúi á Suðurlandi og félagi í HSK, sem sjálfboðaliða við mótið. Margar hendur vinna létt verk og saman myndum við sterka heild. Vinnum saman að því að gera Unglingalandsmótið á Selfossi að ógleymanlegu móti. Allt sem þú þarft að gera er að hafa samband við skrifstofu Unglingalandsmótsins sem er staðsett í Selinu, húsnæði HSK.
Framundan er skemmtilegur tími til að njóta alls þess sem verður í boði og hvetjum landsmenn til þess að fjölmenna á mótið þess fullvissar að tekið verður á móti gestum með bros á vör.
Helga G. Guðjónsdóttir formaður UMFÍ
Guðríður Aadnegard formaður HSK



