Mánudagur, 20. maí, 2013
   
Letur

Árborg verður skákborg Íslands - Fischer safn og skáksetur opnað á Selfossi

Í morgun var undirritaður leigusamningur á milli Skákfélags Selfoss og nágrennis og Sigfúsar Kristinssonar, byggingameistara á Selfossi um afnot af efri hæðinni í gamla bankanum á Selfossi við Austurveg 21 fyrri Fischer safn til heiðurs skáksnillingnum Bobby Fischers, sem hvílir í kirkjugarðinum í Laugardælum í grennd við Selfoss. Í húsinu verður einnig aðstaða skákfélagsins og skáksetur. Á safninu verða munir til sýnis úr einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972, eða fyrir 40 árum þegar þeir Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu. "Árborg verður nú skákborg Íslands", sagði Guðni Ágústsson þegar hann ávarpaði gesti við athöfnina um leið og hann lýsti ánægju sinni með framtakið. Gunnar Finnlaugsson, Selfyssingur er aðalhvatamaður safnsins en hann hefur stofnað sjóðinn Fischer Selfoss Foundation (fsf) en tilgangur hans er að safna fé og munum fyrir  safnið á Selfossi.

"40 ár eru  í dag síðan Lothar Schmid þrýsti á klukkuna til marks um upphaf einvígis Boris Spassky og Robert James Fischer.  40 ár síðan Fischer tók eitraða peðið á h2 og tapaði, hvers vegna hann tók bansett peðið veit enginn, hann tapaði skákinni, hann tapaði þeirri næstu líka, en hann vann einvígið með 12,5 vinningum gegn 8,5 vinningum andstæðingsins.  Bobby Fischer var heimsmeistari", sagði Magnús Matthíasson, formaður Skákfélags Selfoss og nágrennis m.a. í ræðu sinni í  morgun.

Magnús Hlynur Hreiðarsson tók meðfylgjandi myndir við undirskriftina og opnun safnsins.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson