Handleggsbrotnaði við að setja garðsláttuvélina sína í gang
23 voru kærðir fyrir að aka of hratt í umdæminu, einn þeirra á 144 km/klst hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst. Sá lauk málinu með greiðslu á 90 þúsund króna sekt á vettvangi. Auk þess fær viðkomandi 3 punkta í ökuferilsskrá.
Umferðaróhapp varð í Hveragerði þann 2. júní s.l. þegar átta ára drengur hjólaði á hlið bifreiðar á Grænumörk. Virðist sem hann hafi lent á afturbretti hennar á nokkurri ferð. Hann var með hjálm á höfði en höggið var það mikið að hjálmurinn brotnaði. Hann var fluttur undir læknishendur en meiðslin eru ekki talin alvarleg. Afturbremsur hjólsins reyndust bilaðar þegar að var gáð.
Annar maður handleggsbrotnaði í Hveragerði. Sá var að reyna að snúa garðsláttuvél sinni í gang með því að snúa hnífnum undir henni með handafli. Vélin fór snarlega í gang og hann of seinn að kippa hendinni að sér.
4 umferðarslys voru tilkynnt til lögreglu í vikunni, öll með minniháttar meiðslum. Í tveimur tilfellum var um að ræða ökumenn bifhjóla sem misstu stjórn á hjólum sínum. Þá varð vinnuslys á sveitabæ í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í gær þegar rúllubaggagreip sem verið var að losa af gálga dráttarvélar valt og spjót hennar rakst í mann sem stóð á því og olli honum töluverðum áverkum. Viðkomandi var fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahús í Reykjavík.
Í vikunni kom í ljós að brotist hefur verið inn í a.m.k. 6 sumarhús í uppsveitum Árnessýslu og á þeim og innanstokksmunum þeirra unnar verulegar skemmdir. Bifreið sem stóð við einn bústaðinn var stöðvuð af lögreglunni í Reykjavík og reyndist s.k. góðkunningi lögreglunnar á henni. Sá hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar fjölda brota. Upplýsingum um þessi mál og mannaferðir sem gætu tengst þeim má koma til lögreglu í síma 480 1010
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar í Árnessýslu fyrir síðustu viku og helgina.




