Sunnudagur, 19. maí, 2013
   
Letur

Vitlaust að gera hjá lögreglunni á Hvolsvelli

Samtals voru 192 mál bókuð hjá lögreglunni á Hvolsvelli í síðustu viku og um helgina. Hér eru þau helstu.

Mikið var að gera í vikunni og þá aðallega vegna útihátíðarinnar á Gaddstaðaflötum. Þar voru á milli 5-6 þúsund manns þegar fjölmennast var og er það nokkuð færra en á sömu hátíði í fyrra.  Lögreglan hafði mikinn viðbúnað allan tíman eða frá fimmtudagskvöldi til sunnudagskvölds.  Fíkniefnamál sem komu upp á hátíðinni urðu 55 samtals.  Fíkniefnahundur var á svæðinu og ásamt öflugum lögreglumönnum.  Sláandi er hvað mikið af fíkniefnum virðist vera í umferð, mikið af ungu fólki að byrja í neyslu fíkniefna og voru margir að fá sitt fyrsta mál á sig.  Hátíðin fór að mestu vel fram og engar alvarlegar líkamsárásir hafa verið kærðar á hátíðinni.  Töluvert var um að lögreglan þyrfti að ganga á milli manna og stilla til friðar.  Má segja að öflug löggæsla og gæsla á svæðinu hafi hjálpað til að koma í veg fyrir að fleiri mál urðu ekki sem varðar líkamsárásir. Skömmu fyrir miðnætti á föstudagskvöldinu varð alvarlegt vinnuslys á Gaddstaðaflötum er starfsmaður var að fylla á kút á paintball byssu.  Sprenging varð og eldur kviknaði.  Maðurinn brenndist illa og var fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahús í Reykjavík þar sem hann er á gjörgæsludeild.  Hann hlaut m.a. áverka í andliti, höndum og á fótum.  Hann mun þó ekki vera talin í lífshættu.   Vinnueftirlitið og rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi fer með rannsókn málsins.  Nauðgun var kærð á aðfaranótt laugardagsins á Gaddstaðaflötum.  Málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi.  Þolandi var fluttur á neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb kynferðisbrota.  Maður var handtekinn vegna þessa og yfirheyrður af lögreglu.  Á hátíðinni var mönnum boðið upp á að koma og blása í öndunarmæli til að kanna með hvort þeir væru hæfir til að hefja akstur og þá aðallega á sunnudeginum er gestir voru að fara af stað heim á leið.  Margir voru það sem nýttu sér ekki þetta og voru stöðvaðir fyrir að aka undir áhrifum áfengis.  Alls voru 17 ökumenn teknir fyrir ölvun við akstur í tengslum við hátíðina.  Þeir mega búast við ökuleyfissviptingu fyrir brot sín.

Í vikunni voru 48 ökumenn stöðvaðir fyrir að aka of hratt í umdæminu en sá sem hraðast fór var mældur á 127 km. hraða.

Nokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt í vikunni en ekkert alvarlegt slys varð í umferðinni þessa vikuna.

Með kærri kveðju,lögreglan á Hvolsvelli, Vík og Kirkjubæjarklaustri

 

 

 

 



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson