Frábær skemmtisigling um Ölfusá - af hverju eru þær ekki leyfðar fyrir ferðamenn?
Björgunarfélag Árborgar stóð fyrir glæsilegri dagskrá í gær á 17. júní á Selfossi í frábæru veðri þar sem þátttakana var mjög góð í viðburðum dagsins. Eitt af þeim atriðum sem slóg í gegn var skemmtisigling um Ölfusá í gærkvöldi. Fjölmenni fór í siglingu en tveir bátar voru notaðir til verksins. Vonandi verður þetta atriði aftur á dagskrá 17. júní 2013. Þá má spyrja sig af hverju eru ekki leyfðar skemmtisiglingar á Ölfusá yfir sumartímann, það gæti orðið gríðarleg upplifun fyrir ferðamenn. "Þetta var meiriháttar og miklu skemmtilegra en ég átti von á. Þetta er í fyrsta skipti eftir tæplega 47 ára búsetu á Selfossi, sem ég fer í siglingu um ánna og vonandi á ég eftir að fara oftar, upplifunin var stórkostleg", sagði Kjartan Björnsson, sem fór í siglingu í gærkvöldi.![]()



