Stórhuga uppbygging á mörgum sviðum
Á fáeinum dögum hafa mörg stórverkefni orðið að veruleika á Suðurland og önnur að fara af staði. Flóran er fjölbreytt og ber vitni um stórhug og framsýn á fjölbreyttum sviðum. Það hefur verið mjög skemmtilegt að skjótast úr þrátefli þingstarfa og taka þátt í þessum atburðum heima í héraði.
Röð atburðanna hófst með opnun á lokaáfanga Þjórsárstofu í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Markmið Þjórárstofu er að miðla fróðleik og upplýsingum um landið og náttúruna, fólkið og söguna og þá þjónustu sem er að finna á Þjórsársvæðinu, með Þjórsá sjálfa sem meginþema. Stofan er mikið tækifæri fyrir sveitarfélagið að byggja upp vinsælan áningastað og þar með að auka hlut þeirrar miklu ferðamannaumferðar sem um Suðurlandið fer í sveitinni. Það er vel að þessu staðið og ástæða til að hvetja fólk til að fara og sjá Þjórsárstofu og þá góðu kvikmynd sem þar rúllar og fylgir Þjórsá frá upptökum niður í sveitina.
Þá var opið fangelsi að Sogni tekið formlega í notkun. Þar með er fest í sessi ríflega 20 fanga rými á svæðinu. Þetta er hrein viðbót við Litla Hraun og rekið samhliða því af Margréti Frímannsdóttur og hennar fólki. Það er gaman að sjá hvernig hefur til tekst að Sogn en á fáeinum vikum frá ákvörðuninni um að færa fangelsið að Sogni var búið að taka staðinn allan í gegn og flytja starfsemina einsog hún lagði sig með mjög góðum árangri.
Sama dag var nýr vegur að flóðgátt flóaáveitunnar formlega vígður af vegamálastjóra, innanríkisráðherra og fleirum undir frábærri yfirlitsræðu Þórs Vigfússonar. Guðni Ágústsson hefur haft forystu um þetta verk og á hann og þeir sem með honum unnu að þessu þakkir skyldar. Það er þakkarvert að greiða leið að því gagnmerka mannvirki sem Flóaáveitan er, enda að sögn fróðra manna annað tveggja mannvirkja sem sjá má frá tunglinu. Hitt er Kínamúrinn.
Nokkru síðar tóku Eldhestar í Ölfusi í notkun nýja og glæsilega reiðhöll á starfssvæði sýnu. Uppgangur og velgengni þessa rótgróna ferðarþjónustufyrirtækis sem gerir út hestaferðir og styttri reiðtúra er glöggur vitnisburður um hvað hægt er að ná góðum árangri á þessu sviði þegar vandað er til verka. Líkt og Hróðmar, Þorsteinn og Sigurjón hafa gert í félagi við sitt fólk. Nú bætast hestasýningar á mörgum tungumálum við starfsemina og eflir á efa enn þetta öfluga fyrirtæki. Þetta var önnur reiðhöllin sem var tekin í notkun á svæðinu en fyrir skömmu vígðu Kjartan Ólafsson formaður Sleipnis og félagar mikla höll á Selfossi.
Í vikulok opnuðu hjónin Knútur og Helena síðan starfsemi sýna á Friðheimum í Reykholti fyrir ferðarmönnum. Þar er um að ræða frumlega og vel framkvæmda ferðaþjónustu þar sem ferðafólki gefst kostur á því að skoða ylrækt og garðyrkju af bestu gerð ásamt hestasýningu. En sunnlenskra verður það varla en að gera út atvinnu-og menningartengda ferðaþjónustu sem grundvallast á garðyrkju og hestamennsku. Opnunin í Friðheimum var eftirminnilegur atburður og vel sóttur enda mikið starf að skila sér í höfn.
Þingmannahópurinn átti síðan góðan fund með þeim Magnúsi Skúlasyni og Óskari Reykdalssyni frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands um stofnunina. Þingmenn lýstu vilja sýnum til að leggjast á árarnar með þeim við að auka opnunartímann á heilsugæslunni í Vík. En hugmyndir um að stytta hann lögðust illa í heimamenn. Auk þess kynntu þeir fyrir okkur þá ánægjulegu ákvörðun þeirra og velferðarráðherra um miklar framkvæmdir um endurbyggingu og betrumbætur við spítalasvið HSu. Þar á að framkvæma fyrir 1,2 milljarða króna og er ætlunin að byrja í október að byggja. Nú er verið að hanna bygginguna. Með því móti batnar aðstaða sjúkrahúshlutans til muna og þá hefur allt húsnæðið verið endurnýjað á nokkrum árum.
Björgvin G. Sigurðsson, 1. þingmaður Suðurkjördæmis




