Hænan Gulla á Ósabakka sem heldur að hún sé andamamma
Hænan Gulla á Ósabakka í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er nú í hlutverki andamömmu eftir að hafa legið á fjórum stokkandareggjum í 12 daga. Forsaga málsins er sú að stokkönd var með hreiður við sumarbústaða Skúla Helgasonar og fjölskyldu í landi Óskabakka. Eina nóttina heyrði Skúli mikil læti úti, hljóp þá út að hreiðrinu við bústaðinn en þá voru tveir hrafnar búnir að fæla öndina af hreiðrinu og voru langt komnir með að éta hana þegar Skúli kom. Lífsmark var með öndinni en Skúli hjó höfuðið af henni til að lina þjáningar hennar. Eftir voru fjögur egg og brá Skúli á það ráð í samráði við krakkana sína að koma eggjunum í hænsnakofann til ömmu Lilju á Ósabakka. Kraftaverk gerðist, 13 dögum síðar komu fjórir andarungar í heiminn, einn drapst strax. Gulla sér nú um ungana allan sólarhringinn og þegar þeir komast út í andarpollinn við hænsnakofann fylgist hún með, hún fer aldrei sjálf í vatnið enda kunna hænur ekki að synda. Á myndinni eru Lilja Guðmundsdóttir á Ósabakka, Birta Skúladóttir og Skúli Darri með andarungana og Skúli með hænuna Gullu.



