Nemendur Menntaskólans að Laugarvatni rændir og ruplaðir
Um síðustu helgi héldu nemendur Menntaskólans að Laugarvatni skólaball í Félagsheimilinu Borg á Grímsnesi. Nokkrir foreldrar nemenda skólans hafa sett sig í samband við DFS í vikunni og kvartað undan því að börn sín hefðu verið rænd og rupluð á ballinu. DFS hafði strax samband við skólayfirvöld Menntaskólans og fékk nú síðdegis upplýsingar um málið, sem má lesa hér að neðan:
„Nemendafélög í framhaldsskólum landsins eiga það sameiginlegt að reyna að gera félagsmönnum sínum sem mest til hæfis þann veturinn sem hver stjórn er við völd. Eitt af stóru málunum er að fá að halda dansleiki í einhverri mynd og í allflestum skólum landsins er það gert. Hér við Menntaskólann að Laugarvatni eru dansleikirnir búnir að vera í mikilli endurskoðun undanfarin ár og búið er að bæði fækka þeim talsvert auk þess sem nemendum er ekki leyft að bjóða til sín gestum nema á eitt ball á ári. Það ball var nú um síðustu helgi, laugardagskvöldið 21.01.2012. Gestir nemenda verða að vera skráðir á sérstakan lista þar sem fram koma nafn og kennitala gestsins hjá viðkomandi nemanda sem ber síðan ábyrgð á honum allan tímann sem viðkomandi er hér gestur samkvæmt heimavistarreglum. Ekki hefur borið á því hingað til að þetta fyrirkomulag hafi gengið annað en vel og án teljandi vandræða sem verður að teljast harla gott miðað við þann fjölda sem stundum hefur komið á staðinn á gestaböll. Á síðasta balli bar svo við að óvandaður einstaklingur eða einstaklingar virðast hafa verið í röðum gesta því nokkuð hefur borið á því að bæði á vistum fyrir ball og einnig á balli hafi horfið bæði símar og myndavélar og jafnvel svo að tekið hafi verið úr töskum sem voru í fathengi. Auk þess hvarf amk. eitt veski og verður að segja að þetta mál setur nokkuð dökkan blett á annars ágæta samkomu sem nemendafélagið Mímir má vera stolt af í alla staði. Ballið var haldið á Borg í Grímsnesi og sá skólinn um að flytja alla á milli í rútum frá GT og gekk það fyrirkomulag afar vel fyrir sig. Allt skipulag og áætlanir sem gerðar voru fyrir kvöldið í heild sinni stóðust. Haft var samband við lögreglu vegna þjófnaðanna og einnig var sendur fjöldapóstur á nemendur til að fá fram nákvæman lista yfir það sem virðist hafa horfið. Eitthvað af því sem átti að hafa verið tekið er komið í leitirnar eins og gengur, hlutirnir eiga það til að vera ekki alveg á sínum stað þegar þeirra er leitað í fyrstu atrennu.
En í framhaldi af þessu verður það skoðað afar vel hvort það muni ganga í framtíðinni að bjóða hingað gestum því þó ekki sé hægt að sanna það á neinn þeirra þá hefur ekki borið á neinu svona í annan tíma hér á heimavistum skólans, íbúar þar bera fullt traust hver til annars“.
Pálmi Hilmarsson, húsbóndi á heimavist Menntaskólans að Laugarvatni




