Sunnudagur, 19. maí, 2013
   
Letur

Skátar í útgáfuham

Það er svo sannarlega nóg um að vera hjá skátum þessa dagana enda fagna þeir 100 ára afmæli skátastarfs á Íslandi með margvíslegum hætti. Hápunktur hátíðarhaldanna var glæsilegt og fjölsótt landsmót sem lauk að Úlfljótsvatni um síðustu helgi en það er fjölmargt framundan eins og fram kemur í spjalli okkar við Guðmund Pálsson, verkefnastjóra skátanna.

„Jú, það er svo sannarlega líf og fjör hjá okkur skátum – við tökum okkur nokkra daga í að ganga frá eftir landsmótið en svo vöðum við í að undirbúa glæsilegt skátasvæði í Hljómskálagarðinum í Reykjavík en þar verður almenningi boðið að spreyta sig á skátastarfi í tengslum við Menningarnótt en það eru þó nokkur verkefni sem standa okkur nær í tíma enda Verslunarmannahelgin framundan og við eigum von á miklum fjölda gesta á tjaldsvæðin okkar að Úlfljótsvatni og að Hömrum við Akureyri“.

Úlfljótsvatn hefur verið miðstöð skáta um áratuga skeið og í tengslum við afmæli skátahreyfingarinnar tóku skátar höndum saman við Landsvirkjun og settu upp glæsilega sýningu í Ljósafossstöð í vor sem ber yfirskriftina „UNDRALAND – minningar frá Úlfljótsvatni“ og er tileinkuð starfi skáta á Úlfljótsvatni frá 1940 til dagsins í dag. Við báðum Guðmund að segja okkur frá þessu verkefni.

„Við höfum ekki tölu á því hve margir Íslendingar hafa dvalið á Úlfljótsvatni í gegnum tíðina, í sumarbúðum, skólabúðum og svo framvegis en það er örugglega meirihluti þjóðarinnar sem hefur komið þar við einhvern tíma á ævinni. Það var því frábært tækifæri að fá að setja upp þessa sýningu í glæsilegum sýningarsölu Ljósafossstöðvar sem er tileinkuð starfinu á Úlfljótsvatni í gegnum tíðina. Aðsóknin hefur verið frábær í sumar og við ætlum að bæta heldur í núna um Verslunarmannahelgina og leggja okkur sérstaklega fram um að taka vel á móti þeim sem sækja okkur heim“.

Á sýningunni er að finna tjaldbúð í fullri stærð, glæsilega ljósmyndasýningu, bíósal þar sem sýndar eru fréttamyndir af ýmsum viðburðum á Úlfljótsvatni og á sýningarsvæðinu er einnig notaleg lesstofa þar sem notalegt er að tylla sér niður og fletta í gömlum skátablöðum og bókum.

Það má með sanni segja að skátar séu einnig í miklum útgáfuham því von er á umfangsmikilli útgáfu sem spannar sögu skátastarfs á Íslandi og í tengslum við sýninguna í Ljósafossstöð var gefin út í síðustu viku bókin „UNDRALAND – fyrstu árin“ og inniheldur fréttir, viðtöl, greinar og ljósmyndir úr starfi skáta á Úlfljótsvatni á tímabilinu 1940-1960.

Spurður um tildrög útgáfunnar um Úlfljótsvatn sagði Guðmundur frá því að við undirbúning sýningarinnar í Ljósafossstöð hafi safnast mikið af áhugaverðu og skemmtilegu efni og ekki reyndist mögulegt að gera því öllu skil á sýningunni sjálfri.

„Það var því ekkert um annað að ræða en að slá í eina bók og við náðum að gefa hana út meðan á landsmótinu okkar stóð. Viðtökur voru frábærar enda margir sem hafa áhuga á að rifja upp og eða kynna sér þessa ævintýralegu sögu“.

Sýningin í Ljósafossstöð er opin alla virka daga frá kl. 10-16 og um Verslunarmannahelgina munu skátar úr sýningarstjórn verða sjálfir á staðnum til að leiða gesti um sýninguna og kynna bókina.

„Til að setja punktinn yfir i-ið hljóma skátasöngvar á sýningunni í flutningi Bræðrabandsins sem gaf núverið út geisladisk sem inniheldur fjölmörg af gömlu góðu skátalögunum“, segir Guðmundur að lokum og hvetur sunnlendinga og ferðafólk til að líta við og upplifa þessa skemmtilegu sýningu.

Sem fyrr segir er sýningin opin alla daga frá kl. 10-17, aðgangur er ókeypis og að sjálfsögðu er heitt á könnunni fyrir alla gesti.

Allar nánari upplýsingar gefur Guðmundur Pálsson sýningarstjóri í síma 696 4063 eða í gegnum netfangið; Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson